Fréttablaðið - 14.11.2001, Blaðsíða 18
HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA
Guðsgjafarþula
í uppáhaldi
Ég er að lesa Guðsgjafarþulu eftir Kiljan. Það er
ekki í fyrsta skipti enda er þessi bók f miklu
uppáhaldi.
Edda Klemensdóttir
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
B Stóra sviðið kl 20.00
► PARS PRO TQTO - Lára Stefánsdóttir
ELSA, LANGBRÓK OG LADY FISH AND CHIPS
I kvöld mið. 14/11
► SYNGJANDI t RIGNINGUNNI - Comden/Green/Brown og Freed
Fim. 15/11 örfá sæti laus, fös. 16/11 50. sýning uppselt, fös. 23/11 uppselt,
lau. 24/11 örfá sæti laus, fös. 30/11 örfá sæti laus, lau. 1/12, fös. 7/12.
► LAUFIN í TOSCANA - Lars Norén
Lau. 17/11 sun. 25/11. Takmarkaður sýningafjöldi
► BLÁI HNÓTTURINN - Andri Snær Magnason
Sun.18/11, sun. 25/11. Sýningarnar hefjast kl.14:00. Kvöldsýning og múm
tónleikar mið. 21/11 kl. 20:00
Þ VATN LÍFSINS - Benóný Ægisson
12. sýn. sun. 18/11, fim 22/11, fim. 29/11. Fáar sýningar eftir.
B Litla sviðið ki 20.00
► HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? - Edward Albee
Lau. 17/11 uppselt, sun. 18/11 uppselt, fim. 22/11 uppselt, sun. 25/11 uppselt,
mið. 28/11, fim. 29/11 örfá sæti laus, sun. 2/12, lau. 8/12 örfá sæti laus, sun. 9/12.
H Smíðaverkstæðið kl 20.00
► VILII EMMU - David Hare
Fös. 16/11 næst síðasta sýning, lau. 24/11 síðasta sýning.
► KARlUS OG BAKTUS- Thorbjörn Egner
Lau. 17/11 uppselt, lau. 24/11 uppselt, lau. 1/12 örfá sæti laus, lau. 8/12,
lau. 15/12. Sýningarnar hefjast kl. 15:00. Aukasýning 24/11 kl. 14:00
Míðasölusimi: 551 1200. Netfang: midasaia@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is
17. sýn. fös. 16. nóv. kt. 20.00-ÖRFÁ SÆTI
18. syn. lau. 17. nóv. kl. 19.00 - ÖRFfl SÆTI
19. sýn. fös. 23. nóv. kl. 20.00 - LAUS SÆTI
Lokasýnlng lau. 24. nóv. kl. 19.00 - LAUS SÆTI
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
Ath. breytilegan sýningartima
Miöasala opin kl. 15-19 alla daga nema
sunnudaga og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-19 virka daga.
Sími miðasölu: 5114200
14. nóvember 2001 MIÐVIKUDACUR
Sjóminjasafn Islands
Hafnarfirði:
Vitar og
vitarekstur
fyrirlestur Kristján Sveinsson sagn-
fræðingur heldur í kvöld fyrirlest-
ur í Sjóminjasafni íslands, Vestur-
götu 8 í Hafnarfirði, um íslenska
vita.
Fyrirlesturinn nefnir Kristján
„Vitar og vitarekstur á íslandi" og
er hann í boði Rannsóknarseturs í
sjávarútvegssögu og Sjóminjasafns
íslands.
Kristján starfar nú við rann-
sóknir á sögu vitamála á íslandi á
vegum Siglingastofnunar. Fyrir-
lesturinn hefst kl. 20.30.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir. ■
METSÖLULISTI
Skáldsögulisti Eymundsson
vikuna 5.11. nóvember.
■P Arnaldur Indriðason
GRAFARÞÖGN
o
o
ö
o
o
o
ö
ö
<D
Kristín Marja Baldursdóttir
mávahlAtur
Arnaldur Indriðason
MÝRIN
Vilborg Daviðsdóttir
KORKUSAGA
Þórunn Valdimarsdóttir
STÚLKA MEÐ FINGUR
Marianne Fredriksson
ANNA, HANNA & JÓHANNA
Bjarni Bjarnason
MANNÆTUKONAN OG ...
Stephen King
DRAUMAGILDRAN
Þórunn Valdimarsdóttir
HVÍTI SKUGGINN
Gyrðir Elíasson
NÆTURLUKTIN
Jólabækur á listanum:
Arnaldur á
toppnum
bækjjr Skáldsögulisti Eymundsson
einkennist af nýútkomnum ís-
lenskum bókum. Arnaldur Ind-
riðason trónir á toppnum með
nýju bókina sína, Grafarþögn,
Bók Arnaldar, Mýrin, sem út kom
í fyrra, er í þriðja sæti. Þórunn
Valdimarsdóttir á einnig tvær
bækur á listanum, Hvíti skugginn,
sem er nýútkomin, er í níunda
sæti listans. Næstnýjasta bók
hennar, Stúlka með fingur er hins
vegar í fimmta sæti. ■
Lægsta verð
frá 27.995 kr.
