Fréttablaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTABLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
14
MEISTARADEILDIN:
STYRKLEIKAFLOKKAR
FLOKKUR I FLOKKUR I
LIÐ Real Madrid Juventus Barcelona Bayern Munchen LIÐ Liverpool Panathinaikos Nantes Deportivo
FLOKKUR3 FLOKKUR4
LIÐ LIÐ
Manchester United Roma
Arsenal Bayer Leverkusen
Galatasary Sparta Prag
Porto Boavista
Ísland-Noregur:
Norðmenn með sitt sterkasta lið
staðið sig frábærlega að und-
anförnu.
Landsliðið hittist síðast fyr-
ir fimm mánuðum og segir
Guðmundur leikina eiga eftir
að verða erfiða.
„Norðmennirnir koma með
sitt besta lið að ég held. Níu af
þeim spila í þýsku deildinni og
markvörðurinn á Spáni þannig
að þeir eru með mjög gott lið.
Ég held að þetta sé sterkasta
lið sem þeir hafi átt í lengri tíma.“
Leikur númer tvö verður á Ak-
ureyri á laugardag og hefst klukk-
an 14.00 en þriðji og síðasti leikur-
inn verður í Laugardalshöll á
sunnudag klukkan 20.30. ■
HANDKNATTLEIKUR fslenska
landsliðið í handknattleik mæt-
ir því norska í þrígang um
helgina og fer fyrsti leikurinn
fram í Kaplakrika í kvöld
klukkan 20.30. Guðmundur
Guðmundsson, landsliðsþjálf-
ari, hefur valið átján manna
leikmannahóp og spila flestir
leikmennirnir með félagsliðum
hér heima.
„Að hluta til erum við með
okkar sterkasta lið en það vantar
einhverja inní þetta. Ég tók fjóra
kornunga stráka inn í hópinn en
aðal hugmyndin er að leyfa þeim
að kynnast þessu. Þetta er meira
hugsað til framtíðar."
SNORRI GUÐJÓNSSON
Einn af fjórum nýliðum landsliðsins.
Nýliðarnir eru þeir Snorri Guð-
jónsson Val, Bjarki Sigurðsson
Val, Markús Máni Mikaelsson Val
og Arnór Atlason KA en þeir hafa
2. nóvemer 2001 FÖSTUDAGUR
LANPSLIÐSHÓPUR ÍSLANPS:
MARKVERÐIR: Birkir Ivar Guðmundsson Magnús Sigmundsson Revnir Revnisson Stjarnan Haukar UMFA
HORNAMENN OG LÍNUMENN: Guðjón Valur Sigurðsson Essen
Bjarki Sigurðsson Valur
Einar Örn Jónsson Haukar
Gústaf Bjarnason Sigfús Sigurðsson Minden Vatur
ÚTILEIKMENN: Patrekur Jóhannesson Bjarki Sigurðsson Essen UMFA
Ólafur Stefánsson Rúnar Sigtryggsson Snorri Guðjónsson Magdeburg Haukar Valur
Arnór Atlason Aron Kristjánsson Magnús Sigurðsson Markús Máni Mikaelson KA Haukar Stjarnan Valur
„Coppell hefur breytt öllu“
Olafur Gottskálksson og Ivar Ingimarsson hafa leikið vel með Brentford sem situr í efsta sæti
ensku 2. deildarinnar. Olafur sagðist hafa heyrt af áhuga annarra liða á sér en að hann væri ekki
að hugsa sér til hreyfings.
BARÁTTUNAGLI
Ólafur hefur fengið mikið lof í enskum fjölmiðlum fyrir frammistöðu sína með Brentford.
Meistaradeildin:
Ensku liðin
í meðallagi
KNATTSPYRNA í dag verður dregið í
milliriðla í Meistaradeild Evrópu.
UEFA setti Bayern Munchen,
Real Madrid, Barcelona og
Juventus í 1. styrkleikaflokk en
ensku liðin þrjú eru í 2. og 3. Það
kemur ekki á óvart að Liverpool
er riðli ofar en Man. United og
Arsenal en liðið stóð sig frábær-
lega í fyrravetur og nú í ár. í
hverjum riðli verða fjögur lið, eitt
úr hverjum styrkleikaflokki. Lið
sem eru frá sama landi eða mætt-
ust í 1. umferð geta ekki mæst. ■
IJEFA keppnin:
Hermann og
Eyjólfur skora
knattspyrna Eyjólfur Sverrisson
var í stuði með Hertha Berlin á
móti Viking í Evrópukeppni félags-
liða í gær. Hann skoraði seinna
mark liðsins í 2-0 sigri auk þess að
skora mark, sem var dæmt af. Lið-
ið tryggði sér sæti í 3. umferð. Það
gerðu Hermann Hreiðarsson og fé-
lagar í Ipswich einnig með 3-1 sigri
á móti Helsingborg. Hermann skor-
aði fyrsta mark Ipswich. Chelsea
datt hinsvegar úr keppni. Liðið var
í stöðugri sókn, með Eið Smára
Guðjohnsen í fremstu línu, en gerði
1-1 jafntefli á móti Hap. Tel Aviv. ■
KNATTSPYRNA Brentford hefur kom-
ið mjög á óvart það sem af er
þessu tímabili og situr í efsta sæti
ensku 2. deildarinnar, en liðið
hafnaði í 17. sæti í fyrra. Tveir ís-
lendingar leika með liðinu þeir
Ólafur Gottskálksson markvörður
og ívar Ingimarsson miðvallar-
leikmaður. Þeir eru báðir fasta-
menn í liðinu og hafa báðir staðið
sig mjög vel. Ólafur, sem er 33 ára
gamall, gekk til liðs við Brentford
í fyrra frá Hibernian í Skotlandi. í
samtali við Fréttablaðið sagði
hann að dvölin hjá liðinu hefði ver-
ið mjög lærdómsrík. Hann væri
elstur í liðinu, sem væri reyndar
mjög ungt.
