Fréttablaðið - 12.11.2001, Síða 10
FRETTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavlk
Aðalslmi: 515 75 00
Sfmbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uöborgarsvæðinu Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins I stafrænu formi og I gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Könnun á olíu-
félögum verði
hraðað
Bréf Samtaka iðnaðarins
tii iðnaðarráðherra
olíuverp. „Samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem Samtök íðnaðarins
hafa aflað sér hefur verð á gasol-
íu á heimsmarkaði lækkað mjög
mikið undanfarna mánuði. Á sama
tíma hefur verð á gasolíu hér á
landi lækkað óverulega. Verð á
bensíni og skipaolíu lækkaði
nokkuð í kjölfar háværra mót-
mæla samtaka bifreiðaeigenda og
útgerðarmanna um síðustu mán-
aðamót. Þá lækkaði gasolía til al-
mennra nota ekkert. Verðþróun á
þessum eldsneytistegundum er-
lendis skýrir ekki þennan mun.
Athugun á verðmyndun olíu
hér á landi hefur nú staðið yfir í
um það bil eitt ár. Fyrirtæki innan
Samtaka iðnaðarins eru í heild
stærstu kaupendur gasolíu hér á
landi til notkunar í iðnaði og flutn-
ingum. í ljósi þessara miklu hags-
muna og þeirrar fákeppni sem er
á íslenskum olíumarkaði óska
Samtök iðnaðarins hér með eftir
því að ráðherrann beiti sér fyrir
því að þessari athugun verði hrað-
að eins og kostur er.“ ■
Ótrúlega hljóölátar
a ASKO
Uppþvottavélar
[FtTEDia Ft/TSaEB’MDai B3DW
HEILDARLAUSN
Sparaðu þér hó gjöld við
auglýsingakostnað með því
að ráða hönnuð í fyrirtækið.
Til greina kemur:
► Föst vinna
► Hlutastarf t.d. ákv. %
► Stök verkefni
'Jfiimin -.|ó ym AILA nugl.serö
yiif iifnö og finmrií, NETIÐ nt
irjljr&ingar lyrir sjönvarpið.
10
FRÉTTABLAÐIÐ
12. nóvember 2001 MÁNUDACUR
Kvótaleiga gerir út á brottkast
Kvótakérfið var sett á laggirnar
til að bregðast við því að nauð-
synlegt var orðið að takmarka
sóknina í fiskimiðin. Skipin voru of
mörg og stór miðað við hvað fisk-
arnir voru fáir og smáir. Kerfið
byggist á því að takmarka þann
afla sem koma má með að landi.
Það hefur borið þann árangur, að
hagstæðast er fyrir útgerðir og
sjómenn að hirða aðeins verð-
mætasta aflann en henda hinu. Nú
kostar leigukvóti 150 kr. fyrir
hvert kíló af þorski. Fyrir smá-
þorsk, veiddan, slægðan og kom-
inn inn á gólf á fiskmarkaði fæst
sama upphæð, um 150 kr/kg. Fyrir
vænsta fiskinn, sem hentar til
verðmætrar saltfiskvinnslu, fást
um og yfir 300 kr/kg. Útgerð, skip-
stjóri og áhöfn báts, sem hefur
leigt til sín kvóta, vita áður en lagt
er úr höfn að það verður beint fjár-
hagslegt tap af því að koma með
smáfiskinn að landi. Söluverðið
mun bara duga fyrir kvótaleigunni
en hvorki launum áhafnar, olíu né
öðrum kostnaði. Brottkastið er því
forsenda þess að veiðiferðin geti
borgað sig. Það er engin leið að
lokka bara stærsta þorskinn í veið-
arfærin en láta hitt synda sinn sjó.
Þetta veit reyndar líka kvóta-
eigandinn, sem leigði frá sér kvót-
ann. Hann tók hæsta verð fyrir
óveiddan fisk í sjó fram yfir lang-
tímahagsmuni ábyrgrar fiskveiði-
stjórnar, raunhæfra hafrannsókna
og vöxt og viðgang fiskistofnanna.
