Fréttablaðið - 04.02.2002, Blaðsíða 19
I
MÁNUDACUR 4. febrúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
Norræna húsið:
Krakkar teikna
nAmskeið Námskeið í teiknimynda-
gerð er í Norræna húsinu þessa
viku. Yfirskriftin er Börn í sög-
unni - Börn semja söguna. Nám-
skeiðið er ætlað 10 til 16 ára.
Verkefnið er í samvinnu við Ani-
mationsværkstedet sem kemur
með búnað og kennara.
Animationsværkstedet er
kennslustofnun í Viborg í Dan-
mörku. Þar undirbýr ungt fólk sig
fyrir að sækja um vinnu við
teiknimyndagerð. Undir hana
falla teiknimyndir, brúðumyndir,
tölvuleikir og leikbrellur í kvik-
myndum. Teiknimyndaverkstæð-
ið stendur einnig fyrir teikninám-
skeiði. Þar getur ungt fólk bætt
teiknikunnáttu sína, áður en það
kemur á teiknimyndanámskeið. ■
BÆKUR
Einsemd og
tilvistarvandi
Bækur japanska höfundarins
Haruki Murakami hafa farið
sigurför um heiminn undanfarin
ár en sagan Sunnan við mærin,
vestur af sól er fyrsta bók hans
sem þýdd er á íslensku. í þess-
ari litlu bók er aðalpersónan ein-
birnið Hajime og er viðfangs-
efnið konurnar í lífi hans, ein-
semd hans og tilvistarvandi.
Lesandinn fylgist með lífshlaupi
Hajimes frá barnæsku og fram
undir fertugt. Þegar hann er 12
ára eignast hann vinkonu,
Shimamoto, sem einnig er ein-
birni og svo virðist sem hún sé
eina manneskjan sem hann nær
Haruki Murakami;
Sunnan við mæri, vestur af sól
íslensk þýðing: Uggi Jónsson
Bjartur 2002 • 197 blaðsíður
að tengjast. Hann saknar hennar
alla tíð og þegar hún birtist
skyndilega í lífi hans 25 árum
frá því að leiðir skildu tekur til-
veran kollsteypu.
Sögusviðið er Tokyo en um-
hverfi Hajimes og áhugamál
virðast mjög vestræn. Hins veg-
ar svífur hæglátur, dulúðugur
austrænn andi yfir vötnum og
einsemdin er einhvern veginn
magnaðri en maður gæti búist
við í vestrænum bókmenntum.
Steinunn Stefánsdóttir
í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi
sýnir þýski listamaðurinn Bernd Koberl-
ing olíu- og vatnslitamyndir sem hann
hefur unnið fráárinu 1988, m.a. hér á
landi. Kjarvalsstaðir eru opnir alla daga
10-17 og miðvikudaga 10-19. Sýningin
stendur 3. mars.
Þrjár sýningar eru nú í tengslum við
Callerí Fold. í Rauðu stofunni er sölu-
sýning á 18 pastelverkum eftir Hring Jó-
hannesson. Verkin eru myndaröð sem
hann vann árið 1990 á sólarströnd. í
Ljósafold stendur yfir kynning á Ijós-
myndumMagnúsar Óskars Magnús-
sonar en á síðasta ári kom út bókin
Face to Face eftir Magnús. í Baksalnum
sýnir Inger Helene Bóasson Ijósmyndir
en sýninguna nefnir listakonan Litið um
öxl. Safnið er opið daglega frá kl. 10-18,
laugardaga kl. 10-17 og sunnudaga kl.
14-17.
i Gerðubergi er sýning á þýskum tísku-
Ijósmyndum frá árunum 1945-1995
þar sem má sjá verk framsækinna Ijós-
myndara sem voru áhrifavaldar í stíl og
framsetningu tískuljósmyndarinnar. Sýn-
ingin er samvinnuverkefni Gerðubergs
og Goethe Zentrum og styrkt af IFA. Sýn-
ingin stendurtil 17. febrúar.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn @frettabladid.is
Aðstandendur íshótels vilja reisa ísleikhús:
Setja upp Hamlet á scimísku
nordur svIþióð Til stendur að reisa
fullkomna endurgerð af Globe
leikhúsi Shakespears, sem stend-
ur við bakka Thames árinnar í
Lundúnum. Endurgerðin verður
úr ís og mun standa í
þorpinu Jukkasjervi í
Norður Svíþjóð, um 200
kílómetra norðan við
heimskautsbaug. Það
eru hópur Sama sem
stendur að uppátækinu
en hópurinn hefur á
undanförnum árum
byggt hótel úr ís á hver-
ju ári skammt frá bæn-
um Kiruna. Leikhúsinu
er ætlað að þjónusta
ferðamenn hótelsins og
hyggjast leikhúsfor-
ráðamenn setja upp
Hamlet sem flutt verð-
ur á samísku.
„Áttatíu prósent
okkar gesta eru erlend-
ir ferðamenn og við
NAKVÆM EFTIRLÍKING
AF GLOBE
(shótelið við Kiruna hefur
verið byggt á hverju ári í
desember undanfarin ár.
Auk hótelsins er þar að
finna kirkju, kvikmynda-
sali og sánur úr ís auk ís-
baðsins fræga. isleikhúsið
verður nákvæm eftirlíking
af Globe leikhúsi
Shakespears.
töldum að það gæti verið áhuga-
vert fyrir þá að sjá Hamlet á
fi-amandi tungumáli,“ segir Rolf
Degerlund leikhússtjóri ísleik-
hússins.
Leikárið er í styttri
kantinum, frá janúar til
apríl ár hvert, og ef
framhald verður á sýn-
ingahaldi verður að
endurbyggja leikhúsið
fyrir hvert leikár. Leik-
húsið verður 34 metrar í
þvermál og átta metrar
á hæð. Innan dyra verða
40 tveggja hæða svalir
sem samtals rúma 400
áhorfendur. Það verður
með opnu þaki, líkt og
frumgerðin, en gestum
verður gefinn kostur á
að ylja sér undir hrein-
dýrsskinnum með heit-
an drykk við hendina á
meðan á sýningum
stendur. ■
LIFIÐ ER GOLF
Njótíu þ e s s með okkur
NJ
kylfur, fatnaður,
kerrur, skór,
regngallar,
barnakvörur,
boltar og fl.
Athugið!!
Netklúbburinn okkar gefur
forskot á allar útsölur
og býður frábasr tilboð
til netklúbbsfélaga.
Hægt er að skrá sig
á nevadabob.is
GOLFVERSLUN
£#****& MAXFLL
jKvnno yxt&Utf:
MEvADS B9B
rotHirrz
PING
S**w**G ^
UHEmii
utí'n LEiKURrrrnTiiu:
Nethyl 2 • Sími 577 2525 • Póstkröfuþjónusta
Opið alla daga kl. 10:00 til 22:00
www.nevadabob.is
<-Wo<^cvn.
titBcýayot
FAL-MEB
Verð-
sprenging
POPEYES við Smáratorg
opið kl.l 1-22 alla daga vikunnar.
Betra bragð
á betra verði
Tilboðið gildir frá 1. febrúar til og með 11. febrúar 2002.
popeyes@mrc.is http://popeyes.com
POPEYES Kringlunni 104 Reykjavík sími: 5682900
POPEYES Smáratorgi 200 Kópavogur sími: 5682902