Fréttablaðið - 12.11.2001, Page 4
4^
FRÉTTABLAÐIÐ
12. nóvember 2001 MÁNUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
TEKJUSKATTUR FYRIRTÆKJA
Nokkuð mikil umræða hefur verið um
skattalækkanir ríkisstjórnarinnar, en ákveð-
ið hefur verið lækka skatta á fyrirtækjum
úr 30% í 18%. Hér að neðan er listi yfir
sams konar skatta I öðrum löndum.
Luxemborg 37,4o/o
Holland 350/0
Danmörk 350/0
ísland 30%
Jsland e/lækkun 18%
Heimild: Carðar Valdimarsson,
Reform of lcelandic Tax Law
BIFREIÐ FYRIRTÆKISINS
Þessi bifreið mun vera notuð til þess að
flytja hótelgesti á nektarstaðinn Palomino
Club I Norður Las Vegas, sem nú er kom-
inn f eigu hjartaskurðlæknisins Simon
Stertzer.
Skurðlæknir keypti nekt-
ardansstao:
Fjármagnar vís-
indarannsóknir
með nektarsýn-
ingum
las vegas. ap Virtur hjartaskurð-
læknir við Stanfordháskóla í
Bandaríkjunum, dr. Simon Stertz-
er, hefur keypt skemmtistað og
nektarbúllu á breiðgötu í Las Veg-
as. Ástæðuna segir hann vera göf-
uga, nefnilega að nota tekjurnar
af starfseminni til þess að fjár-
magna vísindarannsóknir.
Ekki líst öllum vel á þessa nýju
fjáröflunaraðferð læknisins, en
sjálfur segist hann ekki sjá neitt
athugavert við hana: „Hvaðeina
sem býr til fjárstreymi dugar til
verksins," sagði hann. ■
Bílslysið við Nesjavalla-
veg:
Nafn manns-
ins sem lést
umferðarslys Maðurinn sem lést
af völdum áverka sem hann hlaut
við umferðarslys
á mótum Hafra-
vatnsvegar og
Nesjavallavegar,
hét Benedikt Orri
Viktorsson, 34
ára gamall, til
heimilis að Soga-
vegi 162 í Reykja-
vík. Benedikt var
í sambúð með
Helgu Rán Sig-
urðardóttur sem einnig lést í slys-
inu. Hann lætur eftir sig einn son
frá fyrra sambandi. ■
ÍLÖGREGLUFRÉTTIRl
Goði Jóhann Gunnarsson, sem
auglýsti vörur undir merkjum
póstlistans Costgo, hafði samband
við Fréttablaðið á föstudag og
sagði að þeir sem lagt hefðu inn á
reikning fyrirtækisins vegna pönt-
unarlista gætu fengió endurgreitt
með því að senda upplýsingar um
reikningsnúmer og kennitölu á
netfangið costgo@isl.is. Hann
sagðist hins vegar halda áfram
rekstri og ætla að ganga frá form-
legri firmaskráningu og slíku.
Goði var tæpan sólarhring í haldi
lögreglu vegna rannsóknar á við-
skiptum Costgo en var látinn laus
og sagðist halda áfram undirbún-
ingi að rekstrinum.
BENEDIKT ORRI
VICFÚSSON
Hrossakaup í Hæstarétti:
Hross fyrir hornsófa og myndbandsspólur
hornsófa en tvö hross í skiptum
fyrir 50 notaðar myndbandsspól-
ur með óþekktu innihaldi. Þá hafi
hann látið þrjú hross upp í laun
tamningastúlku. Restinni af
hrossunum segist bóndinn hafa
slátrað, þar af fimm heima á bæ
haustið 1997 en að sjö hafi verið
seld í sláturhús árið 1999. ■
HVENÆR KAUPIR MAÐUR HEST?
Bóndi í Svarfaðardal þarf að greiða sunn-
lendingi fyrir 21 hest sem hann segist ekki
hafa keypt en borgaði þó fyrir að hluta.
