Fréttablaðið - 12.12.2001, Qupperneq 18
Hver er tilgangur lífsins?
Að lifa hátt
Að lifa hátt og elska.
Vigdís Crímsdóttir rithöfundur
BÆKUR
! Hótel Kalifornia________Stefán Máni
| Forlagið, 2001, 232 bls.
| Allir velkomnir á
| Hótel Kaliforníu
Meinfyndin bók sem rúllar
örugglega af staö og lýk-
I ur áður en maður áttar sig á
því. Hótel Kalifornía gerist í
upphafi níunda áratugarins í
Gömluvík, sem er nöturlegt
fiskipláss. Gamlavík er óræð- |
i ur staður, þar sem flestir karl- I
i menn virðast heita Pétur og
I allir lifa einsleitu lífi. Sögu- I
I hetjan heitir þó ekki Pétur,
heldur Stefán, og er einkar
; viðkunnanleg. Stefán er ungur
| vinnumaður í frystihúsinu, al-
I gjör hrakfallabálkur og afar
i brjóstumkennanlegur í þau
i ófáu skipti sem hlutirnir
ganga honum ekki í hag. Hann
i er klár strákur með hæfileika,
| sem fá ekki að njóta sín. Samt
! líður honum ágætlega í
i Gömluvík og á sér ekki önnur |
i markmið en að næla sér í kær- j
ustu. Til þess að gíra sig upp í |
i kvennafarið hittir hann vini
i sína, drekkur brennivín í pepsí I
: og hlustar á glæsilegt vínil-
| plötusafn sitt. Sagan er einföld
| og endurtekningar eru notaðar
snyrtilega. Stílbragð höfundar
er þægilegt aflestrar og hann
nær oft góðu flugi í samtölum.
Þó er alvörunni laumað inn
svo lítið beri á. Það besta við
bókina er hinsvegar að hún
veit upp á hár um hvað hún er
og flækir ekki málin.
Halldór V. Sveinsson
WÓÐLEIKHÚSIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviöiö kl 20.00
► CYRANO - SKOPLEGUR HETJULEIKUR - Edmond Rostand
Frumsýning annan í jólum-uppselt, 2. sýn. fim. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. sun.
30/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 3/12 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 4/1 örfá sæti laus.
► SYNGJANDI í RIGNINGUNNI - Comden/Green/Brown og Freed
Fös. 28/12 örfá sæti laus, lau. 29/12 örfá sæti laus, iau. 5/1.
► MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI - Marie Jones
Sun. 6/1, fim. 10/1.
M Litla sviðið kl 20.00
► HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? - Edward Albee
Lau. 15/12 uppselt, sun. 16/12 uppselt, mið. 2/1, sun. 6/1.
Ekkí er hægt að hieypa inn í salinn eftir að sýning er hafinl
K Smíðaverkstæðið kl 20.00
► VIUI EMMU - David Hare
Aukasýning fös. 28/12 nokkur sæti laus.
► KARÍUS OG BAKTUS - Thorbiörn Egner
Lau. 15/12 kl.14:00 uppselt, kl. 15:00 uppselt, kl.16:00 uppselt. sun. 16/12 kl. 14:00
uppselt og kl.15:00 uppselt.lau. 22/12 kl. 14:00 oq 15:00. lau.29/12 kl.14:00 örfá
sæti laus og kl. 15:00 nokkur sæti laus, sun. 30/12 kl. 14:00 örfá sæti laus og
kl. 15:00 nokkur sæti laus.
Miðasöiusími: 551 1200. Netfang: midasaia@leikhusid.is Veffang: www.leikhusid.is
12. desember 2001 MIÐVIKUDAGUR
Jólatónleikar Borgar-
dætra:
Söngur
og sprell
tónleikar Borgardætur halda
jólatónleika á Nasa við Austurvöll
á morgun. Hið sívinsæla söngtríó,
skipað söngkonunum Andreu
Gylfadóttur, Ellen Kristjánsdótt-
ur og Berglind Björk Jónasdóttur
hefur getið sér gott orð fyrir
skemmtanir sínar sem einkennast
af samsöng í anda Andrews systra
í bland við grín og glens.
í fyrra kom út þriðji geisla-
diskur Borgardætra, Jólaplatan,
en þar syngja þær ýmis jólalög í
skemmtilegum útsetningum. Und-
BORGARDÆTUR
Þær Andrea, Ellen og Berglind Björk eru
þekktar sem hinar íslensku Andrew-systur.
Þær troða upp á Nasa annað kvöld.
irleikarar á tónleikunum verða pí-
anóleikarinn Eyþór Gunnarsson,
sem jafnframt er útsetjari og
söngstjóri, og Birgir Bragason
kontrabassaleikari.
