Fréttablaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR FRÉTTAB 23. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagur 1. febrúar 2002 MARTA LOVÍSA Ætlar sér framtíð í viðskiptum bis 8 ISRAEL Hejði viljað drepa Arafat bls 12 ÍSLANDSBANKI Purfti ekki mikið til að fjórfalda hagnað frá árinu 2000. Islandsbanki: Hagnaðist mikið á verð- bólgunni uppcjör Hreinar vaxtatekjur ís- landsbanka námu 10 milljörðum á árinu 2001 og jukust um rúmlega þriðjung frá árinu á undan. Það sem mestu veldur um aukningu þessara tekna er 9% verðbólga yfir árið. Þetta skýrist af því að verðtryggðar eignir bankans eru verulega umfram verðtryggðar skuldir, en það leiðir til hærri vaxtamunar. Vaxtamunur bank- ans var 3,1% á árinu og hækkaði um 13% frá fyrra ári. Fram kem- ur í tilkynningu bankans að ytri skilyrði hafi verið bankanum óhagstæð á árinu m.a. vegna verð- bólgunnar. Fjármálasérfræðingar sem blaðið ræddi við töldu ljóst að þáttur verðbólgunnar í hagnaði bankans væri verulegur - jafnvel á við þátt rekstraraðhalds. Valur Valsson og Bjarni Ármannsson, forstjórar Islandsbanka, fullyrtu í uppgjörinu að helstu ástæðu margfalt betri hagnaðar væri að finna í rekstraraðhaldi sem skip- aði bankanum í hóp þeirra hag- kvæmustu í Evrópu. Rekstrar- kostnaður jókst um 4% en vegna verðbólgunnar á árinu varð nokk- ur raunlækkun. Vegna endurmats eigna var hagnaður bankans verulega lítill á árinu 2000. Viðmælendur blaðsins bentu á að ekki hafi því þurft mik- ið til að fjórfalda hagnaðinn á milli ára. Miðað við 40 milljarða króna markaðsvirði væri 3.140 milljóna króna hagnaður aðeins í góðu meðallagi. ■ sicur „Þjóðin fagnar öll,“ segir forseti Islands, Ólafur Ragnar Grímsson, í skeyti sem hann sendi handboltalandsliðinu í gær- kvöld eftir að tryggt var að liðið spilar í undanúrslitum Evrópu- meistararkeppninnar. Forsetinn segir orðrétt: „Til hamingju með glæsilegan sigur og frábæran leik. Þjóðin fagnar öll.“ Landsliðið vann örugg- an sigur á Þjóðverjum í gærkvöldi, 29-24. Óhætt er að segja að allt liðið hafi spilað frábærlega. Guð- mundur Hrafnkelsson varði 21 skot og Patrekur Jóhannesson var marka- hæstur íslensku leikmann- anna, skoraði 8 mörk. Með sigrin- um tryggði íslenska liðið sér þar með efsta sætið í B-milli- riðli. í A-riðli komu Danir á óvart og lögðu Svía að velli með 27 mörkum gegn 26. Danir tryggðu sér þar með efsta sætið í riðlinum og mæta Þjóðverjum í undanúrslitum. ísland mætir hins vegar gestgjöfunum Svíum í undanúrslitum. ■ DOKTOR Verðbólguaðgerðir kosta 750 milljónir Teknar voru til baka hækkanir í heilsugæslu og á afnotagjaldi útvarps- ins. Ahrifanna gætir strax. Verðbólguaðgerðir EFNAHAGSMAL ríkisstjórnarinnar kosta ríkissjóð um 750 milljónir króna, sem er ná- lægt því helmingi meira en áður hafði verið ráðgert. Teknar voru til baka gjalda- hækkanir sem tóku gildi um ára- mót og hætt við aðrar. Davíð Oddsson, forsætisráðherra segir að ákveðið hafi verið að ganga þetta langt því horft væri til —♦— Forsætisráð- herra sagðist telja að með aðgerðum ríkis- stjórnarinnar ættu verðbólgu- markmið að nást fyrir vorið. —♦ lengri tíma en bara til fyrsta maí, „Það var ákveðið að taka til baka sem nemur 0,14 prósentum í vísi- tölunni núna 1. febrúar og jafn- framt 0,06 til 0,07 prósentum sem lýtur að sérstöku áfengisgjaldi, sem ráð var fyrir gert að lagt yrði á. Miðað við heilt ár eru þetta 750 milljónir eða svo, þannig að við göngum lengra heldur en við höfð- um í raun lofað Alþýðusamband- inu.