Fréttablaðið - 13.02.2002, Blaðsíða 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
13. febrúar 2002 MIÐVIKUDAGUR
Gjaldskrárhækkanir á Húsavík:
Aherslumunur á
milli stéttarfélaga
HÚSAVÍK
Verslunarmenn þar nyrðra virðastvera mun harðari í afstöðu sinni til verðlagsmála bæjar-
ins en félagar þeirra í Verkalýðsfélaginu.
VIÐSKIPTI
Lyf jafyrirtækin héldu áfram að
hækka á Verðbréfaþingi ís-
lands í gær. Bréf Delta voru kom-
in í 70 krónur við lok dags og
Pharmaco í 65 krónur. Delta hef-
ur hefur bætt við sig 40% síðustu
30 daga í alls sjö milljarða króna
viðskiptum. Pharmaco hefur bætt
við sig 20% í 2,6 milljarða við-
skiptum.
Heildarupphæð hlutabréfavið-
skipta á Verðbréfaþinginu í
gær var tæpar 900 milljónir
króna. Mest var höndlað með
bréf í Búnaðarbankanum, eða
fyrir 288 milljónir. Gengi bréf-
anna stóð nánast í stað í gær, en
hefur engu að síður hækkað um
fjórðung frá áramótum.
verðlag Bæjarráð Húsavíkur mun
á fundi sínum á morgun, fimmtu-
dag fjalla um kröfu Verslunar-
mannafélags Húsavíkur um veru-
lega lækkun á gjaldskrám bæjar-
sjóðs. Félagið telur með því geti
bærinn lagt sitt af mörkum til að
verja stöðugleikann og lífskjörin.
Athygli vekur að afstaða Verslunar-
mannafélagsins er mun harðari í
þessum efnum en hjá Verkalýðsfé-
laginu sem ekki hefur lagt fram
sambærilega kröfugerð. Tryggvi
Jóhannsson forseti bæjarstjórnar
segir að fjárhagsstaða bæjarsjóðs
sé þröng eftir miklar framkvæmd-
ir. Af þeim sökum getur verið erfitt
að skera niður tekjurnar. Hann
bendir einnig á að gjaldskrárhækk-
anirnar séu til að mæta framkomn-
um kostnaðarhækkunum.
Aðalsteinn Á. Baldursson for-
maður Verkalýðsfélags Húsavíkur
segir að ef allar gjaldskrárhækkan-
ir bæjarsjóðs verða dregnar til
baka muni það hafa í för með sér
lakari þjónustu fyrir bæjarbúa.
Hann segir að félagið hafi því skiln-
ing á því að bærinn verði að hækka
sínar gjaldskrár til að mæta aukn-
um kostnaði. Það sé hins vegar
ávallt matsatriði hversu miklar
þessar hækkanir eigi að vera. Það
hefði m.a. verið rætt á fundi félags-
ins með bæjaryfirvöldum. Ágúst
Óskarsson formaður Verslunar-
mannafélags Húsavíkur vill ekki
gera mikið úr þessum áherslumun
á milli þessara tveggja félaga.
Hann áréttar þó að kröfur félagsins
sé ekki settar fram undir neinni
rós. ■
Hagstofan spáir 100%
fjölgun ellilífeyrisþega:
Islendingar
verða 300.000
FRÉTTASKÝRING
Davíð og Halldór tala
árið 2007
mannfjöldi Ellilífeyrisþegar
verða tvöfalt fleiri árið 2030 en
þeir eru í dag, 59.000 í stað rúm-
lega 29.000 eins og þeir eru í dag.
Þetta kemur fram í nýjum fram-
reikningi Hagstofunnar á mann-
fjölda á íslandi.
Samkvæmt honum skríða ís-
lendingar yfir 300.000 síðla árs
2007 og verða orðnir tæp 330.000
árið 2020 og 360.000 árið 2040. Það
er um 24% fjölgun frá árinu 2001.
Fólki á vinnumarkaði, 25-66,
kemur til með að fjölga um 22% á
næstu 40 árin, fjöldi þeirra fer úr
rúmlega 148.000 í rúm 180.000.
Börnum 0-6 ára og fólki á fram-
haldsskólaaldri,17-24 ára, fjölgar
um 5-6% næstu 40 árin. Sam-
kvæmt framreikningnum mun
minnsta fjölgun verða í aldurs-
hópnum 7-16 ára, eða 2%.
Hagstofan bendir á að mikil
óvissa sé í slíkum spám, einkum
þegar spáð er langt fram í tímann.
I forsendum spánnar er gert ráð
fyrir að meðalævilengd kynjanna
hækki jafnt og þétt yfir tímabilið
2003-2042 og verði orðin í lok þess
82,1 ár hjá körlum og 84,8 ár hjá
konum. I dag er meðalævilengd
karla 77,6 ár og hjá konum 81,4 ár.
