Fréttablaðið - 06.03.2002, Síða 14

Fréttablaðið - 06.03.2002, Síða 14
FRÉTTABLAÐIÐ Stoke Gity: Nýr samningur við Iwelumo fótbolti Framherjinn Chris Iwelu- mo skrifaði undir tveggja ára samning við Stoke City um helgina. Iwelumo er 23 ára gamall Dani. Hann kom til Stoke frá danska fé- laginu Árósum fyrir rúmar þrjár og hálfa milljónir króna fyrir tveimur árum. Samningur Iwelmo við Stoke hefði runnið út í sumar. Iwelumo skoraði 11. mark sitt fyrir Stoke á leiktíðinni í 3-1 sigri gegn Brighton á föstudaginn. Leik- urinn fór fram á heimavelli Stoke, Britannia leikvanginum. Guðjón Þórðarson var hæstánægður eftir sigurinn, sem tryggði liðinu þriðja sæti deildarinnar, og varaði önnur lið við því að Stoke væri að eflast. ■ FÓTBOLTI Arsenal skaust á topp úrvarlsdeildarinnar með 1-0 sigri á Derby í gærkvöldi. Robert Pires skoraði. Blackburn sigraði Aston Villa 3-0. Jason McAteer tryggði Sunderland 1-0 sigur gegn Guðna Bergssyni og félögum í Bolton. I 2. deild skoraði Bjarni Guðjóns- son fyrsta markið í 1-3 sigri Stoke á Colchester. Deon Burton skoraði tvö mörk fyrir Stoke, sem er enn í þriðja sæti. |ÍÞBÓTTIR í PAC| 17.50 Sýn Heklusport 19.00 Sýn Golf - konungleg skemmtun 19.50 Sýn Beín útsending frá leik Liverpool og Newcastle. 20.00 Handbolti Sex leikir í ESSO-deild karla. Stjarnan, sem er í 13. sæti deildarinnar, tekur á móti HK, sem er í 12. sæti, að Ásgarði. Grótta KR mætir Fram í Fram- húsinu. Liðin eru bæði með 18 stig í 7. og 8. sæti. Topplið Hauka mætir ÍR, sem er í 3. sæti, að Ásvöllum. Valur fær FH i heimsókn i Valsheimilið. Valur er í 2. sæti en FH í 10. Aftureldi ng flýgur til Vestmannaeyja og mætir ÍBV. Vikingur tekur á móti Akureyringunum i Þór i Vikinni. 22.15 RÚV Handboltakvöld 22.30 Sýn Heklusport 14 6. mars 2002 MIÐVIKUDAGUR Enska úrvalsdeildin: Sex leikir í kvöld HERMANN í BARÁTTU Ipswich tapaði 1-3 fyrir Southampton um helgina. Hér eru Martijn Reuser og Hermann Hreiðarsson að kljást við Kevin Davies hjá Southampton. fótbolti í kvöld fara fram sex leik- ir í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea reynir að tryggja sér eitt af fjórum efstu sætum deildarinnar og kom- ast í Meistaradeild. Það tekur á móti Fulham. Chelsea er í sjötta sæti með 44 stig. Fulham er í tí- unda sæti með 35 stig. Leeds United tekur á móti Ipswich. Gengi Leeds, sem er í fimmta sæti með 45 stig, hefur ver- ið brösótt að undanförnu. Liðið vann síðast deildarleik á nýársdag og margir eru ósáttir við þjálfar- ann. Ipswich er í fimmta neðsta sæti og þarf að vanda sig til að falla ekki niður um deild. Newcastle fer í heimsókn til Liverpool, sem er í þriðja sæti með 56 stig. Newcastle er fast á hæla þess með 55 stig. Líklegt þykir að Michael Owen komi til leiks á ný. Steven Gerrard er enn frá vegna meiðsla á nára. Newcastle vantar framherjann Craig Bellamy. Manchester United tekur á móti Tottenham. Fyrirliði United, Roy Keane, sem var meiddur á hné, og Frakkinn Laurent Blanc, sem var með flensu, snúa aftur. Veron eða Scholes þurfa að öllum líkindum að víkja fyrir Keane. í liði Tottenham eru