Fréttablaðið - 21.11.2001, Side 11
HaaiiMilEMM
RAÐAUGLÝSINGAR
BORGARSKIPULAG REVKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing,
um tillögu til breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016,
breytingu á deiliskipulagsáætlun og tillögur að
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík.
í samræmi við 21. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar eftirfarandi tillögur að breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, tillögur að deiliskipulagáætlunum og breytingu á
deilskipulagsáætlun í Reykjavík.
Bryggjuhverfi, Naustabryggja 13-17, 21-33 (oddatölur) og 54-57 og Tangarbryggja 10-
12, breyting á deiliskipulagi.
Tillagan gerir ráð fyrir að breyttu fyrirkomulagi bílastæða við hús nr. 12 og 13 á uppdrætti
þ.e. Naustabryggju nr. 21-33. Tillagan gerir og ráð fyrir að lóðir nr. 14A og 14B á uppdrætti,
þ.e. Naustabryggja nr. 13-17 (oddatölur), sameinist. í samræmi við það verði ekki lengur
gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja neðanjarðarbílageymslu á lóðinni nr. 14B en hún var
m.a. ætluð fyrir húsin nr. 54-57 við Naustabryggju.
Langholtsvegur 109-115, deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi.
Annarsvegar er um að ræða tillögu að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Langholtsvegi
til vesturs, Drekavogi til norðurs, opnu grænu svæði og lóðinni nr. 6 við Drekavog til austurs
og göngustíg norðan húsanna nr. 12-16 við Sigluvog til suðurs. Hinsvegar er um að ræða
tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 varðandi lóðina nr. 115 við
Langholtsveg.
Tillögurnar gera ráð fyrir að heimilt verði að byggja inndregna hæð ofan á húsið nr. 109-111
við Langholtsveg. Lóðinni nr. 115 verði skipt upp í tvær lóðir og landnotkun hennar, skv.
Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, breytt úr athafnasvæði í íbúðasvæði. Heimilt verði að
byggja viðbyggingu norðan við húsið nr. 115 við Langholtsveg (þ.e. húsið sem stendur við
Langholtsveg). Jafnframt verði heimilt að byggja tvær hæðir ofan á austara húsið sem nú
stendur á lóðinni nr. 115 og tvö þriggja hæða íbúðarhús, með 6 íbúðum í hvoru, syðst á
lóðinni þ.e. aftan við húsin nr. 12 og 14 við Sigluvog. Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir öðrum
minni breytingum í tengslum við þær sem taldar hafa verið upp hér að framan.
Kirkjutún, deiliskipulag (Sóltún, Mánatún, Borgartún, Kringlumýrarbraut).
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi svæðis sem afmarkast af Borgartúni til norðurs,
Sóltúni og Kringlumýrarbraut til austurs, Sóltúni til suðurs og lóð Sóltúns 3 og Borgartúns
26 til vesturs.
Tillagan gerir m.a. grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á skipulagi svæðisins frá
samþykkt síðasta heildarskipulags þess. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að byggja tvö
ný hús á svæðinu. Annarsvegar er um að ræða 6 hæða íbúðarhús með 24 íbúðum vestan
hússins nr. 11-13 við Sóltún auk neðanjarðarbílgeymslu fyrir 24 bíla. Hinsvegar er gert ráð
fyrir aftan við húsið nr. 28 við Borgartún rísi u.þ.b. 2300 m2 skrifstofuhúsnæði sem getur
orðið allt að 6 hæðir (6. hæðin inndregin).
Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir breytingu á fyrirhugaðri götu (Mánatúni) milli lóðanna nr. 2-
6 við Mánatún og Sóltúns nr. 3. Breytingin felur m.a. í sér nokkuð meiri skerðingu á lóðinni
nr. 3 við Sóltún en eldra skipulag gerði ráð fyrir.