MIOVIK U PAGURIN N
14. NÓVEMBER
TÓNLEIKAR___________________________
12.30 Háskólatónleikar í Norræna
húsinu. Richard Simm leikur á
píanó verk eftir Scarlatti, Liszt,
Ravel, Schumann og Debussy.
Tónleikarnir taka u.þ.b. hálfa
klukkustund. Aðgangseyrir kr.
500. Ókeypis fyrir handhafa stúd-
entaskfrteinis.
13.30 Óperukórinn syngur fyrir samn-
inganefnd Launanefndar sveit-
arfélaga, samninganefnd tón-
listarskólakennara, sáttasemj-
ara, gesti og gangandi í Karp-
húsinu. Enn hefur ekkert þokast
í samningsátt í launadeilu tónlist-
arskólakennara og vonast tónlist-
arkennarar til að söngur Óp-
erukórsins liðkí fyrir samningum.
Stjórnandi Óperukórsins,Garðar
Cortez, mun afhenda samninga-
nefndunum áskorun þess efnis,
að gengið verði hið fyrsta að
kröfum tónlistarskólakennara.
FYRIRLESTRAR________________________
16.15 Sif Einarsdóttir lektor við Kenn-
araháskóla íslands heldur fyrir-
lestur á vegum Rannsóknar-
stofnunar KHÍ er nefnist Metur
Áhugakönnun Strong það sama
á íslandi og i Bandaríkjunum?,
i sal Sjómannaskóla íslands við
Háteigsveg og er öllum opinn. í
fyrirlestrinum verða kynntar nið-
urstöður rannsóknar á þver-
menningarlegu gildi Áhugakönn-
unar Strong. Tilgangurinn með
rannsókninni var að kanna hvort
atriðin, sem notuð eru í könnun-
inni, mæli það sama hérlendis
og í Bandaríkjunum þar sem hún
var þróuð og hvort atriðin mæli
það sama hjá konum og körlum.
Einnig var borin saman kynja-
munur á Islandi og í Bandaríkj-
unum.
20.00 Málbjörg, félag um stam, heldur
foreldrafund að Hátúni 10, 9.
hæð. Flutt verður stutt erindi um
stam barna.
20.30 Rannsóknakvöld Félags ís-
lenskra fræða f Sögufélagshús-
inu í Fischersundi. Sveinn Ein-
arsson leikhúsfræðingur flytur
erindi um leikgerð Kristnihalds
undir Jökli. Léttar veitingar verða
seldar á vægu verði fyrir erindi
og í hléi. Umræður að loknu er-
indi.
20.30 Kristján Sveinsson sagnfræðing-
ur heldur fyrirlestur f Sjóminja-
safni íslands, Vesturgötu 8 f
T ónlist úr öllum áttum
Ungir einleikarar og stórsöngvararnir Tena Lesley Palmer og Berg-
þór Pálsson koma fram með Lúðrasveit Reykjavíkur á stórtónleikum
hennar í kvöld. Tena, sem er kanadísk, er í alls kyns hljómsveitum hér
á landi. Þetta er í fyrsta skipti sem hún kemur fram með Lúðrasveit
Reykjavíkur, en hún hóf sinn tónlistarferil með lúðrasveitum.
tónlist. „Það er einn af þessum
frábæru hlutum við ísland að
vegna smæðar þjóðfélagsins
fær maður tækifæri til að gera
mjög fjölbreytta og skemmti-
lega hluti,“ segir Tena Lesley
Palmer sem í kvöld mun troða
upp ásamt Lúðrasveit Reykja-
víkur á stórtónleikum sveitar-
innar. Tena er vel kunn lúðra-
sveitartónum en hún lék í mörg
ár á sinni skólatíð með lúðra-
sveitum. „Þegar ég var að byrja
að læra á hljóðfæri lék ég á
flautu og saxófón með lúðra-
sveitum."
Tena fluttist til íslands fyrir
sex árum, en hún er kanadísk.
Síðan þá hefur hún skotið rótum
á íslandi og í íslensku tónlistar-
lífi. Tena er í fjölmörgum hljóm-
sveitum sem spila alls kyns tón-
list, írska og skoska þjóð-
lagatónlist, blágresi, blús og
raftónlist. Það liggur í augum
uppi að tónlistarsmekkur henn-
ar er mjög fjölbreyttur. „Ég
hlusta á alls kyns tónlist, ég hef
reyndar verið spurð hvort að ég
væri tónlistarlegur geðklofi,"
segir Tena hlæjandi. „Ég þekki
hins vegar mjög fáa sem hlusta
eingöngu á eina tegund tónlist-
ar, enda hlýtur það að vera ótrú-
lega leiðinlegt."
