Fréttablaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 12
12 FRETTABLAÐIÐ 1. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík Grafarholt, Þorláksgeisli 6-18 og 20-34, breyting á deiliskipulagi. í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Grafarholti varðandi lóðirnar Þorláksgeisla 6-18 og 20-34. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóðirnar sem eru tvær verði sameinaðar í eina lóð. í stað 6 minni fjöl- býlishúsa á 2-3 hæðum, með samtals um 49 íbúðum, verði heimilt að byggja fjögur stærri fjölbýlishús á allt að 3 hæðum, með samtals 58 íbúðum. Þá gerir tillagan ráð fyrir óverulegum breytingum á lóðar- mörkum og minniháttar breytingum á skilmálum. Tillagan liggur frammi í sal skipulags- og byggingar- sviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 1. febrúar 2002 til 15. mars 2002. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendíngum og athugasemdum við hana skal skila skriflega til Skipu- lags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 15. mars 2002. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 1. febrúar 2002. Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur. Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthótf 564 • Simi: 544 4656 Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg,is 5NJÚKEÐJLJR Fyrir flestar gerðir vinnuvéla og vörubifreiða 50% VIÐBOTARAFSLATTUR BARNAÚLPUR 500.- 7VÍSKIPTIR SNJÓGALLAR 2.000.- VINNUFATALAGERINN SMIÐJUVEGI 4 0PIÐ MÁNUD - FÖSTUDAG KL10-18 LAUGARD 12-16 ísraelskir hermenn safna undirskriftum: Neita herþjónustu á hernumdu svæðunum JERÚSALEM. AP Hátt í hundrað her- menn í varaliði ísraels neita að gegna herþjónustu á Vesturbakk- anum og Gazasvæðinu. Þeir hafa undirritað áskorun um að ísraelsk stjórnvöld kalli herlið sitt brott frá þessum svæðum Palestínu- manna, sem hernumin voru árið 1967. Einnig skora þeir á stjórn- völd að fjarlægja byggðir ísrael- skra landnema á herteknu svæð- unum. Áskorunin var birt í ísraelsk- um dagblöðum á föstudaginn var. Þá höfðu 52 hermenn undirritað hana. Á miðvikudaginn höfðu 87 hermenn undirritað. Markmiðið er að fá 500 hermenn til að undir- rita áskorunina og hafna herþjón- ustu á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu. „Um leið og nægilega margir taka þátt í andófinu, þá verður ekki um neinn annan kost að ræða en að ljúka hernáminu og tæma landnemabyggðirnar,“ segir Amit Moschiah, talsmaður hópsins sem stendur að áskoruninni. „Okkur finnst hernámið spilla þessu landi, sem okkur þykir vænt um.“ ísraelskir gyðingar hafa komið sér fyrir á nærri 150 svokölluðum HINGAÐ OG EKKI LENGRA Nærri hundrað ísraelskir hermenn hafa undirritað áskorun til ísraelskra stjórnvalda um að Ijúka hernáminu og rýma land- nemabyggðir. landnemabyggðum á Vesturbakk- anum og Gazasvæðinu. íbúar þeirra eru orðnir um það bil 200.000. Gífurlegur fjöldi ísrael- skra hermanna hefur þann starfa að vernda þetta fólk. ■ Ríkisendurskoðun athugi einkavæðinguna: Eitthvað sem ekki þolir dagsins ljós? alþingi Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstrihreyf- ingarinnar, græns framboðs (VG) vill að einkavæðingu Landssímans verði frestað meðan Ríkisendurskoðun kannar störf einkavæðingar- nefndar. Einkavæðing Símans var enn gagnrýnd harkalega á Alþingi í gær í umræðum um störf þingsins. Þingflokkur VG hefur farið þess á leit að Ríkisendurskoðun