Fréttablaðið - 12.12.2001, Page 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
12. desember 2001 MIÐVIKUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
Seltjarnamesbær:
Kjör uppeldisstétta
kostuðu 80 milljónir
VAXTAGJÖLD RÍKISSJÓÐS
Gjaldfærðir vextir af lánum ríkissjóðs voru
áætlaðir 16,2 milljarðar á þessu ári en
endurskoðaðar áætlanir benda þó til að
vextirnir hækki í 17 milljarða, einkum
vegna gengis- og verðlagsbreytinga. Svona
skiptist þetta eftir eldri áætlunum:
VEXTIR (MILUÓNIR KRÓNA)
SPARISKlRTEINI 5,500
RlKISBRÉF 1,480
ÖNNUR INNLEND LÁN 140
SKAMMTÍMALAN 1,450
ERLEND LÁN 8,960
ANNAR KOSTNAÐUR 670
Heimild: Fjárlagafrumvarpið 2002
kjarasamningar. Kjarasamningar
uppeldisstétta á þessu ári kostuðu
Seltjarnarnesbæ tæplega 80 millj-
ónir króna að sögn Sigurgeirs Sig-
urðssonar bæjarstjóra. Þarna er
um að ræða grunnskólakennara,
leikskólakennara og tónlistar-
kennara. Hann segir að þetta sé
um 8% af heildartekjum bæjar-
sjóðs sem nema í heild sinni um
1100-1200 milljónum króna sam-
kvæmt fjárhagsáætlun. Hann
segir að brugðist verði við þess-
um kostnaði með því að spenna
beltin og hægja eitthvað á fram-
kvæmdum og viðhaldi miðað við
það sem áður hafði verið ætlað.
Sigurgeir segir að því sé ekki
hægt að neita að kostnaður vegna
þessara kjarasamninga sé ansi
stór biti fyrir mörg sveitarfélög.
Hann bendir þó að leiðréttingar á
kjörum þessara uppeldisstétta
hefðu verið búin að safnast upp
um nokkurn tíma og því fyrirsjá-
anlegt að sveitarfélögin þyrftu að
taka hann á sig. Hann telur þó að
það hefði verið betra ef það hefði
SIGURGEIR SIGURÐSSON
Telur að þessi lending í kjarabótum upp-
eldisstétta hefði mátt vera mýkri þótt ekki
sé meira sagt.
ekki verið gert í jafn stórum
stökkum og raun varð á. ■
Skjaldborg BÓKAÚTGÁFA
Grensásmf 14 • mfíeykjavik • SknS8&2400 •Fax 588 8994
Hvað viltu
vita um
framtíðina?
Gangráður gegn þunglyndi:
Kitlar taugina
víðforlu
vísindi Flakktaug, öðru nafni
taugin víðförla, ber boð til heil-
ans frá koki, barkakýli, vélinda
og líffærum brjóst- og kviðar-
hols. Bandarískir vísindamenn
hafa nú komist að því, að með því
að koma fyrir litlu tæki ofarlega
í brjósti líkamans, sem örvar
flakktaugina, megi draga veru-
lega úr þunglyndi.
Tækið er ekki ósvipað
gangráðum, sem græddir hafa
verið í hjartasjúklinga. Það send-
ir boð til flökkutaugarinnar með
ákveðnu millibili, en taugin flyt-
ur þessi boð áfram til svæða í
heilanum sem vitað er að tengj-
ast skapsmunum fólks.
Tækið hefur verið notað í Evr-
ópuríkjum frá árinu 1994 og í
Bandaríkjunum frá árinu 1998
gegn ákveðnum tegundum af
flogaveiki. Fljótlega bárust þó
fregnir af því að tækið hefði góð
áhrif á andlega líðan sjúk-
linganna, og því fóru vísinda-
menn að kanna þau áhrif sérstak-
lega.
