Fréttablaðið - 06.03.2002, Síða 2
KJÖRKASSINN
2
FRÉTTABLAÐIÐ
6. mars 2002 MIÐVIKUDACUR
Lokun fangelsisdeilda
fellur illa í kramið hjá
lesendum. Nær 90%
telja þær engan vegin
ásættanlegar.
Er ásættanlegt að loka þurfi fang-
elsisdeildum vegna fjárhagsvanda
Fangelsismálastofnunar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
*____________________14%
Nei
Spurning dagsins í dag:
Er einkarekstur i heilbrigðiskerfinu
lausnin á vanda Landspítalans?
Farðu inn á vísi.is og segðu 1
þína skoðun ___
Spurningakeppni grunn-
skólanna:
Lid Haga-
skóla sigraði
keppni Hagaskóli og Seljaskóli öttu
kappi í útslitakeppni spurninga-
keppni ÍTR, Nema hvað, á Markús-
artorgi í útvarpshúsinu í gærkvöldi
og sigraði Hagaskóli með 38 stig-
um gegn 31. Þetta er í fyrsta skipti
sem keppnin er haldin, en aðstand-
endur hennar sögðu í ávarpi í gær-
kvöldi að keppnin væri komin til að
vera. Sigurlið Hagaskóla hlaut að
launum farandbikarinn Mímis-
brunn, sem gefinn er af ÍTR, ásamt
eignarbikar. Þá fékk skólinn til
eignar Söguatlas Máls og menning-
ar og hver liðsmaður fékk bókina
Orð í tíma töluð. Keppendur Selja-
skóla hlutu hver um sig bókina
Stjörnufræði fyrir byrjendur fyrir
annað sætið. ■
—♦—
Bæjarstjóm Akureyrar:
Þóra nýr
forseti bæj-
arstjórnar
sveitarstjórnarmál Þóra Ákadóttir
var kjörin forseti bæjarstjórnar
Akureyrar á fundi bæjarstjórnar í
gær. Hún tekur
við embættinu af
Sigurði J. Sigurðs-
syni. Sigurður lét
af starfi bæjar-
fulltrúa fyrir
skemmstu eftir að
hafa setið í bæjar-
þóraAka- fJórn.
DÓTTIR rrn arlnu 1974.
Settist í bæjar- Þóra settist í
stjóm um mitt bæjarstjórn fyrir
slðasta ár. hönd Sjálfstæðis-
flokksins sem varamaður um mitt
síðasta ár. Hún skipar annað sæti á
framboðslista flokksins fyrir bæj-
arstjórnarkosningar 25. maí. ■
SKIPULAG 1
Landfylling sem gert er ráð fyr-
ir á Eiðsgranda samkvæmt að-
alskipulagi Reykjavíkur til ársins
2024 er 40 hektarar. Framkvæmd-
in fellur undir lög um mat á um-
hverfisáhrifum. Tilkynna þarf
framkvæmdirnar til Skipulags-
stofnunar ríkisins þar sem upp-
fyllingin er stærri en fimm hekt-
arar. Umhverfisáhrif landfylling-
arinnar verða þ,ví metin áður en
framkvæmdir y'erða hafnar.
| ERLENT I
Sænsk stjórnvöld vilja að sænsk
fyrirtæki, sem stunda starfsemi
í öðrum löndum, sýni meiri ábyrgð
í umhverfismálum og mannrétt-
indamálum erlendis. Þau hafa boð-
að fimm hundruð fyrirtæki á sér-
stakan fund til þess að ræða
hvernig best megi standa að því.
Leif Pagrotsky, viðskiptaráðherra
Svíþjóðar, segir nauðsynlegt að
fyrirtækin sýni meiri alþjóðlega
ábyrgð til þess að takast megi að
gefa alþjóðavæðingu viðskipta
mannlegra yfirbragð.
Sjöunda sæti R-listans við borgarstjórnarkosningarnar 25. maí:
Oánægja kraumar undir
FRAMBOÐ Nokkurrar óánægju gætir
meðal samfylkingarfólks í Reykja-
vík með nöfnin sem nefnd eru í 7.
sæti R-listans. Ekki er ljóst hver
tekur sætið en borgarstjóri og upp-
stillingarnefnd gera tillögu um við-
komandi. Hálfs mánaðar umhugs-
unarfrestur Dags B. Eggertssonar,
læknis og ævisöguritara Steingríms
I-Iermannssonar, til að segja af eða á
hvort hann vilji sætið mun fullnýtt-
ur. Heimildir herma að næst verði
Skúla Helgasyni, stjórnmálafræð-
ingi, boðið sætið.
