Fréttablaðið - 06.03.2002, Blaðsíða 8
~8
4=RÉTTA&tAÐlÐ"
6. mars 2002 MIÐVIKUDACUR
196 greinast með einhverfu á áratug:
Fjórfalt fleiri drengir
Bandarísk rannsókn:
Fleiri aftökur
í „þeldökkum“
ríkjum
vísindi Þau ríki í Bandaríkjunum
þar sem stórt hlutfall þeldökks
fólks býr eru frekar með dauðarefs-
ingu í lögum sínum heldur en ríki
sem hafa minna hlutfall þeldökkra.
Þetta kemur fram í rannsókn Ohio-
ríkisskólans í Bandaríkjunum.
Rannsóknin sýnir einnig að eftir því
sem meira bil er á milli ríkja og fá-
tækra, því meiri líkur eru á því að
dauðarefsing sé þar við lýði. Þau
ríki þar sem flestir ofbeldisglæpir
eru framdir og flest morð, eru hins
vegar síður líkleg til að hafa dauða-
refsingu í lögum. ■
einhverfa 196 einstaklingar grein-
dust með einhverfu eða skyldar
raskanir á árunum 1992 til 2001
samkvæmt skrá Greiningarstöðv-
ar að þvf er fram kemur í svari
Páls Péturssonar, félagsmálaráð-
herra, við fyrirspurn Jóhönnu
Sigurðardóttur, þingmanns Sam-
fylkingar. 54 greindust fyrstu
fimm árin en 142 síðari fimm
árin.
Af þeim sem greindust með
einhverfu eða skyldar raskanir á
tímabilinu greindust 100 með
dæmigerða einhverfu sem er al-
varlegasta stigið á einhverfurófi
sem segir til um alvarleika ein-
kennanna. 42 greindust með
ódæmigerða einhverfu og 15 með
Asperger-heilkenni. Þessi stig
einhverfu leiða oftast til fötlunar
til lífstíðar. 40 greindust með svo-
kallaðar aðrar gagntækar
þroskaraskanir. Einhverfan
greindist í börnum frá eins árs
aldri fram á efri unglingsár.
í svarinu kemur fram að
greindum tilfellum einhverfu
hafi fjölgað. Ekki eru til haldbær-
ar skýringar á fjölguninni en bent
á að skilgreiningar á einhverfu
hafi víkkað og þekking aukist. ■
PÁLL pétursson
Telur þörf á frekari skoðun á þjónustuþörf-
um einhverfra barna.
en stúlkur
Salamöndrur og eðlur:
„Heyra“ með
lungunum
visiNDi Ákveðnar tegundir af
salamöndrum og eðlum geta
„heyrt“ með lungunum. Þetta
kemur fram í niðurstöðum
nýrrar rannsóknar sem gerð
var af Ohio-ríkisháskólanum í
Bandaríkjunum.
Rannóknin byggir á eldri
rannsóknum sem sýnt hafa fram
á að eyrnalausir froskar og kört-
ur nota lungun í sér til að nema
hljóðbylgjur. Talið er að niður-
stöður rannsóknarinnar gefi til
kynna að ýmsar tegundir dýra
sem lifa á landi geti „heyrt“ í
gegnum lungun. ■
VIÐ SETNINGU BÚNAÐARÞINGS
Ari Teitsson, formaður B.l. flutti ávarp við
setningu Búnaðarþings. Hann talaði gegn
inngöngu í ESB og sagði stöðu þjóðarinnar
þar ámóta og Raufarhafnar er hér.
Bændur á
Búnaðarþingi 2002:
Hafa áhyggjur
af gæðastýringu
lanpbÚnaður Ari Teitsson, formað-
ur Bændasamtaka íslands, segir
Búnaðarþing 2002, sem sett var á
sunnudag, hafa farið vel af stað. f
gær fóru fram almennar umræður
og nefndavinna. „Það var mjög líf-
leg umræða," sagði Ari og bætti
við að á þinginu bæru einna hæst
almenn kjaramál, byggðamál auk
skipulagsmála og leiðbeininga-
þjónustu. Þá sagði hann að fram
hafi komið vissar áhyggjur af
stöðu gæðastýringar í sauðfjár-
rækt. „Það fylgir því ákveðin óvis-
sa ef samningurinn sem gerður
var gengur ekki eftir. Ég á nú
reyndar ekki von á að það gerist en
engu að síður er rætt þannig að
það sé hugsanleg óvissa sé um lög-
festingu á fyrirkomulagi gæða-
stýringar," sagði hann. Að sögn
Ara hafði í meðförum Alþingis á
málinu verið ákveðið að setja ætti
frekari reglur um gæðastýringuna
en það hafi ekki enn verið gert.
