Fréttablaðið - 31.10.2001, Side 14

Fréttablaðið - 31.10.2001, Side 14
KNATTSPYRNA Leikir Islands undir stjórna Atla Eðvaldssonar frá 31. janúar 2000 til 6. október 2001 Noregur-fsland 0-0 NM Finnland-ísland 0-1 NM Færeyjar-ísland 2-3 NM Ísland-Malta 5-0 VL Ísland-Svíþjóð 2-1 NM Ísland-Danmörk 1-2 HM Tékkland-fsland 4-0 HM ísland- N-írland 1-0 HM Pólland-ísland 1-0 VL Úrugvæ-fsland 2-1 VL Indland-ísland 0-3 VL Chile-ísland 2-0 VL Búlgaría-fsland 2-1 HM Malta-fsland 1-4 HM fsland-Malta 3-0 HM fsland-Búlagaría 1-1 HM Ísland-Pólland 1-1 VL fsland-Tékkland 3-1 HM N-frland-fsland 3-0 HM Danmörk-ísland 6-0 HM NM: Norðurlandamót HM: Undankeppni Heimsmeistarakeppninnar VL: Vínáttulandsleikur Sigrar: 9 eða 45% Jafntefli: 3 eða 15% Töp: 8 eða 40% 14 a a.\ i.qATT-'í'-' FRÉTTABLAÐIÐ 31. október 2001 MIÐVIKUDAGUR Land sliðsþj álfari: Stefnum alltaf á lokakeppnina knattspyrna Atli Eðvaldsson var í gær endurráðinn þjálfari karla- landsliðsins í knattspyrnu en hann hefur gegnt starfinu undanfarin tvö ár. Hann segist hlakka til að takast á við komandi verkefni og er ánægð- ur með árangurinn til þessa. Næsta stóra verkefni hans er undankeppni Evrópumóts landsliða í Portúgal 2004 og segir landsliðsþjálfarinn lokakeppnina markmiðið. „Við stefndum að því að koma okkur upp í 3. styrkleikaflokk og við höfum náð því markmiði. Nú sjáum við á móti hvaða liðum við lendum og þá spáum við í hvað eru ásættan- leg markmið. Það er alltaf stefnan að reyna við lokakeppnina." Aðspurður um síðastliðin tvö ár segir Atli. „Það er margt sem var gott í þessu til að mynda ungu strák- arnir sem komu inn, þeir voru að blómstra. Þegar við lítum á þessi tvö ár í heild er það gagnrýnin sem var sár. Hápunktarnir eru hinsveg- ar sigurinn á Tékkum og Svíum og að við spiluðum úrslitaleikinn í Norðurlandamótinu. Það voru góðir SAMNINGURINN UNDIRRITAÐUR Eggert Magnússon, formaður KSl og Atli Eðvaldsson undirrita samning til tveggja ára. sigrar en það voru líka stór áföll. Slæma gengið var leikurinn á móti Dönum.“ Atli hefur orðið fyrir mikilli gagnrýni undanfarið, ekki síst eftir tapleikina gegn Dönum og N-írum. Hann segir gagnrýnina hafa átt rétt á sér eftir tapleiki en ekki fyrir. „Auðvitað er gagnrýnin erfið og eftirminnileg. En ef við lítum á þetta í heild þá var umræðan fyrir leikina enn erfiðari og það var nán- ast fyrir hvern einasta leik. Umræð- an eftir tapleikina átti rétt á sér, en ekki fyrir leikina og hún svíður meira.“ ■ knattspyrna í kvöld lýkur fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu með átta leikjum. Spennan er mest í E-riðli, þar sem Celtic, Porto og Rosenborg berjast um að komast upp úr riðlinum með Juventus, sem er með 11 stig í riðlinum og öruggt áfram. Porto er með 7 stig og stendur best að vígi af liðunum þremur. Celtic er með 6 stig og Rosenborg 4. Til þess að Rosenborg komist áfram þarf liðið að sigra Porto með tveimur mörkum og treysta á að Celtic sigri ekki Juventus. 