Fréttablaðið - 12.11.2001, Page 7
MÁNUDAGUR 12. nóvember 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Þjálfun fatlaðra á hestum:
Leitað eftir stuðningi
þjálfun FflTLAÐRA Reiðskólinn Þyr-
ill hefur í samstarfi við ÍTR geng-
ist fyrir þjálfun fatlaðra á hestum
undanfarin ár. Kennslan fer fram
í Reiðskólanum Þyrli, sem leggur
til hesta og reiðtygi en ÍTR leggur
til starfsmann, Sigurð Má Helga-
son, og Reykjavíkurborg hefur
einnig stutt framtakið með fjár-
framlagi, 600.000 kr. nú á
haustönn.
Þjálfun fatlaðra á hestum hef-
ur gefið góða raun og hafa nem-
endurnir, að sögn Sigurðar, tekið
ótrúlegum framförum en milli 40
og 50 einstaklingar hafa notið
þjálfunarinnar. Hesturinn fram-
kallar 200 alhliða hreyfingar á lík-
ama þess sem situr hann á mín-
útu, þ.e. 3000 á hálftíma þannig að
líkamsþjálfunin er geysileg fyrir
hinn fatlaða. „Einn 25 ára karl-
maður, sem hefur verið hjá mér
síðustu árin er mjög fjölfatlaður
og hefur aldrei getað stigið í fæt-
urna. Ég segi að hann standi mér
jafnfætis þegar hann er kominn á
hestbak. Það er stórkostlegt að sjá
hjá honum þær framfarir sem
orðið hafa,“ segir Sigurður.
Þrátt fyrir stuðning borgarinn-
ar vantar um 350.000 kr. til að
hægt sé að halda úti þjálfuninni til
áramóta og fer Sigurður þess nú á
leit við fyrirtæki og einstaklinga
að leggja þessu góða málefni lið.
Hann hefur opnað reikning í
Langholtsútibúi Landsbankans,
nr. 117-05-688888 og hafa Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra,
Styrktarfélag vangefinna og
Landssamtökin Þroskahjálp tekið
að sér annast vörslu þess fjár sem
berst til stuðnings málefninu. ■
ELDHUGI f ÞJÁLFUN
Sigurður Már Helgason hefur þjálfað á
fimmta tug fatlaðra nemenda á hestum.
Hann sér nú fram á að geta ekki haldið
kennslunni út til áramóta nema til komi
framlag fyrirtækja og einstaklinga.
Haraldur Böðvarsson:
Gengið
erfitt góðum
rekstri
viðskipti Haraldur Böðvarsson
hf. hagnaðist um 877 milljónir
króna á fyrstu níu mánuðum árs-
ins fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði samanborið við 567
milljónir króna á sama tímabili
árið áður. Niðurstaða rekstrar-
reiknings er þó tap upp á 275
milljónir króna. Haraldur Stur-
laugsson, framkvæmdastjóri,
segir daglegan rekstur ganga
framar vonum, en að líklegt sé að
lokaniðurstaða reksti-arreiknings
verði samt sem áður neikvæð
vegna gengisþróunar. ■
HÉRÐASDÓMUR REYKJANESS
I frumvarpi til fjáraukalaga er lögð til 9
milljóna króna fjárveiting vegna flutnings
Héraðsdóms Reykjaness í nýtt húsnæði. f
fjárlögum 2001 eru ætlaðar 20 milljónir
króna vegna ýmissa breytinga á húsnæð-
inu, öryggiskerfis, húsbúnaðar og annars
stofnkostnaðar. Það framlag er talið þurfa
að hækka um nærri fimmtíu prósent,
vegna aukins kostnaðar við hönnunar-
vinnu og upptökutæki í dómssali.
„Hluti gjaldaaukningarinnar í
frumvarpinu til fjáraukalaga er
sú þróun sem komið hefur í ljós á
þessu ári, og menn sáu ekki fyrir,
hluti hennar var samt sem áður
fyrirséður. Áhrifa þessa frum-
varps mun gæta þegar fjárlögin
2002 verða afgreidd, enda mikill
kostur að frumvörpin eru rædd
samhliða," segir Einar Már.
arndis@frettabladid.is
Bakkavör Group:
Aukin sala
og hagnaður
uppgjör Bakkavör Group hf.
hagnaðist um 50 milljónir á
fyrstu níu mánuðum ársins eftir
skatta og fjármagnsliði sarnan-
borið við tæpa eina milljón árið
áður. Mesti sölutími ársins hjá fé-
laginu fer nú í hönd. Þrátt fyrir
að horfur séu á að afkoman fyrir
allt árið verði betri en áætlanir
gerðu í’áð fyrir verður rekstrará-
ætlun óbreytt, að því er segir í
tilkynningu Bakkavai'ar til Verð-
bréfaþingsins. Ástæðan er sögð
vera óvissa uni verðþróun hrá-
efnis, en útbúningur og markaðs-
setning ýmislegs lagmetis, svo
sem hrogna, er á meðal fjöl-
breytilegrar starfsemi félagsins.
