Fréttablaðið - 12.11.2001, Side 19

Fréttablaðið - 12.11.2001, Side 19
MÁNUDAGUR 12. nóvember 2001 FRÉTTABLAÐIÐ Truman Gapote: Aðrar raddir, aðrir staðir nýjar bækur Bókin Aðrar raddir, aðrir staðir eftir Ti-uman Capote er komin út hjá bókaútgáfunni Muninn. Höfundur var aðeins 24 ára gamall þegar þessi fyrsta bók hans kom út, en hún vakti strax heimsathygli við útkomu. í þess- ari dulmögnuðu skáldsögu segir frá 13 ára dreng, Jóel Know, sem leita föður síns á niðurníddri plantekru í miðju Suðurríkja Bandaríkjanna, stað þar sem NÝ SKÁLD- SAGA Sagan er rituð í töfraraunsæisstíl. furðulegir og afkáralegir einstak- lingar eru við hvert fótmál og upplausnin og geðsýkin eru skammt undir yfirborðinu. And- rúmsloft sögunnar er að hálfu leyti martröð, að hálfu leyti ævin- týri. Vegna þeirra áhrifa er Jóel verður fyrir af þessu umhverfi, kveður hann senn barnæsku sína og nær þroska og þrótti til að líta tilveruna augum fullvaxta manns. Höfundur ritar formála að sög- unni. Atli Magnússon þýddi. ■ Ný bamabók: Klukkan sem gekk eins og henni sýndist nýjar bækur Klukkan sem gekk eins og henni sýndist eftir Per Nilsson er komin út í þýðingu Sig- rúnar Árnadóttur. Fyrir þann sem kann á klukku er einfalt að passa tímann, mæta á réttum tíma í skólann og missa ekki af barnasjónvarpinu. En hvað ef maður á klukku sem ekki er hægt að stóla á? Klukkan sem gekk eins og henni sýndist er hressandi lesning fyrir krakka frá 6 ára aldri.Myndir gerði Eva Lind- ström. Bókin er 94 bls. Mál og menning gefur út. ■ opin mánudaga til föstudaga kl 13 til 18 og laugardaga 13 til 16 og henni lýkur 21. nóvember. Megas í Nýlistasafninu. Til sýnis er sjaldséð myndlist Megasar í ýmsum miðlum og frá ýmsum tímum. Sýningin stendur til 30. nóvember. Myndlistarsýning á vegum WHO, Hvr- ópudeild Alþjóða Heilbrigðisstofnun- innar stendur yfir í Hafnarborg. 20 framsæknir listamenn í Evrópu hafa verið fengnir til starfa í því augnamiði að hvetja fólk til að leita sér aðstoðar við að hætta reykingum. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl 11 til 17 og henni lýkur 12 nóvember. Kristín Reynisdóttir sýnir verk í Þjóðar- bókhlöðunni. Þetta er fjórða sýningin í sýningaröðinni Fellingar sem er sam- starfsverkefni Kvennasögusafnsins, Landsbókasafns íslands - Háskólabóka- safns og 13 starfandi myndlistarkvenna. Opnunartími Kvennasögusafnsins er milli klukkan 9 og 17 virka daga og eru allir velkomnir. Svipir lands og sagna er yfirskrift sýn- ingar á verkum Ásmundar Sveinssonar í Listasafni Reykjavíkur, Ásmundar- safni. Á sýningunni eru verk sem span- na allan feril listamannsins. Safnið er opið daglega kl. 10 til 16 og stendur til 10. febrúar á næsta ári. ------- . • ...—♦------ TOMAS TRANSTRÖMER Hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir skáldskap sinn. Ein mest selda ljóðabók í Svíþjóð: Sorgar- gondóll og fleiri ljóð nýjar bækur Ljóðabókin Sorgar- gondóll og fleiri ljóð eftir Tomas Ti-anströmer í þýðingu Ingibjarg- ar Haraldsdóttur er komin út hjá Máli og menningu. Tomas Tran- strömer er höfuðskáld Svía og nýtur þar meiri vinsælda en dæmi eru um ljóðskáld nú á dögum. Hann gaf út fyrstu ljóðabók sína árið 1954 og eftir það fjölda ljóða- bóka auk minningabókar. Ljóð