Fréttablaðið - 02.11.2001, Page 18
Hrím
Smiðjuvegf 5 1200 Kópavogur
Sími 544 2020 | www.hrim.is
BORGARLEIKHUSIÐ
STORA SVIÐIÐ NYJA SVIÐIÐ
BLÍÐFINNUR e. Þorvald Þorsteinsson___
Lau. 3. nóv. kl. 14:00 ÖRFÁSÆTI
Sun. 4. nóu. kl. 14:00 N0KKJR SÆTI
Lau.10. nóv. kl. 14:00 ÖRFÁ SÆTI
Sun. 11. nóv.kl. 14:00 UPPSELT
KRISTNIHALD UNDIR JÖKU e. Halldór Laxness
i kvöld kL. 20 • ÖRFÁ SÆTI
Lau 10. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Sun. 18. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
MEÐ VlFIÐ ILÚKUNUM e. Rav Coonev_____
Lau.3. nóv.kl. 20 - UPPSELT
Sun. 11. nóv. kl. 20 - N0KKUR SÆTI
Flm. 15. nóv. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös. 16. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
MIÐASALA 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13 -18 alla virka daga
og fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10 virka dag.
Fax 5680383
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
ÍSLENSKI DANSFLQKKURINN_________________________
Haust 2001, þqu ny verk. ,Oa". ettlrUru Stetánsdóttur.
„Milli heima“. ettir Katrínu Hall. „PlanB", eftir Úlötu Ingóllsdóttur
í kvöld kl, 20 N0KKUR SÆTI
Lau.3. nóv. kl, 20 LAUS SÆTI
Fös.9. nóv. kl. 20 - LAUS SÆTI
BEÐIÐ EFTIR GODOT e. Samuel Beckett_____________
Sun. 4. nóv. kl. 20:00 N0KKUR SÆTI
Lau 10. nóv. kl. 20 LAUS SÆTI
ÞRIÐJA HÆÐIN
PÍKUSÖGUR e. Eva Ensler
I kvöld kl. 20 UPPSELT
Lau. 10. nóv. kl. 20 UPPSELT
Sun. 11. nóv. kl. 20 LAUS SÆTI
LITLA SVIÐIÐ
DAUÐADANSINN eftir Auqusl Strindberq
/ samvinnu við Strindberghópinn
Lau. 3. nóv. kl. 20 NOKKUR SÆTI
Fim. 8. nóv. kl. 20 LAUS SÆTI
KRÖFUHAFAR e. August Strindberq
i samvinnu við Strindberghópinn
Lau. 3. nóv. kl. 17:00 LEIKLESTUR
13. sýn. fös 2. nóv. kl. 20.00-ÖRFÁ SÆTI
14. sýn. lau 3. nóv. kl. 19.00 - ÖRFÁ SÆTl
15. sýn. fös 9. nóv. kl. 20.00-LAUS SÆTI
16. sýn. sun 11. nóv. kl. 17.00-Öm SÆTI
17. sýn. fös 16. nóv. kl. 20.00 - LAUS SÆTI
18. sýn. lau 17. nóv. kl. 19.00 - LAUS SÆTI
Ath. breytilegan sýningartíma
Miöasala opin kl. 15-19 alla daga nema
sunnudaga og fram aö sýningu sýningardaga.
Simasala kl. 10-19 virka daga.
Sími miðasölu: 5II4200
2. nóvemer 2001 FÖSTUDAGUR
Norræna húsið:
Barokk og
lettnesk nú-
tímatónlist
tónleikar Aina Kalnciema leikur
á sembaltónleikum í Norræna
húsinu í kvöld kl. 20. Kalnciema
leikur barokk og lettneska nú-
tímatónlist.
Tónleikarnir eru síðasti við-
burðurinn á Menningarhátíð
Eystrasaltsríkjanna á Norður-
löndum sem hófst í september í
Norræna húsinu.
Á efnisskránni eru m.a. sóna-
ta eftir Bortnianski. ■
Hugsjónaeldur hugvísinda
brennur í Háskólanum
I dag hefst tveggja daga Hugvísindaþing sem Hugvísindastofnun og
Guðfræðistofnun efna til í Háskóla íslands. Boðið verður upp á íjöld-
an allan af fyrirlestrum og málstofum.
háskólinn „Hugmyndin er sú að
það sé gagnlegt, fróðlegt og
skemmtilegt að vera einu sinni á
ári með stórt þing þar sem ekki
er neitt sérstakt þema, heldur
koma fyrirlesararnir sjálfir með
hugmyndir að efni. Ráðstefnan á
því að geta skírskotað til mar-
gra,“ segir Jón Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Hugvísindastofn-
unar. Sú stofnun stendur í félagi
við Guðfræðistofnun fyrir Hug-
vísindaþingi í dag og á morgun.