Hann er samábyrgur. Samt telur
MáLmanna.
Pétur Gunnarsson
skrifar um brottkast
hann, og hagsmunasamtökin sem
hann tilheyrir, að einmitt honum
beri réttur umfram aðra til af-
raksturs fiskimiðanna. Þann rétt
nýtir hann i verki með því að hagn-
ast á að gera mönnum kleift að
blóðmjólka auðlindina, sem honum
hefur verið falið að ávaxta.
En auðvitað eru það útgerðar-
menn, skipstjórar og áhafnir bát-
anna, sem fara á veiðar til þess að
fleyta rjómann ofan af, sem bera
mestu ábyrgðina. Þeirra hendur
vinna verkið og allir njóta þeir af-
rakstursins af því, - sjómennirnir í
hærri skiptahlut en útgerðin í því
að geta haldið áfram rekstri, sem
annars þyrfti að horfast í augu við
að á sér engan grundvöll.
Líkt og hjá kvótaseljendum
gengur málflutningur sjómanna og
útgerða kvótalítilla skipa út á að
einmitt þeim beri frumburðarrétt-
ur til fiskimiðanna. Það er holur
hljómur í þeim málflutningi þessa
dagana og minnir á skattsvikarann
sem kennir óréttlátu skattkerfi um
svikin sem hann fremur sjálfur. ■
Þróun ríkisutgjalda rœður
nú mestu um þróun vaxta
Hið opinbera þarf að hafa hemil á útgjöldum í fjárlagaumræðunni ef Seðlabankanum á að takast að
halda verðbólgu innan viðmiðunarmarka. Annars eru forsendur frekari vaxtalækkana brostnar.
efnahagslíf Áður en Seðlabankinn
tilkynnti um vaxtalækkun síðdeg-
is á fimmtudag hafði gengi krón-
unnar styrkst um daginn. Skoðun
Seðlabankamanna hefur verið sú,
að raungengið hafi verið of lágt
og því mikilvægt að það styrktist
þegar ákvörðun um vaxtalækkun
væri tekin.
Gengissigið á þessu ári hefur
verið erfiður biti að kyngja fyrir
forsvarsmenn Seðlabankans, en
hækkun á innfluttum vörum hef-
ur staðið undir einum fjórða af
hækkun verðlags undanfarna
þrjá mánuði og 40% undanfarna
tólf mánuði.
Peningamálastefna Seðlabank-
ans miðast við að halda verðbólgu
hér á landi innan ákveðinna
marka. Til þess notar hann meðal
annars vexti til að stýra eftir-
spurn eftir peningum. Mikil
þensla, launaskrið og útlánaaukn-
ing hefur gert bankanum erfitt
um vik að lækka vexti því þessir
liðir ýta undir aukna verðbólgu.
Á morgunverðarfundi Versl-
unarráðs Islands á föstudag sagði
Birgir ísleifur Gunnarsson,
seðlabankastjóri, að þess sæjust
nú merki að ofþenslan væri að
hjaðna og verðbólguvæntingar að
FJÁRLAGAVINNAN f FULLUM GANGI
Fjárlagafrumvarpið hefur farið í gegnum fyrstu umræðu á Alþingi og er nú til meðferðar í
fjárlaganefnd. Mikill þrýstingur er á nefndarmenn og aðra aljjingismenn að auka útgjöld I
ýmis verkefni vegna samdráttar. Erfitt verður fyrir alþingismenn að spyrna við fótum þó
nauðsynlegt sé að mati Seðlabankans.
lækka. Aðhald í peningamála-
stefnu Seðlabankans væri enn
mikið og trúin á að verðbólgu-
markmið næðust hafi styrkst.
Tímasetning næstu vaxtalækk-
ana ráðist af framvindu á gengi
krónunnar næstu daga og vikna.
