Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.02.2002, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 04.02.2002, Qupperneq 10
FRÉTTABLAÐIÐ 4. febrúar 2002 MÁNUDACUR FRLi'I TABI.AÐIÐ Utgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjóffur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavlk Aðalslmi: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtaeki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins I stafraenu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. | BRÉF TIL BLAÐSINS | Jóhannes lækkaði matarverð Ámundi Loftsson skrifar: Allt frá því að Jóhannes í Bónus hóf verslunarrekstur fyrir um þrettán árum hefur verslun hans alltaf boðið vörur sínar á lægsta verði. Með þessu hefur Jóhannes átt drýgri þátt en nokkur annar í þeim stöðugleika sem ríkt hefur um káup og kjör hér á landi undanfarin ár. Gengisfall krónunnar að und- anförnu er ekki Bónusverslunun- um að kenna. Þar bera stjórn- málamenn ábyrgðina. Þeir þykj- ast þó nú sjá ástæðu til að troða þeim manni um tær sem öðru fremur hefur lagt sig fram við að tryggja lágt verðlag í landinu. Þeir ættu að líta sér nær. Jóhann- es í Bónus hefur með verslunar- rekstri sínum gert meira fyrir launamenn á íslandi og íslenska alþýðu, en allir verkalýðsleiðtog- ar og ráðherrar í ríkisstjórnum ís- lands - samanlagt. Rekstur sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu felur í sér rekstur sjö heildarstjórnkerfa. Slíkur rekstur er óhagkvæmur. Hann leiðir til lélegrar nýtingar á landi og skipulagsóreiðu. Hann felur í sér stjórnarfarslega mis- munun. Hann hefur í för með sér hrepparíg og smákóngarembing sem kostar þegnana fúlgur fjár. Að reka sjö sveitarfélög í einni samfélagsheild er tímaskekkja. Hættum að aðgreina okkur eftir öllum þessum bæjarfélögum og sameinum þau í eitt. ■ 10 DEBET Heilsteyptur og hæfileikaríkur | Skemmtilega mikill prófessor „Heilsteyptari einstaklinga er erfitt að finna,“ segir Geir Sveins- son fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins. „Hann er mjög jarð- bundinn og mátulega kærulaus. Hann hefur unnið í sjálfum sér, út frá lífinu eins og það er.“ „Jafn góður íþróttamaður og hann verður ekki til nema að per- sónuleikinn sé heilsteyptur," segir Boris Bjarni Akbachev þjálfari. „Hann ber virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum..“ Júlíus Jónasson lék með Ólafi í Val og landsliðinu. „Ólafur er mjög skemmtilegur karakter. Hann er mikill pælari, hvort sem það er á bókina eða handboltann. Hann er mikill tónlistarmaður. Hann spilar á þverflautu og fleiri hljóðfæri." „Hann er mjög rólegur og góður drengur," segir Valgarð Thoroddsen sem var samferða Ólafi í gegn- um yngri flokka Vals. „Árangur hans í handbolt- anum er engin tilviljun. Hann hefur unnið fyrir þessu öllu.“ Theodór Guðfinnsson þjálfaði Ólaf í átta ár í yngri flokkum. „Þetta er öðlingur og einstakur drengur. Það var auðvelt að kenna honum. Hann var sér á báti mjög inni- legur og djúphugull." ÓLAFUR STEFÁNSSON HANDKNATT- LEIKSMAÐUR hefur borið hita og þunga af frábærum leik (slenska landsliðs- ins I handbolta. „Hann var feiminn sem strákur," segir Theo- dór Guðfinnsson sem þjálfaði Ólaf í gegnum yngri flokkana. „Hann var oft mjög hugsi og tók þá ekki alltaf eftir því sem var að gerast í kringum hann.