Fréttablaðið - 13.02.2002, Side 9

Fréttablaðið - 13.02.2002, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 13. febrúar 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 9 ísafjarðarbær: Vestfirðingar semji sína byggðaáætlun bæjarráð ísafjarðarbær ætlar að bjóða öðrum sveitarfélögum í fjórðungnum að leiða vinnu við gerð byggðaáætlunar fyrir Vest- firði. Tillaga þessa efnis frá Hall- dóri Halldórssyni bæjarstjóra var samþykkt á fundi bæjarráðs ísa- fjarðarbæjar í fyrrakvöld. Hall- dór segir að í þessari áætlun verð- ur lögð áhersla á ísafjarðarbæ sem byggðakjarna fjórðungsins. Hann segir að þetta séu formleg viðbrögð bæjaryfirvalda við stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Hann segir að fyrst stjórnvöld ætla ekki að beita sér fyrir byggðaáætlun fyrir Vest- firði verði heimamenn að gera það sjálfir. Margir Vestfirðingar og einnig bæjaryfirvöld í ísafjarðarbæ eru foxill út í ríkisstjórnina vegna þeirra stefnu sem fram kemur í byggðaáætlun hennar. Sýnu verst hefur farið í heimamenn sú yfir- lýsing sem fram kemur í skýrsl- unni að ekki sé ráðlegt að gera ráð fyrir því að íbúum á svæðinu muni fjölga í náinni framtíð. Halldór segist persónulega telja að þetta sé blaut tuska frá stjórnvöldum til íbúa svæðisins og sveitarstjórnar- manna sem daglega eru að vinna að því að efla og skjóta styrkari rótum undir atvinnu- og íbúaþró- un í fjórðungnum. ■ HALLDÓR HALLDÓRSSON Segir að menn muni halda áfram að berj- ast fyrir sér og sínum. Prikið svipt áfengisleyfi tímabundið: Itrekað of margir gestir barir Barinn vinsæli Prikið verður sviptur áfengisleyfi næstu helgi, frá föstudeginum 15 til sunnudags 17. febrúar. Þetta var samþykkt í borgarráði í gær. Sviptingin kemur í kjölfar áminningar sem handhafa áfengisleyfis Priksins, Haninn ehf., var veitt í október síðastliðnum. Sú áminning kom í kjölfar ítrekaðra brota leyfishafa, einkum á fjölda gesta sem leyfilegt er að hafa í hús- inu. Núgildandi áfengisleyfi á Prik- inu gildir til 1. október næstkom- andi. Leyfishafa er heimilt að kæra úrskurðinn, innan næstu þriggja mánaða. ■ Kári krefst jafnræðis Kári Stefánsson segir Urskurðarnefnd um skipulags- og byggingarmál hafa komist að rangri niðurstöðu varðandi fyrirhugað einbýlishús sitt. Hann segir nefndina ennfremur hafa verið vanhæfa þegar hún ógilti byggingarleyfi hans. Þá segir Kári aðra húseigendur hafa notið rýmri túlkunar skilmála skipulagslaga. dómsmál Kári Stefánsson, for- stjóri íslenskrar erfðagreiningar, telur meðlimi Úrskurðarnefndar um upplýsingamál, hafa verið vanhæfa til meðferðar kæru á fyrirhugað einbýlishús hans. Það hafi nefndarmennirnir orðið þeg- ar nefndin úr- skurðaði í fyrra- sumar - eftir að kæra barst frá nokkurm nágrönn- um - að stöðva skyldi fram- kvæmdir við húsið til bráðabirgða. Þess utan telur Kári að úrskurðar- nefndin hafi ein- faldlega komist að efnislega rangri niðurstöðu þegar nefndin ógilti byggingarleyfi sem Reykjavíkurborg veitti honum fyrir byggingu einbýlishússins á Skeljatanga 9. Kári telur ennfremur að hon- um hafi verið mismunað við með- ferð málsins. Þetta kemur fram í stefnu sem lögmenn Kára hafa sent Reykjavíkurborg, úrskurðar- nefndinni og nágrönnum í tveim- ur næstu húsum sem kærðu fyrir- hugaða húsbyggingu forstjórans á sínum tíma. Vísað er til þess að stjórnvöld hafi áður túlkað —♦— Þá kemur fram í stefn- unni að verð- andi nágrönn- um Kára í næsta húsi hafi sjálfum verið veitt leyfi fyrir að hafa hús sitt tvílyft að hluta. —♦— LOÐIN A SKELJATANCA Varla náðist nema að grafa grunninn að áformuðu húsi Kára Stefánssonar að Skeljatanga. Framkvæmdir voru stöðvaðar eftir kærur frá nágrönnum. grundvelli jafnréttissjónarmiða að Kára verði gert að sæta „þrön- gri túlkun“ skilmálanna. Með því væri algerlega litið framhjá þeir- ri stjórnsýsluframkvæmd sem hafi viðgengist. Lögmenn Kára segja að það sé meginregla að stjórnarathafnir séu ákveðnar og skýrar. „Sé ein- hver brestur á skýrleika þeirra beri að meta vafa í þeim efnum þannig að ekki bitni á hagsmunum borgarans," segir í stefnu þeirra. I stefnu sinni minnir Kári