Tónleikarnir hefjast kl. 21 og
aðgangseyrir er kr. 1500. ■
MIÐVIKUPAGUR
12. DESEMBER
JÓLASVEINAR_______________________
10.30: Stekkjastaur er kominn í bæinn
og bregður á leik í Ráðhúsinu
UPPISTANP_________________________
22.00: Sigurjón Kjartansson og Þor-
steinn Guðmundsson hafa
ákveðið að taka eigin áskorun um
að endurtaka uppistand sitt á
Sportkaffi í Þingholtsstræti. Þeir
voru báðir þeirrar skoðunar að
þeim hefði tekist sérstaklega vel
upp síðast og gætu ekki annað
en endurtekið leikinn nú.
KVIKMYNPASÝNING___________________
20.30: Umdeild heimildarmynd, American
Pimp, sýnd í Gallerí Skugga, Hverf-
isgötu 39. Bjöm Þór Vilhjálmsson
bókmenntafræðingur mun halda
stutt spjall þar sem hann veitir inn-
sýn í ýmsa þætti myndarinnar. Hús-
ið verður opnað kl. 20.
TÓNLEIKAR_________________________
20.00 og 22.00: Árlegir jólatónleikar
verða haldnir í Hvitasunnukírkj-
unni Fíladelfíu Hátúni 2 í kvöld.
Fram koma Lofgjörðarhópur
Fíladelfíu, Gospelkompaníið og
hljómsveitin Godzpeed. Ein-
söngvarar eru Páll Rósinkrans,
Guðrún Gunnarsdóttir, Þóra
Gréta Þórisdóttir, Kristín Ósk
Gestsdóttir, Erdna Varðardóttir,
Geir Jón Þórisson og Hjalti
Gunnlaugsson. Hljómsveit húss-
ins skipa Óskar Einarsson píanó-
leikari og tónlistarstjóri; Jóhann
Ásmundsson bassaleikari; Halldór
Gunnlaugur Hauksson trommu-
leikari; Hjalti Gunnlaugsson gitar-
leikari og Þórir Haraldsson orgel-
leikari. Tónleikarnir verða teknir
upp og sýndir í Ríkissjónvarpinu að
kvöldi aðfangadags.
20.30: Blásarakvintett Reykjavíkur og
félagar koma saman og halda
sína árvissu tónleika undir heitinu
„Kvöldlokkur á jólaföstu" í Frí-
kirkjunni við Tjörnina. Leikin
verða lög úr „Töfraflautunni" og c-
moll serenaða Mozarts og partíta
fyrir 9 blásara eftir Krommer. Þeir
sem koma fram á tónleikunum
eru Daði Kolbeinsson og Peter
Tompkins.óbó; Einar Jóhannes-
son og Sigurður I. Snorra-
son,klarínettur; Jósef Ognibene
og Þorkell Jóelsson.horn; Haf-
steinn Guðmundsson.Brjánn
Ingason og Rúnar Vilbergs-
son,fagott og kontrafagott, og
Richard Korn, kontrabassi.
22.30: Fönkbandið Búgalú leikur fönk-
tónlist á Vídalín. Meðlimir eru
Steinar Sigurðarsson ,saxofón,
Þorgrímur Jónsson, kontrabassi,
Eric Qvick. trommur og Ásgeir
Ásgeirsson, gítarleikari.
Gróusögur sem
lengi lifðu
íslenskar konur liðu lengi fyrir neikvæða umíjöllum um framkomu
þeirra á stríðsárunum. Islenskum karlmönnum var mjög brugðið
þegar allt fylltist af hermönnum og tóku reiði sína út á konum
HERDÍS HELGADÓTTIR
Segir skýringu á áfellisdómi yfir konum stríðsáranna vera þá að karlmenn höfðu ráðið
lögum og lofum í samfélaginu og sættu sig engan vegin við að missa stjórnina yfir
konum.
bækur „Þessar gróusögur um að
konur lægju flatar undir her-
mönnum alls staðar höfðu
langvarandi áhrif á íslenskar
konur,“ segir Herdís Helgadóttir
mannfræðingur. Bók Herdísar,
úr fjötrum, sem nýverið kom út
fjallar um íslenskar konur á
árum seinni heimsstyrjaldarinn-
ar en lengi vel, og kannski enn í
dag, var álitið að íslenskar konur
hefðu hagað sér skammarlega á
stríðsárunum.
„Þessi neikvæða afstaða kom
í ljós strax daginn eftir að herinn
kom á land. Þá skrifar Alþýðu-
blaðið um léttúðardrósir sem
höfðu gerst svo ágengar við her-
menn að þeim hefði þótt nóg um.
