Fréttablaðið - 01.02.2002, Side 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
1. febrúar 2002 FÖSTUDAGUR
LÁTUM þá borga
Netverjar lýsa vanþókn-
un sinni á þeim sem
stelast í stæði fatlaðra.
Ákæran vegna barnsdauðans í Kópavogi:
Lögmaðurinn segir manninn saklausan
Á að refsa ófötluðum sem
leggja í bílastæði fatlaðra?
Niðurstöður gærdagsins
á www.vlsir.is
Já
iM
Spurning dagsins í dag:
Viltu þjóðaratkvæðagreiðsiu um
Kárahnjúkavirkjun?
89%
7T%
Farðu inn á vísi.is og segðu
þlna skoðun I
Lína.net:
Kvartar und-
an Símanum
viðskipti Lína. net hefur kvartað
við Samkeppnisstofnun vegna
misnotkunar á markaðsráðandi
stöðu Landssímans með tilliti til
ólögmætrar undirverðlagningar á
gagnaflutnings-
neti þess. Fyrir-
tækið telur að
Landssíminn
greiði niður þessa
verðlagningu sína
með annarri þjón-
ustu í samkeppni
við það á markaði.
bragason Eiríkur Braga-
Segir að þetta sé son framkvæmda-
ábending en ekki stjóri bendir m.a.
kæra. á að skömmu eftir
að fyrirtækið hóf fullan rekstur
hefði Landssíminn lækkað gjöld
vegna gagnaflutningakerfisins
hjá sér um 40%. Síðan hefði kom-
ið fram í útboðslýsingu Símans að
2% af tekjum fyrirtækisins séu
vegna gagnaflutningaþjónustu. í
sömu gögnum kemur einnig fram
að þessi rekstrarþáttur fyrirtæk-
isins sé rekin með rúmlega 11%
tapi. Hann áréttar að fyrirtækið
sé ekki að kæra Símann heldur sé
þetta fyrst og fremst ábending
um meinta ólögmæta viðskipta-
hætti sem verið sé kvarta yfir til
Samkeppnisstofnunar. ■
Halldór Ásgrímsson:
10 milljarðar
lágmark
síminn „Það er eins og vill verða í
viðskiptum að viljum fá eðlilegt
og sanngjarnt verð. Viðkomandi
kaupendur virðast ekki vera því
sammála,“ sagði Halldór As-
grímsson, utanríkisráðherra,
spurður um sölu Símans. Hann
sagðist telja að eining væri í
stjórnarflokkunum um að selja
ekki á lægra verði en 5,75 krónur
á hlut. Sala á því gengi myndi
skila um 10 milljörðum króna í
ríkiskassann. Halldór tók ekki af-
stöðu til þess hvort hugsanleg
frestun sölunnar um óákveðinn
tíma vegna verðágreinings yrði
áfall fyrir ríkisstjórnina. ■
dómsmál „Við höldum fram sak-
leysi mannsins. Það er ákæru-
valdsins að sanna sekt hans og
byggja það ekki eingöngu á
kenningum lækna,“ segir Örn
Clausen hæstaréttarlögmaður.
Hann er verjandi 37 ára gamals
dagföðurs sem ungur drengur
var í gæslu hjá í Kópavogi. Að
sögn lækna lést drengurinn af
höfuðáverkum vegna þrýstings.
Maðurinn, sem rak daggæslu
ásamt konu sinni, hefur verið
ákærður fyrir að hafa banað
drengnum.
Örn mun í vörninni halda því
fram að þegar komið var með
drenginn í gæsluna hafi móðir
hans sagt hann hafa verið óró-
legan um nóttina. Hún mun hafa
sagt að hún hafi gefið honum
stíl. „Drengurinn sofnaði ekkert
fyrir hádegi. Eftir hádegi var
hann látinn út í vagn og þá virð-
ist allt vera í lagi,“ segir Örn.
Hann segir að þegar farið var að
gá að honum einum eða tveimur
tímum seinna virtist eitthvað
vera athugavert. „Það var farið
með barnið inn og hringt eftir
hjálp. Barnið dó á spítala tveim-
ur sólarhringum seinna. Þá fara
læknar að bollaleggja um að
barnið hafi verið hrist og
ÖRN CLAUSEN
„Setjum sem
svo að dómarar
vildu trúa lækn-
unum og telja
að þetta hafi
gerst þennan
morgun. Hvort
þeirra gerði það
þá?"
hvenær mestu líkur væri á að
það hefði gerst,“ segir Örn.
