Fréttablaðið - 02.11.2001, Side 22
FORSÆTISRÁÐHERRA VIKUNNAR
Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur boðaði óvænt til þingkosninga
í vikunni sem lítur nú út fyrir að flokkur
hans, Jafnaðarmannaflokkurinn (Socialde-
mokratiet), tapi fyrir keppnautunum í
hægriflokknum Vinstri (Venstre).
22
FRETTABLAÐIÐ
2. nóvemer 2001 FÖSTUDAGUR
Hreyfing á sænska meistaranum:
Bergman undirbýr tökur
fyrir sænska sjónvarpið
kvikmyndir Leikstjórinn Ingmar
Bergman er að undirbúa sjón-
varpsleikrit, sem hann ætlar að
taka upp fyrir Sænska ríkissjón-
varpið, SVT, á næsta ári. Berg-
man, sem er orðinn 83 ára gamall,
skrifaði leikritið Anna fyrir sjón-
varpsstöðina. „Við erum í skýjun-
um yfir nýja handritinu hans. Við
hlökkum til að halda löngu og
góðu samstarfi við Bergman
áfram,“ segir Daniel Alfredsson,
einn yfirmanna stöðvarinnar.
Lítið annað var sagt um verk-
efnið. Sænskir fjölmiðlar halda
því fram að það sé framhald
Scener ur ett aktenskap, sex þátta
sjónvarpsmynd, sem Bergman
gerði úr kvikmynd árið 1973. Ná-
vinur Bergmans, Erland Joseph-
son, lék á móti Liv Ullman í mynd-
inni og hefur sagt að þau tvö muni
leika í nýju myndinni. Bergman
vill einnig fá leikarana Boerje
Ahlstedt og Julia Dufvenius í að-
alhlutverkin. Josephson segir tök-
ur hefjast í september og að hann
hlakki gífurlega til að leika í
þessu einkar vel skrifaða stykki.
Bergman hefur margoft sagt
að hann sé hættur að gera myndir.
Samt hefur hann alltaf laumast
með reglulegu millibili til að taka
nýjar sjónvarpsmyndir, síðast
árið 1997. Hann vinnur nú með
Josephson í Konunglega sænska
LENGI LIFIR I GOMLUM GLÆÐUM
Sænski leikstjórinn Ingmar Bergman ætlar
að gera sjónvarpsleikrit fyrir SVT á næsta
ári.
leikhúsinu en Ullman er að sjóða
saman handrit að væntanlegri
kvikmynd sinni um norska tónlist-
armanninn Ole Bull. ■
IFRÉTTIR AF FÓLKII
Hinn atkvæðamikli markaðs-
maður Einar Bárðarson hef-
ur látið að störfum sem markaðs-
stjóri vísis.is. „Mér fannst vera
kominn tími á mig í starfinu auk
þess sem önnur verkefni, sem ég
hef verið að sinna með því starfi,
kölluðu á meiri tíma,“ segir Einar
í fréttatilkynningu sem hann
sendi út í vikunni. Einar segist
ætla að snúa sér að nokkrum
lengri og skemmri verkefnum
sem lúti að markaðs- og kynning-
armálum í afþreyingariðnaðin-
um.
Þátturinn Málið á Skjá einum
er oft frísklegur og skemmti-
legt hversu ólíkar meiningar höf-
undar hafa á málum. Þau Kol-
brún Bergþórs-
dóttir og Andrés
Magnússon eru
t.d. á öndverðum
meiði um hvernig
styðja eigi við
menningu í land-
inu. Kolbrún er á
því að ríkið eigi
að styrkja menningu. „Við getum
einungis grætt á menningu. Hver
ætlar til dæmis að sýta þær
nokkrar milljónir sem ríkið gaf
kvikmyndagerðarmönnum okkar
fyrir tveimur árum til að gera
myndir sem unnið hafa fleiri
markaði en nokkurt verðbréfafyr-
irtæki þessara sömu frjáls-
hyggjugutta hefur gert? Og ætli
sé til sá maður sem syrgir þær
krónur sem Halldór Laxness fékk
á sínum tíma svo hann gæti ritað
Heimsljós og íslandsklukkuna?
Og enginn sýtir það fé sem fór í
rekstur listaskóla sem útskrifaði
Ópera sem
eltir mig á
röndum
Bjarni Thor Kristinsson þekkir vel til Töfraflaut-
unnar eftir W. A. Mozart. A föstudags- og laugar-
dagskvöld verdur hann sérstakur gestur í Islensku
óperunni og syngur hlutverk Sarastrós. Þetta er
fjórða hlutverkið sem Bjarni syngur í þremur
uppfærslum af óperunni.