verði falið að sannsaka málið ofan í kjöl- inn. „Það standa því öll efni til þess [...] að á meðan þessi at- hugun stendur yfir aðhafist ríkisstjórnin ekki frekar í málinu. [...] Að sjálfsögðu væri hægt að láta á það reyna hér á Alþingi með tillögu sem fæli í sér ákvörðun Al- þingis eða ályktun um að söluá- formin skyldu sett á ís,“ sagði Steingrímur. Sturla Böðvarsson, samgöngu- STEINGRIMUR J. SIGFÚSSON Formaður VG spurði á þingi í gær hvort samgönguráðherra óttaðist að eitthvað kæmi upp sem ekki þyldi dagsins Ijós ef Ríkisendurskoðun athugaði störf einka- væðingarnefndar. ráðherra, taldi óskina óvenjulega og óeðlilegt að Ríkisendurskoðun yrði falið að fara yfir pólitíska vinnu ríkisstjórnarinnar vegna sölu Símans. „Þetta er afar undarleg krafa og setur Ríkisendurskoðun í mikinn vanda," sagði hann og vildi láta gera betri grein fyrir forsendunum sem farið væri fram á að Ríkisendurskoðun ynni eftir. Steingrímur taldi fátt ann- að eftir en að leggja Ríkis- endurskoðun niður ef henni væri ekki ætlað að koma að málum sem sneru að póli- tískri vinnu. Hlutverk stofn- unarinnar væri enda að fara með eftirlit með opinberri fjársýslu og veita aðhald. „Það skyldi nú ekki vera full þörf á að gera það þegar einkavæðingar- nefnd og allt hennar vafstur á í hlut? [...] Veldur það óróleika ráð- herrans að þarna sé eitthvað á ferðinni sem ekki þolir dagsins ljós?“ spurði Steingrímur. g Forsætisráðherra ísraels: Hefði viljað drepa Arafat jerúsalem. ap Ariel Sharon, for- sætisráðherra ísraels, sagðist i blaðaviðtali sjá eftir því að hafa ekki komið Jasser Arafat, leiðtoga Palesínumanna, fyrir kattarnef í Líbanon fyrir tuttugu árum. ísra- elsmenn höfðu þá ráðist inn í Lí- banon, þar sem bækistöðvar Arafats og félaga hans í Frelsis- hreyfingu Palestínu (PLO) voru. „í Líbanon var samkomulag um að gera ekki út af við Arafat," sagði Sharon í viðtali við dag- blaðið Maariv. „í meginatriðum sé ég eftir að við gerðum ekki út af við hann.“ Hann tók ekki fram við hvern samkomulagið var gert. I viðtali við bresku fréttastof- una BBC sagði aðstoðarmaður Sharons raunar að hann hafi í viðtalinu einungis verið að tala um stefnu sína þá. Hún væri breytt núna. Sharon hefur hins vegar ekki vandað Ara- fat kveðjurnar undan- farið. Hann hefur sagt Arafat vera forsprakka hryðjuverkamanna og „stækan óvin ísraels". Sharon sagðist í við- talinu geta sest að nýju að samn- ingaborði með Arafat, en einungis ef hann „tekur öll þau skref sem við krefjumst af honum“. Opinberlega hafa ísraelskir ráðamenn flestir neitað því að vilja koma Arafat frá völdum. FORSÆTISRÁÐHERRANN Árið 1981 var Ariel Sharon varnarmálaráð- herra ísraels. Þá bar hann ábyrgð á her- leiðangri ísraelsmanna á hendur Palestínu- mönnum i Líbanon. Sumir ráðherrar hafa þó sagt hug- myndina vera allrar athygli verða. ■ njóttu þess aá horfa og hlusta! DVD-spilari med Smart mynd- stýringu og frábæru valmyndakerfi. Philips 32" breiðtjaldssjónuarp íý 179.990 Glæsilegt og vel tækni búiö. 100 Hz stafræn tækni (Digital Scan) gefur hámarksmyndgæði. Audvelt ad stilla og stjórna. Hægt að hafa hálfan skjáinn með mynd og texta á hinum helmingnum. 1200 síöna textaminni. Virtutal Dolby Surround. 2x20 W. 2 Scarttengi og 1 stereó hljódútgangur. Tengi fyrir myndbandsupptökuvélar og S-vídeótengi á frambliö.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.