Reiknað er með að hver kona fæði
að meðaltali 2,05 börn yfir ævina
fyrir tímabilið 2003-2042, en það
er meðaltal áranna 1996-2000. ■
| ERLENT I
Tíu ungar norskar konpr, sem
allar eru börn innflytjenda,
fóru í svokallaða „meyjarhaftsað-
gerð“ á Volvat sjúkrahúsinu í Nor-
egi á síðasta ári. Konurnar sáu sig
tilneydda til að fara í aðgerðina til
að fjölskyldan þeirri yrði ekki fyr-
ir aðkasti. Aðgerðin kostar 11.000
nkr, andvirði rúmlega 120.000 ísl.
kr. Baráttumenn fyrir bættri
stöðu innflytjendakvenna hafa
áhyggjur af þessu. í aðgerðinni er
hluti slímhimnu £ legi saumaður
saman til að tryggja blóð við sam-
farir á brúðkaupsnótt.
í austur og vestur
Lítill samhljómur er í yfirlýsingum leiðtoga stjórnarflokkanna um samskipti íslands við Evrópu-
sambandið og endurskoðun EES-samningsins. Utanríkisráðherra telur brýnt að endurskoða
samninginn. Forsætisráðherra lýsir því sem prófarkalestri. Formaður VG hefur beðið um utan-
dagskrárumræður um samninginn.
stjórnmál Forsætisráðherra og
utanríkisráðherra virðast vera á
öndverðum meiði um framtíðar-
samskipti íslands við Evrópusam-
bandið. Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra hefur lýst því yfir
að brýnt sé að fara
....... í viðræður við
„Það er auð- Evrópusambandið
vitað ómögu- um endurskoðun
legt að for- samningsins um
svars,7lenn evrópska efna-
ríkisstjórnar hagssvæðið. Á
tali endalaust sama tíma gerir
annar í austur Davíð Oddsson
og hinn í vest- forsætisráðherra
ur í svona lítið úr mikilvægi
máli." slíkrar endurskoð-
....... unar. Líkir henni
við prófarkalestur
fremur en að gera þurfi miklar
breytingar á samningnum. Hall-
dór vildi, aðspurður, ekki gefa
mikið út á yfirlýsingar forsætis-
ráðherra. „Það er misjafnt hvað
menn vilja sætta sig við,“ sagði
hann.
Meðal þess sem utanríkisráð-
herra hefur nefnt sem ástæður
fyrir því að endurskoða þurfi
samninginn er að Evrópusam-
bandið hafi tekið upp samstarf á
nýjum sviðum sem samningurinn
nái ekki yfir. Þá hafi nýjar stofn-
anir sambandsins yfirtekið hluta
af viðfangsefnum samningsins.
Halldór segir erfitt fyrir Alþingi
að samþykkja stækkun evrópska
efnahagssvæðisins í kjölfar
stækkunar Evrópusambandsins
án þess að hafa vitneskju um
hvernig málum íslendinga verði
háttað. Forsætisráðherra sagði á
Viðskiptaþingi í gær að hnökrar á
BITBEIN RÁÐHERRANNA
Mikill munur er á áherslum forsætisráðherra og utanríkisráðherra í Evrópumálum.
EES-samningnum væru _ litlir.
Kvartað væri undan því að íslend-
ingar ættu ekki aðkomu að nefnd-
um á vegum Evrópusambandsins.
Slíkt væri ekki stórt vandamál.
„Það er auðvitað ómögulegt að
forsvarsmenn ríkisstjórnar tali
endalaust annar í austur og hinn í
vestur í svona máli. Það er skað-
legt fyrir hagsmuni landsins og
skapar óþolandi óvissu og óör-
yggi“, segir Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður VG. Hann hefur
farið fram á utandagskrárumræð-
ur um EES-samninginn. „Ég tel
óhjákvæmilegt að það verði rætt
hvort eru að verða einhverjar
breytingar á hinni pólitísku stöðu
í málinu. Þegar menn eru jafn vel
farnir að taka svo djúpt í árinni
eins og utanríkisráðherra að
framtíð EES-samningsins þurfi að
skýrast á næstu mánuðum."
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingar, sagði í
Fréttablaðinu í gær að forsætis-
ráðherra lýsti í raun vantrausti á
utanríkisráðherra þegar hann
segði engan hafa getað skýrt fyrir
sér vankanta EES-samningsins.
„Utanríkisráðherra hefur oft lýst
sínum viðhorfum. Forsætisráð-
herra er þess vegna að storka
honum opinberlega."
brynjolfur@frettabladid.is
oli@frettabladid.is
Græjaðu þig!
Philips 32" breiðtjaldssjónuarp 179.990 kr.
Glæsilegt og vel tækni búið. 100 Hz stafræn tækni
(Digital Scan) gefur hámarksmyndgæði.
Auðvelt að stilla og stjórna. Hægt ad hafa hálfan
skjáinn með mynd og texta á hinum helmingnum.
1200 sídna textaminni. Virtutal Dolby Surround.
2x20 W. 2 Scarttengi og 1 stereó hljóðútgangur.
Tengi fyrir myndbandsupptökuvélar og
S-vídeótengi á framhlið.
lips ministæóa íý 29.995 kr.
0% uextir
I allt að 4 mánuði
furir korthafa UlSfl
j Sendir þráðlaust á milli tveggja sjónvarpa
t.d. loftnetsmerki, merki frá myndbands-
tæki, DVD spilara eda skildum græjum.
Tekur allt ad 4 tæki inn á sig med Scarttengi.