“ Forsætisráðherra sagðist telja að með þessum aðgerðum ættu verðbólgumarkmið að nást fyrir vorið. „Eftir þann tíma ætti DAVÍÐ ODDSSON Forsætisráðherra segir að með aðgerðum ríkisstjórnarinnar nú sé horft til lengir tíma en bara til vors. Flann gerir ráð fyrir að gengið haldi áfram að styrkjast og vöru- verð þar með að lækka. verðbólgan að vera komin það mikið niður að menn ættu að sjá gengið styrkjast og vöruverð jafn- vel lækka áfram ef menn eru heil- steyptir í að vera ekki með neitt svindl í þeim málum,“ sagði hann og taldi að almenning best fallinn til að veita aðhald í þeim málum, enda fylgdist fólk betur með verð- lagsþróun en áður hafi verið. Davíð sagði að auknar útflutn- ingstekjur myndu að miklu leyti vega upp á móti þessum útgjöld- um. „Bæði í þeim meðafla sem ákveðinn hefur verið sem nemur um 33 þúsundum þorskígildiston- na og nú nýverið með heimild til að auka loðnukvótann, sem nemur um 2 milljörðum í útflutningstekj- um. Allt þetta samanlagt gerir að verkum að ríkissjóður verður ekki, þrátt fyrir þessar ákvarðan- ir, verr staddur í árslok en þegar við skiluðum fjárlaganiðurstöð- um,“ sagði hann og bætti við að ekki hafi verið tekin ákvörðun um aðrar sértækar aðgerðir að sinni. Aðspurður um hvort ríkis- stjórnin gerði þá sömu kröfu á aðra aðila að þeir brygðust við verðbólguþróuninni, sagði Davíð það ekki vera. „Við gerum engar kröfur, en það hlýtur að vera að aðrir aðilar sjái hvílík alvara er í þjóðfélaginu, bæði hjá okkur og verkalýðshreyfingunni og at- vinnurekendum. Þá ættu menn að sameinast um þetta því þetta get- ur skapað mjög góð skilyrði til annara hluta. Ekki bara lágrar verðbólgu heldur einnig lækkandi vaxta." oli@frettabladid.is NÆRMYND Þannig er Guðmundur Nýsköpun með aðstoð Netsins bls 22 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuð- borgarsvæð- inu á virkum dögum? 60,6% 60,5% í° *Ó (D Meðallestur 25 til 49 •z & 29,4% ára á virkum dögum C samkvæmt r. “3 E? o 2 fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2001 i > Q 70.000 eíntök 65% fólks les blaðið MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA A HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001, ‘ Tolli talar í Goethe-Zentrum erindi Myndlistar- maðurinn Tolli mun halda erindi í Goethe-Zentrum á Laugavegi 18, 3. hæð. Tolli er nýlega kominn frá Berlín þar sem hann hélt sýningu við góðar undirtektir. í er- indinu, sem er hluti af fyrirlestra- röðinni „Sýn mín á Þýskaland" og verður haldið á fslensku, mun Tolli miðla persónulegri reynslu sinni og hughrifum. Til góðs eða ills hAdegisfundur Mikið hefur verið rætt um það nýmæli að halda inn- tökupróf í læknadeild í stað hefð- bundinna ciausus-prófa. Vaka held- ur vegna þessa hádegisfund í Læknagarði föstudaginn 1. febrúar næstkomandi. Fundurinn ber yfir- skriftina „Inntökupróf í læknadeild- til góðs eða ills?“. Fundurinn hefst kl. 12:00. | VEÐRIÐ í DAC[ T REYKJAVl'K NA 15-20 m/s og > • rígning eða slydda að morgni. Heldur hægari og úrkomulítið ° * * síðdegis. Hiti 3 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI fsafjörður (3 18-20 Snjókoma Q1 Akureyri <3 13-15 Slydda ©1 Egilsstaðir 13-15 Slydda Q0 Vestmannaeyjar 3 10-12 Skýjað (>4 Seðlabankinn og verðbólgan kynninc Seðlabanki íslands mun í dag kynna nýja verðbólguspá og efni febrúarheftis ársfjórðungsrits bank- ans Peningamála, sem birt verður á heimasíðu bankans kl. 16.00. Fjárhagsaðstoð í velferðarþjóðfélagi mAlpinc Málþing um f járhagsaðstoð í velferðarþjóðfélagi verður á Grand Hótel í dag kl. 12.30-17.00. Fundar- stjóri verður Elín R. Líndal, formað- ur byggðarráðs Húnaþings vestra. j KVÖLPIP í KVÖLD Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 íþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 18 Útvarp 21 RAFLAGNIR ÍSLANDS ehf. VERSLUN - HEILDSALA ÖRYGGISKERFI TÖLVULAGNAVÖRUR VINNUSTAÐABÚNAÐURS Hamarshöfða 1 - Sími 511 1122 www.simnet.is/ris Ný Heimasíða f

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.