Fréttablaðið - 12.11.2001, Síða 2
KJÖRKASSINN
2
FRÉTTABLAÐIÐ
12. nóvember 2001 MÁNUDAGUR
EIGI SKAL BYGGJA
Tveir af hverjum þrem-
ur kjósendum á Vísi.is
vilja hlífa fornleifum f
Aðalstræti við hótel-
byggingu.
Á að byggja yfir landnáms-
bæinn í Aðalstræti?
Niðurstöður gærdagsins
á wvtw.vísir.is
33%
Nei
Spurning dagsins í dag:
Er brottkast fisks í landhelginni giæpur
gegn þjóðinni?
Farðu inn á visi.is og segðu
þfna skoðun
EYÞÓR
ARNALDS
„Við erum einfald-
lega að gefa
þessa þjónustu."
Símafyrirtækin segja ekk-
ert athugavert:
Engin falin
gjöld af fríum
símtölum
samkeppnismál Forstjórar síma-
fyrirtækjanna Tals og íslands-
síma segja tilboð fyrirtækjanna
um frí símtöl og auglýsingar
vegna þeirra vera innan ramma
samkeppnislaga.
Íslandssími
hefur boðið
áskrifendum frá
því í byrjun októ-
ber að hringja
5000 mínútur á
mánuði í farsíma-
kerfinu í fjóra
aðra síma innan
kerfis íslands-
síma til áramóta.
Tal hefur hins
vegar frá því í
byrjun nóvember
boðið fyrirtækjum sem hafa
áskriftir að fimm símum eða fleiri
eða hringja endurgjaldslaust sín í
milli og er tilboðið
ekki tímabundið.
Samkeppnis-
stofnun hefur ósk-
að eftir skýring-
um frá fyrirtækj-
unum tveimur.
A. »»■ Þórólfur Árna-
m ú son, forstjóri Tals,
segir það góða
kynningu fyrir Tal
að Samkeppnis-
stofnun skuli
þykja tilboð þess
svo ótrúlega gott:
„Þeir skilja ekki að þetta geti ver-
ið frítt en þetta er einfaldega
svona gott tilboð. Það hefur engin
kvartað við okkur að fá þetta
ókeypis.“
Eyþór Arnalds, forstjóri ís-
landssíma, segir fyrirtækið með
auglýsingum sínum vera að upp-
lýsa um það sem rétt sé: „ Við
erum einfaldlega að gefa þessa
þjónustu og það eru engin falin út-
gjöld sem fylgja því.“ ■
ÞÓRÓLFUR
ÁRNASON
„Það hefur engin
kvartað við okkur
að fá þetta
ókeypis."
Valgerður um sjávarútveg:
Engar niður-
greiðslur
heimsviðskipti í ávarpi Valgerðar
Sverrisdóttur, viðskiptaráðherra,
á ráherrastefnu Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar (WTO) í gær ít-
rekaði hún andstöðu íslands við
ríkisstyrki til sjávarútvegsins.
Sagði hún það kaldhæðnislegt að
afskipti hins opinbera, með niður-
greiðslum og styrkjum, hefði haft
víðtæk skaðleg áhrif. Ef niður-
greiðslur yrðu aflagðar munu
milliríkjaviðskipti aukast, sem
myndu ekki síst hjálpa þróunar-
ríkjunum.
I sama ávarpi lagði Valgerður
einnig áherslu á að aukin milli-
ríkjaviðskipti ættu ekki alltaf við.
Fjarlægð íslands frá öðrum meg-
inlöndum gerði það að verkum að
við yrðum að viðhalda landbúnaði
í landinu til að tryggja fæðuör-
yggi- ■
Tveir fyrrverandi kjarnorkuvísindamenn:
Attu fund með
Osama bin Laden
islamabad. pakistanap Tveir fyrr-
verandi kjarnorkuvísindamenn í
Pakistan hafa viðurkennt að hafa
átt fund með Osama bin Laden að
minnsta kosti tvisvar sinnum á
þessu ári. Mennirnir, sem nýlega
voru handteknir af pakistönskum
yfirvöldum, hættu störfum í Pakist-
an fyrir tveimur árum til að koma á
fót hjálparstarfsemi í Afganistan.
Segjast þeir hafa hitt bin Laden í
tengslum við byggingu hveitimyllu,
að því er pakistanskur ráðamaður
sagði í gær. Osama bin Laden hefur
lýst því yfir að hann hafi yfir að
ráða kjarnorkuvopnum sem hann
gæti beitt gegn Bandaríkjamönn-
um ef honum sýndist svo.