„Þetta er enginn risaklúbbur
heldur frekar klúbbur sem tekur
inn unga stráka, elur þá upp og sel-
ur þá síðan til stærri liða,“ sagði
Ólafur.
„Þetta gekk svona upp og ofan í
fyrra en við höfum náð að smella
saman í ár. Það urðu í raun ekki
miklar breytingar á leikmanna-
hópnum í sumar. Við fengum tvo
nýja leikmenn og svo kom reyndar
nýr framkvæmdastjóri með nýtt
starfsfólk."
Steve Coppell, fyrrverandi leik-
maður Man. Utd. og enskur lands-
liðsmaður, er nú framkvæmda-
stjóri Brentford, en hann hefur
áður stjórnað Crystal Palace og
Manchester City.
„Coppell hefur breytt öllu.
Hann er mikill „boss“ og menn
bera allir mikla virðingu fyrir hon-
um og vilja leggja sig fram í návist
hans. Allar æfingar og allt í kring-
um liðið er orðið miklu fagmann-
legra. Það var svona létt yfir þessu
í fyrra en nú eru æfingarnar orðna
miklu erfiðari. Hann er mjög
taktískur þjálfari sem kortleggur
alla andstæðinga fyrir leiki.“
Ólafur sagði að liðið væri nú að
uppskera samkvæmt þessari und-
irbúningsvinnu þjálfarans og góð-
um æfingum. Leikmennirnir væru
í mjög góðu líkamlegu ástandi og
sagði hann að það væri kannski
helsti styrkleiki liðsins.
„Við náum að keyra út allan tím-
ann. Við höfum oft lent undir en
alltaf náð að koma tilbaka. Það
skiptir gríðarlegu máli í þessari
deild að menn séu í góðu formi.
Þetta eru 46 leikir og mjög hraður
bolti. Helsti veikleiki liðsins er lítil
breidd því við höfum verið að keyra
þetta mikið á sömu leikmönnunum."
Auk Brentford sagðist Ólafur
telja að Bristol City og Stoke City
væru með bestu lið deildarinnar.
Þann 10. nóvember sækir Brent-
ford Stoke heim og sagði Ólafur að
sér litist þokkalega á leikinn.
Reyndar yrði Brentford án fjög-
urra lykilmanna, sem væru í leik-
banni.
Maðurinn og ferillinn
NAFN: Ólafur Gott-
skálksson
FÆDDUR:
12. mars 1968
FERILL: Keflavík til
1987
-KA 1987-1988
-ÍA 1988-1990
-KR 1990-1994
-Keflavík 1994-1997
-Hibernian 1997-2000
-Brentford 2000-?
LANDSLEIKIR:
A-lið 9
-U21 7
-UI8 1
: MAKI: Marta Guðmundsdóttir
BÖRN: Andrea Björt 6 ára
UPPÁHALDS MATUR:
I íslenskt lambalæri
UPPÁHALDS HLJÓMSVEIT: Eagles
UPPÁHALDS LEIKARI: Meg Ryan
BESTI KNATTSPYRNUMAÐUR
HEIMS: Zinedine Zidane
BESTI MARKVÖRÐUR HEIMS:
Peter Schmeichel
__________________________________I
Ólafur er sáttur við eigin
frammistöðu enda með góða vörn
fyrir framan sig og í góðri æfingu.
Hann sagðist aðeins hafa heyrt af
áhuga annarra liða á að kaupa hann
en í raun væri hann lítið að spá í það
því honum liði mjög vel hjá Brent-
ford og væri samningsbundinn lið-
inu til 2003. Hann sagði líka gott að
hafa annan íslending hjá liðinu -
ívar væri „toppmaður."
Ólafur er ekki farinn að huga að
því að leggja skóna á hilluna þó
hann sé 33 ára, enda spila leikmenn,
sérstaklega markmenn, lengur í
dag. Hann sagðist ætla að halda
áfram á meðan hann hefði heilsu til.
trausti@frettabladid.is
Lagersala í Rafha húsinu Hafnarfirði.
2.-4. nóvember. Opið frá 11.00 - 18.00
Mikið úrval af vídeóspólum. Nýjum sem notuðum. Eitt
verð 300 kr. Lína Langsokkur Löggulíf og Skýjahöllin.
Ótrúlegt úrval af öðrum bíómyndum. Tannburstar,
sápur og snyrtivörur á 50 krónur. Einnig mikið úrval
af gjafavörum.
Upplýsingar í síma 869 8171
’ Kíttisprautur
Borvélar
Skrúfjám
Verkfæri %
Lyklasett
Juðarar
Tappar
Háþrýstidælur
Smiðjuvegi 5 1200 Kópavogur | Simi 544 20201 www.hrim.is | hrim@vortex.is