Fréttablaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 2. nóvember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Vill komast að hjá stóru liði
knattspyrna Árni Gautur Arason,
markvörður íslenska landsliðsins
og norsku meistaranna í Rosen-
borg, vill komast að hjá ein-
hverju af stóru liðunum í Evrópu.
Þetta kemur fram í norska dag-
blaðinu Verdens Gang í gær.
Blaðið fer fögrum orðum um
Árna Gaut en hann er langefstur
leikmanna Rosenborgar í ein-
kunnagjöf blaðsins eftir leikina í
Meistaradeildinni, með 7.8 í með-
aleinkunn í sex leikjum, hæsta
einkunn átta en sú lægsta fimm.
Árni Gautur sýndi enn og aft-
ur hversu megnugur hann er þeg-
ar liðið mætti Porto í Meistara-
Árni Gautur Arason:
deildinni í fyrradag og kom í veg
fyrir miklu stærra tap, en þeir
portúgölsku unnu leikinn 1-0. í
fyrri hálfleik einum fékk Porto
12 marktækifæri.
„Ef ég skipti um félag vil ég
komast að hjá einhverju af stóru
félögunum í Evrópu,“ sagði Árni
Gautur í viðtali við dagblaðið, en
hann hefur spilað með Rosen-
borgarliðinu í fjögur ár. Nils
Arne Eggen, þjálfari norsku
meistaranna, segist vera viðbú-
inn því að markvörðurinn verði
seldur eftir frammistöðu hans í
sumar.
„Við vorum heppnir að fá ekki
fleiri mörk á okkur gegn Porto en
það var ekki bara ég sem átti góð-
an dag því Erik Hoftun stóð sig
einnig vel,“ sagði Árni Gautur,
hógværðin uppmáluð. ■
ÁRNI GAUTUR ARASON
Hefur átt hvern stórleikinn af fætur öðrum
með Rosenborgarliðinu og var meðal ann-
ars valinn í lið ársins í Noregi.
HSÍ:
Tveir lands-
liðsþjálfarar
ráðnir
HANDKNATTLEIKUR Handknattleiks-
samband Island hefur ráðið tvo
þjálfara til að sjá um kvennalands-
liðið. Þeir Stefán Arnarson, þjálf-
ari meistaraflokks kvenna hjá Vík-
ingi og Örn Ólafsson, lektor hjá
KHÍ, undirrituðu í gær þriggja ára
samning og munu þeir í samein-
ingu sinna þjálfun liðsins og skipu-
leggja allt landsliðsstarfið.
I fréttatilkynningu frá HSÍ
segir að það sé von sambandsins
að samstarfið verði ánægjulegt og
kvennahandbolta til framdráttar. ■
Man. Utd.:
Veron
með gegn
Liverpool
knattspyrna Argentínumaðurinn
Juan Sebastien Veron mun leika
með Man. Utd. gegn Liverpool á
sunnudaginn, en Alþjóðaknatt-
spyrnusambandið (FIFA) hafði
upphaflega bannað honum að taka
þátt í leiknum vegna landsleiks
Argentínu og Perú á miðvikudag-
inn.
FIFA hefur nú samþykkt að
nóg sé fyrir Veron að fljúga til
Á FERÐ OG FLUGI
Veron mun fljúga til Argentínu strax eftir
leikinn gegn Liverpool á sunnudaginn.
Argentínu eftir leikinn á sunnu-
daginn. Þetta eru góðar fréttir
fyrir Alex Fergusson, fram-
kvæmdastjóra Man. Utd., enda
leikurinn gegn Liverpool sann-
kallaður sex stiga leikur. ■
Aresene Wenger:
Anægður þrátt
fyrir tap
knattspyrna Arsene Wen-
ger, stjóri Arsenal, er án-
gæður með frammistöðu
sinna manna í Meistara-
deild Evrópu, þótt liðið hafi
tapað 3-1 fyrir þýska liðinu
Schalke í síðustu umferð
riðlakeppninnar. Arsenal
var fyrir leikinn búið að
tryggja sæti sitt í milliriðli.
Wenger tók ekki sitt
sterkasta lið með til Þýska-
lands og hvíldi meðal ann-
ars lykilmenn á borð við
Patrick Vieira, Thierry
Henry og Fredrick Ljung-
berg. Hann segist vera
ánægður með þá leikmenn
leystu þá af hólmi.
NWANKWO
KANU
Arsene Wenger
var ánægður
með leik sinna
manna og þá
sérstaklega með
Kanu.
sem
„Við vorum þegar marki undir
þegar Luzhny var rekinn af
velli og við áttum ekki séns
eftir það.
„Við byrjuðum illa og
þótt við höfum spilað sæmi-
lega seinni hluta fyrri hálf-
leiks vorum við búnir á því í
þeim seinni. En ég er ekki
ósáttur við ungu leikmenn-
ina sem komu inn í liðið."
Arsenal tapaði öllum úti-
leikjunum en Wenger er
langt frá því að vera ósáttur
við gengi liðsins.
„Við töpuðum öllum úti-
leikjunum en það er erfitt
að vinna lið eins og Pan-
athinaikos, Mallorca og Schalke á
útivelli með ellefu leikmenn, hvað
þá með tíu.“ ■
Marcelo Lippi:
Man. Utd.
vill O’Neill
knattspyrna Marcelo Lippi, fram-
kvæmdastjóri Juventus, hefur var-
að Celtic við því að Man. Utd. muni
reyna að tæla Martin O’Neill til sín
eftir að Sir Alex Ferguson hætti.
Lippi telur að O’Neill sé efstur á
óskalista Man. Utd. Lippi sagðist
bera mikla virðingu fyrir O’Neill,
enda hefði hann náð frábærum ár-
angri með Celtic. Hann sagði að það
væri mikill heiður að vera orðaður
við framkvæmdastjórastöðuna hjá
Man. Utd. og að hann efaðist ekki
um að O’Neill myndi valda því
starfi. ■
MANCHESTER í STJÓRALEIT
Nicky Butt hjá Manchester og Olivier
Dacourt hjá Leeds kljást á Old Trafford s.l.
laugardag.
• : • ■■■■•■:■ • •■ ...
Egils Orka
Áður 150,-
m
ijtjti* áiuhi
ilu
■m
m
lh
Kaffi Gevalia
Toblerone
50 gr
Nýtt
uppqríp
nikelagersalaalltað80%afsláttur!
nÝlegarvörura.m.k.60%afsláttur!!
nýjarvörurl5%afsláttur!
Síðustu dagar
útsölunnar!
IÞROTTABUÐIN
Grensásvegi16 • S:568 0111
fullorðins-
úlpur m.a. dúnn 5.990.-
peysur: 1.990.-
buxur: 1.990.-
gallar: 3.990.-
bolir: 990.-
skór frá: 1.990.-
barna-
úlpur m.a. dúnn: 3.990.-
peysur: 1.490.-
buxur: 1.490.-
gallar: 2.990.-
bolir: 490.-
skór frá: 990.-