Steffen Iversen og Darren Anderton meiddir. Middlesbrough fer í heimsókn til Southampton. Middlesbrough vann Leicester City á dögunum og freistar þess að komast á sigurflug. James Beattie hjá Southampton er meiddur og óvíst hvort Marian Pa- hars jafni sig í nára. Að lokum tek- ur West Ham á móti Everton. Mið- herjinn John Moncur hjá West Ham gæti jafnað sig fyrir leikinn og Freddie Kanoute er hress eftir veikindi. Búist er við því að Paul Gascoigne verði ekki í liði Everton en David Ginola er líklegur. ■ Fj ár hagskr epp a í Formúlunni Mörg liða Formúlu 1 búa við Qárhagslegt óöryggi. Onefndur aðili kaup- ir Prost liðið. Ný keppni stofnuð til höfuðs Formúlunni 2008. BERNIE ECCLESTONE Einvaldur Formúlu 1. Mörgum finnst að hann eigi að selja bllasmiðum keppnina. formúla i Núverandi keppnis- tímabil er hálfgerður prófsteinn fyrir Formúlu 1. Efasemdir eru um hvort helsta kappakstur- skeppni heims getur haldið áfram í núverandi mynd. Undanfarna mánuði hafa komið upp brestir í fyrirkomulaginu. Þáttakendur treysta mikið á fjármagn stuðn- ingsaðila, sem hefur m.a. minnk- að vegna niðursveiflu á mörkuð- um, sérstaklega frá tækniiðnaðin- um. Þá mega tóbaksframleiðend- ur ekki auglýsa í kappakstrinum frá 2006. í síðustu kappökstrum síðasta árs byrjuðu mörg liðanna tólf að lýsa yfir áhyggjum. Þær voru staðfestar þegar Prost Grand Prix lýsti yfir gjaldþroti eftir langa leit að kaupendum og stuðn- ingsaðilum. Það kom flatt upp á aðra eigendur þegar kynnt var nú fyrir helgi að þrotabú Prost hafði verið selt ónefndum aðila, sem ætlaði að taka þátt í keppninni. Þetta varð til þess að mat á verð- mæti annarra liða minnkaði. Óá- nægja er með að aðilinn slóst í hóp fremstu kappakstursliða heims fyrir slikk. Hinsvegar neita ráðamenn að kaupunum fylgi keppnisréttur. Talið var að aðilinn væri Volkswagen en hann er að öllum líkindum Phoenix Fin- ance, fyrirtæki í eigu Charles Nickersen, góðvinar Tom Walkinshaw eiganda Arrows liðs- ins. „Formúla 1 er í efnahagslegri lægð,“ sagði Eddie Jordan nýlega. „íþróttin er of dýr. Það vantar raunsæi og róttækar breytingar." Á meðan nýju liði Toyota er tekið opnum örmum eru aðrir bílasmið- ir í kröggum. Ford keypti lið fyr- ir rúma 15 milljarða króna árið 1999. Það keppir undir Jagúar nafninu en er sagt leita að út- gönguleið úr keppninni. Renault keypti Benetton liðið á 12 millj- arða króna 2000. Því gengur ein- nig illa og er risminna en áður. Kappaksturshaldarar treysta á að Michael Schumacher dragi að áhorfendur. Flestar brautir auka við áhorfendastúkur til að fá meiri tekjur. Kostnaðurinn við keppnirnar og gjöldin til eiganda Formúlu 1, Bernie Ecclestone, sí- aukast. Sjónvarpsáhorfið í fyrra var gífurlegt en það getur einnig komið niðri á keppninni. Samn- ingar vegna sjónvarpsréttar hafa tekið nýja stefnu. Kirch Holding keypti 75 prósent af fyrirtækinu sem á réttinn. Þetta var ekki góð ákvörðun. í kjölfarið fór fyrrum eigandi fyrirtækisins á hausinn og Kirch Holdings er í miklum vandræðum. „Kaupin á réttinum að Formúlunni var hátindur ferils míns,“ segir Leo Kirch. „Það væri sárt að gefa hann upp á bátinn." Bílasmiðir eru ósáttir við Kirch og vilja ekki vinna með honum. Þ.