Fréttablaðið - 04.02.2002, Page 2

Fréttablaðið - 04.02.2002, Page 2
KJÖRKASSINN JAFNTEFLI Kjósendur á visi.is skiptast í jafnstóra hópa í afstöðunni itl þess hvort halda eigi þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Kárahnjúkavirkj- Viltu þjóðaratkvæðagreiðslu um Kárahnjúkavirkjun? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is Spurning dagsins í dag: Ertu ánægð(ur) með árangur landsliðs- ins á EM í handbolta? Farðu inn á vlsi.is og segðu þína skoðun Miðstjórn BHM: Aðildarfélög semji við einkafyrirtæki kjaramál Miðstjórn Bandalags há- skólamanna, BHM hefur sam- þykkt að aðildarfélögin semji við einkafyrirtæki í stað þess að fé- lagsmenn geri það í formi ráðn- ingarsamninga eins og verið hef- ur. Björk Vilhelmsdóttir formaður BHM segir að þótt aðildarfélögin hafi aðstoðað félagsmenn sína við gerð slíkra samninga hefur ekk- ert aðildarfélag gert kjarasamn- ing við Samtök atvinnulífsins til þessa. í framhaldi af þessari sam- þykkt miðstjórnar verður breyt- ing þar á gagnvart einkafyrir- tækjum eða hlutafélögum sem reka sambærilega þjónustu og ríki og sjálfeignarstofnanir eins og t.d. í heilbrigðis- og öldrunar- þjónustu. Formaður BMH bendir m.a. á að þótt margir félagsmenn séu á því að semja um launakjör sín við einkafyrirtæki hefur oft komið á daginn að bakstuðningur stéttar- félaga sé nauðsynlegur þegar kemur að öðrum réttindamálum eins og t.d. lífeyrismálum, veik- indarétti og öðrum skyldum mál- um. Það hafa dæmin sannað í gegnum tíðina. Á hinn bóginn sé því ekki að leyna að mörg einka- fyrirtæki vilja heldur semja beint víð starfsmenn sína án afskipta stéttarfélagsins. ■ Baráttan við elli kerlingu: Langlífis- genið fundið EBFÐAVÍSINDI Vísindamenn ís- lenskrar erfðagreiningar telja sig hafa fundið gen sem er lykillinn að langri ævi. Metúsalemsgenið er það kallað í höfuðið á Metúsal- em sem segir frá í Gamla testa- mentinu og á að hafa orðið 969 ára gamall. Kári Stef- ánsson, forstjóri íslenskrar erfðar- greiningar segir í viðtali við breska blaðið Observer að uppgötvunin veki vonir um að finna megi lyf sem lengir ævina. „Við þekkjum staðsetningú gensins. Brátt munum við rann- saka kjarnsýruna og kanna hlutverk hennar í lík- amsstarfseminni." Hann segir að í kjölfarið sé möguleiki á því að þróa lyf sem líkir eftir starfsemi kjarnsýrunnar. Kári segir það hafa komið vís- indamönnum á óvart að þeir sem næðu háum aldri ættu þetta gen sameiginlegt. Hann segir ólíklegt að umhverfisþættir ráði sameig- inlegu langlífi þeirra sem genið fannst hjá. Kári segir genið þó ekki gera menn ódauðlega. „Aðrir erfðaþættir geta komið í veg fyrir að Metúsalemsgenið lengi líf fólks um einhver ár.“ ■ CEN CECN ELLI Kári Stefánsson og vlsindamenn Islenskrar erfða- greiningar hafa einangrað gen sem kann að geyma lykilinn að langlífi. FRÉTTABLAÐIÐ Eundur menntamálaráðuneytisins um styttingu námstíma til stúdentsprófs: Þátttakendur jákvæðir málþing Þátttakendur á fundi sem menntamálamálaráðuneytið stóð fyrir á laugardag voru al- mennt jákvæðir í garð styttingar náms til stúdentsprófs. Um 70 manns sem tengjast grunn- og framhaldsskólum með ýmsum hætti og fulltrúar atvinnulífsins voru mættir í boði ráðuneytisins til að ræða málið. Fyrir hádegi héldu fulltrúar ýmissa hags- munaaðila erindi. Eftir hádegi var þátttakendum skipt í vinnu- hópa. Að sögn Stefáns Baldurs- sonar, skrifstofustjóra í mennta- málaráðuneytinu, var reynt að skipta í hópana þannig að sem BJÖRN BJARNASON Segir unnið verða áfram með niður- stöður vinnu- hópanna innan ráðuneytisins. Eng- in tímamörk hafa verið sett á það hvenær þeirri vinnu verður lokið. mest breidd næðist í þá. „Það kom í raun á óvart hversu já- kvæðir hóparnir voru,“ segir Stefán. Hann segir hópana hafa rætt ýmsar leiðir til styttingar námsins, t.d. hvort til greina komi að fækka árum í grunnskól- um, lenging skólaársins, endur- skipulagning náms og þar fram eftir götunum. „Það voru bæði markmið og leiðir ræddar, til hvers á að stytta nám til stúd- entsprófs og hvernig hægt er að standa að því.