Skólagjöldin
standa aðeins und-
ir skrifstofurekstri
Margfaldur munur á gjöldum tónlistarskóla. Borgin greiðir laun kenn-
ara og skólastjóra en allt að 60 þúsund króna skólagjöldin frá foreldrum
standa undir skrifstofurekstri.
tónlistarnám Tónlistarskólarnir í
Reykjavík eru einkareknir en laun
kennara og skólastjórnenda eru
greidd úr borgarsjóði. Sumir skól-
anna stunda kennslu í eigin hús-
næði, aðrir starfa í leiguhúsnæði.
í sumum tilfellum leigja þeir af
borginni húsnæði talsvert undir
markaðsverði. Skólagjöld foreldra
renna því til að reka skrifstofur
skólanna, þar sem annast er um
launaútreikning kennara og inn-
heimtu skólagjalda.
Flest sveitarfélög utan
Reykjavíkur reka sjálf tónlistar-
skóla og eru gjöld foreldra þar
yfirleitt verulega lægri en í
Reykjavík. Gríðarlegur munur
er á gjöldum sem foreldrar
þurfa að greiða fyrir hljóðfæra-
nám barna sinna eftir því hvar
það er stundað. Algengt verð á
hljóðfæranámi í tónlistarskóla í
Reykjavík er um 60.000 kr. fyrir
nemanda sem fær tvær 30 mín-
útna kennslustundir á viku, auk
tónfræðikennslu og samspils.
Ofan á þetta bætist í sumum til-
vikum leigugjald á hljóðfæri
sem oft er 6000 kr. fyrir árið. í
Tónlistarskóla grunnskólanna í
Grafarvogi er þetta gjald nokkru
lægra, eða t.d. 38.000 kr. fyrir pí-
anónám en sá skóli nýtir alfarið
húsnæði grunnskólanna til
kennslu. Nemandi sem er í skóla-
hljómsveit í Reykjavík fær
kennslu á hljóðfæri tvisvar sinn-
um 30 mínútur á viku og auk
þess tvær klukkustundir í hljóm-
EKKI SAMA HVAR NÁMIÐ ER STUNDAÐ
Mikill munur er á gjöldum sem foreldrar greiða fyrir hljóðfæranám barna sinna eftir því
hvar þau stunda námið.
sveitarleik. Fyrir þessa kennslu
greiða foreldrar 11.000 krónur á
vetri. Hjá skólahljómsveitum
greiðir borgin laun kennara.
Kennslan fer fram í skólahús-
næði borgarinnar og Fræðslu-
miðstöð annast launaútreiking
og innheimtu gjalda. ■
dómsmál Bóndi í Svarfaðardal
hefur verið dæmdur til að greiða
öldruðum manni á Suðurlandi ríf-
lega 650 þúsund krónur vegna 21
hests sem gamli maðurinn hafði
sent bóndanum norður yfir heið-
ar en ekki fengið greidd að fullu.
Svarfaðaðardalsbóndinn sagð-
ist ekki hafa keypt hrossin held-
ur aðeins tekið þau í tamningu og
umboðssölu fyrir þrábeiðni
Sunnlendingsins. Seljandinn
sagði hins vegar að samkomulag
hefði verið um 36 þúsunda króna
greiðslu fyrir hvert hrossana.
Aðeins hefðu borist 100 þúsund
krónur upp í kaupin en það ekki
fyrir en eftir dúk og disk.
Hrossin voru send norður með
flutningabíl vorið 1997 eftir að
dóttir bóndans hafði skoðað þau
fyrir sunnan. Bóndinn sagði
mörg hrossana hafa verið gölluð.
Ýmist sagði hann þau hafa verið
hölt, blind, skapstygg og óhæf til
tamingar eða að jafnvel hafi ekki
verið hægt að gelda þau. Hann
taldi hrossin fráleitt virði þeirrar
upphæðar
Á næstu árum skipti bóndinn
smám saman á hrossunum og
ýmsu sem hann vanhagaði um.