Örn segir lækna álíta að
drengurinn hafi fengið hina ban-
vænu áverka eftir klukkan hálf-
VILJA EKKI TAKA FE UR ORKUVEITU TIL AÐ BYGGJA UPP LINU.NET
Nær 60% þeirra sem taka afstöðu vilja ekki að Orkuveitan veiti fé í Linu.net. Rétt rúm 40% eru hins vegar fylgjandi því að það sé gert.
Ekki fé úr Orku-
veitu í Linu.net
Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins er meirihluti Reykvíkinga
andvígur því að fé verði veitt úr Orkuveitu í það að byggja upp
Linu.net. Þrír af hverjum fimm sem taka afstöðu hafna því.
TELUR ÞÚ ÆSKILEGT EÐA ÓÆSKILEGT AÐ ORKUVEITA REYKJA-
VÍKUR VERJI FÉ TIL AÐ BYGGJA UPP FYRIRTÆKIÐ LÍNA.NET?
stjórnmál Þrír af hverjum fimm
Reykvíkingum eru andvígir því
að Orkuveita Reykjavíkur verji fé
til að byggja upp fyrirtækið
Línu.net samkvæmt skoðanakönn-
un Fréttablaðsins sem var fram-
kvæmd síðast liðið mánudags-
kvöld. Af þeim sem tóku afstöðu
til spurningarinnar töldu 58,7%
það frekar eða mjög óæskilegt að
Orkuveitan verji fé í að byggja
Línu.net upp. 41,3% eru þeirrar
skoðunar að það sé frekar eða
mjög æskilegt.
Málefni Orkuveitunnar og
Línu.nets hefur verið eitt helsta
bitbein Reykjavíkurlista og Sjálf-
stæðisflokks á kjörtímabilinu.
Reykjavíkurlisti hefur lagt áher-
slu á að byggja fyrirtækið upp.
Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt
þá stefnu harkalega. Segja óeðli-
legt að borgin sé að fara út í sam-
keppnisrekstur.
„Þetta verður eitt af málunum
sem R-listinn mun keppast við að
verði ekki í umræðunni", segir
Guðlaugur Þór Þórðarson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks. Hann
segir ljóst að málflutningur sjálf-
stæðismanna hafi fengið hljóm-
grunn meðal almennings þrátt
fyrir áróðursmaskínu R-lista sem
hafi reynt að breiða yfir hvernig
gríðarlegum fjármunum hafi ver-
ið sólundað í gæluverkefni. Alfreð
Þorsteinsson, stjórnarformaður
Orkuveitunnar, segist ekki eiga
von á því að málið verði hitamál í
kosningabaráttunni. „Það er búið
að taka þessa umræðu út að lang-
mestu leyti.“ Hann segir niður-
stöðu könnunarinnar ekki slæma í
ljósi neikvæðrar, pólitískrar um-
ræðu um Línu.Net.
Spurt var: Telur þú mjög æski-
legt, frekar æskilegt, hvorki né,
frekar óæskilegt eða mjög óæski-
legt að Orkuveita Reykjavíkur
verji fé til að byggja upp fyrir-
tækið Lína.net? Af þeim sem svör-
uðu töldu 11,6% það mjög æski-
legt, 20,7% frekar æskilegt.
21,7% töldu það hvorki æskilegt
né óæskilegt. 19,3% töldu það
frekar óæskilegt. 26,7% töldu það
mjög óæskilegt. 17% svöruðu
ekki. ■
Opið í Auslurveri
frá 8:00 á morgnana
til 2:00 eftir miðnæffi
Lyf&heilsa
Nýr framkvæmdastjóri Enron:
Segir líf eftir gjaldþrotið
houston. AP Stephen Cooper, sem
ráðinn hefur verið framkvæmda-
stjóri bandaríska orkurisans En-
ron, segist staðráðinn í að koma
fyrirtækinu lifandi í gegnum
gjaldþrotið. Hann ætli að einbeita
sér að framtíðinni, ekki fortíðinni.
