Fréttablaðið - 04.02.2002, Blaðsíða 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
4. febrúar 2002 MÁNUDAGUR
Atli Hilmarsson um EM:
Voru ekki nógu yfirvegaðir
HANDBOLTI
Hver var bestur í íslenska lið-
inu á Evrópumótinu?
Á maður að vera að gera upp á milli þeirra?
Mér fannst Ólafur vera að sýna mjög góðan
leik og einnig Fúsi. Ég held að þeir hafi
staðið upp úr.
Bjarki Sigurðsson, þjálfari og leikmaður
Aftureldingar
Heimir Ríkharðsson:
Voru orðnir
þreyttir
handbolti Heimir Ríkharðsson,
þjálfari karlaliðs Fram í handbolta,
fylgdist grannt með leik íslenska
landsliðsins gegn Dönum á laugar-
daginn? „Mér fannst liðið bera þess
merki að menn væru orðnir þreytt-
ir og það saknaði greinilega Patreks
Jóhannessonar, bæði hvað varðar
hraðaupphlaup og varnarleik. Ef við
hefðum náð að komast yfir í stöð-
unni 15:15 þá hefði þessi leikur get-
að snúist með okkur þrátt fyrir
þreytuna í liðinu. Þegar Danirnir
náðu aftur tveggja til þriggja marka
forskoti þá var eins og leikur ís-
lands hefði
fjarað út,“
sagði Heimir.
Aðspurður
um árangur ís-
lenska liðsins í
mótinu sagði
Heimir hann
hafa verið frá-
bæran. „Við
getum verið
r e g 1 u 1 e g a
stoltir af
þessu fjórða sæti. Mér finnst liðið
vera að spila mjög skemmtilegan
handbolta. Varnarleikurinn er góð-
ur og hraðaupphlaupin mjög vel út-
færð. Mér finnst Guðmundur vera
búinn að gera mjög góða hluti með
liðið á þessum stutta tíma sem hann
hefur verið með það og það verður
ennþá skemmtilegra að fylgjast
með því þegar fram líður,“ sagði
Heimir að lokum. ■
hanpbolti Atli Hilmarsson, þjálfari
KA, sagðist vera mjög stoltur yfir
frammistöðu íslenska landsliðsins
þó tveir síðustu leikirnir hefðu
verið svolítið svekkjandi.
„Við erum með lið fyrir aftan
okkur eins og Rússa, Frakka og
Spánverja sem sýnir að við vorum
að spila alveg frábært mót.“
Atli sagði að líklega mætti að
stærstum hluta kenna þreytu um
hvernig hefði farið á móti Svíum
og Dönum.
„Mér fannst bara vanta þennan
góða anda sem einkenndi liðið
framan af. Strákarnir voru ekki al-
veg nógu yfirvegaðir og voru að
gera svolítið mikið af teknískum
mistökum. Svíarnir spiluðu reynd-
ar alveg stór-
kostlega á móti
okkur - nánast
fullkomin leik
og danski mark-
maðurinn hefur
líklega aldrei
varið eins vel og
hann gerði á
móti okkur.“
Atli sagðist
ekki telja að lið-
ið hefði verið orðið sátt með árang-
urinn og því hengt haus.
„Þegar menn finna lyktina af
medalíunni þá held ég að menn
leggi sig hundrað prósent fram og
ég er alveg viss um að þeir hafa
allir gert það.“ ■
ATLI
HILMARSSON
„Ætluðum okkur medalíu“
íslenska liðið hafnaði í fjórða sæti í Evrópukeppninni í handbolta í Svíþjóð. íslenska liðið tapaði
tveimur síðustu leikjunum og þarf að mæta Makedóníu í undankeppni HM. Olafur Stefánsson
sagðist hafa verið sár eftir leikinn við Dani en hann væri stoltur af sínum mönnum.
mán- Heklusport
kl. 22.30
mið West Ham - Cheisea
Enskl blkarinn kl. 19.35
iim NBA - tilþrH
kl. 18.30
Golfmót í Bandankjuiuim
kl. 20.00
fös jþróttir um allan heim
kí. 18.30
Alltaf í boltanum
kl. 19.30
Gillette-sportpakkinn
kl. 20.00
lau KR - UMFN (kvennafl.)