Það voru svo vísindamennirn-
ir Mark George og A. John Rush
sem skýrðu svo frá niðurstöðum
rannsókna sinna í byrjun vikunn-
ar. Þeir segja tækið hafa ótvíræð
áhrif til að draga úr vanlíðan
þunglyndissjúklinga, og þau
áhrif vari a.m.k. í tvö ár. ■
Uppstokkun í ríkisstjórn:
Skipting
verkefna
fremur en
ráðuneyta
stjórnarsamstarf Guðni Ágústs-
son, landbúnaðarráðherra, segir
að ekki beri að skilja orð sín um
uppstokkun í ríkisstjórninni í
Morgunblaðinu fyrir skemmstu
sem svo að hann sé að hvetja til
ráðherraskipta
heldur vilji hann
frekar minna á
þau markmið rík-
isstjórnarinnar að
■h skilgreina betur
JB hvar verkefnum
WKLít___JH væri best komið
guðni og að mikilvægt
ágústson væri að færa
Ekki orðinn leiður verkefni til þegar
I 'andbúnaðar- jiða tæki á kjör.
ráðuneybnu. tímabilið
„Sum af þessum verkefnum hef
ég minnst á, s.s. matvælaráðu-
neyti. Sá málaflokkur er í það
flóknum farvegi hér að það heyrir
undir þrjá ráðherra en á öðrum
Norðurlöndum heyrir hann undir
einn eða tvo ráðherra. Það er ým-
islegt sem mér finnst gott að
minna á í þessum efnum. Það er á
stefnuskrá ríkisstjórnarinnar að
skoða þetta og ég var bara að
minna á að tíminn líður.“ ■
I ÖRFRÉTT 1
Mikið hvassviðri gekk yfir Ak-
ureyri í gær. Að sögn lög-
reglunnar losnaði járn af húsþaki
og skúta fauk niður af vagni og-
þurfi að koma böndum á hana.
Slapp skútan alveg við skemmdir.
Þá fauk stór ösp í húsagarði og
vinnupallur úr áli fauk af brú á
skipi niður á bifreið sem þar stóð
á bryggjunni. Bíllinn skemmdist
töluvert. Sagði talsmaður lögregl-
unnar vindinn hafa farið, þegar
mest var, upp í rúmlega 32 m/sek.
Reiknaði út líklegcin
fjölda fómarlamba
Myndbandsupptaka af bin Laden gortandi af hryðjuverkaárásunum á
Bandaríkin líklega sýnd í dag. Þar segist hann fyrirfram hafa
reiknað út hversu margir gætu dáið í árásunum. Bjóst hann ekki við svo
mikilli eyðileggingu World Trade Center-turnanna.
washington.ap George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í
fyrrakvöld að myndbandsupp-
taka af Osama bin Laden, þar
sem hann gortar sig af hryðju-
verkaárásunum á Bandaríkin,
sýni að hann sé sekur um „hrylli-
leg morð,“ en myndbandið verð-
ur að öllum líkindum sýnt al-
menningi í dag. „Þeir sem sjá
myndbandið munu átta sig á því
að hann er ekki aðeins sekur um
hryllileg morð, heldur er hann
með öllu samvisku- og sálarlaus"
sagði Bush. Bætti hann því við að
myndbandið minnti hann á hver-
slags morðingi bin Laden væri og
hversu traustur málstaður
Bandaríkjanna sé.
Myndbandið, sem er um 40
mínútur að lengd, sýnir bin
Laden greina frá því að hann hafi
vitað fyrirfram um skipulagn-
ingu og flest smáatriði hryðju-
verkaárásanna á World Trade
Center-turnana og Pentagon,
byggingu varnarmálaráðuneytis-
ins. Segist hann m.a. hafa reiknað
út hversu margir „óvinir" gætu
dáið í árásunum. Auk þess talar
bin Laden um að flugræningjarn-
ir sem um borð voru í flugvélun-
um fjórum sem rænt var, hafi
margir hverjir ekki þekkt hina
ódæðismennina sem um borð
voru. Gerir hann grín að því að
nokkrir hinna 19 flugræningja
hafi ekki vitað að þeir ættu eftir
að deyja, heldur hafi þeir haldið
að þeir væru að taka þátt í
„venjulegu" flugráni. „Hann er
svo illur að hann er tilbúinn til að
senda unga menn út í opinn dauð-
BUSH
George W. Bush segir bin Laden vera samvisku- og sálarlausan morðingja sem svífist ein-
skis til að eyðileggja siðmenningu annarra í eigin þágu.
ann á meðan hann sjálfur felur
sig í hellum," sagði Bush. í mynd-
bandinu segist bin Laden hafa
kveikt á útvarpinu til að fylgjast
með umfjöllun um hryðjuverkin
og að hann hafi ekki búist við því
að World Trade Center-turnarnir
myndu eyðileggjast eins mikið og
raun bar vitni.