„Það er spurning hvaða staða kem-
ur upp ef samningurinn hefur ver-
ið samþykktur en þessi ákvæði
ekki fyrir hendi,“ sagði hann. ■
ísraelsmenn boða
„linnulaust stríð“
Talsmaður Israelsstjórnar segir engar samningaviðræður á dagskrá
fyrr en sigur hafi unnist. Ekkert lát á gagnkvæmum hefndaraðgerð-
um. Mubarak býður til viðræðna.
jerúsalem. ap Ekkert lát er á gagn-
kvæmum hefndaraðgerðum ísra;
elsmanna og Palestínumanna. í
fyrrinótt og gærmorgun féllu
fimm ísraelsmenn og tveir Palest-
ínskir árásarmenn í samtals þrem-
ur árásum á ísraelsmenn. ísraels-
menn brugðust við með því að gera
nokkrar loftárásir á palestínskar
lögreglustöðvar í bæjunum Ram-
alla og Nablus á Vesturbakkanum.
Jasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, slapp naumlega undan
einni sprengjunni. Einnig var
sprengjum varpað á bækistöðvar
öryggissveita Palestínumanna í
bænum Khan Junis á Gazaströnd.
Öryggisráð ísraels kom saman í
gærmorgun til þess að ákveða
hver viðbrögð hersins yrðu.
Skömmu síðar hófust árásir á
palestínsku lögregluna. Sharon var
sagður hafa lagt til á fundinum að
hringur skriðdreka um skrifstofur
Jassers Arafat í Ramalla verði
þrengdur á ný.
„Við munum heyja linnulaust
stríð gegn hryðjuverkastarfsemi,
vegna þess að fyrir okkur er það
spurning um að lifa af,“ sagði Avi
Pazner, talsmaður ríkisstjórnar
ísraels. Hann bætti því við að
samningaviðræður við Palestínu-
menn geti ekki hafist að nýju fyrr
en ísrael hefur unnið sigur í því
ORÐ Á MÓTI VOPNUM
(sraelskur arabi reynir að koma í veg fyrir að ísraelskir landamæraverðir skjóti táragasi á
hóp palestínskra ungmenna I hverfinu Tzur Baher í austurhluta Jerúsalem. Ungmennin
voru að mótmæla eftir að sprengja sprakk í skóla þar í hverfinu.
stríði. Ariel Sharon hefur sagt
fréttamönnum að nauðsynlegt sé
að valda Palestínumönnum þungu
höggi til þess að þeim skiljist að
ísrael muni aldrei gefast upp fyrir
ofbeldi.
í gær sprakk einnig sprengja í
framhaldsskóla í arabahverfinu
Tzur Baher. Sjö nemendur og einn
kennari særðust. ísraelsk samtök
sem nefndu sig „Hefndarengla
barnanna", lýstu ábyrgð sinni á
þeirri sprengjuárás. Svo virðist
sem þetta ódæði hafi átt að vera
hefnd fyrir börnin fimm sem fór-
ust á laugardaginn í Jerúsalem.
Hosni Mubarak Egyptalands-
forseti hélt til Bandaríkjanna á
mánudaginn. Þar bauðst hann til
þess að halda í Egyptalandi fund
með ísraelskum og palestínskum
ráðamönnum ásamt Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
„Það er athyglisverð hugmynd,"
sagði Powell í gær. Hvort af slík-
um fundi verði sé þó undir þeim
Arafat og Sharon komið. ■
Þórólfur Gíslason:
Hættir í
bankaráði
viðskipti Þórólfur Gíslason, kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Skagfirð-
inga, gaf ekki kost á sér til áfram-
haldandi setu í bankaráði Búnað-
arbanka íslands. Hann hefur átt
þar sæti frá því í september 1997
þegar bankanum var breytt í
hlutafélag. „Það var kominn tími
á þetta. Eg ætlaði ekkert að vera
æviráðinn þarna,“ sagði hann.
