Fréttablaðið - 12.11.2001, Qupperneq 18
18
FRETTABLAÐIÐ
12. nóvember 2001 MÁNUDACUR
HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA
Ikingut á barnamyndahátíð í Chicago:
Fékk tvenn verðlaun
BÖRNIN KJÓSA IKINGUT
Dómnefnd barna veitti henni verðlaun í Chicago.
Hún heitir Rauða húsið. Ég veit ekki eftir
hvern hún er.
Ragnhildur Ragnarsdóttir, nemi
kvikmyndir Kvikmyndin Ikingut
eftir Gísla Snæ Erlingsson hlaut
tvenn verðlaun á Alþjóðlegu
barnamyndahátíðinni í Chicago í
Bandaríkjunum sem lauk fyrir
skemmstu. Dómnefnd barna veit-
ti Ikingut önnur verðlaun í flokki
erlendra mynda og dómnefnd
skipuð fullorðnum veitti mynd-
inni önnur verðlaun í flokknum
Besta kvikmyndin. Alþjóðlega
barnamyndahátíðin í Chicago er
haldin árlega og er stærsta barna-
myndahátíð Norður Ameríku. í ár
voru sýndar 270 myndir frá yfir
40 löndum. Myndin hefur þegar
verið sýnd á fjölda alþjóðlegra
kvikmyndahátíða og unnið til
verðlauna, m.a. sem Besta mynd-
in á Alþjóðlegu barnamyndahátíð-
inni í Montreal í Kanada.
Kanadíska dreifingarfyrirtækið
LaFete annast alheimsdreifingu
Ikinguts og hefur þegar selt
myndina í kvikmyndahús og sjón-
varp víða um heim. ■
Flýgur fiskisagan eftir
Ingólf Steinsson:
Saga af síldar-
árunum
nýjar bækur lúnguútgáfan hefur
sent frá sér barnabókina. Flýgur
fiskisagan eftir
Ingólf Steinsson.
Bókin er í stóru
broti með litmynd-
um eftir Hrönn Arn-
arsdóttur. Sagan
segir af tvíburunum
Lóu og Óla og upp-
vexti þeirra á síldar-
árunum. Bókinni
fylgir textinn Til
fróðleiks. Þar eru
teknar saman upplýsingar í stuttu
máli um fiskveiðar íslendinga. ■
FISKISAGA
Lóa og Óli eru
í aðalhlutverki í
Flýgur fiskisag-
an.
Kammersveit Reykjavík-
ur í Listasafni Isl.:
Leikin verk
eftir Þorkel
Sigurbjörns-
son
tónleikar Kammersveit Reykjavík-
ur heldur tónleika í Listasafni ís-
lands í kvöld kl. 20. Tónleikarnir
eru helgaðir verkum eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. Á efnisskrá eru
Filigrea fyrir fiðlu, selló og
kammersveit, Dulcinea fyrir gít-
ar og strengjasveit, Wiblo fyrir
horn, píanó og strengjasveit, Um-
leikur fyrir fiðlu og kammersveit
og Af mönnum fyrir kammerhóp.
Einleikarar eru: Rut Ingólfsdóttir
fiðla, Sigurður Halldórsson selló,
Guðmundur Pétursson gítar,
Jósef Ognibene horn, og Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanó. ■
frakl. 17-19.
Saiatbarinn
Við Austurvöll
Opið 11-21
Pósthússtrœti 13 • 101 Reykjavík
Tel: 5627830 • Fax: 5621994
MÁNUDACURINN
12. NÓVEMBER
RÁÐSTEFNUR________________________
09.00 Ráðstefnan Það læra börn - jafn-
rétti í samstarfi foreidra við fæð-
ingu barns verður haldin á Grand
Hótel Reykjavík og stendur hún til
kl. 16. Tilefnið er átak Jafnréttis-
stofu til kynningar á lögum um
fæðingar- og foreldraorlof nr.
95/2000. Meðal þess sem mesta
athygli hefur vakið, hérlendis og
erlendis, er aukinn og sjálfstæður
réttur feðra til töku fæðingaror-
lofs.
TÓNLEIKAR_________________________
18:00 Norræn vísnatónlist í Borgarbóka-
safni. Fram koma: í Aðalsafni
Grófarhúsi, Wlenn frá Kleifum, I
Borgarbókasafni í Gerðubergi, Tríó
Hafdísar, i Foldasafn í Grafarvogs-
kirkju, Ásgeir Páll Ásgeirsson, í
Kringlusafn í Borgarleikhúsi, Stúlk-
ur úr Vox femin og í Sólheima-
safni, Sólheimum 27, Kór Mennta-
skólans við Sund.
20.00 Kammersveit Reykjavíkur heldur
tónleika í Listasafni íslands. Tón-
leikarnir eru helgaðir verkum eftir
Þorkel Sigurbjörnsson.
SÝNINGAR__________________________
Þrjár fyrrum skólasystur minnast skóla-
daga sinna í Myndlista- og handíða-
skóla islands 1964-1966 með sýningu,
"Those where the Days", í Listhúsi
Ófeigs að Skólavörðustíg 5, Reykjavík.
Sýnd eru grafíkverk, glerlist og skart.
Sýningin stendur til 21. nóv og er opin á
verslunartíma.
Handrítasýning I Stofnun Árna Magnús-
sonar, Árnagarði við Suðurgötu. Sýningin
er opin kl. 14 til 16 þriðjudaga til föstu-
daga til 15. maí.