“ Stefán segir vita- skuld hafi verið bent á ýmislegt sem skoða þurfi vandlega og skiptar skoðanir hafi verið á því hversu hratt væri hægt að standa að styttingu námsins. Stefán seg- ir niðurstöður vinnuhópanna verða kynntar í vikunni. ■ Tjón einkum af völdum sjógangs Aftakaveður var á landinu um helgina og á Vestijörðum og Norðurlandi vestra var víða viðbúnaður vegna snjóflóðahættu og rafmagnsleysis. Nokkuð tjón varð af völdum sjógangs og flæddi sjór yfir götur. Togarinn Málmey fékk á sig brotsjó og þakplötur losnuðu af húsum hér og þar. vonskuveður Stórviðri gekk yfir landið aðfaranótt laugardags og á laugardegi. Verst var veðrið á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og á vestanverðu landinu, t.a.m. á sunnanverðu Snæfellsnesi og á Kjalarnesi. Að sögn Veðurstofu Á Akureyri, íslands sýndi Sauðárkróki vindhraðamælir og ísafirði Vegagerðarinnar urðu þvi nálægt Blönduósi margir af meðalvindhraða landsleik ís- upp á 47 m/s og fór lendinga og vindurinn í 54 m/s Svía í hand- í verstu hviðunum bolta. á laugardag. Þar —4.— skemmdist hæsta bygging bæjarins töluvert er þakplötur og plötur af gafli hússins losnuðu. Viðbúnaður vegna snjóflóðahættu var á nokkrum stöðum á landinu á svæði frá Tröllaskaga og vestur á firði. Á hádegi í gær hafði viðbún- aðarstigi vegna snjóflóðahættu verið aflétt en tvö minniháttar snjóflóð féllu á veginn um Ólafs- fjarðamúla um helgina. Víða voru rafmagnstruflanir og í Skagafirði og á stóru svæði á Vesturlandi og Norðurlandi varð rafmagnslaust NORÐAUSTLÆG ÁTT OG FREMUR SVALT NÆSTU DAGA Skörp skil á milli heitra og kaldra loftstrauma á þessum árstíma valda því að miklu meiri orka er I andrúmsloftinu sem aftur orsakar svona mikinn vind eins og var um helgina, að sögn Veðurstofu (slands. Ekki eru horfur á því að svona stórviðri endurtaki sig á næstu dögum. Þessi bekkur, sem stendur við Sæbraut, losnaði frá jörðu er sjór flæddi yfir götuna. BRYNDREKI TIL BJARGAR Bryndreki björgunarsveitarinnar á Akranesi kom I góðar þarfir á Kjalarnesi á laugar- dag. á laugardag. Rafmagn komst víða á seinni part laugardags og um kvöldið en síðustu heimilin fengu rafmagn aftur á sunnudag. Á Ak- ureyri, Sauðárkróki og ísafirði urðu því margir af landsleik ís- lendinga og Svía í handbolta. Nokkrar skemmdir urðu víða af völdum sjógangs. Togarinn Málmey fékk á sig brotsjó um 60 sjómílur vestur af Bjargtöngum og slösuðust tveir skipverjar minniháttar. Þá lék fraktskip laus- um hala í höfninni á Sauðárkróki aðfaranótt laugardags og var brugðið á það ráð að sigla skipinu úr höfn þar sem ekki tókst að koma á það línum. Sjór gekk víða yfir vegi og bar með sér grjót og annað lauslegt, einkum á háflóði um miðjan dag í fyrradag. Sjór flæddi inn í bæjarskemmuna í Ólafsfirði og loka þurfti Sæbraut í Reykjavík og sömuleiðis götum á Siglufirði. Þar flæddi sjór inn í hús og tvö þök fuku af húsum. Þá skemmdist Ægisgata í Keflavík einnig í miklum sjógangi. Lög- regla var almennt sammála um að eignartjón í veðurofsanum hefði verið minna en tilefni gaf til. Mest hefði verið um að þakplötur, garð- skýli og tjaldvagnar færu á flug og rúður brotnuðu. ■ Framboð R-listans: Listinn tilbúinn 23. febrúar framboðsmál Stefnt er að því að flokkarnir sem aðild eiga að R- listanum verði búnir að ganga frá vali á