Fréttablaðið - 11.02.2002, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 14. janúar 2002
Deilur í Verkalýðsfélagi Akraness:
Stjórn situr
verkalýðsfélag Stjórn Verkalýðsfé-
lags Akraness fékk á sig vantraust-
stillögu á framhaldsaðalfundi fé-
lagsins um miðjan desember. Hún
hyggst þó ekki segja af sér. „Þetta
er brot á öllum venjulegum félags-
reglum þegar um er að ræða að
stjórn fái vantraust á sig vegna lé-
legrar meðferðar á fjármunum fé-
lagsins," segir Sigurður H. Einars-
son stjórnarmaður í félaginu. Á að-
alfundi og framhaldsaðalfundi var,
að sögn hans, rætt um fjárreiður fé-
lagsins í 9 klukkustundir og van-
trauststillagan var niðurstaða um-
ræðnanna. Ekkert I lögum félagsins
skyldar stjórnina til að segja af sér.
Vantrauststillagan var samþykkt
með 30 atkvæðum, sem var um
helmingur fundarmanna.
í vantrausti
„Það var mjög óljóst á fundinum
að hverjum þetta vantraust beinist.
Það var ekki flutt á nöfn og ekki
heldur á alla stjórnina heldur á
meirihluta stjórnar óskilgreint,“
segir Hervar Gunnarsson formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness. Her-
var bendir á að engar kosningar í
stjórn félagsins eða deilda þess fari
fram á aðalfundi og því hafi aðal-
fundur tæplega vald til að krefjast
afsagnar stjórnar.
Hervar segir að öll gögn um
fjármál félagsins liggi fyrir og
menn geti skoðað þau. Hins vegar
hefur því verið hafnað að afhenda
stjórnarmanni gögnin og hefur
hann höfðað dómsmál vegna þess.
Bókahald félagsins hefur verið sent
ríkissaksóknara til athugunar. ■
Ekki sagt frá brotlegum tryggingafélögum:
Beðið um upplýsingar
úrskurðarnefnd Blaðið hefur form-
lega beðið um upplýsingar um
hvaða tryggingafélög koma fyrir í
úrskurðum Úrskurðarnefndar vá-
tryggingamála. Fram kom í frétt í
blaðinu í gær að úrskurðað hefur
verið gegn tryggingafélögum í að
jafnaði 100 málum á ári frá stofnun
nefndarinnar árið 1994. Neytendur
sem telja á sig hallað í viðskiptum
við tryggingafélög geta skotið mál-
um sínum þangað. Nefndin er með-
al annars skipuð fulltrúa frá Neyt-
endasamtökunum. Jóhannes Gunn-
arsson, formaður samtakanna,
sagði að vitneskja um hvaða trygg-
ingafélög kæmu fyrir í úrskurðun-
um myndi hugsanlega bæta stöðu
neytenda. ■
SJÓVÁ-ALMENNAR
Eitt þeirra félaga sem væntanlega hefur
verið úrskurðað gegn.
ALLT NÝJAR
VORURI
Pantið nýja listann: 5 88 44 22
RCWELLS
www.hm.is
TÍSKA • GÆÐI • BETRA VERÐ
l'fey/p&aau,
Kaupþings-fyrir Þína hö
Má bjóða þér hærri laun og frí allt árið?
KAUPÞING
www.kaupthing.is
Með þátttöku í viðbótarlífeyrissparnaði geturðu búið svo um hnútana að
laun þín hækki um 31% við starfslok í stað þess að lækka um 45% eins
og nú er því miður algeng staðreynd.
Tíminn er dýrmætur. Því fyrr sem þú byrjar, því lengri tíma hefur
þú til að ávaxta peninginn og nýtur þannig ávöxtunar á ávöxtun
ofan. Þess vegna borgar sig að ganga frá viðbótarsparnaði
frekar fyrr en seinna.
Kaupþing býður persónulega ráðgjöf um skipulag lífeyris-
sparnaðar, úrval lífeyrissjóða og ávöxtunarleiðir sérsniðnar að
þínum þörfum.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í síma 515 1500 eða líttu
við í Ármúla 13a. Einnig getur þú fengið ráðgjafa heim þegar
þér hentar.