Á því þingi er boðið upp á fyrir-
lestra og málstofur um margs
konar efni. Aðgangur að dýrð-
inni stendur öllum til boða og
vonast Jón til að sem flestir láti
sjá sig.
„Þetta þing er ekki eingöngu
hugsað fyrir þá sem eru innan-
búðar í háskólanum heldur alla
sem áhuga hafa á efninu. Það er
sérstaða hugvísinda að það er
miklu greiðari aðgangur að þeim
en öðrum vísindagreinum fyrir
þá sem ekki hafa sérþekkingu á
fræðunum. Það er einnig mikið til
af fólki sem hefur lesið mikið
efni í tilteknum greinum og ég
vonast til þess að þetta fólk mæti
á þingið. Það eru til áhugamanna-
hópar um flestar greinar heim-
spekideildar sem bendir til mikils
áhuga á þessum greinum.“
Jón segist einnig vonast til
þess að ráðstefnan verði
vítamínsprauta fyrir nemendur
sem hafi ekki mörg tækifæri til
JÓN ÓLAFSSON
Framkvæmdastjóri Hugvísindastofnunar sem heldur þing i félagi við Cuðfraeðistofnun.
Auk fyrirlestra verða málstofur frá kl. 9.30 á morgun.
að fara á stórar ráðstefnur sem
þessar. „Við hvetjum þá eindreg-
ið til að mæta,“ segir Jón og bæt-
ir við að hugvísindaþingin hafi
verið ágætlega sótt til þessa.
„Fólk er hér í deildinni af
ákveðinni ástríðu og hugsjón og
þetta þing höfðar að til þessara
hluta. Námið hér hefur ekki
beint praktískt gildi en hér
brennur ákveðinn hugsjónaeldur
og við viljum hafa áhrif og opna
augu sem flestra á því hversu lif-
andi og virkur vettvangur er hér
í deildunum.“
sigridur@frettabladid
FÖSTUDAGURINN
2. NÖVEMBER
FYRIRLESTRAR________________________
12.20 Málstofa efnafræðiskorar verður
í stofu 158, VR-II, Hjarðarhaga 4-
6. Arnar Halldórsson, Efnafræði-
stofu, Raunvísindastofnun Háskól-
ans, flytur erindið: Fitusýrusér-
virkni lípasa. Allir velkomnir. Er-
indið verður flutt á ensku.
20.00 Myndlistamaðurinn Roni Horn
heldur fyrirlestur í Listaháskóla
Islands Laugarnesi 91, stofu 024.
Fyrirlesturinn er haldinn í tengsl-
um við sýningu á verkum lista-
mannsins í galeríi i8.
FUNDIR______________________________
17.00 Stofnfundur undirfélags IEEE á ís-
landi um tölvur (IEEE computer
society, www.computer.org).
Fundurinn
verður haldinn í húsakynnum Há-
skóla islands, stofu 101 í Lögbergi
og er öllum opinn. Á fundinum
mun Gísli Rafn Ólafsson, tölvun-
arfræðingur og ráðgjafi hjá IMM -
Upplýsingatækni, haida erindi um
NET tæknina sem tölvurisinn
Microsoft hefur kynnt að undan-
förnu. Heimasíða IEEE á (slandi er
www.ieee.is
18.00 Aðalfundur Félags samkyn-
hneigðra og tvíkynhneigðra
stúdenta verður haldinn í stofu
204 í Odda. Á dagskrá eru hefð-
bundin aðalfundarstörf. Eftir fund-
inn fara fundarmenn niður í mið-
bæ og fá sér að borða. Allir vel-
komnir.
RÁÐSTEFNUR__________________________
13.00 Hugvísindaþing á vegum Hug-
vísíndastofnunar Háskóla ís-
lands. Þingið skiptist í fyrirlestra
sem haldnir verða f
hátíðasal Háskóla íslands og mál-
stofu er haldnar verða í ýmsum
byggingum Háskólans. Sjá nánari
dagskrá á http://www.hugvis.hi.is.
Þingið stendur fram á laugardag.
TÓNLEIKAR___________________________
20.00 Sembaltónleikar f Norræna hús-
inu. Aina Kalnciema leikur
barokk og lettneska nútímatónlist
Aðgangseyrir kr. ÍOOO. Tónleikarn-
ir eru sfðasti viðburðurinn á
menningarhátfð Eystrasaltsrfkj-
anna á Norðurlöndum.
20.00 Rokksveitirnar Bris og Útópía
leika á Föstudagsbræðingi Hins
Hússins á Geysi Kakóbar. Bris
mun kynna lög af nýlegri skífu
sinni f biand við nýtt efni en hægt
er að sækja tónlistina á
www.mp3.com/bris. Útópía sem
sendi frá sér Efnasambönd árið
2000 mun kynna til leiks nýjan
trommara auk þess að leika nýtt
efni. Aðgangur ókeypis. 16 ára
aldurstakmark.
