Fréttablaðið - 13.02.2002, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 13.02.2002, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 13. febrúar 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 15 F2002 bíllinn reynist vel: Schumacher setur aftur met FORMÚLA i Þjóðverjinn Michael Schumacher setti í gær aftur brautarmet á æfingabraut Ferr- ari liðsins á Ítalíu. Hann sló met sem hann setti í fyrra áður á sunnudaginn. Þá var hann að aka F2002, nýja keppnisbíl Ferrari, í fyrsta skipti. Hann var aftur á bílnum í gær. Metið síðan á sunnudaginn var 58,620 sekúndur. Metið síðan í gær eru 58,378 sekúndur. Schumacher heldur áfram að reynsluaka bílnum í dag. Ferrari ólympíuleikar Fimm gullverð- laun voru veitt á Vetrarólympíu- leikunum í Salt Lake City á mánudaginn. Evrópubúar voru mjög áberandi á verðlaunapöll- unum þann daginn. Bandaríkin komust ekki á pallinn nema í einni grein. Þeir gerðu gott bet- ur þar sem þeir fengu öll verð- launin í greininni, brekkuröri á snjóbretti. Þetta er í annað skip- ti sem keppt er í snjóbrettum á Ólympíuleikum. Bandaríkja- menn fengu einnig gull í kvenna- flokki á sunnudaginn. f skautadansi para unnu Rúss- arnir Elena Berezhnaya og Ant- on Sikharulidze gullverðlaun. Það munaði mjög litlu á þeim og parinu sem lenti í öðru sæti, Kanadabúunum Jamie Sale og Spark í rass Man. United: David Beckham hótar að hætta F2002 ... og Þjóðverjinn flýgur áfram. liðið tilkynnir eftir tvær vikur hvort það hefur keppnistímabilið á honum eða bílnum síðan í fyrra. ■ fótbolti David Beckham segir að hann muni hætta hjá Manchester United ef félagið gengur ekki að samningskröfum hans. Miðvörður- inn knái talaði við fréttamenn þeg- ar nýi landsliðsbúningur Englands var kynntur á mánudaginn. Hann sagði að búið sé að halda rúmlega 20 samningafundi með stjórn fé- lagsins. Hann hafi tekið þátt á ein- um fundanna og væri bjartsýnn á að samkomulag náist á árinu. Þetta er í fyrsta sinn sem Beck- ham segir opinberlega að hann muni hætta hjá félaginu ef allt fer út um þúfur. Þegar hann var spurð- ur um hvort það gæti gerst að fé- lagið gæti ekki lengur treyst á hann sagði Beckham: „Kannski, já. United er svakalegt félag. Fólki finnst að maður eigi að halda í það og svoleiðis. En þetta verður að vera á mínum forsendum. Ég er áhangandi United. Mig hefur alltaf langað til að spila í liðinu. Ég vil ekki hugsa strax um að spila fyrir annað lið. Hef ekki gert það hingað til.“ DAVID BECKHAM Talaði við fréttamenn þegar hann var að kynna landsliðsbúning Englands. Aðalbitbein Beckham og fé- lagsins varða ímynd þess, gjaldið sem Beckham vill fá fyrir að flag- ga United fánanum hvert sem hann fer. ■ Verðlaunahafar mánudags: David Pelletier. Áhorfendur voru ekki ánægðir með úrskurð dómaranna og bauluðu þegar hann var kynntur. Kínverjarnir Shen Xue og Zhao Hongbo lentu í þriðja sæti. ítalir fögnuðu sigri á eins manns sleða. Armin Zoeggeler fékk gullið. Hann kom í veg fyr- ir það að Þjóðverjinn Georg Hackl setti met með því að vinna fjögur gullverðlaun í röð í sömu greininni. Hackl setti að vísu annað met með því að vinna til verðlauna fimm Ólympíuleika í röð. Hann tók ósigrinum ekki illa: „Zoeggeler er búinn að vera bestur í greininni síðustu fjögur ár. Það væri synd ef hann hefði ekki unnið. Fyrir mér er silfrið eins og gull.“ Norðmaðurinn Ole Einar Bjoerndalen vann 20 kílómetra skíðaskotfimi örugglega. Þjóð- verjinn Frank Luck og Rússinn Victor Maigourov lentu í öðru og þriðja sæti. Þjóðverjinn Andrea Henkel kom öllum á óvart með því að sigra í 15 kílómetra skíðaskot- fimi kvenna. Norðmaðurinn Liv Grete Poiree og Svíinn Magda- lena Forsberg, sem voru taldar mjög sigurstranglegar, þurftu að sætta sig við silfur og brons. ■ HÁTT UPPI Svisslendingurinn Gian Simmen náði mögnuðum stökkum í upphituninni á mánudaginn en ekki í keppninni sjálfri. Reykvíkingar bjuggu okkur til Við höfum notið þeirra forréttinda að fá að vinna fyrir borgarbúa. Langþreyttir á valdstjórn íhaldsflokksins og sundurlyndi félagshyggjuaflanna knúðu þeir okkur til sameiningar og fengu okkur völd. Krafa kjósenda var um þjónustu, framtíðarsýn og virðingu fyrir skoðunum þeirra. Við hlýddum kallinu og höfum breytt valdastofnun í þjónustufyrirtæki. Við höfum ekki reist minnisvarða heldur byggt leikskóla, einsett grunnskólann, virkjað í þágu atvinnulífs í sátt við náttúruna, lagt upplýsingahraðbraut, hreinsað strand- lengjuna og fjárfest í menningar- og íþróttalífi borgarinnar. Reykvíkingar framlengdu tlmabundná ráðningu okkar fyrir fjórum árum og nú í lok kjör- tímabilsins er stuðningur borgarbúa ótvíræður. Við höfum ekki leyst hvers manns vanda, en samstaðan hefur fært okkur árangur. Framundan eru krefjandi verkefni. Verkefnið nú er ekki sist að þróa lýðræði í þjónustu okkar með opnara stjómkerfi, almennum atkvæðagreiðslum, könnunum og hverfisráðum. Með því að spyrja og hlusta getum við eflt samráð við Reykvíkinga og aðhald þeirra að störfum okkar. Virkt aðhald frá Reykvíkingum er mikilvægt. Slíkt aðhald skapar líka prófkjör Samfylkingarinnar. Þar geta stuðningsmenn hennar í borginni, flokksbundnir og óflokksbundnir, lagt dóm á frammistöðu okkar og valið sína fulltrúa. Ég hvet þig til að taka þátt í því til þess að efla Reykjavíkurlistann og sýna íhaldsflokknum að fólk vill sjálft velja sína fulltrúa. , / . ' forseti borgarstjórnar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.