Tillögurnar verða til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 21. nóvember til 19. desember 2001. Ábendingum og
athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 4. janúar 2002. Þeir
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillögurnar
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 21. nóvember 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
—:------------------\
Skólaskrifstofa
Hafnarfjarðar
Setbergsskóli
Kennara vantar sem fyrst við Setbergs-
skóla.
Um er að ræða almenna kennslu í 7. bekk
en allar upplýsingar um starfið gefur
Loftur Magnússon, skólastjóri í síma
565 1011.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á
Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31
en einnig er hægt að sækja um rafrænt á
hafnarfjordur.is
if
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði
_________________________________________________/
Starfsmenn
óskast.
Vegna mikilla verkefna getum við
bætt við okkur starfsmönnum til að
vinna við PVC dúklagnir á flöt þök.
Nánari upplýsingar
eru veittar í síma
564 4680 og 896 2980.
ÚTBOÐ
ÚTBOÐ Á LÆKNISÞJÓNUSTU
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Félagsþjónustunn-
ar í Reykjavík óskar eftir tilboöum sem felast í því að veita íbú-
um og notendum á tilteknum stofnunum Félagsþjónustunnar
nauðsynlega læknisþjónustu. Verkið felst í að veita almenna
læknisþjónustu í samræmi við a) lið 1. mgr. 2. gr. reglugerðar
nr. 422/1992, um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðis-
þjónustu.
Um er að ræða eftirtalda staði:
Droplaugarstaðir, hjúkrunarheimili.
Seljahlíð, heimili aldraðra.
Vitatorg, dagdeild fyrir minnisskerta
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með
20. nóvember 2001, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 5. desember 2001 kl. 14:00 á sama stað.
Samningstími þjónustu er frá 1. mars 2002 til
28. febrúar 2004.
FÉL 127/1
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík - Sími 570 5800 - Bréfsími 562 2616
www.reykjavik.is/innkaupastofnun - Netfang: isr@rhus.rvk.is
ÚTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum í viðhald hita- og hreinlætiskerfa í 47 leikskólum
Reykjavíkur.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á kr. 1.000.
Opnun tilboða: 29. nóvember 2001, kl. 14:00 á sama stað.
BGD128/1
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum i húsgögn fyrir tvo nýja leikskóla og þrjár viðbygging-
ar leikskóla í Reykjavik. Húsgögnin eru bæði fyrir starfsfólk og
börn leikskólanna. Peim skai skilað á mismunandi tímum eftir
hverjum leikskóla fyrir sig. Skilatími á fyrsta leikskólanum er
20. janúar 2002.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 20. nóvem-
ber 2001, gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 5. desember 2001, kl. 11:00 á sama stað.
BGD129/1
F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í lyftur
vegna aðalbyggingar nýrra höfuðstöðva við Réttarháls í
Reykjavík.
Verktaki skal útvega og setja upp eftirfarandi lyftur:
□ Lyfta nr. 1 :Fjöldi hæða, 8 - Burðargeta 1.600 kg.
□ Lyfta nr. 2 og 3: Fjöldi hæða, 9 - Burðargeta 1.200 kg
Ath: Smíða þarf stokka úr gleri og ryðfriu stáli fyrir lyftur 2 og 3.
□ Lyfta nr. 4: Fjöldi hæða, 2 - Burðargeta 450 kg.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar.
Oþnun tilboða: 11. desember 2001 kl. 11:00 á sama stað.
OVR 130/1
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum í smíði mötuneytiseldhúss fyrir Fossvogsskóla.
Helstu magntölur:
Léttir innveggir: 90 m2
Létt loft 50 m2
Málun: 220 m2
Epoxykvartsgólflögn: 53 m2
Stálborð 9 stk.
Verklok; 15. febrúar 2002.
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skila-
tryggingu.
Opnun tilboða: 28. nóvember2001, kl. 14:00 á samastað.
BGD131/1
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík - Sími 570 5800 - Bréfsími 562 2616
www.reykjavik.is/innkaupastofnun - Netfang: isr@rhus.rvk.is
Diskótek
Sigvalda Búa
allar græjur - öll tónlist
upplýsingar í síma
898 6070