Fréttablaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 6
6 FRETTABLAÐIÐ 1. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR SPURNING DAGSINS . 720 vopn gerð upptæk í tollinum: Einkum í fórum barna og unglinga VOPNIN KVÖDD Það styttist í að viðurlögum verði beitt gegn þeim sem verða gripnir með ólögleg vopn. Hér gefur að líta hluta þeirra vopna sem yfírvöld hafa lagt hald á undanfarna mánuði. Á að leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum? Að sjálfsögðu. Fólk á að geta nálgast þess- ar vörur eins og aðrar neysluvörur í mat- vöruverslunum. Hreinn Sigurgeirsson starfsmaður ísafoldar vopn Það eru einkum börn og ung- lingar innan við tvítugt sem hafa verið tekin með ólögleg Vöpn á Keflavíkurflugvelli undanfarna 20 mánuði. Vopn þessi eru aðallega keypt á Spáni þar sem þau eru mjög aðgengileg. Alls hefur verið lagt hald á 720 vopn á flugvellinum á tímabilinu. Það er um fjórðungur þeirra vopna sem lagt hefur verið hald á tímabilinu. Að sögn Sævars Lýðssonar, full- trúa sýslumannsins á Keflavíkur- flugvelli, átta foreldrar sig margir hverjir ekki á því að loftbyssur og hnífar falli undir ólögleg vopn. „En þau virðast einnig geta keypt sér þau sjálf og stundum vita foreldr- arnir ekki af þessu.“ Hingað til hafa vopn sem gerð eru upptæk í tollinum verið gerð upptæk en engum viðurlögum verið beitt. Að sögn Sævars stytt- ist í að viðurlögum verði beitt í meira mæli en gert hefur verið hingað til. Heimild er í lögum að sekta um allt að 100.000 fyrir ólög- leg vopn. Flest hættulegustu vopnin tengjast fíkniefnaheiminum og finnast gjarnan á einstaklingum sem eru að koma frá Amsterdam eða Kaupmannahöfn. Ekki hefur orðið vart við innflutning á vopn- um, yfirleitt hafa einstaklingar keypt þau til eigin nota. ■ Lánasjóðurinn: Krefur MS-sjúkling um milljón- arskuld LÍN Jóhannesi Davíðssyni, sem er MS-sjúklingur, hefur verið gefinn frestur til 7. febrúar nk. til greiða 1.094 þúsund krónur vegna skuldar sinnar við Lánasjóð íslenskra náms- manna (LÍN). Umboðsmaður Alþingis gaf það álit í fyrrasumar að stjórn LÍN og málsskotsnefnd sjóðins hefði brotið lög á Jóhannesi með því að taka ekki tillit til aðstæðna hans sem MS-sjúk- lings þegar hún synjaði honum um niðurfellingu á endurgreiðslu láns- ins. Málið er nú að nýju fyrir mál- skotsnefndinni. Þrátt fyrir það er gengið að Jóhannesi og ættingjum hans sem gengist hafa í ábyrgðir eins og ekkert hafi í skorist. „Ég þekki engin fordæmi þess að mál hafi verið tekið úr innheimtu þrátt fyrir kæru eða kærumeðferð," segir Steingrímur Ari Arason, fram- kvæmdastjóri LÍN. Steingrímur Ari segir að Jóhann- es hafi komist í vanskil við sjóðinn áður en hann missti atvinnuna og greindist með þann sjúkdóm sem hann hefur. „Þá óskaði hann eftir frestun á greiðslu en fékk synjun. í framhald- inu lagði hann fram læknisvottorð sem ekki var tekið til greina. Hann var að kalla eftir frestun vegna van- skila sem hann var kominn í löngu áður en hann kemst í þá stöðu sem hann hefur síðan lýst. Þannig að hann hefur að mati sjóðsins ekki fært neitt fram sem gefur tilefni til frestunár eða undanþágu á þeim tíma sem hann átti að greiða. Honum var boðið að skuldbreyta vanskilunum á hagstæð- um kjörum, en hann þáði það ekki,“ segir Steingrímur Ari. ■ 45,7% hækkun hitaveitunnar Deildar meiningar um fyrirhugaða hækkun hitaveitunnar í Ólafsfirði. Gert er ráð fyrir að hagnaðurinn verði notaður til að greiða niður skuld- ir sveitarfélagsins. Gert til að bjarga íþróttahreyfingunni segir fulltrúi minnihlutans. sveitastjórn Lagt var til við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar Ólafs- fjarðar að gjöld fyrir hitaveitu heimamanna hækki um 45,7% í ár. Hugmyndin er að nota þann pening sem það myndi skila í kassann, sem eru um 13 milljónir, til þess að greiða niður skuldir bæj- arfélagsins. Ólafs- —♦— „Menn eru að taka á sig auknar skuldir út af íþrótta- hreyfingunni." fjörður er mjög skuldsett bæjarfé- lag og hefur ítrekað fengið bréf frá eftirlitsnefnd sveitarfélaga sem gert hefur athugasemdir við skuldastöðuna. Meirihluti bæjarstjórnar sam- þykkti tillöguna í fyrri umferð, einn fulltrúi minnihlutans sömu- leiðis, einn sat hjá en Gunnar Reynir Kristinsson, greiddi at- kvæði gegn henni. Gunnar segir hækkunina koma sér mjög illa fyr- ir marga bæjarbúa, en einkum eldra fólk, öryrkja og atvinnu- lausa. Gunnar segir mikinn urg í bæjarbúum vegna málsins. Hann bendir á að upphæðin sem bærinn fær í sinn hlut verði af hækkun- inni, er nánast jafnhá þeirri sem bærinn hefur samþykkt að leggja í nauðasamning vegna Leifturs, sem rambar á barmi gjaldþrots. „Menn eru að taka á sig auknar ÓLAFSFJÖRÐUR Ósætti er um hækkun á gjöldum hitaveitunnar. skuldir út af íþróttahreyfingunni.