Margeir Pétursson, forstjóri
MP verðbréfa, gagnrýndi bank-
ann fyrir að koma ekki auga á
IHVASA ÞÆTTIR HAFA ÁHRIF A FRAMVINDU VAXTAMÁLA A ÍSLANDI? |
NIÐURSTAÐA FJÁRLAGAFRUMVARPSINS
Umræður um fjárlög fara nú fram á Alþingi. f meðferð þess er krafist
aukinna útgjalda f ýmsa málaflokka. Seðlabankinn telur nauðsynlegt
að sýna aukið aðhald þar sem aukin ríkisútgjöld þýða aukna eftir-
spurn. Það eykur verðbólgu.
KJARASAMNINGAR f FEBRÚAR
Verðbólga hefur verið meiri vegna launaskriðs. Riftun kjarasamninga 1
febrúar og krafa um hærri laun mun verða velt út f verðlagið. Ábyrgð
launþegasamtaka og vinnuveitenda er þvf mikil, ekki sfður en launa-
nefnda hins opinbera.
GENGISPRÓUN KRÓNUNNAR
Seðlabankinn telur raungengi krónunnar of lágt. Hækkun verðlags
hefur að stórum hluta orsakast af veikingu krónunnar. Fylgst verður
grannt með þróun gengisins og hvort það styrkist ekki þegar fram Ifða
stundir.
ástæður ójafnvægisins sem kom-
ið er á efnahagsástandið þar sem
við höfum háa verðbólgu á sam-
dráttarskeiði. Fastgengisstefna
Seðlabankans, sem horfið var frá
á þessu ári, væri ein megin orsök
ástandsins. Menn skynjuðu ekki
gengisáhættuna og nokkurs kon-
ar ríkistrygging var á íslensku
krónunni. Eftir að gengi krónunn-
ar fékk að lúta lögmálum fram-
boðs og eftirspurnar færu vextir
að virka.
Margeir sagði skynsamlegt af
bankanum að stíga ekki of fast til
jarðar í vaxtaákvörðunum sínum
fyrst um sinn en reiknaði með
fleiri lækkunum á næstunni.
Þetta hefði jákvæð áhrif á fram-
vindu efnahagslífsins enda draga
háir vextir máttinn úr atvinnulíf-
inu.
Andri Teitsson hjá Þróunarfé-
lagi íslands taldi spá Seðlabank-
ans á efnahagslífið full bjartsýna.
Nauðsynleg forsenda væri að
draga talsvert úr útgjöldum hins
opinbera. Benti hann á að sendi-
ráð í Japan, knattspyrnuhöll á Ak-
ureyri og jarðgöng á Siglufirði
stuðluðu ekki að því.
Tóninn hjá Margeiri var sá
sami. Sagði hann að Seðlabankinn
hefði átt að nýta sjálfstæði sitt
gagnvart hinu opinbera betur og
gagnrýna meira útgjaldaaukn-
ingu ríkis- og sveitarfélaga. Auk-
ið aðhald í ríkisfjármálum væri
algjört skilyi'ði fyrir því að mark-
mið Seðlabankans náist.
Birgir ísleifur sagði framlag
ríkisfjármála mikilvægt í þessum
efnum. Niðurstaða í kjaraviðræð-
um fyrir febrúar hefði líka mikil
áhrif á þróun verðlags næstu
mánaða. Meiri líkur væru nú að
Seðlabankinn næði verðbólgu-
markmiðum sínum árið 2003.
bjorgvin@frettabladid.is
1 HVAÐ ERU VEXTIR? ~|~
I Við notum peninga tíl að kaupa
hluti sem eftirspurn okkar kallar
eftir. Peningar í dag eru verð-
mætari en peningar á morgun.