MYNDLIST__________________________
Birgir Sigurðsson myndlistarmaður hef-
ur opnað sýningu í Listamiðstöðinni
Straumi, sunnan álversins. Sýningin ber
yfirskriftina Ástin og lífið og sam-
anstendur af þremur þáttum: Ljósmynd-
um, Ijósverki og póstkortum. Hver hluti
sýningarinnar hefur sitt eigið líf sem
saman mynda þá heild sem sýningin er.
Verkið er tilraun höfundar til að dýpka
skilning sinn og annarra á ástinni og líf-
inu. Sýningin stendur til 25. nóvember.
Sýning á verkum Guðmundar Björg-
vinssonar stendur yfir í Gallerí Reykja-
vík, Skólavörðustíg 16. Guðmundur sýn-
ir 17 akrílmálverk sem eru öll máluð f
expresslonískum stíl á þessu ári.
Myndefnið er maðurinn. Sýningin er
10 Timn KORT
GILDIR í 20 DBGB
3.490
mORGUÍlKORT
2.990
L i //
KARÍUS OG BAKTUS
Karíus er sá sem öllu ræður og hefur vitið fyrir Baktusi bróður sinum. Franskbrauð og námugröftur er það sem heldur þeim gangandi
og það veit Karíus betur en nokkur annar.
Við viljum
franskbrauð
Sýningar eru hafnar á Karíusi og Baktusi eftir Thorbjörn Egner á
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Þetta er í fyrsta sinn sem verkið er
sett upp á íjölum leikhússins. Stefán Jónsson leikari er Karíus.
leikhús „Þetta er svona kærkomin
hvíld frá jólaösinni, að skreppa í
leikhús og hitta Karíus og Bakt-
us. Til að byrja með verða sýn-
ingar á Smíðaverkstæðinu en
hugmyndin er að þetta verði
ferðasýning og að hún geti farið
hvert á land sem er, í leikskóla
og víðar,“ segir Stefán Jónsson
leikari, sem fer með hlutverk
Karíusar í sýningunni. Brynhild-
ur Guðjónsdóttir leikkona leikur
Baktus en um búninga og sviðs-
mynd sér Þórunn Sigríður Þor-
grímsdóttir.
„Við erum trú verkinu. Bæði í
allri umgjörð og tónlist, sem Jó-
hann G. Jóhannsson sér um. Ég
held að þetta séu Karíus og Bakt-
us eins og allir þekkja þá.“
Jaxlar og tennur eru, sem
fyrr, híbýli þeirra bræðra og
Jens, fórnarlambið, lætur í sér
heyra þegar hamarshöggin
dynja á sykurhúðuðum tönnum
hans. Stefán segist telja að Karí-
us og Baktus eigi fullt erindi til
barna í dag líkt og kynslóðanna á
undan og að hræðsluáróður
verksins sé ekki endilega tím-
anna tákn og úr sér genginn í nú-
timaþjóðfélagi.
„Eg held að menn séu að kom-
ast að því að það sé mannsálinni
hollt að ganga í gegnum hræðsl-
una og mæta óttanum augliti til
auglitis."
Stefán leyfir sér hins vegar
að efast um hvort börn hræðist
yfir höfuð þá bræður þar sem
þeir séu svo skemmtilegir. Börn-
in hafi kannski frekar samúð
með þeim vegna örlaganna sem
bíða bræðranna.
„Þegar upp er staðið er það
spurning hvort börnin sæki ekki
bara meira í sælgætið en áður til
þess að fá þá í heimsókn, eða
hvað.“ Hann á von á því að börn
jafnt sem foreldar muni rifja
upp kynni sín af körlunum með
rauða og svarta kollinn og hafa
gaman af.
kristjang frettabladid.is
BÆKUR
iiife
Listamiðstöðin Straumur:
Ástin og lífid
myndlist Birgir Sigurðsson mynd-
listarmaður hefur opnað sýningu
í Listamiðstöðinni Straumi sunn-
an álversins. Sýningin ber yfir-
skriftina Ástin og lífið og sam-
anstendur af þremur þáttum:
Ljósmyndum, ljósverki og póst-
kortum. Hver hluti sýningarinnar
hefur sitt eigið líf sem saman
mynda þá heild sem sýningin er.
Verkið er tilraun höfundar til að
dýpka skilning sinn og annarra á
ástinni og lífinu. Sýningin stend-
ur til 25. nóvember. ■
Besta Harry
Potter bókin
Harry Potter og eldbikarinn
sem er fjórða bókin af sjö
um Harry Potter og nú er kom-
ið fjórða árið hans í Hogwart-
skóla galdra og seiða. Eins og í
fyrri bókunum glímir Harry
Potter við ýmsar þrautir. í þess-
ari bók eru þær bara miklu
fleiri en í þeim fyrri. Margt
kemur mjög mikið á óvart í bók-
inni og hún er spennandi frá
upphafi til enda.
Mér finnst Harry Potter og
eldbikarinn bera af bókunum
fjórum og voru fyrri bækurnar
samt frábærar. Hún er lengst,
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN
HÖFUNDUR: J. K. Rowling
ÞÝÐANDI: Helga Haraldsdóttir
Bjartur 2001, 551 blaðsíða
hún grípur mann frá upphafi og
maður getur ekki slitið sig frá
henni fyrr en maður er búin
með hana. Það er líka spennandi
að komast að nýrri ráðgátu sem
Harry þarf að leysa um leið og
hann er búin með eina. Gáturn-
ar leysir hann auðvitað með
hjálp bestu vina sinna Ron We-
asley og Hermione Granger.
Ég mæli mikið með þessari
bók og vona að enginn, hvorki
börn né fullorðnir, láti Harry
Potter bækurnar fram hjá sér
fara.
Halla Tryggvadóttir 13 ára
HVHlfHOtO t . 3
&imi S t / 77 7