Fréttablaðið - 31.10.2001, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 31. október 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Norræna húsið:
Flaututónar á hádegistónleikum
tónleikar Berglind María Tómas-
dóttir og Kristjana Helgadóttir
þverflautuleikarar koma fram á
Háskólatónleikum í Norræna hús-
inu í dag kl. 12.30. Þær munu leika
verk eftir Hindemith, Petrassi,
Maderna og Ta'ira á tónleikunum
sem taka um hálfa klukkustund.
Berglind María útskrifaðist með
kennarapróf og burtfarapróf frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík
árið 1998. Hún lauk námi frá Tón-
listarháskólanum í Kaupmanna-
höfn 2001. Kristjana Helgadóttir
lauk kennaraprófi og burtfara-
prófi 1995 og námi frá Sweelinck hafa komið reglulega fram á tón- tvær flautur
tónlistarháskólanum í Amsterdam leikum á íslandi og í Evrópu. Að- Berglind María Tómasdóttir og Kristjana
árið 1998. Berglind og Kristjana gangur er ókeypis. ■ Helgadóttir.
VEITINGAHÚS
Odýr og góður jjölskyldustaður
Tilvera í Hafnarfirði er veit-
ingastaður sem lítið lætur
yfir sér. Þar eru tveir þekktir
staðir s.s. A.Hansen og Fjörukrá-
in. Hins vegar er Tilvera frá-
brugðin að því leyti að þar er
mun ódýrara að borða og hann er
meira í takt við fjölskylduna.
Flestir panta sér mat af seðli
dagsins en þar er að finna fisk-og
kjötrétti jöfnum höndum. Öllum
réttum fylgir foréttur og eftir-
réttur eða kaffi. Tilvera er sniðin
að þörfum þeirra sem langar að
gera sér dagamun um helgar án
þess að hafa rnikið fyrir því að
eyða löngum tíma. Þjónustan er
góð og bið eftir réttum er mátu-
lega löng. Um helgar er mikið um
TILVERAN HAFNARFIRÐI
Verðlag: 1 lægra lagi, þriggja rétta matur kostar
frá 1400-2500 kr.
Kostir: Vel fram borinn og góður matur er að-
all staðarins auk alúðlegrar þjónustu.
Callar: Vísa aftur í innréttingar og umhverfi.
Hverjir koma: Fjölskyldustaður
fjölskyldur sem mæta í fyrra lagi
og oftast er nánast þéttsetið á
milli sjö og átta. Vínseðilinn sam-
anstendur af miðlungsgóðum
vínum á hóflegu verði. Athygli
veitti að þjóninn kom með flösk-
una og tók hana upp við borðið
þegar pantað var vín hússins.
Andrúmsloftið er notalegt en Til-
vera geldur fyrir hve innrétting-
ar og húsmunir eru ófagmannleg-
ir. Þjónustan bætir það þó upp.
Bergljót Daviðsdóttir.
SYNINGAR_____________________________
Vettvangsrannsókn Kristinar Loftsdótt-
ur mannfræðings meðal WoDaaBe
fólksins í Níger til sýnis í Þjóðarbók-
hlöðu. Yfirskrift sýningarinnar er: „Horn-
in íþyngja ekki kúnni" og stendur hún til
9. nóvember.
Handritasýning í Stofnun Árna Magnús-
sonar, Árnagarði við Suðurgötu. Sýningin
er opin kl. 14 til 16 þriðjudaga til föstu-
daga til 15. maí.
MYNDLIST_____________________________
Myndlistarmaðurinn Spessi opnar sýn-
ingu kl. 17:00 í dag í E-541 Listhúsi fyrir
utan Kaffi Mokka. Sýningin, sem nefn-
ist Bootleg, verður opin milli 17 og 19.
Þar getur að líta polaroidmyndir sem
listamaðurinn hefur tekið í tengslum við
starf sitt sem atvinnuljósmyndari og
myndlistarmaður. Sjálfur verður lista-
maðurinn á kaffihúsinu.
Yfirlitssýning á verkum Gunnlaugs
Scheving í öllum sýningarsölum Lista-
safns íslands. Sýningin er opin alla
daga nema mánudaga, 11-17 og stend-
ur til 9. desember n.k.
í Listhúsinu í Laugardal stendur yfir
málverkasýning Elisabetar Stacy
Hurley. Elisabet er af íslenskum ættum
en er búsett í Bandaríkjunum. Síðasti
sýningardagur.
Megas í Nýlistasafninu. Til sýnis er
sjaldséð myndlist Megasar í ýmsum
miðlum og frá ýmsum tímum. Sýningín
stendur til 30. nóvember.
SIE, 15 myndlistanemendúr frá íslandi,
Eistlandi og Finnlandi, sýna í verslunar-
gluggum á Laugaveginum. Unnið er út
frá þemanu Ég-hlutur. Sýningin stendur
til 08.11.
Aiison Gerber er með innsetninguna
Stopgap Measure í stigagangi Hins
Hússins. Sýningin stendur til 02.11.