Ef við frestum neyslu okkar til
morguns viljum við að okkur sé
það bætt upp með vöxtum á
peningana. Vextir eru því uppbót
fyrir það að fresta neyslu. Á máli
hagfræðinnar kallast það fórnar-
kostnaður neyslu.
I Þensla í hagkerfi orsakast af
mörgum þáttum. Til að draga úr
eftirspurn í dag hækkar Seðla-
bankinn vexti og gerir það þar
með eftirsóknarverðara að fresta
neyslu og spara. Þegar vextir
hækka leggjum við inn pening
eða greiðum niður skuldir. Við
það minnkár þensla í hagkerfinu
og verðlag getur náð jafnvægi.
| Seðlabankinn reynir að halda
þessu jafnvægi á milli eftirspurn-
ar og verðlags stöðugu með því
að ákvarða vexti f viðskiptum
sínum við lánastofnanir sem sfð-
an endurspeglast f inn- og út-
lánavöxtum þeirra.
ORÐRÉTT I
I
efnahagsmál „Reynslan á eftir að
sýna að vaxtalækkunin er einfald-
lega of lítil og kemur of seint
fram til að skipta einhverjum
sköpum um þróun efnahagsmála.
[...] [Allt fram á þetta ár var stef-
na Seðlabankans skynsamleg og í
takt við raunveruleikann. En svo
slitnaði sambandið við heiminn -
að minnsta kosti þann heim sem
íslenskir atvinnurekendur og
launþegar lifa og hrærast í.
Vaxtalækkun Seðlabankans um
0,8% [...] er allt of lítil, ekki síst
þegar þróun í peningamálum ann-
arra landa er höfð í
huga. Á þriðjudag
lækkaði bandaríski
seðlabankinn stýri-
vexti í tíunda skipti
Of lítið, of seint
á þessu ári og eru þeir komnir nið-
ur í 2% - hafa aldrei verið lægri
frá árinu 1961. Á fimmtudag fyl-
gdu seðlabankar annarra helstu
viðskiptalanda okkar íslendinga
fordæmi Bandaríkjanna. Eng-
landsbanki lækkaði vexti um 50
punkta, niður í 4% og Evrópski
seðlabankinn lækkaði vexti jafn-
mikið og eru þeir nú 3,25%.
Vaxtamunur á milli íslands og
annarra landa
helst því lítið
breyttur, þrátt
fyrir aðgerðir
Seðlabanka ís-
lands og það skiptir mestu í þessu
samhengi. Og einmitt þess vegna
skiptir lækkunin nú litlu máli og
áhrif hennar verða í besta lagi
takmöi’kuð. Þannig hefur aðhald
Seðlabankans í raun haldist
óbreytt.“
Óli Björn Kárason, DV, 10. nóvember.
efnahagsmál „Yfirstandandi ár
hefur verið erfitt og það er engin
ástæða til að ætla
annað en næsta ár
verði það einnig.
Fyrirtæki hafa
sagt upp fólki. Stórframkvæmd-
um er að ljúka eða þeim er lokið.
Ekki er ólíklegt að atvinnuástand
verði mun erfiðara í byrjun næsta
árs en það hefur verið um margra
ára skeiö. Okkur íslendingum hef-
ur verið að takast að komast í
gegnum þá aðlögun að breyttum
aðstæðum, sem nú stendur yfir,
án þess að stórslys verði í efna-
hagsstjórn okkar. Það hvílir mikil
ábyrgð á öllum þeim aðilum sem
hér konia við sögu. Verkalýðsfor-
ystan er í erfiðri stöðu. Þær radd-
ir heyrast áreiðanlega í hennar
röðum, aö hún verði að fylgja eftir
ákvæðum kjarasamninga og opna
þá á nýjan leik., Það yrði mikið
óráð ef það yrði gert. Hins vegar
má gera ráð fyrir,
að til þess að það
verði ekki verði að
koma til móts við
sjónarmið launþega með ein-
hverjum hætti.“
Leíðari Mbl. 10. nóvember.