1 F-riðli eru Barcelona og Leverkusen örugg áfram. í G-riðli eru Man. Utd. og Deportivo örugg áfram og sömu sögu má segja um Bayern Miinchen og Sparta Prag í H-riðli. ■ LEIKIR KVÖLPSIHS___________________ Riðill E Celtic - Juventus Porto - Rosenborg Riðill F Barcelona - Fenerbahfe Leverkusen - Lyon Ríðill C Lille - Man. Utd. Olympiakos - Dep. La Coruna Riðili H Feyenoord - Spartak Moskva Sparta Prag - Bayern Miinchen Meistaradeild Evrópu: Rosenborg áenn möguleika LEWIS HAMILTON Er talið eitt helsta efni í kappakstursheim- inum I dag. Hann byrjaði að keyra þegar hann var átta ára og hefur því verið viðrið- inn kappakstur helming ævi sinnar. Arne Árhus, norsk-íslenski Base-stökkvarinn, er að klára masterspróf í sjávarútvegsfræðum. Þrír félagar hans meiddust alvarlega við fallhlífarstökk. Hann segist ætla að finna sér venjulega vinnu, eitthvað sem hann hefur aldrei gert. JAÐARSPORT „Þetta er nú ekki alveg eins spennandi og maður hefði haldið. Þeir eru að éta síld hérna en við erum að reyna að taka myndir af þeim þar sem þeir éta hvíta hákarla," sagði Arne sem hafði nýlokið köfun með háhyrn- ingum, rétt fyrir utan Lofoten í Noregi, þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Háhyrningar geta verið mjög hættulegir og er dæmi um að þeir hafi ráðist saman í hóp á steypireyð, stærsta dýr jarðar. Arne viðurkennir að þetta geti verið hættulegt. „Það lítur samt allt út fyrir að við höfum komist lifandi úr þessu.“ Hann er að ljúka mastersprófi í sjávarútvegsfræðum frá Háskól- anum í Tromsö en lokaverkefni hans fjallar um sölu á fiski í gegn- um internetið. „Ég á eftir að verja ritgerðina en ég þurfti að fresta því þar sem ég er að kafa með háhyrningun- um. Ég er samt alveg búinn, á kannski tveggja til þriggja daga vinnu eftir við prófarkalestur og á síðan eftir að verja ritgerðina. Hún fjallar um sölu á fiski gegn- um Netið án þess að kaupandinn hafi séð vöruna.“ „Ég komst að því að allur fisk- ur verður seldur á Netinu eftir fimm til tíu ár en það eru ákveðin vandamál við kerfið sem þarf að leysa fyrst. Það eru að vísu ein- hverjir búnir að leysa þessi „Félagar mínir meiddust þeg- ar þeir hröp- uðu I fallhlíf- inni. Einn I Bandaríkjun- um, einn á Ítalíu og einn I Noregi. Þeir lifðu þetta af en þeir munu aldrei ná full- um bata." ÆVINTÝRAMAÐURINN ARNE ARHUS Komst að því að allur fiskur verður seldur á Netinu eftir fimm til tíu ár og skrifaði um það mastersritgerð. Hefur haldið áfram að vinna með Steingrími Dúa kvikmyndagerðarmanni og Matthíasi Bjarnasyni kafara við tökur eftir að Adrenalín fór af skjánum. vandamál en kerfin eiga eftir að stökk um árabil en segist ætla að verða miklu betri.“ snúa sér að „venjulegri" vinnu að Arne hefur kennt fallhlífa- námi loknu. „Ég ætla að vinna frá átta til fjögur og það verður mjög spenn- andi þar sem ég hef aldrei unnið slíka vinnu. Yfirleitt ferðast ég meira en fjóra mánuði á ári til að stökkva og vinna, þannig að þetta er spennandi og verður gaman að sjá hvort þetta gangi upp.“ Hann hefur þegar fengið at- vinnutilboð frá tveimur fyrir- tækjum sem selja fisk á Netinu en hann á eftir að kynna sér þau bet- ur. „Það fer að sjálfsögðu eftir hvaða vinnu þeir eru að bjóða mér og hvaða laun eru í boði.“ Hann segir að lítið sé búið að vera í gangi hjá sér í jaðarsport- inu en hefur ferðast víða. „Ég var í Nýja-Sjálandi að klifra, stökkva og fljúga í svif- drekum. En ég verð að viður- kenna að það hefur ekkert sér- stakt verið í gangi.“ Arne segir að á síðustu sex mánuðum hafi þrír félagar hans slasast við fallhlífarstökk. „Félagar mínir meiddust þegar þeir hröpuðu í fallhlífinni. Éinn í Bandaríkjunum, einn á Ítalíu og einn í Noregi. Þeir lifðu þetta af en þeir munu aldrei ná fullum bata.