Fréttablaðið - 12.11.2001, Side 8

Fréttablaðið - 12.11.2001, Side 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 12. nóvember 2001 MÁNUDACUR IlöcreclufréttirF AHöfn í Hornafirði höfðu menn áhyggjur af húsi einu í bænum þar sem verið var að skipta um þakplötur. í óveðrinu á föstudagsnótt byrjuðu plötur að losna. Betur fór þó en á horfðist og stóð húsið af sér storminn. Allar samgöngur til og frá Vestmannaeyjum lágu niðri á Iaugardag og varð að fresta fjöl- mörgum viðburðum sökum þessa. Meðal annars varð að aflýsa tón- leikum með Sálinni hans Jóns míns sem fyrirhugaðir voru á laugardagskvöld. Þá féllu niður tónleikar með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Bandarískar sprengjuflugvélar: Sprengdu geymslustaði gjöreyðingarvopna washincton.ap Hersveitir Banda- ríkjamanna hafa sprengt upp staði í Afganistan sem mögulegt er að hafi verið notaðir til að framleiða efna-, eða geislavirk vopn. Þetta sagði Donald Rums- feld, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna í gær. í dagblaðinu „The New York Times“, kom fram í gær að Bandaríkin hefðu vit- neskju um þrjá staði sem mögu- lega hefðu að geyma slík vopn en hefðu forðast að varpa sprengjum á þá. Rumsfeld sagði hins vegar að ekki væri vitað um fleiri slíka staði. Leiðtogar Norðurbandalagsins, sem barist hefur gegn stjórn tali- bana í Afganistan, sögðust í gær tilbúnir til að ráðast á Kabúl, höf- uðborg landsins. Sögðust þeir vera komnir í árásarfæri eftir mikla landvinninga undanfarna tvo sólarhringa. „Við erum nú komnir upp að norðurhlið Kabúl og hersveitir okkar geta hafið árásir sínar hvenær sem er,“ sagði Ashraf Nadeem, talsmaður bandalagsins. George Bush, Bandaríkjaforseti hefur hins vegar hvatt Norður- bandalagið til að ráðast ekki á borgina enn um sinn. Talibana- stjórnin hefur ákveðið að bæta ör- yggi í borginni til að meina Norð- urbandalaginu aðgang. ■ SPRENGINC Sprengjuflugvélar Bandaríkjanna hafa sprengt upp staði sem gætu hafa verið notaðir til framleiðslu efnavopna. Reynt að koma Núpi BA á flot í dag: Miklar skemmdir á kili skipsins skipsstranp Unnið er að því að koma línubátnum Núpi BA frá Patreksfirði, sem strandaði við Vatneyri við Patreksfjörð á laug- ardagsmorgun, aftur á flot. 14 manna áhöfn var bjargað frá borði og sakaði ekki. Að sögn Sig- urðar Viggóssonar, framkvæmda- stjóra fiskvinnslu- og útgerðarfé- lagsins Odda, eru miklar skemmdir á kili skipsins. Verið er að þétta bátinn svo að unnt sé að koma honum á flot. Átti Sigurður ekki von á að skipið kæmist á flot fyrr en í fyrsta lagi í dag. Hann sagði ljóst að tjónið væri mjög mikið og að botninn væri meira og minna allur laskaður. Núpur fékk á sig brotsjó við strandið og komst sjór í vélarrúm, lest, og hluta af vistarverum áhafnar. ■ LÖGREGLUFRÉTTIRi Lögreglan á ísafirði notaði laugardaginn til skýrslutöku vegna tjóna af völdum veðurofs- ans sem gekk yfir landið aðfara- nótt laugardags. Mest er um rúðubrot og lausar þakplötur. Að sögn lögreglu mældist vindur á laugardag mestur 61m/s í verstu hviðunum á Þverfjalli. Þakplötur fuku af útihúsum við tvo sveitabæi við Skagaströnd og var lögreglan á Blönduósi köll- uð á vettvang til aðstoðar. Húsvíkingar komu vel undan veðurofsanum og sömuleiðis íbúar á Akureyri. Lögreglan á Húsavík mætti einni þakplötu á flugi og tókst að hefta för hennar. Lögreglan stöðvaði einnig för nokkurra ökumanna um helgina sem grunaðir voru um ölvun við akstur. Á laugardag var villi- bráðakvöld á Hótel Húsavík og hafði lögreglan á orði að þar á bæ hefðu