Karfa - bikarúrslit kl. 15.00
KR - UMFN
Karfa - bikarúrslit kl. 17.00
sun ítalski boltinn
kl. 13.45
Everton - Arsenal
Enskl boltlnn kl. 15.55
Stjömulefkurinn
N8A kl. 22
Aftur á dagskrá í februar!
Upptýsingar
isima 580 2525
TextavarplÚ 110-113
RÚV281, 283 og 284
Jókertölur
laugardags
AÐALTÖLUR
T7) '30) 31)
34) 38) 43)
BÓNUSTÖLUR
6 j10
1
Alltaf á
miðvikudögum
Jókertölur
miðvlkudags
4 7 8 1 9
Danir stoltir af árangrinum:
Bronsið hans Bruuns
handbolti Svíar urðu Evrópumeist-
arar landsliða í handbolta í fjórða
sinn eftir sigur á Þjóðverjum í
gærkvöldi. Framlengingu þurfti til
að knýja fram úrslitin og þar
sigldu Svíar fram úr í lokin og sigr-
uðu 33:31. Staðan eftir venjulegan
leiktíma var 26:26. Fögnuður Svía
var gífurlegur í leikslok, enda spil-
uðu þeir á heimavelli fyrir framan
fjölda áhorfenda í Globen-höllinni
í Stokkhólmi. Nokkrir reyndustu
leikmanna liðsins hyggjast leggja
skóna á hilluna eftir mótið og var
þetta góður endapunktur á þeirra
ferli. Einn þeirra er Magnus Wis-
lander sem valinn var maður móts-
ins. Margir vildu meina að mark
sem Þjóðverjar skoruðu á síðustu
sekúndu leiksins-í stöðunni 26:26,
sem dæmt var af, hefði í raun ver-
ið löglegt. Var Guðmundur Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari ís-
lenska liðsins, á meðal\þeirra.
Bætti hann því við að þrátt fyrir
það hefði leikurinn verið stórkost-
leg auglýsing fyrir handboltann.
Danir hrepptu bronsverðlaunin
eftir sigur á strákunum okkar og
Rússar báru sigurorð af heims-
meisturum Frakka, 31:28, í leik um
5. sætið. Með sigrinum tryggðu
Rússar sér sæti á næsta Evrópu-
móti. Frakkar þurfa hins vegar að
taka þátt í undankeppni um laust
sæti á mótinu. Spánverjar unnu
Tékkland með 36 mörkum gegn 29
í leik um 7. sætið. Þá lögðu Portú-
galar Júgóslava í leik um 9. sætið
með 31 marki gegn 25. ■
ið í heild væri hann samt mjög
ánægður með árangurinn.
„Auðvitað var lítil orka eftir hjá
sumum leikmönnum og slæmt að
missa Patta (Patrek) en ég er stoltur
af mínum mönnum,“ sagði Ólafur.
„Við gáfum allt í þetta.“
íslenska liðið misnotað fjölmörg
dauðafæri í leikjunum gegn Svíum
og Dönum. Ólafur sagði að erfitt að
segja afhverju það hefði gerst.
„Þegar maður er þreyttur hefur
það áhrif á einbeitinguna. Að mis-
nota fimmtán dauðafæri gegn Sví-
um er auðvitað dýrt en við verðum
bara að reyna að laga þetta.“
Ólafur sagðist alveg eins hafa
búist við þessum árangri.
„Ég vissi að með tilkomu Fúsa
(Sigfúsar Sigurðssonar) og Rúna
(Rúnars) í liðið myndi vörnin þétt-
ast og síðan hafði ég verið að sjá
Patta gera góða hluti í hraðaupp-
hlaupum þannig að þau komu sterk
inn. Þannig þetta kom ekkert rosa-
lega erfitt."
