Fréttablaðið - 11.02.2002, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 11. febrúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Tyson að reyna:
Sótti um
leyfi í Texas
hnefaleikar Mike Tyson sótti um
leyfi til að berjast í Texas fyrir
helgi. Hann vill að öllum líkindum
berjast við Lennox Lewis um WBC
og IBF heimsmeistaratitlana í
hnefaleikum í fylkinu. Nefnd frá
Texas mun fara yfir umsókn hans
á næstunni, þrátt fyrir að önnur
nefnd hafi mælst til þess að öll
fylki meini honum að berjast.
Eigendur stórhýsisins
Astrodome, sem er í Houston í
Texas, eru mjög heitir fyrir því að
halda bardagann. Einnig eru eig-
endur Texas Motor Speedway í
Fort Worth að reyna að tryggja sér
IRON MIKE TYSON
Leitar í óðaönn að fylki í Bandartkjunum eða landi sem leyfir honum að berjast við
Lennox Lewis.
viðburðinn. Shelly Finkel, aðstoð-
armaður Týson, segir að alls séu
sjö fylki að falast eftir því að halda
bardagann.
Lewis sagði nýlega að áður en
hann myndi mæta Týson ætlaði
hann að verja titla sína gagnvart
öðrum áskoranda. Hann er samt
sem áður samningsbundinn því að
berjast við Tyson. í síðustu viku
sögðu yfirmenn WBC sambands-
ins að Lewis yrði að berjast næst
við Tyson, hann væri efstur á
áskorandalistanum. ■
RONALDO
Er í Brasilíu að jafna sig á nýjustu meiðslunum. Scolari segist þurfa nauðsynlega
á honum að halda.
Brasilíubúar ekki ánægðir:
Landsliðið
enn í vanda
fótbolti Brasilískir fótboltaaðdá-
endur eru kröfuharðir gagnvart
landsliði sínu. Þó liðið hafi unni
Sádi-Arabíu í síðustu viku fagnaði
enginn. Liðið keppti í höfuðborg-
inni Riyadh síðastliðinn miðviku-
dag og vann 1-0. Djalminha, sem
spilar fyrir Deportivo skoraði
markið undir lok leiksins. Hann er
eini leikmaðurinn sem spilar með
félagsliði í Evrópu sem var kallað-
ur til að spila í leiknum.
Það sem Brasilíubúar vildu
hinsvegar sjá er lið, sem er á góðri
leið með að undirbúa sig fyrir
Heimsmeistarakeppnina. í staðinn
voru fjórföldu meistararnir ekki
búnir að breytast mikið frá því að
þeir klúðruðu því næstum því að
komast í úrslitakeppnina í Japan
og Suður-Kóreu og var slegið út úr
Suður-Ameríkubikarnum af
Hondúras.
Liðið skartaði nýrri treyju í Ri-
yadh, gulri með grænum röndum.
„IVeyjan var ný en knattspyrnan
eins,“ stóð í fyrirsögn Extra blaðs-
ins í Rio.
Louis Scolari, þjálfari liðsins,
hefur ekki mikinn tíma. Eftir þrjá
og hálfan mánuð verður flautað til
Fermingamyndatökur
Fjölskylduljósmyndir
Brúðkaupsmyndir
Ljósmyndarinn Mjódd
Sími: 557 9550
Þarabakka 3
leiks í Seoul. Brasilía spilar fimm
vináttuleiki fyrir HM. Scolari
kemur til Evrópu í vikunni til að
njósna um keppinauta. Hann þarf
einnig að sannfæra lið ýmissa
Brasilíubúa að leyfa þeim að spila
á móti Kólumbíu 7. mars. Hann
ætlar m.a. að heimsækja Real Ma-
drid, Barcelona, Roma og Bayer
Leverkusen til að reyna að tryggja
sér Roberton Carlos, Rivaldo,
Cafu, Lucio og Emerson á móti
Kólumbíu.
Framherjar Scolari hafa ekki
staðið sig vel upp á síðkastið. Hann
er undir pressu að fá Romario,
sem er 36 ára og markahæsti mað-
ur brasilísku deildarinnar, til að
spila með. Scolari vill hinsvegar
ekki setja Romario í liðið með Ron-
aldo. Hann hættir ekki á að missa
báða leikmenn í meiðsli. Ronaldo
er nú í Brasilíu að jafna sig á
meiðslum í lærvöðva. Þessi meiðs-
li 1 oma í beinni röð eftir mörgum
öðrum, sem hafa hindrað hann í að
spila síðan hann fór í hnéaðgerð í
fyrra. „Töfin á Ronaldo flækir líf
mitt mikið,“ segir Scolari. „Við
björgum okkur án hans en ekki að
eilífu. Hann verður að hjálpa." ■
TILBOÐ!