ópera „Ég hef sungið í um 70 sýn-
ingum af Töfraflautunni í f jórum
mismunandi hlutverkum. Það má
segja að þessi ópera hafi elt mig á
röndum í þau ár sem ég hef verið
að syngja,“ segir Bjarni Thor
Kristinsson bassasöngvari, sem
bregður á leik í hlutverki
Sarastrós í Töfraflautunni í ís-
lensku óperunni á föstudag og
laugardag. Bjarni hefur áður
sungið í Töfraflautunni í tveimur
ólíkum uppfærslum við Þjóðaróp-
eruna í Vín og sungið þar jöfnum
höndum hlutverk varðmannsins,
prestsins og þularins auk þess að
syngja Sarastró sem er stærsta
hlutverkið af fjórum, Bjarni
mætir því vel æfður til leiks þrátt
fyrir að uppfærslan sé á íslensku.
„Ég er að vísu að syngja þetta
í fyrsta skiptið á íslensku og er
búinn að vera að dunda mér við
það síðustu daga að læra íslenska
textann. Það er oft erfitt að skip-
ta þegar maður er búinn að syng-
ja hlutverk á einu tungumáli og á
að fara að syngja það á öðru. Það
er hins vegar ágætis tilbreyting
að vera að læra eitthvað á móður-
málinu."
Bjarni er nýkomin frá Veronu
á Ítalíu þar sem hann söng í Hol-
lendingnum fljúgandi eftir Ric-
hard Wagner og eftir áramót
þreytir hann frumraun sína í
í HLUTVERKI SARASTRÓS
Bjarni Thor Kristinsson syngur hlutverk Sarastrós á tveimur sýningum af Töfraflautunni í
Islensku óperunni.
Chicago í annarri óperu eftir
Wagner, Parsífal. Þá segir Bjarni
að í bígerð sé að syngjai í
nokkrum Wagner uppfærslum til
viðbótar en enn sé fullsnemmt að
ljóstra upp um þær. Þótt Wagner
virðist í fljótu bragði ráða ríkjum
í verkefnavali söngvarans segist
Bjarni hafa átt þeirri gæfu að
fagna að syngja í óperum eftir
ólík tónskáld sem aftur sé holt
fyrir röddina.
„Wagner og Mozart eru sitt-
hvoru megin á litaspjaldinu. Að
syngja Wagner gerir aðrar kröfur
til þín en að syngja Mozart. Það
gerir meiri kröfur til raddarinn-
ar. Þegar maður er að syngja
Wagner verður maður að passa að
öskra ekki úr sér raddböndin all-
an tímann og taka létt á söngnum
eins og það er kallað. Á sama tíma
þegar maður syngur Mozart
verður maður stundum að syngja
með fyllri röddu en gert er. Það
má segja að þetta bæti hvort ann-
að upp.“
kristjang@frettabladid.is
TILBOÐSDAGAR
FERBOX
ZENITH HURÐAR
0G HLIÐAR
MACRO
HEILIR KLEFAR
FERBOX
ADRIA
STURTUHORN
MACRO
RÚNAÐAR HURÐIR
Hert gler segullokun
Hurðar stærðir 70-112 cm
Tilboð frá kr. 16.834,-
Hliðar stærðir 68-90cm
Tilboð frá kr. 9.143,-
Rúnaðir eða hornopnun
72x92 82x82 82x92 92x92
Rúnaðir
Tilboð frá kr. 56.482,-
Hornopnun
Tilboð frá kr. 45.893,-
M. hurð að framan
82x82 92x92
Tilboð frá kr. 48.320,-
Hert gler segullokun
Stillanleg stærð
70-80cm
Tilboð frá kr. 18.774,-
80-90cm
Tilboð frá kr. 19.596,-
VA TNSVIRKINN ehf.
Ármúla 21 - sími 533 2020
Hert gler segullokun
70x90 80x80 80x90 90x90
Tilboð frá kr. 36.755,-
Rúnaðir botnar m.svuntu
Tilboð frá 15.127,-
Einnig tilboð
á öðrum
klefum og
hreinlætis-
t.ækjum.
menn eins og Erró? Jafnvel Jónas
Hallgrímsson þáði almannafé,
reyndar til þess
að sinna náttúru-
rannsóknum, en
án þess hefði
hann þó kannski
aldrei ort kvæði
eins og Gunnars-
hólma sem varð
einmitt til á einni
rannsóknarferð á vegum hins op-
inbera," sagði hún nýverið.
Andrés Magnússon benti hins
vegar á það, í þætti þar sem
hann lagði út af styrkbeiðni Leik-
félags Reykjavíkur, að það væri
hættulegt menningu landsmanna
að ríki og borg styrktu einhverja
ákveðna menningu en ekki aðra.
„Það var sennilegast rétt athugað
hjá mér að menningin væri í
hættu. Ekki vegna þess að Leikfé-
lagið fær ekki pening frá hinu op-
inbera, heldur vegna þess að Þjóð-
leikhúsið og Borgarleikhúsið fá
alltof mikla peninga. Þegar önnur
menning líður nauð vegna þeirrar
menningar, sem ríki og borg þókn-
ast að skenkja okkur, þá er menn-
ingin öll í hættu. - Það er málið.“ ■
Brutum við af
okkur eða hvað?
Við erum búin
að lifa ó vatni
og brauði
i rúman klukkutíma!"
\ , ^