Guðbjörg Hákonardóttir - Gugga, hefur
opnað myndlistarsýningu í Listasal
Man, Skólavörðustíg 14. Sýningin stend-
ur til 11. nóvember og er opin mán.-lau.
10-18 og sunnudaga kl. 14-18
Sýningarnar Hringrás vatnsins og
Speglar standa yfir í Hafnarborg. Jón-
ina Guðnadóttir sýnir myndverk unnin í
leir, steinsteypu, gler og önnur efni.
Kristján Pétur Guðnason sýnir Ijós-
myndir. Sýningarnar standa til 5. nóvem-
ber og eru opnar alla daga kl. 11.00 -
17.00, nema þriðjudaga.
Erla Þórarinsdóttir, Hulda Hákon, Jón
Óskar og Steingrímur Eyfjörð sýna í
Listasafni Kópavogs. Viðfangsefnin á
sýningunni eru mismunandi en verkin
eiga það sameiginlegt að meðhöndla
líkamlega og félagslega tilveru manns-
ins. Sýningin er opin alla daga nema
mánudaga frá 11-17 og lýkur sunnudag-
inn 4. nóvember. Hægt er að skoða sýn-
inguna á vefslóðinni: www.jesh.org.
Sýning á verkum Önnu Eyjólfsdóttur í
báðum sölum Listasafns ASÍ. Safnið er
opið alla daga nema mánudaga kl.
14.00-18.00.
Myndlistarsýning á vegum WHO, Evr-
ópudeild Alþjóða Heilbrigðisstofnun-
innar stendur yfir í Hafnarborg.
20 framsæknir listamenn í Evrópu hafa
verið fengnir til starfa í því augnamiði að
hvetja fólk til að leita sér aðstoðar við
að hætta reykingum. Sýningin er opin
alla daga nema þriðjudaga frá kl 11 til
17 og henni lýkur 12 nóvember.
Kristín Reynisdóttir sýnir verk í Þjóðar-
bókhlöðunni. Þetta er fjórða sýningin í
sýningaröðinni Fellingar sem er sam-
starfsverkefni Kvennasögusafnsins,
Landsbókasafns (slands - Háskólabóka-
safns og 13 starfandi myndlistarkvenna.
Opnunartími Kvennasögusafnsins er
milli klukkan 9 og 17 virka daga og eru
allir velkomnir.
Jón Valgard Jörgensen sýnir í Félags-
starfi Gerðubergs. Opnunartímar sýn-
ingarinnar: mán. - fös. kl. 10-17 og um
helgar kl. 13-16.
Intercoiffure á Islandi:
Hártíska veturinn 2001
hársnyrtar Intercoiffure á íslandi
kynnir í kvöld nýjustu hártískuna
frá París í myndveri Saga film að
Laugavegi 176. Kynningin hefst kl.
20. Intercoiffure eru alþjóðleg
samtök hársnyrta sem eru leiðandi
í hártísku í heiminum í dag. Móð-
ursamtökin er að finna í París þar
sem þekktir hönnuðir móta línuna
í hárstíl kvenna og karla ár hvert. í
kvöld gefst fólki kostur á að sjá fé-
laga í Intercoiffure á íslandi sýna
nýjustu strauma og stefnur innan
hártískunnar sem sýndar voru á
alheimssýningu Intercoiffure-fé-
laga í París í síðastliðnum mánuði.
Auk vetrartískunnar í hárgreiðslu
verða sýndar skúlptúr hárgreiðsl-
ur og dansatriði. Þá munu No
Name nemar sýna förðun. ■
ÍSLENSKI HÓPURINN
Intercoiffure á (slandí kynnir í kvöld nýj-
ustu hártískuna frá París.
c
imaginetheshoes.com
OPNAR
1. nóvember
í Kringlunni
(tilboð auglýst í Fréttablaðinu á morgun)
Handbók um kynlíf:
Ljúfir ástarleikir
bækur Út er kornin bókin Ljúfir
ástarleikir eftir Anne Hooper í
þýðingu Veturliða Guðnasonar. í
Ljúfum ástarleikjum er greint frá
öi’vandi leikjum þar sem koma við
sögu ýmis hjálpartæki ástarlífs-
ins eins og vatn, tól og tæki, mat-
ur og myndbandsspólur. “ segir
útgefandi. Bókin er ríkulega
skreytt ljósmyndum. JPV-úgáfan
gefur bókin út sem er 240 blaðsíð-
ur að stærð í handhægu broti. ■
Lfl ,g: El R-
SJ u J L
R LEIKFÖNGUM
Jólagjöfin
tímanlega
Vandaöur
Veghefill úr járni
áður kr. 2990,-
Nú kr.
1890,-
Leikfang 0-3 ára
Nú kr.
Smádýrið-Bjallan FTj]|P
Gefur frá sér hljóð og Ijós EmLuB
Opnunartími:
Mánud.-föstud. kl. 13 -17 Frábær tilboft - Þú mátt ekkl missa af þessu
LAUGAVEGUR z | BRAUTARHOLT SKIPHOLT
I.Guðmundsson ehf. Skipholti 25 • 105 Reykjavik