“ Framundan hjá Arne er að fara til Mexíkó og stökkva ofan í helli eða einhverja „holu“ eins og hann orðar það. „Þetta er hola sem liggur 400 metra beint niður í jörðina og við ætlum að stökkva niður hana. Annars er búið að bjóða okkur til Shanghai að stökkva fram af byggingum en við eigum eftir að sjá hvort það verði eitthvað úr því.“ kristjan@frettabladid.is „ Vinna frá átta til fjögur er spennandi kostur<4 Meistaradeild Evrópu: Lazio sent heim Lewis Hamilton: Undrabarn í kappakstri KAPPakstur Michael Schumacher, heimsmeistarinn í Formúlu 1, fer lofsamlegum orðum um, Lewis Hamilton, 16 ára gamlan Breta, sem hefur farið mikinn í kappaksturskeppnum. Þeir óku saman um helgina á móti í Kerpen í Þýskalandi og vakti Hamilton mikla lukku hjá heimsmeistaran- um. „Hann er frábær bílstjóri, mjög sterkur og aðeins sextán ára. Ef hann heldur áfram á þess- ari braut á hann eftir að komast í Formúlu 1. Það er svolítið sér- stakt að sjá strák á þessum aldri á brautinni en hann hefur augljósa aksturseiginleika." ■ knattspyrna Átta leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í gær. Keppt var í riðlum A, B, C og D. Fyrir kvöldið var ljóst hvaða lið komast áfram í 16 liða úrslit úr riðlum A og C en allt gat gerst í riðlum B og D. í A riðli voru Real Madrid og AS Roma komin áfram en í C riðli Panathinaikos og Arsenal. í A riðli átti Lokomotiv Moskva góðan leik á móti Real Madrid, sigraði með tveimur mörkum gegn engu. Roma og Anderlecht skildu hinsvegar jöfn, 1-1. I B riðli þurfti Liverpool jafn- tefli á móti Dortmund til að tryggja sig áfram. Því létti mjög yfir leikmönnum liðsins þegar Vladimir Smicer skoraði á 15. mínútu og Steven Wright gerði út um leikinn fyrir Liverpool á 82. mínútu, 2-0. Þetta var svekkjandi fyrir leikmenn Dortmund, því þó þeir hafi ekki veitt Liverpool mikla mótstöðu sigraði Dynamo Kiev Boavista með einu marki gegn engu. Því hefði jafntefli nægt Dortmund. En Liverpool og Boavista halda áfram. í C riðli tók Schalke svipaðan pól í hæðina og Lokomotiv Moskva, átti góðan leik þrátt fyr- ir að eiga ekki möguleika á áframhaldi. Schalke sigraði Arsenal með þremur mörkum gegn einu. í hinum leik riðilsins ÞETTA VAR GRÓFT Ryszard Wojcik dómari sendir Oleg Luzhny, leikmann Arsenal, beint í sturtu í Arena AufSchalke í gær. Schalke vann leikinn 3-1. sigraði Mallorca Panathinaikos með einu marki gegn engu en kemst ekki áfram vegna óhag- stæðara markahlutfalls en Arsenal. í D riðli hélst spennan allt til leiksloka. Galatasaray vann PSV MEISTARADEILD: ÚRSLIT OG STAÐA A RIÐILL_______ B RIÐILL_______ AS Roma-Anderlecht 1-1 Liverpool-Dortmund 2-0 L Moskva-R. Madrid 2-0 D. Kiev-Boavista 1-0 LIÐ L STIG LIÐ L STIG R. Madrid 6 13 Liverpool 6 12 AS Roma 6 9 Boavista 6 8 L. Moskva 6 7 Dortmund 6 8 Anderlecht 6 3 D. Kiev 6 4 C RIÐILL D RIÐILL Mallorca-Panathinaik.1-0 Schalke-Arsenal 3-1 LIÐ L STIG Panathinaikos 6 12 Arsenal 6 9 Mallorca 6 9 Schalke 6 6 Galatasaray-PSV 2-0 Nantes-Lazio 1-0 LIÐ L STIG Nantes 6 11 Galatasaray 6 10 PSV 6 7 Lazio 6 6 Eindhoven með tveimur mörkum gegn einu. Mörkin voru skoruð á 26. og 50. mínútu. Leikur Nantes og Lazio var hinsvegar jafn lang- leiðina. Á 72. mínútu náði Nantes að skora og skildi þannig Lazio eftir úti í kuldanum með PSV. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.