21.00 Clapton-kvöld með Páli Rósin-
kranz og hljómsveit á Kringlu-
kránni. Húsið opnar kl:18 fyrir mat-
argesti. Að Clapton-kvöldi loknu
leikur hljómsveitin Kókos fyrir dansi
SKEMMTANIR_________________________
22.00 DJ Benni tekur sér stöðu f búrinu
á Club 22 og heldur uppi partí-
stemningu alla nóttina og fram
undir morgun. Frítt inn til klukkan
01:00. Frftt inn alla nóttina fyrir
handhafa stúdentaskírteina.
SÝNINGAR__________________________
15.00 Helga Unnarsdóttir leirkerasmið-
ur opnar "Stutt" sýningu í Galleri
Reykjavík Skólavörðustíg 16. Sýningu
Helgu lýkur 10. nóvember. Opið mán.-
fös. 13-18 og lau. 11-18.
Vettvangsrannsókn Kristínar Loftsdótt-
ur mannfræðings meðal WoDaaBe
fólksins f Nfger til sýnis í Þjóðarbók-
hlöðu. Yfirskrift sýningarinnar er: „Horn-
in fþyngja ekki kúnni" og stendur hún til
9. nóvember.
LEIKSTJÓRI VERKSINS
Gunnar Cunnsteinsson leikstýrir upplestr-
inum sem tekur rúma klukkustund I flutn-
ingi. Athygli vekur að ungir leikarar eru f
hlutverkum Adolfs, Teklu og Gústafs i
Kröfuhöfum.
Handritasýning í Stofnun Árna Magnús-
sonar, Árnagarði við Suðurgötu. Sýningin
er opin kl. 14 til 16 þriðjudaga til föstu-
daga til 15. maf.
MYNDLIST_____________________________
Myndlistamaðurinn Roni Horn sýnir i
galleríi i8 á Klapparstíg.
Þórunn Eva Hallsdóttir nemandi á þriðja
ári myndlistardeildar LHÍ opnar sýninguna
"Límband"Ýi Gallerí Nema Hvað í dag kl.
17. Sýningin stendur til 9. nóvember.
Alison Gerber er með innsetninguna
Stopgap Measure í stigagangi Hins
Hússins. Síðasti sýningardagur.
Yfirlitssýning á verkum Gunnlaugs
Scheving í öllum sýningarsölum Lista-
safns fslands. Sýningin er opin alla
daga nema mánudaga, 11-17 og stend-
ur til 9. desember n.k.
Kristján Guðmundsson hefur opnað
einkasýningu í Listasafni Reykjavfkur,
Kjarvalsstöðum. Sýningin er opin 10 -
17 alla daga nema miðvikudaga 10-19
og stendur til 11. nóvember.
í Listhúsinu ■ Laugardal stendur yfir
málverkasýning Elisabetar Stacy
Hurley. Elisabet er af íslenskum ættum
en er búsett f Bandaríkjunum. Sýningin
stendur til 31. október.
Megas í Nýlistasafninu. Til sýnis er
sjaldséð myndlist Megasar f ýmsum
miðlum og frá ýmsum tímum. Sýningin
stendur til 30. nóvember.
Faðirinn eftir Strindberg í Borgarleikhúsi:
Yngra fólk í fleiri sam-
böndum í dag
leiklestur Strindberghópurinn efnir
til leiklesturs á þremur verkum eft-
ir August Strindberg á litla sviði
Borgarleikhússins næstu þrjá laug-
ardaga kl. 17. Hópurinn ríður á vað-
ið með upplestri á Kröfuhöfum á
morgun. Leikarar eru Gunnar
Hansson, Edda Björg Eyjólfsdóttir
og Árni Pétur Guðjónsson. Leik-
stjóri er Gunnar Gunnsteinsson.
Kröfuhafar fjalla um ástarþríhyrn-
ing Adolfs, Teklu og fyrrverandi
eiginmanns hennar, Gústafs. Leik-
aravalið er nokkuð óvenjulegt en öll
hlutverkin eru í höndum ungra leik-
ara.
„Það má segja að það sem var
kannski reynsla fólks í kringum 50-
60 ára sé reynsla fólks á þrítugsaldri
í dag sem hefur verið í mörgum
samböndum," segir Gunnar Gunn-
steinsson leikstjóri verksins. Laug-
ardaginn 10. nóvember mun Strind-
berghópurinn flytja leiklestur á Föð-
urnum eftir Strindberg og 17. nóv-
ember á Fröken Júlíu. Þá verður
málþing um Strindberg í Borgar-
leikhúsinu 24. nóvember n.k. ■