frambjóðendum sínum á framboðslistann eigi síðar en 23. febrúar n.k. Um helgina sam- þykktu flokkarnir formlega aðild sína að málefnasamningi R-list- ans. Samfylkingin ætlar að velja sína frambjóðendur með próf- kjöri en framsóknarmenn ætla að viðhafa skoðanakönnun meðal sinna manna. Óvíst er hvaða að- ferð verður notuð við val á fram- bjóðendum hjá Vinstri grænum. Það ■ ræðst væntanlega á félags- RÁÐHÚSIÐ Eftir tæpar þrjár vikur á að verða Ijóst hverjir skipa R-listann. fundi sem haldinn verður innan tíðar. Viðbúið að einhverjar manna- breytingar verði á framboðslist- anum frá því sem var fyrir fjór- um árum. I það minnsta hjá Fram- sókn þar sem Sigrún Magnúsdótt- ir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs. Þá er líklegt að Björk Vilhelmsdóttir formaður BHM gefi kost á sér í framboð fyrir Vinstri græna. Hún vill þó ekki staðfesta það á meðan ekki er búið að ákveða hvernig staðið verður að vali á frambjóðendum flokksins. ■ 4. febrúar 2007 MÁNUDÁCUR Veiðimálastofnun og Hafró: Mælimerki í laxinn rannsóknir Tæknisjóður hefur styrkt verkefni um 3 milljónir króna sem miðar að því að kort- leggja dreifingu, atferli og um- hverfi laxa í hafinu við ísland. Stjórnandi verkefnisins er Jóhann- es Sturlaugsson en bæði Veiðimála- stofnun og Hafrannsóknastofnun koma að þessu verkefni. Þetta er einnig hluti af fjölþjóðlegu rann- sóknum sem áformað er að fram- kvæma í samvinnu við Norðmenn og Færeyinga á næstu árum til 2005. Það gengur út á að merkja lax á fyrsta ári með mælimerkjum sem skrá atferli hans og umhverfi. ■ Hótel í Aðalstræti: Bílageymslcin blásin af skipulagsmál Hætt hefur verið við að byggja bílageymslu undir fyrirhuguðu hóteli í Aðalstræti vegna mótmæla frá íbúum. Mar- grét Þormar, arkitekt hjá Borgar- skipulagi, sagði að hótelsgestir myndu einfaldlega þurfa að legg- ja í þau stæði sem fyrir væru í miðborginni. Meiningin væri síð- an að byggja bílageymslu annars staðar í miðborginni, jafnvel und- ir Tjörninni. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti í síðustu viku breytt deiliskipulag fyrir lóðina. Deiliskipulag mun væntanlega verða lagt fyrir borgarráð á morgun. Breytingarnar eru aðal- lega fólgnar í því að hækka á hús- ið um tæpan metra. Einnig á að stækka byggingarreitinn fyrir neðanjarðartenginu við fornminj- ar inn í Fógetagarðinn og með- fram Aðalstræti 9. Þá var sam- þykkt að hafa samráð við forn- leifavernd ríkisins og borg- arminjavörð vegna hönnunar mannvirkja í tengslum við land- námsbæinn. ■ SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR Segist vera sátt við starf sitt að borgarmálum. Framsókn í Reykjavík: Sigrún hættir framboðsmál Sigrún Magnúsdótt- ir oddviti framsóknarmanna í borgarstjórn Reykjavíkur til margra ára hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs. Hún tilkynnti þessa ákvörðun sína á fundi með framsóknar- mönnum um helgina. Hún segir að þetta sé rétti tíminn til að draga sig í hlé úr borgarstjórn þegar séð er fyrir endann á ein- setningu grunnskólans til að hleypa nýju fólki að. Sjálf segist hún ekki vita hvað taki við hjá sér, eftir að hafa verið á kafi í sveitarstjórnarmálum nánast frá árinu 1970 þegar hún stóð ásamt öðrum fyrir framboði til sveitar- stjórnar á Bíldudal. Hún neitar því alfarið að ástæðan fyrir ákvörðun sinni sé vegna póli- tískra deilna. Sigrún segist vera sátt við starf sitt innnan borgarstjórnar þau 16 ár sem hún hefur starfað á þeim vettvangi ,eða frá árinu 1986. Þar af var hún átta ár í minnihluta en í meirihluta frá ár- inu 1994. Hún vill hins vegar ekki tjá sig um það hvern hún vill sjá sem eftirmann sinn. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.