á.m. er Fiat, sem á Ferr- ari liðið. Fiat er atkvæðamest í stofnun fyrirtækis, sem kynnir til sögunnar nýja kappakstur- skeppni árið 2008. Þá rennur nú- verandi samningur bílaframleið- anda við Formúlu út. Nýja keppn- in á að fara í samkeppni við For- múlu 1. Þó sjónvarpsrétturinn sé ÖKUMENNIRNIR Allir ökumenn Formúlu 1 stilltu sér prúðir upp fyrir Ijósmyndara áður en kappakstur- inn hófst með miklum látum í Melbourne á sunnudaginn. mikils virði er sjálft vörumerkið sagt verðlaust. Samkvæmt ný- legri könnun er Ferrari nafnið hinsvegar eitt af 15 þekktustu í íþróttaheiminum. Margir vilja koma í veg fyrir þessa nýju keppni. Kirch stakk upp á því að bílaframleiðendur myndu kaupa Formúlu 1 af Ecclestone. Verðið þykir of hátt. „Ef það væri lækkað gætu við- ræður kannski hafist," segir Jurgen Hubbert, stjórnarmaður hjá DaimlerChrysler og yfirmað- ur Mercedes Benz, sem á 40 pró- sent af McLaren liðinu. ■ Sigur Ferrari ekki merki um yfirburði: Keppnrn verður jafnari formula i Michael Schumacher segir að keppinautar Ferrari eigi eftir að veita miklu harðari kepp- ni í kappakstrinum í Malasíu eftir tvær vikur. Heimsmeistarinn hafði tögl og hagldir í Ástralíu- kappakstrinum á sunnudaginn, vann fyrsta kappakstur ársins og þann 54. á ferlinum. Hann býst ekki við því að Ferrari haldi yfir- burðunum, sem þeir höfðu alla helgina í Melbourne. Michael og liðsfélagi hans Rubens Barrichello kenndu hvorum öðr- um um fjöldaáreksturinn í byrjun keppninnar. í gær voru þeir báðir sýknaðir af öllum ásökunum um að hafa valdið honum. „Við vorum líka mjög góðir hér í fyrra," sagði Schumacher eftir kappaksturinn. „Ég býst við því að nú verði keppnin jafnari. Að- stæður geta breyst fljótlega. Dag- urinn í dag er ekki endilega vísir að því sem koma skal.“ Ferrari græddi á því að vera á bílnum frá því í fyrra í Ástralíu. Þeir þekkja hann vel en hin liðin voru að rembast við að finna góða sam- setning á sína nýju bíla. Einnig hjálpaði svalt veður Bridgestone dekkjum Ferrari en kom sér illa fyrir Michelin dekk McLaren og Williams liðanna. McLaren skaut sig í fótinn þriðja árið í röð með því að ganga illa í fyrstu keppni ársins. David Coulthard hafði forystu um stund SCHUMACHER FAGNAÐ Starfsmenn Ferrari fögnuðu Michael Schumacher þegar hann kom fyrstur í mark á sunnu- daginn. Hann býst ekki við því að Ferrari haldi yfirburðum helgarinnar í næstu keppnum. en lenti í vandræðum með gír- kassann. Coulthard var þungur á brún eftir kappaksturinn. „Það er erfitt að sjá ljósan blett á svona degi.“ Juan Pablo Montoya, liðsfé- lagi hans hjá Williams, er hinsveg- ar vongóður um framhaldið: „Ferrari var besta liðið. Það var ljóst frá föstudeginum. Aðstæður voru ekki góðar fyrir okkar dekk. Vonandi verður heitara í Malasíu. Við þurfum að vinna aðeins í bíln- um. Þegar hann verður góður er hann jafn hraðskreiður og Mich- ael,“ sagði Montoya, sem lenti í öðru sæti í Ástralíu. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.