Satin náttserkir
kr. 1.990,-
Flúnels náttserkir
kr. 1.990,-
Köflótt náttföt
kr. 2.490,-
LAGER ÚTSALAN í
FULLUM GANGI
AÐEINS 4 VERÐ!
500-1000-1500-2000
cos
Undirfataverslun
Glæsibæ, sími 588 5575
Opið mán-fös. kl.1 1-18
laugard. kl. 11-16.
íháF
Enska úrvalsdeildin:
Strachan þjálfari mánaðarins
fótbolti Gordon Strachan, knatt-
spyrnustjóri Southampton, var
heiðraður sem þjálfari mánaðar-
ins í ensku úrvalsdeildinni. Hon-
um tókst að forða liðinu frá fall-
sæti. Southampton vann bæði
Chelsea og Liverpool í janúar, auk
þess að gera jafntefli við Arsenal.
Marcus Bent, samherji Her-
manns Hreiðarssonar hjá
Ipswich, var kosinn leikmaður
mánaðarins. Bent skoraði sex
mörk í sjö leikjum fyrir Ipswich,
sem tókst einnig að forða sér frá
botninum. Nú eru fimm stig milli
þess og Bolton, sem er í neðsta
sæti. Bent kom frá Blackburn
skömmu fyrir áramót. ■
STRACHAN
Stýrði Southampton til
sigurs á móti Chelsea
og Liverpool. Liðið
gerði einnig jafntefli við
Arsenal í janúar.
ELDRI BORGARAR
-NÝ ÞJÓNUSTA-
Við komum og sækjum þig í hárgreiðslu
og keyrum þig heim að henni lokinni,
þér að kostnaðarlausu.
Nýttu þér þessa þjónustu strax í dag.
Tímapantanir í síma 564 1916
NÝ-bylgjan, hársnyrtistofa,
Hamraborg 20a Kópavogi.
* Gildir á stór-Reykjavíkursvæðinu
STUBBAHÚSIÐ
- umhvetfisvœn viðleitni -
Fólki sem reykir er í síauknum mæli meinað að reykja
innanhúss. Reykingum utanhúss fylgja hinsvegar óþrif
sem bregðast þarf við með bættri aðstöðu reykingafóiks.
Stubbahúsið er hannað með þetta að leiðarljósi. Það
er fyrirferðalítið (hæð 53 cm - þvermál 6 cm), fellur einkar
vel að umhverfinu og er sérstaklega hannað til þess
að auðvelt sé að koma því fyrir utan á húsum eða á grindverki.
Stubbahúsið er ryðfrítt, auðvelt að tæma og síðast en
ekki síst afar fallega hannað.
MS. ■ Æ gxagocK
ítÚSS
g. ISLENSK HONNUN
° Fáið nánari upþlýsingar
stuss@mmedia.is • www.mmedia.is/stuss • Símar 896-1783
Smáralind
AVIS___________________________
Vantar þig bíl í Smáralind?
Viltu að bíllinn bíði eftir þér á Reykjavíkurflugvelli?
Bíll í A flokki, daggjald kr. 3.700,-
Ótakmarkaður akstur, tryggingar og skattar
Sími: 591 4000
Fax: 591 4040 E-mail: avis@avis.is - Dugguvogur 10 - www.avis.is
í forystu í umhverfísmálum
Hrannar Björn hefur staðið fyrir uppstokkun á skipulagningu umhverfísmála í höfuðborginni. Undir forystu hans hefur
orðið til öflug Umhverfis- og heilbrigðisstofa og gerð hefiir verið ítarleg umhverfisáætlun. Umhverfisáætlun Reykjavíkurborgar
er ieiðarvísir í átt til betra umhverfis og þess háleita markmiðs að Reykjavík verði vistvænsta höfuðborg norðursins.
A Stuðningsmenq Hrannars Björns Amarssonar í prólkjöri Samfyikingarinnar lyrir framboð I
f Kosningaskrifstofa: Hafiiarstræti 20, 2. hæð, sírni: