Fréttablaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 12.12.2001, Blaðsíða 14
MARKA- SKORARAR í ENSKU % Thierry Henry, Arsenal VjB#* MÖRK: 21 & zttr •Sb' -3t*' Sttr Xs' ’je^ -ts' 45f' afe*' W W W W W W W W W V* W Michael Owen, Liverpool MÖRK: 20 W W W W W W W W W W' w w W W W w w w w w w w Ruud Van Nistelrooy, Man. Utd. MÖRK: 16 W W W W W W W W w w w w w w w w w w Michael Ricketts, Bolton mörk: 12 & Sfcr -to' afer' W mr Or mr ífr 3£y -Ifey W Jimmy Hasselbaink, Chelsea MÖRK: 12 w w w* w w w w w w w w w 14 Marcel Desailly: Ekki á leið til Man. Utd. fótbolti Franski landsliðmaðurinn Marcel Desailly slær á sögusagn- ir um að hann sé á leið til Manchester United. Vörn meist- aranna er sem gatasigti líkust, þeir hafa tapað 6 af 15 deildar- leikjum og fengið á sig 25 mörk. Sagt er að liðið sé tilbúið að greiða þrjár milljónir punda fyrir fyrir- liða Chelsea. A heimasíðu sinni segir Desailly að það sé ekkert til í þessum sögum. „Þetta er bara slúður. Mig slær hljóðan við að heyra það og neita að tjá mig um þetta.“ Hann segist vera að ná sér eftir meiðsl og að hann sé að komast í leikform. Diskótek Sigvalda Búa allar græjur - öll tónlist upplýsingar í síma 898 6070 r J j J LOOP vöðlur i verð frá 26.900 kr. riitnaou Vandaður flísfatnaður frá LOOP, jakkar, peysur og smekkbuxur, verð frá 6.090 kr. UTOST Síðumúla 11 • 108 Reykjavík • S: 588-6500 • www.lax-a.is sími 533 1111 fax 533 1115 Andrés Pétur Rúnarsson löggiltur fasteignasali. Einar sölum. Hinnrik sölum.- Jónas sölum. Digranesvegi 10 Kópavogi (fyrir ofari Sparisjóð Kópavogs) ATVINNUHUSNÆÐI TIL SOLU Kaplahraun, 225 f Akralind, 900 fm. Stórhöfði, 2300 fm. Brautarholt, 1800 fm. Vesturvör, 5000 fm. Suðurhraun, 200 fm Akralind 2*300 fm. Kothús Garður, 1600 fm. Hvaleyrarbraut, 140 fm . Lækjamelur, 360 fm. Gnoðavogur, 62 fm. ATVINNUHUSNÆÐt TIL SÖLU EÐA LEIGU Glæsileg skrifstofa c. 60 fm. í stærri turninum í Kringlunni Útsýni yfir alla Reykjavík. Armúli, 300 fm. Austurstræti, 500 fm. Skipholt, 200 fm. Lyngháls, 2100 fm. Lyngás, 65 fm.. Brautarholt, 560 fm. FYRIRTÆKI Sólbaðsstofur 5-14 m. Bifreiðav. Bílapartasala. Sjálfsalafyrirtæki. Matsölustaður. Framköllunarþjónustan Gott fyritæki fyrir sendif.bílstj. Húsgagnaverslun Hafnarf. Kaffi og veitingahús Bar í miðbænum Blómaverslun. Höfum kaupendur og leigjendur að öllum tegundum af fyrirtækjum, atvinnu og leiguhúsnæði. FRÉTTABLAÐIÐ 12. desember 2001 IVtlÐVIKUDAGUR Fram Fótboltafélag Reykjavíkur hf.: Um 25 milljóna króna rekstrarhagnaður 2001 MARCEL DESAILLY Franski varnarmaðurinn hjá Chelsea er að ná sér að fullu og segist vera kominn í gott form. „Ég sný fljótt aftur og kem til liðs við félaga mína í næstu viku. Því miður spila ég ekki gegn Liverpool." Man. Utd. mætir Der- by í kvöld. Beckham, Veron, Van Nistelrooy og Blanc koma inn í liðið aftur en Alex Ferguson hvíl- di þá um síðustu helgi þegar liðið lá fyrir West Ham. ■ fótbolti Fram Fótboltafélag Reykjavíkur hf. (FFR) tapaði 48,5 milljónum króna árið 2000. Á aðal- fundi FFR, sem haldinn var í fyrra- kvöld kom fram að mikil viðsnún- ingur hefði orðið á rekstri félags- ins á þessu ári og að rekstrarhagn- aður næmi 25 milljónum króna. Á fundinum sagði Steinar Guð- geirsson, varaformaður FFR, að helsta skýringin á miklum við- snúningi í rekstri væri að öll gjöld hefðu verið skorin niður og tekjur auknar með markvissum hætti. Helst bæri að telja auknar auglýs- ingatekjur, sjálfboðavinnu stjórn- ar- og leikmanna og svo frjáls framlög stuðningsmanna. Á gjaldahliðinni hefði vegið þyngst sú lækkun sem orðið hefði á leik- mannasamningum. Niðurstaðan væri rekstrarhagnaður upp á tæp- ar 25 milljónir króna og lækkun skammtímaskulda úr 42 milljónum í um 10 milljónir króna. Skuldir félagsins munu enn vera um 20 milljónir króna, en Steinar sagði að horfurnar fyrir næsta ár væru þokkalegar, ef áætl- anir gengju eftir. ■ 'Sudurgil Breidablik Stólalyfta flutt á Framsvædi iX . mm mm tm ipulag fyrír