á að bæði Skipulagsstofnun og Borgar- skipulag töldu að ekki ætti að fall- ast á kæru nágrannanna. Þá kemur fram í stefnunni að verðandi nágrönnum Kára í næsta húsi hafi sjálfum verið veitt leyfi fyrir að hafa hús sitt tvílyft að hluta. Samkvæmt jafnréttissjón- armiðum beri að leysa úr máli hans á sama grundvelli. Þingfesta á málið fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur á morgun. Meðal annarra sem Kári hefur stefnt þangað er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. gar@frettabladid.is ákvæði skipulagslaga „mjög rúmt“. Því fái það ekki staðist á STEFÁNSSON Segir að það fái ekki staðist á grundvelli jafnrétt- issjónarmiða að honum verði gert að sæta „þröngri túlkun" á skipu- lagsákvæðum. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLA- DÓTTIR Grípur borgarstjór- inn til varna í hér- aðsdómi á morg- un' Kári Stefánsson hefur stefnt henni þangað. ÍSAFJARÐARBÆR Bæjaryfin/öld telja að stöðugleiki í verðlagi sé allra hagur. ísafjarðarbær: Gjaldskrár lækkaðar um ómilljónir VERÐLflG Bæjarstjórn ísafjarðar- bæjar hefur samþykkt að lækka ýmsar þjónustugjaldskrár sínar um allt að 6 milljónir króna. Þetta var einróma samþykkt sem framlag bæjarsjóðs til að tryggja stöðug- leika í verðlagi. Meðal annars er fallið frá hækkun á dagvistunar- gjöldum umfram vísitölu frá og með 1. janúar sl. Frá og með 1. mars n.k. verður 5% lækkun á dag- gjaldi á gæsluvöllum, gjaldi fyrir félagslega heimilisþjónustu aldr- aða, félagsstarfi aldraða, dægrad- völ í heildagsskóla og gjaldskrám vegna íþróttahúsa, sundlauga og skíðasvæðis. Halldór Halldórsson bæjarstjóri segir að þessari tekjulækkun verði mætt með enn frekari hagræðingu í rekstri. Hann áréttar þó að slík hag- ræðing muni ekki bitna á þjónustu- stigi bæjarins gagnvart íbúunum. í því sambandi bendir hann á að und- angengnar hagræðingar hafa eink- um beinst að því að fækka toppum í stjórnsýslunni. Hann minnir einnig á að það sé verkefni hvers stjórn- anda allt árið um kring að hafa aug- un opin fyrir öllum möguleikum sem kunna að bjóðast til að hag- ræða í rekstri. ■ Örlög blaðamannsins í Pakistan enn óljós: Einn mannræningj- anna handtekinn KARftCHl. flp Sjeik Ahmad Omar Saíd var handtekinn í gær í borg- inni Lahore í Pakistan. Hann var fluttur til Karachi, þar sem hann var yfirheyrður. Sjeikinn er grun- aður um ránið á bandaríska blaða- manninum Daniel Pearl. Hans hafði verið leitað í nokkra daga. Embættismaður í Pakistan sagði sjeik Saíd hafa fullyrt að blaða- maðurinn væri heill á húfi. Ekkert var þó enn vitað um hvar hann væri niðurkominn. Ahmed Omar Saíd er 27 ára gamall róttækur múslimi, fæddur í Bretlandi. Honum var sleppt úr indversku fangelsi í desember árið 1999 í skiptum fyrir farþega indversku flugvélarinnar sem af- ganskir skoðanabræður hans rændu og flugu til Afganistan. í gær voru einnig ákærðir þrír menn, sem handteknir voru eftir að tölvuskeyti með mvndum af Pearl voru rakin til þeirra. Síðasta orðsendingin frá mannræningjun- um kom 30. janúar. Þar sagði að hann yrði tekinn af lífi innan sól- arhrings. Pervez Musharraf, forseti ÞRÍR GRUNAÐIR MEÐ HAUSPOKA Lögreglumenn í Pakistan fylgja þremur mönnum út úr dómssal í Karachi I gær. Mennirnir þrir eru grunaðir um aðild að ráni bandaríska blaðamannsins Daniel Pearl. Fjórði maðurinn var handtekinn í gær. Pakistans, fer til Bandaríkjanna í dag þar sem hann hittir George W. Bush forseta að máli. ■ Renault Laguna II fólksbíll Renault Scénic fólksbíll 23.449 Renault Mégaríe Berline fólksbíll Bílalán, afborgun á mán. Rekstrarleiga: 39.299 Verðáöur 2.090.000 Verð nú 2.006.000 23.008 Bílalán, afborgun á mán. Rekstrarleiga: 38.627 Verðáður 2.050.000 Verðnú 1.968.000 18.332 Bílalán.afcagunámán. Rekstrarieiga: 31.731 Verðáður 1.630.000 Verð nú 1.565.000 Rekstrarleigan er til 36 mán., m.v. við 20,000 km á ári og erienda myntkörfu. Rekstrarieiga er aðeins i boði til rekstraraðila (fyrirtækja). Bilalán mlðast vlð 30°í> útborgun og 84 mán. samnlng. Allar tölur eru með vsk. Tiiboðið giidir út febrúar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.