Veruleg aukning varð á sölu dótt-
urfélaga Bakkavarar í Svíþjóð,
Frakklandi, Bretlandi og Póllandi
á milli ára.B
Traustur sjóður,
trygg framtíð
Ert þú að tapa réttindum?
............Gerðu,.viðvart.f.y.rir áramótl
í október s.l. sendi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda öllum þeim sem greitt höfðu til sjóðsins
janúar til ágústloka 2001 yfirlit þess tímabils.
Þeir sem ekki fengu yfirlit en telja sig hafa greitt iðgjöld til sjóðsins á umræddu tímabili 2001,
ber að gera sjóðnum viðvart án tafar um ætluð vanskil.
Athugasemdir, staðfestar með launaseðlum, þurfa að berast Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda
innan 60 daga frá dagsetningu yfirlitsins, eða eigi síðar en 27. desember 2001. Að öðru kosti
getur glatast mikilvægur lífeyrisréttur sjóðfélaga.
Efnahagsreikningur (iþús.kr.):
Verðbréf með breytilegum tekjum
Verðbréf með föstum tekjum
Veðlán
Bankainnistæöur
Kröfur
Aðrar eignir og rekstrarfjármunir
Iðgjöld
Lifeyrir
Fjárfestingartekjur
Fjárfestingargjöld
Rekstrarkostnaður
Matsbreytingar
Lifeyrissjóður Leigubifreiðarstjóra
Hækkun á hreinni eign á timabilinu
Hrein eign frá fyrra ári
30.06.2001 31.12.2000
4.803.691 4.462.080
14.980.460 13.944.460
606.569 492.357
147.552 52.365
226.499 263.143
9.027 8.718
20.773.798 19.223.123
eign til grei iðslu lífeyris:
453.715 1.109.757
-79.221 -170.729
202.953 376.051
-8.555 -19.644
-9.572 -22.629
991.355 691.898
1.550.675 1.964.704
0 165.043
1.550.675 2.129.747
19.223.123 17.093.376
20.773.798 19.223.123
Söfnunarsjóður
lifeyrisréttinda
Lífeyrisskuldbindingar skv. niðurstöðu tryggingafræðings í árslok 2000:
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 4.855.000
í hlutfalli af áfföllnum skuldbindingum 29,3%
Eignir umfram heildarskuldbindingar 814.000
í hlutfalli af heildarskuldbindingum 2,6%
nnitölur
Hrein raunávöxtun 0,9% 1,6%
Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal 5,0% 6,1%
Fjöldi virkra sjóðfélaga 7.503 7.643
Fjöldi lifeyrisþega 1.924 1.662
Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,06% 0,12%
Ávöxtun séreignardeildar 2001
Nafnávöxtun séreignardeildar fyrstu sex mánuði ársins var 7,0%. Það þýðir að raunávöxtun
deildarinnar var 1,7%. Lækkanir á innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum draga niður
ávöxtun beggja deilda.
Sjóðfélagar
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda er ætlaður öllum launþegum og sjálfstætt starfandi mönnum sem
eiga ekki kjarasamningsbundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Hann getur þvi veriö góöur kostur
fyrir ýmsa aðila sem þurfa að velja sér lífeyrissjóð. Sjóðurinn byggir á samtryggingu og séreign.
f stjórn sjóðsins frá 1. janúar 2001
Baldur Guðlaugsson formaður, Hrafn Magnússon varaformaður, Arnar Sigurmundsson,
Gunnar Gunnarsson, Halldór Björnsson, Margeir Danielsson, Þorgeir Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri er
Sigurbjörn Sigurbjörnsson
Skúlagata 17 • 101 Reykjavík ■ Sími 510 7400 ■ Fax 510 7401 ■ sl@sl.is ■ www.sl.is