Bláfjallasvædi Ný 4 sseta stölalyfta --GrilyftaJluttá.Haúkasvædi ° - Armann rettdsvædí'f Ný lyfta Kóngsgilt* *** ' SkídasRáli Haukar Nýjar Qögurra sæta stóla- lyftur í Bláíjöll og Skálafell Norskir sérfræðingar leggja til að róttækar breytingar verði gerðar á skíðasvæðunum á höfuðborgarsvæðinu. Stofnað verði hlutafélag um reksturinn og níu lyftur verði færðar til. skíði Norskir sérfræðingar mæla með að stofnað verði hlutafélag um skíðasvæðin á höfuðborgar- svæðinu og að sett verði upp fjög- urra sæta stólalyfta í Kóngsgili í Bláfjöllum og í Skálafelli. í nýlegri úttekt sérfræðinganna, sem nær til skíðasvæðanna í Bláfjöllum, Skálafelli og í Henglinum, er enn- fremur lagt til að níu lyftur verði færðar til og að lyftur fyrir snjó- brettafólk verði settar upp í Blá- fjöllum og í Skálafelli. Þá er lagt til að skíðaskálarnir verði endurbætt- ir eða jafnvel byggðir nýir. Kristján Helgason, kynningar- fulltrúi skíðasvæðanna, sagði að ekki væri búið að ákveða hvenær yrði ráðist í framkvæmdirnar það væri samkomulagsatriði sveitar- félaganna sem stæðu að rekstri svæðanna, en þau eru 13 talsins. í fyrravetur gaf Bláfjallanefnd, sem er skipuð fulltrúum sveitar- félaganna þrettán, út stefnumót- unarskýrslu um stóraukna upp- byggingu á svæðunum. í skýrsl- unni segir að stefnt verði að því að aðsókn í fjöllin tvöfaldist mið- að við meðaltal áranna 1994-1999, en þá sóttu um 46 þúsund manns fjöllin á ári. í kjölfar skýrslu Bláfjalla- nefndar voru Norðmennirnir Edg- ar Berentsen arkitekt og Alfred Andersen verkfræðingur fengnir til að móta tillögur, en þeir hafa tekið út og endurhannað skíða- svæði víða um heim. Umboð þeir- ra var víðtækt og í úttekt þeirra eru skíðasvæðin endurskipulögð frá grunni, en megináherslan er lögð á Bláfjalla- og Skálafells- svæðið. Uppbyggingin miðast fyrst og fremst að því að bæta að- stöðuna fyrir skíðaiðkendur og tengja skíðabrekkurnár betur hvora við aðra, með því að færa lyftur til svo fólk geti rennt sér úr einni brekku og í aðra í stað þess að þurfa að ganga á milli lyfta. Bláfjöll í Bláfjöllum leggja Norðmenn- irnir til að ný fjögurra sæta stóla- lyfta verði sett upp sunnan megin við Kóngsgilið og að núverandi stólalyfta, sem er norðan megin við Kóngsgil verði flutt yfir á Fram-svæðið. Þá er lagt til að sett verði upp lítil ný lyfta sem mun tengja Kóngsgilið við Skíðaskál- an, þannig að fólk þurfi ekki að ganga þá leið, þegar það fer upp í skála. Einnig er lagt til að byggð- ur verði sérstakur skáli fyrir göngufólk, bílastæði verði stækk- uð og tekið upp rafrænt miða- kerfi. Skálafell í Skálafelli leggja Norðmenn- irnir til að ný fjögurra sæta stóla- lyfta verði sett upp þar sem í dag eru tvær diskalyftur hlið við hlið. Önnur diskalyftan verður flutt vestan megin við núverandi stóla- lyftu og nýtist fyrir æfingar. Hin diskalyftan verður þar sem hún er, við fyrirhugaða fjögurra sæta stólalyftu, og mun nýtast snjó- brettafólki. Þá er lagt til að diska- lyfta af Fram-svæðinu verði flutt upp í Skálfell og þar muni hún tengja stólalyfturnar tvær við fjallstoppinn. í Skálafelli er ein- nig gert ráð fyrir bílastæði verði stækkuð og tekið upp rafrænt miðakerfi. Hengill Normennirnir vilja að diska- lyfturnar tvær á Ármannssvæð- inu verði lagðar niður. en að barnalyftan standi. Áherslan verði því lögð á Hamragil, þar sem sett verði upp ný tveggja sæta stólalyfta. trausti@frettabladid.is ^ESSO-deild karla: ÍR í gódum málum hanpbolti í gær fóru fram þrír leikir í 12. umferð ESSO-deildar. ÍR er á skriði, tók á móti Gróttu/KR og vann 23-21. Þetta var fimmti sigurleikur ÍR í röð. FH átti góða ferð til Selfoss, vann 25-23. Afturelding tók vel á móti Þór frá Akureyri í Mosfellsbæn- um með því að vinna 27-26. Þór hefur ekki unnið leik í rúman mánuð. ■ VELKOMINN I MOSFELLSBÆ Daði Hafþórsson hjá Aftureldingu vinnur sig í gegnum Þórsaravörnina. Afturelding vann leikinn 25-24.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.