í kvöld eru það lög eftir Ant-
onio Carlos Jobim, Georg Ger-
swhin og Hoagy Carmichael
sem eru á dagsskránni hjá Tenu
og Bergþóri Pálssyni. „Þetta er
djasstónlist en segja má að ræt-
ur mínar liggi í henni, ég hef
hlustað á hana í yfir 20 ár.“
Auk þeirra Tenu og Bergþórs
koma fjölmargir ungir einleik-
arar fram með sveitinni. Heiða
Dögg Jónsdóttir, leikur á
piccoloflautu, Bára Sigurjóns-
dóttir á altósaxófón, Örvar Er-
BERGÞÓR OG TENA
Taka lagið í kvöld ásamt Lúðrasveit Reykjavíkur.
ling Árnason á sýlófón og svo
munu Jóhann Ingólfsson og
Daníel Friðjónsson leika klar-
inettudúett. Einnig mun Kjartan
Valdimarsson spinna píanósóló í
þeim lögum sem Bergþór og
Tena syngja með sveitinni.
Lagavalið er í léttum djössuðum
dúr en tónleikarnir eru aðrir
tónleikar í hátíð sveitarinnar í
tilefni af 80 ára afmæli hennar.
Tena hefur aldrei komið
fram með lúðrasveitinni áður.
„Mér er mikill heiður að því að
hafa verið beðin um að koma
fram með Lúðrasveit Reykja-
víkur," segir Tena að lokum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og
fara fram í Langholtskirkju.
sigridur@frettabladid.is
BÆKUR
Lesningfyrir þá sem
vinna með börn
Ibókinni Hann var kallaður
Þetta er lýst lífi drengs sem
sætir ótrúlegum misþyrmingum
móður sinnar. IJöfundurinn er
að lýsa sínu eigin lífi sem er
ótrúlegra en nokkur skáldsaga.
Það sem er kannski óhugnan-
legast í bókinni er hversu lengi
óhugnaðurinn viðgengst. Með-
virkni bræðra Davés er nánast
alger. Faðirinn reynir af veikum
mætti að andæfa í upphafi en
smám saman gefst hann upp og
bregst barni sínu algerlega.
Sjúklingurinn, móðirin, hafði
líka mikla hæfileika til að breiða
yfir og/eða slíta sambandi við
fólk ef það fór að gruna að ekki
væri allt með felldu.
Þetta er áhrifarík bók, bók
um misþyrmingar og með-
Hann var kallaður Þetta___________
Dave Pelzer
Þýðandi: Sigrún Árnadóttir
JPV útgáfa 2001
143 blaðsíður
virkni, bók um það hversu tak-
markalaust er hægt að mis-
þyrma þeim sem minna mega
sín og um leið hversu ótrúlega
sterkur viljinn til að lifa af er.
Síðast en ekki síst finnst ntér
þessi bók vera áminning til okk-
ar allra um að taka ábyrgð og
skera upp herör gegn því að
svona hlutir eigi sér stað í kring-
um okkur. Þetta er stutt bók og
auðlesin og á erindi til allra,
ekki síst þeirra sem vinna með
börn.
Steinunn Stefánsdóttir
Vinsæl tröllastelpa:
Með Bólu í bæjarferð
nýjar bækur Nú er
komin út hjá Iðunni
fyrsta skáldsaga Sig-
rúnar Eddu Björns-
dóttur leikkonu um
tröllastelpuna Bólu.
Hún birtist fyrst á
skjá Ríkissjónvarps-
ins 1990 og hefur not-
ið geysilegra vin-
sælda allar götur síð-
an. Bóla býr á Þing-
völlum og henni
finnst tími til kominn
að fara til Reykjavík-
ur með Hnúti vini sín-
um og taka þátt í 17.
júní hátíðahöldunum.
Ferðin til borgarinnar gengur
ekki átakalaust fyrir sig og það er
alveg ævintýralegt að hve mörgu
þarf að hyggja áður en farið er í
slíkan leiðangur. Þau hitta margt
SIGRUN EDDA
BJÖRNSDÓTTIR
Hún hefur leikið Bólu í mörg ár
og nú skrifað um hana bók.
áhugavert fólk, svo
sem Vestur-íslending
sem á tyggjó, Grana
lögregluþjón, lífs-
glaða róna og síðast
en ekki síst hitta þau
Jón Sigurðsson for-
seta.
„Bóla er í senn
heillandi og alíslensk
tröllastelpa sem sér
heiminn með augum
trúðsins þar sem ekk-
ert er sjálfgefið og
ýmsum óvenjulegum
sjónarhornum er því
velt upp. En þrátt fyr-
ir ærslalæti tröl-
lakrakka í höfuðborginni er undir-
tónn sögunnar einlæg vinátta sem
skiptir meira máli en allt annað,“
segir í fréttatilkynningu útgef-
anda. Bókin er 64 bls. ■