Fréttablaðið - 14.11.2001, Blaðsíða 24
FRÉTTABLAÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlÐ SECJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á 1MSÍ1*.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Vatnsmýrarvegi 25 • Sími: 565 1055
Vantar bíla vegna
gífulegrar sölu!
Þráins Bertelssonar
Ókeypis
þunglyndislyf
Stundum - einkum í skammdeginu
- blæs suðvestanáttin að mér
hugsunum um heimsku mannkyns-
ins almennt séð og mína heimsku
sérstaklega, ranglæti kvótakerfisins,
bruðl með opinbera fjármuni, geggj-
aða einokunarprísa á matvöru,
kröpp kjör öryrkja og gamalmenna,
vaxtaokur, og fánýti allra hluta, auk
venjulegrar þráhyggju um kulda og
myrkur. Þegar þetta er alveg komið
að því að sliga mig fer ég fram í for-
stofu og reima á mig gönguskóna og
fer út að labba.
—*—
EF VEÐRIÐ er sérstaklega vont
finnst mér mest hressandi að ganga
Ægisíðuna og meðfram Skerjafirð-
inum inn í Nauthólsvík. Það eru
kröftug bætiefni í særokinu, ilmur
af þara og þangi og blönduðum sjáv-
arréttum og í staðinn fyrir að öf-
unda þá sem eiga rosalegar villur á
eftirsóttum lóðum í fjörunni reyni
ég að vorkenna þeim sem þurfa að
þvo saltið af gluggunum sínum dag-
lega til að greina mun dags og næt-
ur.
—♦—
EF VEÐRIÐ er sæmilegt uni ég
mér best í Öskjuhlíðinni og finnst
frábært að eiga þennan ævintýra-
skóg þar sem ég get hengt áhyggjur
mínar á trén og látið vindinn feykja
þeim burt. Ef ég er einmana geng ég
Laugaveginn og þá bregst það aldrei
að ég hitti einhvern sem nennir að
tala við mig. Ef ég hef nauman tíma
geng ég um Hljómskálagarðinn og
kringum Tjörnina eða þá meðfram
gömlu höfninni og út í Örfirisey. Til
spari hef ég svo Elliðaárdalinn eða
Heiðmörkina sem er svo falleg að ég
gleymi því ljóta í lífinu og svo stór
að vandamálin týnast ef þau elta
mann þangað uppeftir.
X err»ur
\ Qð
OlafurJóhann
Oiafsson
I
SKÁLDSAC./V
Einstök skáldsaga um mannl
« . <«
GÖNGULEIÐIR í Reykjavík eru
óendanlega fjölbreytilegar og bjóða
upp á hverja þá stemmningu sem
einn göngumaður sækist eftir og
meira að segja höfum við aðgang að
prýðilegu fjalli hérna í nágrenninu
sem heitir Esja handa þeim sem
vilja frekar ganga upp og niður
heldur en fram og aftur. Gönguferð-
ir hafa reynst mér vel sem þung-
lyndislyf og hafa þá dægilegu auka-
verkan að hressa líkamann ekki síð-
ur en sálina og efla það harmóní sem
eftirsóknarverðast er í lífinu -
ókeypis. ■
Mögnuð skáldsaga um íslending sem hvarf frá fjölskyldu sinni og vinum og endaði sem
einkaþjónn hjá bandaríska auðkýfingnum William Randolph Hearst. Hvers vegna yfirgaf
hann konu sína og börn, blómlegt fyrirtæki og trausta stöðu í Reykjavík? Hvernig lenti
hann í höll Hearsts blaðakóngs í Kaliforníu? Ógleymanleg frásögn um mannleg örlög
- bók sem beðið hefur verið eftir.
Halló Suðurnes!
Suðumesjamenn! Fréttablaðið ykkar liggur nú frammi á völdum stöðum á
Suðurnesjum. Grípið eintak um leið og þið kaupið inn eða setjið bensín á bílinn.
• Sandgerði
Sparkaup
Shell
• Garður
Sparkaup
Esso
• Keflavík
Sparkaup
Olís
Aðalstöðin
Miðbær
Kaskó
• Njarðvík
Hagkaup
Shell
Olís
Samkaup
• Grindavík • Vogar
Esso Esso
Olís
Shell
Samkaup
FRÉTTABLAÐIÐ
V I Ð SEGJUM FRÉTTIR