Heimildir blaðsins segja að
mörgum þyki nóg um „háskólateng-
inguna" á listann og nær þyki að sá
RÖDUN í SÆTI Á FRAMBODSLISTA
REYKJAVÍKURLISTANS i VOR:
1. VG - Árni Þór Sigurðsson
2. Framsókn - Alfreð Þorsteinsson
3. Samfylking - Stefán Jón Hafstein
4. Samfylking - Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
5. Framsókn - Anna Kristinsdóttir
6. VG - Björk Vilhelmsdóttir
7. Sameiginlegur ?
8. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
9. Samfýlking - Helgi Hjörvar
sem tekur sjöunda sætið hafi tengsl
við verkalýðshreyfinguna. Nöfnin
sem helst hafa verið nefnd í því
sambandi eru: Edda Rós Karlsdóttir,
forstöðumaður á Verðbréfasviði
Búnaðarbanka íslands, og Sigurðar
Bessasonar, formanns stéttarfélags-
ins Eflingar. Edda Rós var áður hag-
fræðingur hjá Alþýðusambandi Is-
lands. Bæði Sigurður og Edda Rós,
töldu ólíklegt að þau væru til með að
taka sæti á Reykjavíkurlistanum.
Búist er við því að sjöunda sæti
Reykjavíkurlistans verði ráðstafað
á næstu dögum, þegar tillaga upp-
stillingarnefndar Vinstrihreyfing-
arinnar græns framboðs hefur ver-
ið samþykkt. Búist var við því að
hún yrði samþykkt í gærkvöldi á fé-
lagsfundi VG en honum var ekki
lokið þegar Fréttablaðið fór í prent-
un. ■
lögreglufréttirI
Þriggja bíla árekstur varð um
klukkan 18.30 í gærkvöldi,
skammt frá Hvalfjarðargöngun-
um Borgarnesmegin. Aðdragand-
inn var sá að ökumaður á leið
norður stoppaði til að beygja út
af veginum á stæði við göngin.
Bílnum á eftir honum tókst ekki
að stöðva í tæka tíð og bíllinn þar
á eftir reyndi að afstýra árekstri
með því að beygja yfir á rangan
vegarhelming. Þar hafnaði hann
framan á bifreið sem kom á móti
og rakst í leiðinni á bifreiðina
fyrir framan. Minniháttar slys
urðu á mönnum, en einn var
fluttur á sjúkrahús Akraness.
Hann fékk að fara heim að lok-
inni skoðun. Tveir bílanna
skemmdust illa og voru dregnir
af slysstað með dráttarbifreið.
Jón Asgeir vill meiri-
hluta í Islandsbanka
Fjórir sem tengjast ORCA-hópnum verða í framboði til sjö manna bankaráðs íslandsbanka á að-
alfundi félagsins nk. mánudag. Hörð barátta milli tveggja fylkinga. Hlutur TM í bankanum gæti
ráðið úrslitum.
ÍSLANDSBANKI
Mikil barátta á sér nú stað um meirihluta í bankanum.
hafafundar bankans nk. mánu-
dag. Mikil barátta mun nú eiga
sér nú stað á bakvið tjöldin um
atkvæði stærri og smærri hlut-
hafa í bankanum. Eftir umfangs-
mikil kaup þeirra síðustu mánuði
er óljóst hversu stórum hlut Þor-
steinn Már Baldvinsson og Jón
Ásgeir ráða fyrir utan fimmt-
ungshlut ORCA.
Ekki mun vera ljóst hvort Jón
Ásgeir og Þorsteinn Már missa
völdin yfir hlut TM í bankanum.
Jón Ásgeir benti á að ef fyrir lægi
að Landsbankinn seldi hlutinn
áfram til fyrrum valdhafa í TM
hefði þurft að tilkynna það sl.
mánudag til Verðbréfaþings þar
sem um innherjaviðskipti yrði að
ræða. TM keypti hlutinn í desem-
ber sl. skömmu eftir að Jón Ás-
geir og Þorsteinn Már náðu völd-
um þar af fjölskyldu Sigurðar
heitins Einarssonar í Eyjum.
Þeir sem blaðið ræddi við úr
hinni fylkingu bankaráðsins töldu
ekki líkur á að þeir ORCA-hópn-
um tækist að ná meirihluta. Krist-
ján Ragnarsson, formaður banka-
ráðs, sagði að það myndi einfald-
lega skýrast hvernig mál skipuð-
ust. „Maður veit kannski minnst
um það hvað gerist eða hvort eitt-
hvað gerist. Vonandi verður allt í
sátt og samlyndi á aðalfundinum.“
mbh@frettabladid.is
valdabarátta „Bjarni Ármanns-
son og Ari Edwald [stjórnarfor-
maður Straums] hafa sýnt alveg
ótrúleg óheildindi,“ sagði Jón Ás-
geir Jóhannesson. Sala Fjárfest-
ingarfélagsins Straums á 11%
hlut í Tryggingamiðstöðinni, sem
sagt var frá í blaðinu í gær, hafi
meðal annars verið að klekkja á
honum. 4,3% hlutur TM í íslands-
banka er lykilatriði í baráttu um
meirihluta í bankaráðinu. í dag
situr Jón Ásgeir í minnihluta
ásamt Jóni Ólafssyni og Einari
Erni Jónssyni, einum Nóatúns-
bræðra.