Myndbandið, sem fannst á
heimili í borginni Jalalabad í
Afganistan fyrir um ellefu dög-
um síðan, er dagsett þann níunda
nóvember og var það tekið upp í
borginni Kandahar í Afganistan.
Bandarískir sérfræðingar sem
hafa rannsakað myndbandið á ít-
arlegan hátt hafa staðfest að
Osama bin Laden sé þar á ferð og
tali þar arabísku. Myndbandið ku
vera viðvaningslega unnið, en að
sögn heimildarmanna mun
veislustemmning vera þar alls-
ráðandi. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
Þr jú tré lögðust á hliðina í
hvassviðrinu sem gekk yfir í
fyrrinótt. Lét lögreglan í Hafnar-
firði bæjarstarfsmenn í Garðabæ
og Hafnarfirði upp úr miðnætti
um að jólatré sem búið var að
koma upp væru lögst á hliðina.
Þetta voru tvö tré á torgum í
Hafnarfiðri og eitt í Garðabæ. Að
sögn lögreglunnar í Kópavogi
gerðu bæjarstarfsmenn ráðstaf-
anir til að festa niður trén og
voru þau reist við í gærdag.
fært var um tíma í fyrrinótt
við Hafnarfjall vegna mikilla
sviptivinda. Að sögn lögreglunn-
ar í Borgarnesi var enginn á ferli
og biðu vegfarendur veðrið af
sér. Því hafi engin vandræði
skapast.
virðist sem TV3 hafi laumað tenglum inn á
klámsíður, í trássi við samstarfsaðila sinn,
sem I þessu tilfelli hafi verið danski rikis-
lögreglustjórinn.
Af heimasíðu lögreglu
inn á klámsíðu:
Sökudólgur-
inn er
dönsk sjón-
varpsstöð
klámsIður Fréttastofa RÚV grein-
di frá því í sumar að hægt væri að
rekja sig í grein á strik.is yfir á
örgustu klámsíðu. í kjölfar þessa
fréttar fór Haraldur Johannessen,
ríkislögreglustjóri, fram á lög-
reglurannsókn á málinu og var
Ásgeir Friðgeirsson, ritstjóri
strik.is yfirheyrður vegna máls-
ins með réttarstöðu grunaðs
manns. Á vefsíðu strik.is á mánu-
dag var síðan skýrt frá því að í
gegnum heimasíðu íslensku lög-
reglunnar væri með níu mús-
arsmellum hægt að fara yfir á
danskt tenglasafn þar sem allt
væri vaðandi í klámi.
Ríkislögreglustjóri hefur nú
sent frá sér athugasemd vegna
þessa og þar kemur fram að á
heimasíðu lögreglunnar á íslandi
séu tenglar inn á heimasíðu lög-
reglu í löndunum í kring, þar á
meðal dönsku lögreglunnar. Við
skoðun hafi komi í ljós að farið er
inn á umrædda síðu, sem strik.is
skýrði frá, af heimasíðu dönsku
lögreglunnar. Búið sé að hafa
samband við ábyrgðarmenn
heimasíðu dönsku lögreglunnar
og hafi þeir komið af fjöllum og
ekki kannast við neitt tenglasafn
með klámefni. í ljós hafi komið að
sjónvarpsstöðin TV3, sem danska
lögreglan á í samstarfi við í gegn-
um sjónvarpsþátt sem lýsir eftir
brotamönnum, hafi sett inn
tenglasíðu eftir að sú samvinna
hófst. Hafin sé athugun á málinu
hjá ríkislögreglustjóra Danmerk-
ur og sé haft eftir þeim að sökin
liggi alfarið hjá umræddum fjöl-
miðli. ■
| ÖRFRÉTT 1
Tóbaksinnflytjendur fagna fyr-
irhuguðum breytingum á
gjaldtöku af tóbaki. Til stendur
að fella niður tolla, en taka á móti
upp tóbaksgjald sem renni í ríkis-
sjóð. Innflytjendur sleppa því við
að leggja út fyrir tollinum, en
innheimta tóbaksgjaldsins verður
á höndum ÁTVR. I frumvarpinu
segir að breytingin ætti hvorki að
hafa áhrif á afkomu ríkissjóðs né
ÁTVR þar sem upphæð gjaldsins
væri miðuð við nánast óbreyttan
hagnað af tóbakssölunni.