Fjögur hross sagðist hann hafa
látið í skiptum fyrir notaðan
HÆSTIRÉTTUR fSLANDS
Sannað þótti að hállfimtugur maður hefði
hótað að stytta nágrannakonu sinni aldur
vegna ólíkra sjónarmiða um salerni í húsi
þar sem þau bjuggu.
Salernisdeilur í Vesturbæ:
Fangelsi fyrir
líflátshótanir
DÓMSMÁL Hálfimmtugur maður
hefur verið dæmdur í átta mánaða
fangelsi fyrir að hafa hótað rúm-
lega fertugri nágrannakonu sinni
lífláti.
Konan og maðurinn bjuggu í
sama húsi á sjávarkambinum við
Ægisíðu þegar atvikið átti sér stað
í apríl í fyrra. Deilur höfðu staðið
milli fólksins um klósett í húsinu
og barði maðurinn dyra hjá kon-
unni að kvöldlagi til að útlista
sjónarmið sín í deilunni og fylgdu
þá með hótanir um líflát. Það
gerði hann reyndar einnig í fleiri
skipti og voru þá vitni að hótunum
mannsins.
Maðurinn á að baki langan af-
brotaferil en hann hófst árið 1972.
Til dæmis hefur hann verið
dæmdur fyrir ölvunarakstur,
fíknefnabrot, líkamsárásir,
skjalafals og þjófnað.
Með broti sínu gegn nágranna-
konunni rauf hann skilorð vegna
eldri dóma og eru 180 dagar, eða
fimm mánuðir af refsingunni nú,
vegna þeirra brota. Auk þess að
hafa verið dæmdur fyrir lífláts-
hótunina var maðurinn fundin
sekur um að hafa haft í fórum sín-
um hálft annað gramm af am-
fetamíni. ■
Hryðjuverk á átjándu öld:
Bretar dreifðu bólusótt til indíána
PITTSBURCH. ap Árið 1763 tóku
Bretar í Norður-Ameríku ákvörð-
un að gefa indíánum teppi og
vasaklúta frá sjúkrahúsi, sem var
fullt af sjúklingum með bólusótt.
Þetta atvik sýnir að sýklar og önn-
ur mannskæð efni hafa verið not-
uð til hryðjuverka býsna lengi.
„Þetta var ekki hugmynd sem
Bretum fannst fjarlæg og óhugs-
anleg,“ segir Elizabeth A. Fenn,
sagnfræðingur sem nýlega skrif-
aði grein um málið í bandaríska
tímaritinu Journal of American
History.
Bretarnir voru staddir í Fort
Pitt, sem stóð þar sem nú er al-
menningsgarður í Pittsburgh.
Indíánarnir höfðu gert áhlaup að
þeim og reyndu að svæla Bretana
út með því að leggja eld að húsum.
Fáeinum vikum síðar braust út
bólusótt í Fort Pitt, þannig að
setja varð smitaða hermenn í sótt-
kví á sjúkrahúsi.
Seint í júní var ljóst að indíán-
um hafði ekkert orðið ágengt með
að hrekja Bretana burt, og hugð-
ust halda burt. Sendu þeir tvo full-
trúa sína til að biðja Breta um
vistir fyrir ferðalagið.
„Við gáfum þeim tvö teppi og
vasaklút frá bólusóttarsjúkrahús-
inu,“ skrifaði kaupsýslumaðurinn
William Trent í dagbók. „Ég vona
að það hafi tilætluð áhrif.“
Vitað er um a.m.k. 120 indíána
sem létust úr bólusóttinni innan
árs. ■
VETTVANGUR GAMALS GLÆPS
Þetta steinhús það eina sem eftir er af Fort
Pitt., virkinu sem Bretar höfðu náð á sitt
vald árið 1763.