“ Geir Sveinsson lék með Ólafi í Þýskalandi og í landsliðinu. „Hann er stundum dálítið utanvið sig. Hann keyrði ein- hvern tímann í klukku- tíma í vitlaust íþróttahús þegar húsið sem hann átti að mæta í var rétt handan við hornið." „Hann er stundum svolítill pró- fessor í sér,“ segir Júlíus Jónasson félagi Ólafs úr Val og landsliðinu „Útgangurinn á honum á æfingum var oft mjög skrautlegur. Þá var eitthvað að koma upp úr töskunni sem ekki átti að vera þar. Við skemmtum okkur oft yfir þessu" Valgarð Thoroddsen kynntist Ólafi í yngri flokkum Vals. „Okkur þótti hann full rólegur þegar við vorum yngri. Hann var miklu sein- ni en við í öllu unglingaveseni og fór sér hægar í stelpur." „Helsti veikleiki hans þegar ég kynntist honum var að hann var ekki í nógu góðu líkamlegu formi,“ segir Boris Bjarni Akbachev þjálf- ari. „Hann tók strax á því.“ JÓNAS SKRIFAR: Glæpagengi úthýst Vítisenglar, sem komu til landsins fyrir helgi, fengu rétta meðferð lögreglunnar. Umsvifa- laust var vísað til baka þeim, sem höfðu verstu glæpina á samvizkunni. Hinir, sem minna höfðu brotið af sér, voru hafðir undir eftirliti, unz úr- skurður fékkst um, að einnig mætti vísa þeim úr landi. Vítisenglar eru einn af mörgum hópum vest- rænna glæpamanna, sem eru okkur miklu hættulegri en íslamskir hryðjuverkamenn á borð við Talibana og al Kaída. Vítisenglar eru ein af svokölluðum mafíum Vesturlanda, sem grafa undan þjóðfélaginu með skipulögðum glæpum. Islamskir hryðjuverkahópar hafa lítinn áhuga á íslandi. Landið er of lítið og afskekkt fyrir fréttnæm hryðjuverk. Þar á ofan er það í Evrópu, sem ekki telst lengur hinn sami djöfull og Bandaríkin eru í augum margra múslima eft- ir langvinnan og eindreginn stuðning þeirra við ísrael. Sem betur fer hefur linnt gömlu sambandi íslands og ísraels. Því harðskeyttara hryðju- verkaríki, sem ísrael hefur orðið á síðustu ára- tugum, þeim mun meira hefur það fjarlægzt okkur. Kúgaðir og niðurlægðir Palestínumenn njóta vaxandi samúðar hér á landi og það vita múslimar. Við þurfum samt að gæta okkar, ekki á aust- rænum ofsatrúarmönnum, heldur á vestrænum glæpamönnum, sem hvað eftir annað hafa reynt að teygja anga sína til íslands. Einna oftast hafa Vítisenglar reynt að koma sér fyrir hér á landi með aðstoð íslenzkra meðreiðarsveina. Fleiri gengi eru hættuleg en Vítisenglar, sem hafa þann Akkillesarhæl að ganga í auð- þekktum einkennisbúningum og bera augljós líkamslýti. Flestar mafíur senda hingað borg- aralega klædda menn, sem ekki stinga í stúf við hversdagslega ferðamenn eða kaupsýslumenn. Viðfangsefni þessara glæpamanna er hið sama, hvort sem þeir bera húðmerki, sólgler- augu eða engin sérkenni. Þeir reka nætur- og nektarklúbba með tilheyrandi vændi. Þeir reka „Þeir mynda eins konar ríki í ríkinu, þar sem gilda önnur lög en gilda í þjóðfélaginu almennt. Þannig grafa þeir undan samfélaginu og eitra það að innan. “ spilavíti. Þeir selja ólögleg fíkniefni. Þeir fylla einfaldlega í eyður þess, sem bannað er eða fordæmt. Einfaldasta leiðin til að kippa fótunum und- an rekstri ýmiss konar glæpasamtaka er að lög- leiða vændi og spilavíti og hefja ríkissölu á ólöglegum fíkniefnum, rétt eins og hinum lög- legu, það er að segja áfengi og læknalyfjum. Þar með hefðu mafíur ekkert upp úr sér hér á landi. Munurinn á vestrænum mafíum og austræn- um ofsatrúarhópum er, að hinir fyrrnefndu ganga fyrir peningum ög sækja þangað, sem þá er að hafa. Meðan við höfum boð og bönn, sem gefa kost á fjárhagslegri neðanjarðarstarfsemi, þurfum við að hreinsa landið með lögregluvaldi. Versta einkenni glæpahópanna er, að þeir flytja með sér sérstæðar siðareglur, sem stinga í stúf við hefðbundnar siðareglur. Þeir mynda eins konar ríki í ríkinu, þar sem gilda önnur lög en gilda í þjóðfélaginu almennt. Þannig grafa þeir undan samfélaginu og eitra það að innan. Við þurfum að nýta til fulls samstarfið