Guðjón Valur Sigurðsson sagði
að það sem stæði upp úr eftir mótið
væru sigrarnir í riðlakeppnunum.
„Það að fara í gegnum riðilinn og
milliriðilinn án þess að tapa leik og
finnast okkur tvisvar vera rændir
stigum er alveg frábært,“ sagði
Guðjón Valur. „Ég er gríðarlega
svekktur með tvo síðustu leiki. Við
vorum að spila vel þangað til í und-
anúrslitunum - en svona er víst bolt-
inn. Nú er bara að taka stefnuna á
að sigra Makedóníu."
trausti@frettabladid.is
Evrópumótið í handboita:
Svíar Evrópumeistarar
handbolti Danskir fjölmiðlar
þakka stórleik markmanni danska
landsliðsins, Michael Bruun Peder-
sen sigurinn á íslendingum.
Breiddin í danska liðinu var líka
meiri en í því íslenska og sigurinn
því liðsheildarinnar. „Liðið leikur
ótrúlega vel. Eftir erfið undanúr-
slit, þar sem við náðum ekki að
sýna okkar rétta andlit, spilaði lið-
ið í dag handbolta eins og ég kann
best að meta,“ sagði Torben
Winther, landsliðsþjálfari Dana í
samtali við Politiken.
Sigur Dana var verðskuldaður
að mati Extra Bladet. Danir eru
fyrir alvöru komnir aftur í fremstu
röð í handbolta eftir „mörg mögur
ár“ segir í umfjöllun blaðsins. Lið-
ið var einfaldlega betra en það ís-
lenska sem virkaði þreytt. Eftir að
hafa náð að halda í við danska liðið
í fyrri hálfleik „tæmdust íslensku
batteríin11 í seinni hálfleik. ■
HANDBom Það voru mikil vonbrigði
fyrir íslenska liðið að þurfa að horfa
á eftir bronsverðlaunum til Dana í
gær. Leiknum lauk með 29-22 sigri
Dana. Þegar Fréttablaðið ræddi við
Guðmund Guðmundsson landsliðs-
þjálfara eftir verðlaunaafhending-
una sagði hann að leikmennirnir
hefðu lagt allt í sölurnar til að ná
bronsinu. Menn væru samt að ná
sér núna og stemmningin í hópnum
væri mjög góð.
„Auðvitað ætluðum við okkur að
ná í medalíu en það væri samt út í
hött að vera annað en ánægður með
þennan árangur,“ sagði Guðmundur.
„Það hefur verið einstakt að vinna
með þessum drengjum. Við horfum
á lið eins og Rússland, Frakkland,
Júgóslavíu og Spán fyrir neöan okk-
ur.“ -
Guðmundur sagði að vörnin
hefði ekki náð sér á strik til að byrja
með gegn Dönum. Rauða spjaldið
sém Rúnar Sigtryggsson hefði feng-
ið hefði einnig riðlað vörninni í síð'-
ar hálfleik. Þá hefði fjarvéra Pat-
reks Jóhannessonár einnig haft sitt
að segja, en hann tognaði á hné.
„Það lagaðist samt þegar iíða tók
á leikinn en síðan féll þetta bara
Guðmundur Cuðmundsson landsliðsþjálfari fórnar höndum eftir að Ijóst var að Danir
rnýhdu ná að sigra íslendinga (leik um bronsverðlaun.
ekki okkar megin. Við vorum að
misnota of mikið af dauðafærum.
Ég held að leikmennirnir hafi verið
orðnir mjög þreyttir og það valdið
því að við náðum ekki að halda í við
þá. Það er búið að vera gífurlegt
álag á liðinu. Riðlakeppnin var mjög
erfið og það kostaði ofboðslega orku
að fara í gegnum hana.“
Guðmundur sagði að nú tæki við
undirbúningur fyrir undankeppni
HM sem haldin verður í Portúgal á
næsta ári. Ólafur Stefánsson sagðist
hafa verið mjög sár eftir leikinn
gegn Dönum. Þegar hann liti á mót-