“ Anna María Elíasdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir nauðasamn- inginn ekki breyta neinu um skuldastöðu bæjarins. Lán sem hann hafi tekið fyrir nokkrum árum til að aðstoða íþróttahreyf- inguna falli inn í nauðasamninginn og nýtt lán verði tekið til að ábyrgjast hann, sem sé sömu upp- hæðar og það gamla, rúmar 14 milljónir. Það verði því ekki aukin byrði á bænum. Anna María segir að ekki sé búið að taka ákvörðun um að hækka hitakostnað. Það sé hins vegar mjög freistandi kostur. „Við stöndum frammi fyrir því að skuldastaðan er mjög slæm. Við þurfum að grípa til aðgerða til að sporna gegn áhrifum verðbólgu og fólksfækkunar sem hefur verið gríðarleg. Ólafsfirðingum hefur fækkað um 200 á síðustu 6-7 árum, en samt höfum við haldið sömu þjónustu." Anna María segir bæinn ekki þurfa að sækja um leyfi til félags- málaráðuneytisins fyrir hækkun- inni, vegna þess að búið sé að brey- ta hitaveitunni í eignarhaldsfélag. Hún bendir líka á að hitakostnaður Ólafsfirðinga sé lágur, þannig að krónuhækkun verði ekki mikil, þó að prósentutalan sé há. Miðað er við lítrafjölda sem rennur inn í hús á mínútu við út- reikninga hitareikninga á Ólafs- firði. Gunnar Reynir segir að taka verði með í reikninginn að heita vatnið í hitaveitu Ólafsfjarðar sé ekki mjög heitt, aðeins um 62%, þannig að Ólafsfirðingar þurfi að nota meira vatn en t.d. Reykvík- ingar, til að hita hús sín. sigridur@frettabladid.is Opið hús á lokasprettinum Bæjarlind 6 Bjartsvní og metnaður Kosningaskrifstofan að Bæjarlind 6 er opin frá 17-20 virka daga og 13-17 um helgar. Símar 544 4530 og 544 4531 ykkur stefnumál Ármanns á Netinu, www.armannkr.is Stuðningsmenn Ármanns Kr. standa fyrir opnu húsi í dag, frá kl. 17-19. Nú er aðeins vika í prófkjörið. Sýnum Ármanni stuðning á lokasprettinum. Léttar veitingar Allir velkomnir Stuðningsmenn FLUGUMFERÐ Yfirvinnubann flugumferðarstjóra hefur meiri áhrif á flug til og frá landinu heldur en á flug yfir landið. Fleiri þurfa að koma að málum þegar vélar lenda og taka af stað. Kjaradeila flugumferðar- stjóra: Gengur hvorki né rekur vinnudeilur Geir Gunnarsson, að- stoðarríkissáttasemjari, segir að hvorki gangi né reki í deilu flug- umferðarstjóra og ríkisins. Fyrir hádegi í dag er boðað til fundar í deilunni. „Fundurinn á morgun [í dag] er í raun haldinn af því það er skylt að gera það. Þegar verk- fall er boðað er skylt að funda á hálfsmánaðar fresti. Svo reyndar heyrði maður í þeim hljóðið með hvort þeir telji til einhvers að halda fund fyrr og það reyndist ekki vera,“ sagði Geir. Ásgeir Pálsson, framkvæmda- stjóri flugumferðarsviðs Flug- málastjórnar, sagðist vonast til að rofa færi til í deilunni. „Auðvitað væri óskandi að þetta myndi leys- ast og menn settust niður og héldu áfram að vinna þar til málið væri leyst. En ef útséð er um að það takist ekki þá veltur framhaldið mikið á hvað ríkissáttasemjari ákveður að gera,“ sagði hann að- spurður um hvort hægt væri að setja lög á yfirvinnubann flugum- ferðarstjóra úr því Félagsdómur hafi úrskurðað að um verkfallsað- gerðir væri að ræða. „En sú leið hlýtur alltaf að teljast neyðar- brauð,“ bætti hann við, en áréttaði að ekki mætti láta vinnudeiluna dragast endalaust. „Vonandi geta menn komið með raunhæft stöðu- mat á morgun." ■ —♦— Myntsamstarf Evrópu: T ælensk mynt sem evra gjalðmiðlar Nú flykkist fólk til Evrópu með tælenska 10 eininga mynt sem svipar til 2 evru myntar- innar að stærð og þyngd. Vegna þessa passar tælensíca myntin í alla sjálfsala í Evrópu sem taka við 2 evru myntinni. Þetta er nýjasta vandamálið sem evruþjóðirnar standa frammi fyrir eftir að þær tóku evruna upp um síðustu ára- mót. Tælenska 10 eininga myntin er ekki nærri eins verðmæt og 2 evru myntin. Verðmæti hennar nemur um einum sjöunda hluta evrunnar. Sumir skipta evrunni í tælenska mynt til að hagnast í sjálfsölunum. Talsmenn tælenskra fjármála- stofnana segja þetta vera vanda- mál Evrópusambandsins en ekki Tælendinga. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.