Hann sagði að Enron muni
áfram eiga þrjár minni háttar
gasleiðslur í Bandaríkjunum. Auk
þess sé verið að kanna hvort Enron
geti átt nokkur undirfyrirtæki, eða
hvort óhjákvæmilegt sé að selja
þau til að greiða skuldunautum.
Cooper tók við stjórn fyrirtæk-
isins á þriðjudaginn. Kenneth Lay,
fyrrverandi framkvæmdastjóri og
stjórnarformaður, sagði af sér í
STEPHEN COOPER
Nýi framkvæmdastjórinn ætlar ekki að
velta sér upp úr fortíðinni.
síðustu viku. Enginn hefur enn
verið ráðinn stjórnarformaður í
hans stað. ■
ellefu þennan morgun.
„Setjum sem svo að dómarar
vildu trúa læknunum og telja að
þetta hafi gerst þennan morgun.
Hvort þeirra gerði það þá? Kon-
an eða maðurinn? Hún var ein
heima um tíma með barninu og
hann var líka einn með því um
tíma. Hann er einn ákærður fyr-
ir að hafa gert það án þess
ákæruvaldið hafi nokkurn skap-
að hlut til þess,“ segir Örn.
Örn mun einnig, í vörn fyrir
hinn ákærða, benda á að merki
um gamalt beinbrot hafi komið
fram við krufningu.
gar@frettabladid.is
Höfuðborgarsvæðið:
Borgarstjórn
og hverfisráð
Gísladóttir borgarstjóri segist
persónulega vera þeirrar skoðun-
ar að það ætti að sameina sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu
undir það sem
kalla mætti borg-
arstjórn í Reykja-
vík. Þar fyrir neð-
an í stjórnsýsl-
unni mætti hugsa
sér hverfiseining-
ar sem hver um
sig væri með eitt-
hvað um 20 þús-
und íbúa. Þessar
einingar hefðu
síðan sjálfstjórn í
formi hverfisráða
um sín innri mál-
efni. Þetta kom
fram á fundi framsóknarmanna í
Reykjavík í gær.
Borgarstjóri sagði að borgar-
stjórnin á höfuðborgarsvæðinu
væri hins vegar með öll hin stær-
ri mál. í þeim efnum væri m.a.
landnotkun, skipulagsáætlanir,
umferðarkerfið, veiturnar, sorpið,
stóru íþróttamannavirkin, Borg-
arleikhúsið og annað sem íbúar
alls svæðisins nota sameiginlega.
Hún áréttaði að þetta væri sín
persónulega sýn sem ekki hefði
verið borin undir einn eða neinn
og þaðan af síður verið samþykkt.
Engu að síður telur hún að þetta
sé eitthvað sem eigi að stefna að í
framtíðinni. ■
INGIBJÖRG
SÓLRÚN GÍSLA-
DÓTTIR
Telur að þetta sé
framtíðin í stjórn-
sýslu höfuðborg-
arsvæðisins.
♦
Hundaárás í Noregi:
Fjórir hund-
ar bíta barn
til bana
árás Sjö ára gamall drengur var
bitinn til bana af fjórum hundum
af Schafferkyni í Upplöndum í
Noregi í gær. Drengurinn, sem
var í öðrum bekk í Torpa grunn-
skólanum í Dokka, fannst látinn
út við vegarkant.
„Ég get staðfest að drengur
fannst látinn og á honum fund-
ust bitför eftir fjóra hunda,“
sagði Jan Kolbjörnshus sýslu-
maður í Dokka í samtali við Af-
tenposten í gær. Hann vildi ekki
gefa nánari upplýsingar um at-
burðinn.
Lögreglan fékk tilkynningu
um atbui’ðinn um hálf tvö leytið í
gær. Sjúkrabíll var strax sendur
á staðinn en þegar hann kom að
var pilturinn þegar látinn.
„Mér skilst að hundarnir séu
allir af sama kyni. Ég veit ekki
hvort eigandinn var í nágreninu
en hundarnir voru ekki bundnir,"
sagði Eystein Husby, lögreglu-
maður í Vestur-Upplöndum.
Lögreglan rannsakar nú málið
en foi’eldrar drengsins munu fá
áfallahjálp. Hundunum verður
lógað en þeir eru allir af
Schaffer kyni. Að sögn lögregl-
unnar voru þeir aldir upp sem
sleðahundar en eigandi þeirra á
15-20 slíka hunda. ■