Fréttablaðið - 02.11.2001, Qupperneq 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
2. nóvember 2001 FÖSTUDACUR
HÁSKÓLABfÓ
smfwnK bíó
HAGATORCI. SIMI 530 1919
Þar sem aliir salir eru stórir
|AMERICAN PIE 2 kL 8,10.15 og 12.151 |BRIDCEnONES'S DIARY
S
r
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
EVIL WOMAN kl. 3.40,5.50,8 og 10.101 FINAL FANTASY
kl. 3.30
[AMERICAS SWEETHEARTS 8 og 10.15 j IpfellJR OC KÖTTURINN-
Qg 5.401
kl.4
j Vxýktj /DD/ .UAK sími í.(a fx>0í) - v/ww.srnarabio.\%
Ja
Oé**“ *
kl. 3.50, 5.55, 8 og 10.10 VIT2H
kl. 5.45, 8 og 10.20 VIT291
|SKÓLALÍF m/isLtal kL 4 ogTHSH 3000 MILES tO CRACEL- 8 og 1020 |P
IPRINŒSS D1AR_ 335,5A5,8 og 1S15 | H [RUCARTS IN PARIS m/ isL tali
jOSMOSIS JONES M.6,8ogl0|^t jSHREK m/islM MPI
DYRKEYPTUR HREKKUR
Leelee Sobieski og vinir hennar hrekkja
snargeðveikan vörubílstjóra með stutt-
bylgjutalstöð og gjalda það dýru verði.
Joy Ride:
Hryllingur á
þjóðveginum
kvikmyndir Leikstjórinn John Dahl
er hvað þekktastur fyrir myndina
The Last Seduction, þar sem Linda
Fiorentino lék eftirminnilegt tál-
kvendi. Af öðrum myndum hans
má nefna Kill Me Again og Red
Rock West. Allar eiga þær það
sameiginlegt að flokkast sem neo
noir myndir, byggðar á hefð film
noir mynda. Dahl hefur þó ekki ein-
skorðað sig við þessa kvikmynda-
grein. í Joy Ride horfir hann í átt
til hrollvekja þar sem fórnarlömb
eru á flótta allan tímann.
Myndin fjallar um tvo bræður
og vinkonu þeirra, sem eru á leið
frá Kaliforníu til heimabæjar síns í
miðríkjum Bandaríkjanna. Annar
bróðirinn (Paul Walker) er hrifinn
af stúlkunni (Leelee Sobieski) en
eldri bróðir hans (Steve Zahn) er
mikill vandræðagemsi. Hann sting-
ur upp á því að kaupa stuttbylgju-
talstöð fyrir ferðina til að fylgjast
með samskiptum vörubílstjóra.
Fljótlega fær hann þá frábæru
hugmynd að gera at í einum bíl-
stjóranum og platar bróður sinn til
að leika ímyndaðan kvenmann og
mæla sér mót við hann. Umræddur
bflstjóri heitir Ryðgaður nagli og
er vægast sagt ekki skemmt þegar
hann uppgötvar atið. Upphefst þá
mikill eltingaleikur þar sem bíl-
stjórinn er ávallt einu skrefi á und-
an krökkunum. Hann leggur mikið
á sig til að hræða og reyna að drepa
þau á ógurlegum trukk á eyðileg-
um og fáförnum þjóðvegunum
Myndin fær prýðisdóma banda-
rískra gagnrýnenda. Hún er sýnd í
Smárabíó og Regnboganum. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
Harður aðdáandi poppkonungs-
ins Michael Jackson hefur
skorað á gagnrýnanda að taka
veðmáli upp á
7000 pund. Gagn-
rýnandinn lýsti
Invincible, nýju
breiðskífu
Jackson, sem
„þreyttri, ómerki-
legri og í engri
snertingu við
raunveruleikann".
Aðdáandinn vill veðja við gagn-
rýnandann um hvort platan nái að
selja yfirst 30 milljónir eintaka á
2 árum, nái hún því ekki segist
hann ætla að borga manninum
umrædda fjárupphæð en aðeins
ef gagnrýnandinn sé reiðubúinn
að gera slíkt hið sama ef hún nái
30 milljóna markinu. Gagnrýn-
andinn hefur ekki enn gefið svar.
Rapparinn Snoop Dogg hefur
neitað allri sök um að hafa
haft eiturlyf undir höndunum en
lögreglan stöðvaði og leitaði í rútu
hans er rapparinn var á tónleika-
ferðalagi um Bandaríkin á dögun-
um. Við leitina fundust sex pokar
af marijuana og reyndist innihald-
ið um 200 grömm. Þyngsta refs-
ingin við brotinu er 30 daga fang-
elsisvist. Réttarhöldin byrja form-
lega 11 desember næstkomandi
og er ekki búist við því að Snoop
láti sjá sig á staðnum.