Ráðamenn í Pakistan, Rússland
og Bretlandi töldu í gær litlar líkur
á að bin Laden hefði yfir kjarnorku-
sprengjum að ráða.
Geoff Hoon, varnarmálaráð-
herra Bretlands ,sagði að svo gæti
verið að bin Laden ætti efni í kjarn-
orkusprengjur en líklega hefði
hann ekki getu til að búa til slíkar
sprengjur. Vladimir Putin, forseti
MUSHARRAF OG BUSH
Pervez Musharraf og George Bush takast i hendur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
sem hófst sl. laugardag í New York.
Rússlands, sagðist telja „ólíklegt"
að bin Laden ætti kjarnorkuvopn,
en tók engu að síður fram að ekki
mætti gera lítið úr hótunum hans.
Skömmu eftir að Pakistanar
ákváðu að taka þátt í stríði Banda-
ríkjamanna gegn hryðjuverkum
ákvað Pervez Musharraf, forseti
Pakistans, að kjarnorkuvopnabúr
landsins yrði fært til og flutt á að
minnsta kosti 6 mismunandi leyni-
lega staði í landinu af ótta við
mögulegar hryðjuverkaárásir á
kjarnorkuvopnabúr landsins. Segir
Musharraf að kjarnorkuvopn land-
ins séu nú í „öruggum höndum." ■
Kúabændur
telja á sér brotið
Landbúnaðarráðuneyti og Bændasamtök vilja skerða ríkisstyrk til
bænda sem náðu ekki upp í mjólkurkvóta. Aralöng framkvæmd.
Hvergi skýrt að óheimilt sé að láta undiverktaka framleiða mjólk,
segir Olafur Björnsson hjá Lögmönnum Suðurlandi.
landbúnaður „Það hafa á annan
tug kúabænda hér á svæðinu leit-
að til okkar og falið okkur að gæta
hagsmuna sinna í þessu máli,“
segir Ólafur Björnsson hdl. hjá
Lögmönnum Suðurlandi. Frétta-
blaðið sagði sl.
föstudag frá bréfi
..ýmsar ástæð- Bændasamtak-
ur geti legið anna til þeirra
að baki því að kúabænda sem
bændur nái hafa keypt mjólk
ekki að fram- af öðrum kúa-
leiða upp að bændum til að ná
greiðslumarki, upp í greiðslu-
svo sem sjúk- mark sitt. Tilgeint
dómar var í bréfinu hver-
—«— su mikið magn
kom úr þeirra búi
ásamt því hversu mikið þeir höfðu
lagt inn og þeim tilkynnt að mis-
munurinn yrði dreginn af bein-
greiðslum til þeirra við næstu út-
hlutun. Frestur var gefinn til and-
mæla til dagsins í dag en Ólafur
segir að sótt verði um framleng-
ingu og ekki sé ósennilegt að mál-
ið endi fyrir dómstólum. „Hér er
um verulega fjárhagslega hags-
muni að ræða fyrir viðkomandi
bændur. Þeir telja að ekkert sé í
lögum eða reglugerðum sem
banni það að láta undirverktaka
framleiða fyrir sig mjólk, um það
snýst málið."
Hann segir að ýmsar ástæður
geti legið að baki því að bændur
nái ekki að framleiða upp að
greiðslumarki, svo sem sjúkdóm-
ar. „í þeim tilvikum hefur aflögu-
fær nágranni getað hlaupið undir
bagga og lagt inn í mjólkurbú fyr-
ir þá til að ekki þyrfti til skerðing-
ar að koma. Ráðuneytið túlkar
reglurnar skyndilega þannig að
ríkisstyrkt mjólk verði að vera
KÚABÚ
Fjöldi kúabænda á Suðurlandi ætlar að láta sverfa til stáls vegna einhliða ákvörðunar
landbúnaðarráðuneytis og Bændasamtaka (slands um að skerða beingreiðslur til þeirra.
framleidd á viðkomandi jörð sem
styrkurinn rennur til. Þetta kem-
ur hvergi skýrt fram í reglum.
Áralöng framkvæmd styrkir mál-
stað bændanna." Ólafur segir það
ennfremur í besta falli óljóst
hvort heimilt sé að endurúthluta
afrakstri skerðingarinnar til þeir-
ra sem framleiða umfram kvóta.