hans hafa verið þýdd á 51 tungu- mál, og er hann án efa mest lesna norræna ljóðskáld samtímans. Tornas hefur hlotið fjölda viður- kenninga, m.a. Bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs og norræn verðlaun Sænsku Akademíunnar. Þessi bók Sorgai'gondóllinn hefur hlotið verðlaun í Svíþjóð sem besta skáldverk ársins og er ein mest selda ljóðabók allra tíma í Svíþjóð. Ingibjörg Haraldsdóttir skáld- kona er löngu orðin þekkt sem einn vandaðasti þýðandi okkar. Auk þess er í þessari bók sérstak- ur viðauki sem geymir nokkur nýrri ljóð Tomasar Ti'anströmers, sem hann sendi Ingibjörgu sér- staklega. Bókin er 56 síður. Kápuna prýðir málverk eftir listmálarann Georg Guðna. ■ J MðSASKIPTUNUM^ Norræna bókasafnavikan 12.-18. nóvember Orð og tónar í norðri norræn Ijóðlist, norræn vísnahefð og h norræn tónlist í öndvegi Mánudagur 12. nóvember kl. 18:00 Norræn vísnatónlist í Borgarbókasafni: Aðalsafn Grófarhúsi: Menn frá Kleifum Borgarbókasafnið í Gerðubergi: Tríó Hafdísar Foldasafn í Grafarvogskirkju: Ásgeir Páll Ágústsson Kringlusafn í Borgarleikhúsi: Stúlkur úr Vox Feminae Sólheimasafn, Sólheimum 27: Kór Menntaskólans við Sund Aðgangur ókeypis og allir velkomnir Föstudagur 16. nóvember Gerðuberg kl. 15:00: Rýmnaflæðismeistararnir Igore rappa Seljasafn kl. 15:00: Gunnhildur Hrólfsdóttir segir börnum sögu Sólheimasafn kl. 17:30: Gunnhildur Hrólfsdóttir les úr nýrri verðlaunabók sinni Sjáumst aftur... Laugardagur 17. nóvember kl. 14:00 Kringlusafn: Barnakór Bústaðakirkju syngur Sunnudagur 18. nóvember kl. 15:00 Aðalsafn Grófarhúsi: Nordenom, norrænn vísnakvartett leikur á Reykjavíkurtorgi í aðalsafni og Kringlusafni verða piparkökusögustundir alla vikuna í vikunni fá gestir safnsins Ijóð Jónasar Hallgímssonar Ástkæra, ylhýra málið með sér heim ------------------------ m BORGARBÓKASAFN REYKJAVÍKUR * 5 JÓNARHÓLL Tvenn qleraugu Eitt verð KynniS ykkur ótrúlegt tilboðið Reykj avíkurvegi 22, Hafnarfirði 565-5970 # * * . * # • * UðS í NIYRKRI Vetrarhátíð Reykjavíkur 27.2.-3.3. 2002 Hugmyndasamkeppni Leitað er eftir hugmyndum að viðburðum, sýn- ingum eða öðrum verkefnum fyrir alla aldurshópa. Tilefnið er vetrarhátíð sem haldin verður í mið- borginni og Laugardalnum, bæði innandyra og utan, dagana 27. febrúar til 3. mars 2002. Hátíðin verður helguð Ijósi og orku og hefur hún hlotið heitið „Ljós í myrkri“. Um keppnina: Allir hafa þátttökurétt en nemendur á öllum skólastigum eru sérstaklega hvattir til þátttöku. Hugmyndirnar geta t.d. verið á sviði lista, tækni útivistar, íþrótta, fræða eða hönnunar. Fram þurfa að koma lýsing á viðburði, möguleg staðsetning og markhópur. Veitt verða þrenn verðlaun. Fyrstu verðlaun að upphæð 50.000 kr., önnur verðlaun 35.000 kr. og þriðju verðlaun 25.000 kr. Auk þess verða greiddar 10.000 kr. fyrir þær hugmyndir sem ekki hijóta verðlaun en verða nýttar. Stýrihópur hátíðarinnar metur innsendar tillögur i og ákveður hverjar þeirra hljóta verðlaun. Tillögur sendist undir dulnefni til Ráðhúss Reykjavíkur l merktar „Ljós í myrkri" fyrir 1. desember nk. Hverri | tillögu skal fylgja lokað umslag sem inniheldur nafn 1 sendanda. sp FRÁ REYKJAVÍKURBORG

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.