íslenskar konur voru síðan ein-
faldlega stimplaðar sem föður-
landssvikarar sem hefðu brugð-
ist landi og þjóð.“
Herdís segir skýringu á áfell-
isdómi yfir konum vera þá að
karlmenn höfðu ráðið lögum og
lofum í samfélaginu og sættu sig
engan vegin við að missa stjórn-
ina yfir konum. Því hafi öll um-
fjöllun um samband íslenskra
kvenna við hermenn farið úr
böndunum, ekki síður en eftirlit
með samskiptum kvenna og her-
manna. „Lögreglan tók sér í raun
óskorað vald til að fylgjast með
konum og unglingsstúlkum og
sinnti því verkefni af mikilli
alúð. Unglingspiltar fengu hins
vegar að leika lausum hala og af-
skipti íslenskra karla af konum
voru líka látin afskiptalaus. Það
kom síðan í ljós að lögreglan
þverbraut barnaverndarlög með
afskiptum sínum og meðferð á
unglingstúlkum sem taldar
höfðu hafa brotið af sér, það var
Arnfinnur Jónsson kennari sem
vakti athygli á því með skrifum
sínum 1943 og þá komst skriður
á þessi mál og þau voru færð í
betra horf.“
Herdís var ellefu ára þegar
breski herinn kom til íslands og
segist sjálf hafa orðið fyrir mikl-
um áhrifum af áróðrinum. „Við
konur fórum beinlínis að
skammast okkur fyrir að vera
konur, þetta þaggaði niður í okk-
ur um árabil, enda hélt umfjöll-
unin um konur í stríðunu áfram
að vera á þessum nótum í áratugi
eftir að því lauk.“
Herdís segir vera hræðilegt
hversu lengi þessar sögur hafi
verið viðurkenndar sem heilag-
ur sannleikur, en það sé kannski
ekki að furða vegna þess að ráða-
menn voru á þessari skoðun, for-
dómar þeirra birtust einnig með
ýmsum hætti. „íslenskir ráða-
menn og hernaðaryfirvöld deil-
du t.d. mikið um það hvort væri
sökudólgur í útbreiðslu kynsjúk-
dóma, konurnar eða hermenn-
irnir. Þegar sjúkraskýrslur eru
skoðaðar kemur hins vegar í ljós
að íslenskir karlmenn voru ekki
síður smitaðir en aldrei var um
það rætt.“
sigrídur@frettabladid.ís
Hin firébæru Panasonic hljómbord
. _ . . em komm aftwr. 3 mismunandi gerdtr
SHífífiflH : mimn med géstaspiara o§ ótvarpi.
20.30: Gospelsystur Reykjavikur halda
tónleika ( Langholtskirkju. Á þess-
um tónleikum syngur Stúlknakór
Reykjavikur með Gospelsystrum.
Gospelsystur frumflytja í þessari
tónleikaröð nýtt jólalag eftir
Björgvin Þ. Valdímarsson við
texta eftir stjórnandann Margréti
J. Pálmadóttur. Undirleikari er
Agnar Már Magnússon og Stef-
án S. Stefánsson sér um flautu,
saxófón og slagverk.
23.00: Tvíhöfði skemmtir á Gauk á
Stöng og hljómsveitin Buff leikur
á eftir.
MYNPLIST____________________________
Nú stendur yfir sýning á 27 olíumálverk-
um eftir Helga Hálfdánarson í
Listacafé og Veislugallery í Listhúsinu
í Laugardal. Myndirnar eru á tilboðs-
verði út desembermánuð. Helgi hefur
stundað nám í olíumálun í Myndlistar-
skóla Reykjavíkur '84 - 87 og á ýmsum
námskeiðum þar, í Myndlista- og hand-
íðaskólanum og í T.H. Aachen í Þýska-
landi.
Jóhanna Helga Þorkelsdóttir sýnir
portrettmyndir i gallerí Nema Hvað,
nemandagalleríi Listaháskóla íslands.
Sýningin opnar Föstudaginn 7.des. kl.
20:00 og opið er frá 15:00 til 19:00
alla daganna. Sýningunni lýkur 12. des.
Allir velkomnir!
Steinþór Marinó Gunnarsson listmálari
sýnir nú röð smámynda í Verksmiðju-
sölunni á Álafossi, Álafossvegi 23,
Mosfellsbæ. Þetta er jólasýning. Flest
verkin eru unnin á árunum 1980 -
1998. Hér er um að ræða alls 25 verk
unnin í pastell og myndir með blandaðri
tækni. Sýningin er opin á venjulegum
verslunartíma kl. 10.00 - 18.00, og laug-
ardaga kl. 10.00 - 14.00. Sýningin er
opin til 31. desember.
fslensk Grafík sýnir í Hafnarhúsinu,
Tryggvagötu 17. Á sýningunni eru verk
eftir félagsmenn, auk þess sem
skúffugallerí er kynnt og verk sem graf-
íkvinir hafa fengið síðustu árin. Sýningin
mun standa til 16. desember og er opin
frá klukkan 14:00 - 18:00 fimmtudaga til
sunnudaga.