Grunnverð mjólkurlítrans er
um 70 krónur og þar af greiðir
ríkið 33 krónur upp að greiðslu-
marki hvers kúabónda. Mjólkur-
búin greiða að lágmarki það sem
vantar upp á, eða 37 krónur. Guð-
mundur Sigþórsson, formaður
framkvæmdanefndar búvöru-
samninga, segir að sanngirnis-
sjónarmið hafi ráðið ferðinni við
ákvörðun stjórnsýslunnar. Eðli-
legra hafi þótt að kúabændur sem
framleiða umfram nytu góðs af
því heldur en að hægt væri að
halda beingreiðslum óháð eigin
framleiðslu. Þessi breyting væri í
anda þess að tryggja framboð á
mjólk til neytenda. „Framleiði
einhver ekki upp í sinn kvóta
þurfa aðrir að framleiða jafnmik-
ið á móti til að markaðinn vanti
ekki mjólk.“
mattiafrettabladid.is
* o
0 « . «
p Króks-
Reykhólar fjarðarnes
•
Sumarhús splundraðist í
óveðrinu á laugardag:
Stálbitarnir
sem húsið stóð
á einir eftir
fremri gufupalur Einar Hafliða-
son bóndi í Fremri-Gufudal í
Reykhólahreppi varð fyrir stór-
tjóni í óveðrinu sem gekk yfir
landið aðfaranótt laugardags. Á
meðal þess eyðilagðist í ofsa-
veðrinu var sumarhús sem hann
leigir út til rjúpnaskyttna yfir
vetrartímann. Húsið splundrað-
ist og stendur ekkert eftir af því
nema stálbitarnir sem það stóð
á.
„Húsið fór gjörsamlega í
frumeindir og brakið dreifðist út
um allt. Við höfum verið með
það í útleigu á sumrin og vet-
urna ásamt öðru húsi. Ég hef
aldrei lent í öðru eins,“ segir
Einar, sem hefur stundað búskap
í Gufudal frá árinu 1981. Húsið
sem um ræðir er 54 fermetrar
að stærð og stendur um 400
metra vestur af bænum. Það er
annað af tveimur sumarhúsum í
eigu fjölskyldunnar. Hitt sumar-
húsið, sem er töluvert stærra,
slapp betur en þar brotnuðu rúð-
ur. Þá fauk salernishús sem
stendur við tjaldsvæði sem fjöl-
skyldan rekur og fjögurra tonna
traktor fór á hliðina. Einnig fuku
rúður og hurðir af fjárhúsum. Á
laugardag unnu björgunarmenn
við að týna saman brak og koma
í veg fyrir frekara tjón vegna
áfoks. Einnig var unnið við að
pakka heyrúllum upp á nýtt sem
losnaði um í veðurofsanum. Ein-
ar giskar á að tjón vegna sumar-
hússins nemi a.m.k. 3 milljónum
og er þá ótalið tjón af völdum
annarra skemmda. ■
Að minnsta kosti 310 manns létust:
Neyðarástand í Alsír
algeirsborg.alsír.ap Að minnsta
kosti 310 manns létust og hundruð
manna slösuðust eftir að gífurleg
flóð gengu yfir Algeirsborg, höf-
uðborg Alsírs, og nærliggjandi
svæði um helgina. Þúsundir
manna misstu heimili sín. Ríkis-
stjórn Alsírs boðaði til fundar í
gær þar sem sérstakar neyðarað-
gerðir voru ræddar. Eftir fundinn
var tilkynnt að boðið verði upp á
húsnæði og fjárhagsaðstoð til
þeirra sem verst urðu úti í flóðun-
um. Frakkar ætla að senda hóp
manna til Algeirsborgar til að
meta tjónið og ákveða hvers kon-
ar aðstoð sé nauðsynlegt að veita.
Bráðabirgðalíkhús voru sett
upp í Algeirsborg í gær þar sem
safnað var saman þeim fjölmörgu
líkum sem grófust undir bygging-
um sem hrundu vegna flóðanna.
Sendiherra Alsírs í Frakklandi
segist óttast að tala látinna gaeti
hækkað nokkuð þar sem enn eigi
eftir að draga fólk undan rústum
fjölmargra heimila. ■
bIlarústir
Mæðgin ganga framhjá ónýtum bíl-
um í Algeirsborg sem fóru illa út úr
flóðunum. Að minnsta kosti 310
manns hafa látist.