menn skemmt sér hið besta og án nokkurra vandkvæða. Ábendingar rannsakadar og sendar ríkislögreglustjóra Fiskistofa mun ganga hart fram til að koma lögum yfir þá sem voru myndaðir við brottkast afla í fréttatíma sjónvarpsins. Lögin heimila fangelsi til allt að sex ára vegna ítrekaðs brottkasts. Ríkislögreglustjóri taki afstöðu til ábyrgðar þeirra sem tóku myndirnar. BROTTKA5T „Við höfum fengið tals- vert margar ábendingar um hvaða bátar áttu í hlut og ég geri fastlega ráð fyrir því að við skoð- um það nánar. í kjölfarið er lang- líklegast að við sendum málið til ríkislögreglustjóra með ósk um rannsókn og að hann noti sínar heimildir til að upplýsa það,“ seg- ir Árni Múli Jónasson, aðstoðar- fiskistofustjóri, spurður um fyrstu aðgerðir vegna brottkasts- ins sem sýnt var í sjónvarpinu á fimmtudagskvöld. Árni segir að meðal annars verði þeir bátar sem ábendingar hafa borist um bornir saman við myndirnar. Eina refsingin sem lög um nytjastofna sjávar heimila Fiski- stofu að grípa til er tímabundin svipting veiðleyfis til allt að eins árs. í lögunum segir að sé um stórfelld eða ítrekuð ásetnings- brot að ræða skuli þau varða allt að sex ára fangelsi. „Ég get ekki sagt til um hversu þungar refsing- ar gætu komið til, það ér á valdi dómara." Árni býst ekki við því að Fiski- BROTTKAST Um 30% afla var kastað fyrir borð I veiðiferð sem Friðþjófur Helgason og Magnús Þór Hafsteinsson festu á filmu. Fiskarnir sem fóru þá leið voru allt að 50 cm og 3 kg. JÓN SNORRASON Lágmarkssekt er 400.000 krónur. stofa gangi á eftir uplýsingum frá Friðþjófi Helgasyni og Magn- úsi Þóri Hafsteinssyni sem tóku myndirnar. „Mér finnst eðlileg- ast að ríkislögreglustjóri ta,ki ákvörðun um hlut þeirra. Ég reikna með að hann hafi samband við þá telji hann tilefni til.“ Jón Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra, segir að málinu yrði að líkindum í fyrstu beint til lög- reglustjóra í umdæmi heima- hafnar viðkomandi báts. „Það getur hinsvegar verið að Fiski- stofu þyki málið þannig vaxið að þeir vilji senda það hingað.“ Jón vildi ekkert segja um mögulega afstöðu embættisins til ábyrgð- arhluta þeirra sem tóku mynd- írnar. Árni telur varhugavert að draga almennar ályktanir hvort sem er út frá myndum sjónvarps- ins eða mælingum Fiskistofu um stöðu mála almennt á fiskimiðun- um. „Það er mjög ábyrgðarlaust að taka einstök tilvik og marg- falda þau á allan flotann." matti@frettabladid.is Undrandi á óánægju í Kópavogi: Þriðja bréfið vegna flokksaðildar SAMFYLKINC Svala Jónsdóttir, for- maður Samfylkingarfélagsins í Kópavogi, undrast fréttir um að flokksmönnum, úr röðum flokk- anna sem mynduðu flokkinn og stóðu saman að Kópavogslistan- um, hafi komið á óvart að fá bréf og gíróseðil frá félaginu nýlega. Þetta sé að lágmarki þriðja bréfið sem þessum aðilum sé sent í nafni Samfylkingarinnar. Svala segir að þegar flokksfé- lögin gengu í Samfylkinguna hafi öllum félagsmönnum þeirra verið send bréf og veittur frestur til að segja sig úr félaginu. Rukkun vegna félagsgjalda hafi fyrst ver- ið send fyrir rúmu ári og bréf hafi síðast verið send félagsmönnum aðalfundar sl. vor í tengslum við aðalfund þar sem nafni Kópavogs- listans var breytt í Samfylking- una í Kópavogi. „Þannig að þetta er alla vegana þriðja bréfið sem menn fá í hendurnar og ef það kemur þeim á óvart er það óskilj- anlegt,“ sagði Svala. „Sú samlík- ing að við séum að skrá fólk í Samfylkinguna án þess að það óski eftir því er fáránleg.“ ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.