Það er haft til marks um að
valdabarátta hafi legið að baki
viðskiptunum með bréfin í
Tryggingamiðstöðinni að sölu-
gengi var 67, sem er langt yfir
núverandi markaðsgengi.
Þeir sem blaðið ræddi við í
gær voru flestir á því að mikil
óvissa ríkti um niðurstöðu hlut-
FRAMBJODENDUR TIL SJO
MANNA BANKARÁÐS:
Úr gamla bankaráðinu:
Kristján Ragnarsson, formaður L(Ú
Vlglundur Þorsteinsson, BM Vallá
Einar Sveinsson, Sjóvá-Almennum
Helgi Magnússon, endurskoðandi
ORCA/FBA-menn:
Jón Ásgeir Jóhannsson, Baugi
Þorsteínn Már Baldvinsson, Samherja
Gunnar Jónsson, lögmaður
Hreggviður Jónsson, fyrrum forstjóri
Norðurljósa
Frumniðurstöður skýrslu um Flugleiðaþotu benda til sprungu í málmhólki hjólabúnaðar vegna tæringar:
Skýrslu um laskaða þotu enn ólokið
flugöryggi Lokaskýrsla Rann-
sóknarnefndar flugslysa í Dan-
mörku varðandi farþegaþotu
Flugleiða sem hjólastell brotnaði
undan á Kastrup flugvelli í 28.
júní í fyri-a mun liggja fyrir um
mitt þetta ár. Þetta hefur rann-
sóknarnefndin staðfest við Frétta-
blaðið.
Málmhólkur í hjólastellinu
brotnaði rétt áður en farþegaþot-
unni var ekið frá flugstöðinni
seint um kvöld. Áhöfnin sem taldi
átta menn hafði næstum lokið við
að koma 182 farþegum vélarinnar
um borð. Engin meiddist.
í frumskýrslu dönsku rann-
sóknarnefndarinnar fljótlega eft-
ir atvikið kom fram að rekja
mætti það til tæringar í málm-
hólki í hjólaabúnaði hægra megin
að aftan. Vegna tæringarinnar
hafði myndast 39 millimetra
sprunga í hólkinn. Hólkurinn
brotnaði síðan út frá sprungunni.
Við þetta lagðist hjólagafall vélar-
innar á flugbrautina en ekki á öx-
ulinn eins og vera ber.
Að sögn dönsku rannsóknar-
nefndarinnar var fi-amleiðendum
þotunnar, Boeing verksmiðjunum,
gert viðvart um frumniðurstöður
nefndarmanna. Niðurstöðurnar
hafi einnig verið kynntar dönsku
flugmálastjörninni og Flugleið-
um.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, segir að
farið hafi verið yfir hjólabúnað
annarra Flugleiðaþotna í kjölfar-
ið. Ekkert athugavert hafi fundist
en þó hafi verið skipt um málm-
hólkinn í einni annarri vél félags-
ins.
Guðjón segir að ekki hafi verið
rétt staðið að ryðvörn þegar hjóla-
búnaðurinn fór í viðhald hjá
Goodrich sem framleiðir hjóla-
búnað fyrir Boeing.
„Við vitum að danska rann-
hjólastell flugleiðaþotunnar
Eins og sést á myndinni til vinstri var mikil tæring i málmhólkinum sem brotnaði. Á hægri
myndinni sést hvernig hjólagafallinn hvílir á flugbrautinni en ekki á öxli hjólabúnaðarins.
sóknarnefndin hefur unnið að
rannsókn málsins með bandarísku
flugmálastjórninni og bæði
Boeing verksmiðjunum og
Goodrich og að gripið hefur verið
til ráðstafana til að koma í veg
fyrir að þetta endurtaki sig,“ seg-
ir Guðjón.
Eins og áður segir brast hjóla-
búnaðurinn rétt fyrir áætlað flug-
tak með 190 manns um borð. Ef
atvikið hefði átt sér stað í flugtaki
eða lendingu hefði getað orðið
geysilegt manntjón. Guðjón vill
hins vegar ekki svara því hvort
svo hefði getað farið: „Mér finnst
ekki við hæfi að vera með getgát-
ur um það nú frekar en þegar
þetta gerðist," segir hann.
gar@frettabladid.is