Annað þeirra tveggja laga sem
söngkonan Enya hljóðritaði
fyrir fyrstu myndina í Lord Of
The Rings þrí-
leiknum hefur
verið gert fáan-
legt til vistunar í
gegnum Netið.
Hægt er að nálg-
ast lagið á
www.inscifi.net.
Myndin verður
frumsýnd í
Bandaríkjunum 19. desember en
viku seinna á íslandi, eða annan í
jólum.
Bandarísk slúðurblöð keppast
við það að spá í það hvort Tom
Cruise og Penelope Cruz ætli að
binda hnútinn fyrir jól eður ei.
Sögusagnirnar komust af stað
þegar fréttist að parið væri í leit
að húsi saman. Einnig hefur
spænska leikkonan sagst vera í
barnahugleiðingum.
ÞJÓNARNIR ÞRÍR
Banka upp á einn góðan veðurdag, segjast þekkja til i húsinu og vilja hjálpa til með heimilisstörfin.
Hrollvekja í draugahúsi
Spánverjinn Alejandro Amenábar þurfti ad gera mjög vinsæla mynd
til að þóknast framleiðendum sínum. Hrollvekjan The Others olli
þeim ekki vonbrigðum.
kvikmynpir Leikstjórinn
Alejandro Amenábar vakti
mikla athygli í heimalandi
sínu, Spáni, þegar hann
gerði hrollvekjuna Tesis
(í. Ritgerð) með félaga sín-
um Mateo Gil árið 1995. Þá
höfðu þeir nýlega hætt í
kvikmyndaskóla og tóku
myndina upp í sama skóla.
Á þessum tíma hafði
spænsk kvikmyndagerð
verið í lægð í nokkurn
tíma. Markaðsmenn sáu
fljótlega að Amenábar og
Gil voru af nýrri kynslóð,
sem höfðaði til ungs fólks með
meiri áhuga á Hollívúdd en
heimalandinu. Árið 1997 gerðu
þeir Abre los Ojos (í. Opnaðu
augun) með Penélope Cruz í að-
alhlutverki. Leikstjórinn Camer-
on Crowe endurgerði þá mynd
KIDMAN
Flytur með bör-
nunum slnum i
hús, sem er
stappfullt af
illum öndum.
fyrr á árinu sem Vanilla
Sky með Cruz og Tom Cru-
ise í aðalhlutverkum.
Það er hinsvegar fyrsta
mynd Gil, hrollvekjan
Nadie conoce a nadie (í.
Enginn þekkir engann),
sem breytir hlutunum. Sú
var auglýst í botn að hætti
Hollívúddmynda og aflaði
gríðarlega tekna á Spáni.
Vegna vinsælda hennar
settu framleiðendur
Amenábar meiri kröfur á
að Los Otros, eða The
Others, myndi slá í gegn.
Því var brugðið á það ráð að
fá framleiðslufyrirtæki Tom
Cruise til samstarfs, eflaust til
þess að tryggja stórstjörnuna
Nicole Kidman í aðalhlutverkið.
Það gekk eftir og myndin stóð
undir væntingum framleiðenda.
Amenábar skrifar handrit
myndarinnar, sem gerist undir
lok síðari heimsstyrjaldar.
Helstu sögupersónurnar eru
Grace (Kidman) og börnin henn-
ar tvö. Þau flytja í.stórt hús und-
an ströndum Bretlands í Jersey
og bíða þar eftir heimilisföðurn-
um, sem er í enska hernum.
Börnin tvö eru með sjaldgæfan
sjúkdóm, sem gerir það að verk-
um að þau þola ekki sólarljós.
Mæðginin búa ein í húsinu í
nokkurn tíma og heldur móðirin
uppi ströngum aga og reglum.
Hún ræður þrjá þjóna til að hjál-
pa til við heimilisstörfin en fyrri
þjónar hurfu sporlaust eina nótt-
ina. Nýju þjónarnir eru hinsveg-
ar ekki allir þar sem þeir eru
séðir, líkt og húsið.
Myndin er sýnd í Háskólabíó.
halldor@frettabladid.is
NABBI
03
03
>
03
«o
8
ö)
XL
</)
C
:0
Q
Hún er þægileg...
NILFISK
BACKUUM
Gaiðí - þekkinq - þjónusta
/ponix
Hátúni 6a S 552 4420