„Þetta var held ég eina breyting-
in. Ríkisstjórnarfulltrúunum,
fækkaði um einn og inn kom nýr
fyrir fjárfesta enda eiga þeir
tæpan helming í bankanum. Það
er nú búið að skipta um allt liðið
þarna síðan ég byrjaði," bætti
hann við. ■
| INNLENT
Tal hf. varð hlutskarpast í útboði
á símaþjónustu íslandsbanka.
Þórólfur Arnason, forstjóri Tals,
vildi ekkert gefa upp um heildar-
verðmæti en sagði samninginn
vera þann stærsta hjá fyrirtækinu
hingað til. Önnur tilboð voru að
hans sögn verulega hærri. Bankinn
keypti áður þjónustu af Símanum.
Þjónustan felur m.a. í sér að starfs-
menn bankans geta talað ókeypis
sín á milli í gegnum farsíma.
Þegar hafa borist 5 athugasemdir
og 1 undirskriftalisti vegna að-
alskipulags Reykjavíkur 2001 til
2024. Frestur til að skila inn at-
hugasemdum rennur út í dag.
Borist hafa athugasemdir frá for-
eldrafélagi Hvassaleitisskóla,
Skógræktarfélagi íslands, Fjáreig-
endafélagi Reykjavíkur, Bolla Héð-
inssyni og Hákoni Jóhannssyni.
Einn undirskriftalisti hefur borist
og er hann vegna Reykjavíkurflug-
vallar.
Vid leggjum okkar af mörkum til ad halda veröbólgunni
níöri og veitum 4% afslátt af völdum bílum.
Renault Laguna II
fólksbm
23.449
Bílalán, albagun á mán.
Rekstrarleiga: 39.299
Verðáður 2.090.000
Verðnú 2.006.000
Renault Scénic
fólksbíll
23.008
Bílalán.afborgunámán.
Rekstrarleiga: 38.627
Verðáður 2.050.000
Verðnú 1.968.000
i Renault Mégane Beríine
fólksbíll
18.332
Bílalán.afborgunámán.
Rekstrar1eiga:31.731
Verðáður 1.630.000
Verðnú 1.565.000
Grjótháls 1 • Sími 575 1200
Söludeild 575 1220 • www.bt.is
Rekstrarleigan er til 36 mán., m.v. við 20.000 km á ári og erlemia myntkörfu. Rekstrarieiga er aðeins i boði bl rekslraraðila (fyrirtekja).
Bílalán miðast við 30% útborgun og 84 mán. samning. AJIar iölur eru með vsk. Tilboðið gildir ut mars.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins:
Yfir 400 millj. lán
vegna nýbyggingar
FRAMKVÆMPIR Stjórn Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins (SHS) hef-
ur sent aðildarsveitarfélögum
slökkviliðsins bréf, þar sem óskað
er samþykkis fýrir 423 milljóna
króna lántöku. í lok febrúar sam-
þykkti stjórn SHS að ganga til
samninga við Keflavíkurverktaka
vegna stækkunar slökkvistöðvar-
innar í Skógarhlíð. Tilboð Kefla-
víkurverktaka hljóðaði upp á 328
milljónir króna og á lánið að stan-
da straum af framkvæmdakostn-
aðinum.
Stjórn SHS er skipuð fram-
kvæmdastjórum aðildarsveitarfé-
laganna sjö og gegnir borgarstjóri
formennsku. Stækkun slökkvi-
stöðvarinnar er háð því að sveit-
arfélögin veiti heimild til lántök-
unnar. í bréfi stjórnarinnar til
sveitarfélaganna segir að lántak-
an muni ekki hafa áhrif á framlög
sveitarfélaganna til SHS. Engin
breyting verði á þriggja ára fjár-
hags- og starfsáætlun SHS vegna
SHS ÓSKAR EFTIR SAMÞYKKT LANS
Stækkun slökkvistöðvarinnar er háð heim-
ild sveitarfélaga til lántökunnar.
framkvæmdanna.
Auk slökkviliðsins er Neyðar-
línan og fjarskiptamiðstöð lög-
reglunnar staðsett í Skógarhlíð.
Eftir stækkunina munu Almanna-
varnir ríkisins og Slysavarnarfé-
lagið Landsbjörg flytja starfsemi
sína þangað. Sveitarfélögin sem
standa að SHS eru Reykjavík,
Kópavogur, Hafnarfjörður,
Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarn-
arnes og Bessastaðahreppur. ■