í Schengen, Europol og Interpol til að hindra landgöngu fólks, sem á aðild að skipulögðum glæpasamtökum. Jafnframt þurfum við að finna leiðir til að koma aftur á vegabréfaskoð- un, þrátt fyrir ákvæði Schengen-samkomulags- ins um vegabréfalausar ferðir milli landa. Samræmdar aðgerðir löggæzlunnar gegn Vítisenglum í síðustu viku sýna sem betur fer fullan vilja á að varðveita lög og rétt hér á landi. Jónas Kristjánsson 1 INNHERJAR | Barist um leiðtoga Menn fara miíonn á Innherjum, stjórnmálaspjallþræði vísis.is. Umræðuna um forustufólk fylk- inganna í borgarstjórn ber þar hæst. Einvígi Ingibjargar Sólrún- ar og Björns í Silfri Egils setti af stað hatrömm einvígi stuðnings- manna þeirra beggja. „Niðurstaða mín er því augljóslega sú að Ingi- björg Sólrún er komin í mikla varnarstöðu og hræðist Björn Bjarnason meira en nokkurn fyrri andstæðing hennar á síðustu átta árum. Hún er allavega miklu skelkaðri í rökræðum við Bjprn Bjarnason en Árna Sigfússóii," segir einn harður stuðningsmaður Björns. Sínum augum lítur hver silfrið og ekki voru allir sammála um ágæti Björns í þættinum. „Mikið skelfilega var Björn aumkunnar- legur í Silfri Egils í gær. Vælandi og kvartandi eins og samfylking- armaður!,, Nokkuð skipti um tón þegar skoðanakönnun FréttablaðsinS birtist. „Hef það eftir óáréiðan- legum heimildum að allt sé að verða vitlaust í Sjálfstæðisflokkn- um. Þeir eru hræddir. Skíthræ.dd- ir,“ segir einn í kjölfárið, Stuðn- ingsmaður D - listans .ef örlítið sleginn út af laginU. „Skoðana- könnun Fréttablaðsins um fylgi flokkanna í borginni kom mér í opna skjöldu, ég hef á undanförn- um dögum kynnst öðru pólitísku landslagi en því sem fram kemur í greininni." Sá er nú samt fljótur að taka ritgleði sína á ný og skrif- ar nú sem aldrei fyrr. Greinilegt er að það stefnir í harðan slag um borgina. í það minnsta á spjall- þráðum, hvað svo sem verður í kosningunum sjálfum. Innherjar eru umræðuvett- vangur á vefnum visir.is. ■ Tattoo námskeið Spennandi nám fyrir Snyrtifræðinga, Förðunarfræðinga appb«3gp*g itáöswri»*»an. B,ilbijMÍw|þii»i.> »,«irii'nJ ORÐRÉTT Sttrám»g.og. bækiingHr mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm Bók sem vekur tíl umhugsunar „Bók Hallgríms Helgasonar hef ég lesið og hugsaði með mér þegar ég var kominn aftur á blaðsíðu hund- rað að annað hvort væri ég orð- inn ruglaður, höf- undurinn eða við báðir.“ Sverrir Hermannson um verðlaunabókina Höfundur íslands. DV, 1. febrúar. OF VEL ÆTTAÐUR? „í staðinn ætla sjálfstæðismenn að bjóða upp á fulltrúa gamals ættarveldis sem á frændur og frænkur víða i æðstu stöðum í stjórnmála- og at- vinnulífi landsins. Slík samþjöppun valda í einni ætt kann ekki síður að standa í kjós- endurn." Steinunn Jóhannesdóttir, DV. 1. febrúar. VÍTISENGLAR ERU LÍKA NÁTTÚRUUNNENDUR „Þeir eru ferðamenn hingað komnir til að fara í hálendisferð og til að sjá Gullfoss og Geysi.“ Brynjólfur Þór Jónsson, talsmaður Fafner MC, og gestgjafi dönsku Hell's Angels mannanna sem vísað var úr landi á föstu- dag. DV, l.febrúar. SKEIKAR 780 FERÐUM TIL TUNGLSINS „Þar skeikar meira en 300 milljón kílómetr- um sem skýrsla ráðherrans sýnir minni umferð í þéttbýli [...] en staðreyndin er varðandi höfuð- borgarsvæðið eingöngu.“ Forsendur glænýrrar samgönguáætl- unar samgönguráðherra, sem hefur að markmiði að halda í horfinu í samgöngu- málum á höfuðborgarsvæðinu, standast ekki því árleg umferð um höfuðborgar- svæðið er þar vanmetin um meira en 300 milljón kilómetra, skv. frétt í DV, 1. febrúar.. KUtgpt&s* fmapfáMS.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.