Fréttablaðið - 06.03.2002, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 6. mars 2002
2J
Hákon og Mette-Marit:
Til London í nám
kóngafólk Norska konungshöll-
inn tilkynnti á mánudaginn að
krónprins og -prinsessa Noregs
ætla að flytja til London til að
halda áfram námi. Hákon krón-
prins og kona hans Mette-Marit,
sem eru bæði 28 ára, ætla að fly-
tja eftir hálft ár og vera í
London í eitt ár.
Hákon, sem er sonur Harald-
ar V Noregskonungs og Sonju
drottningar og erfingi krúnunn-
ar, giftist Mette-Marit í ágúst
síðastliðnum. Hann ætlar að
læra við London School of
Economics and Political Science
og klára mastersgráðu í félags-
vísindum. Mette-Marit ætlar
einnig að snúa aftur til náms en
ekki hefur verið tilkynnt hvaða
grein verður fyrir valinu. Kon-
ungshöllin segir að opinberum
skyldum nýgifta parsins á veg-
um hennar verði fækkað á með-
an þau eru erlendis. ■
NÝGIFT Á SVÖLUNUM
Hákon prins og Mette-Marit
prinsessa veifa fjöldanum af
svölum konungshallarinnar í
Osló eftir brúðkaup þeirra í
fyrra. Þau ætla að flytja til
London í haust.
Fiðla og flauta í Norræna
húsinu:
Verk eftir
Schumann
og Brahms
tónleikar Á háskólatónleikunum í
Norræna húsinu í dag leika Auður
Hafsteinsdóttir, fiðluleikari og
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó-
leikari, saman verk eftir
Schumann og Brahms. Tónleik-
arnir hefjast kl. 12.30 og taka um
það bil hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er kr. 500 en
ókeypis er fyrir handhafa stúd-
entaskírteina. Háskólatónleikar
eru haldnir á hálfsmánaðafresti
og eru ævinlega vel sóttir. ■
Finnskir tvíburar dóu í
bílslysum í gær:
Urðu báðir
r
fyrir flutn-
ingabílum
helsinki ap Sjötugir tvíburabræð-
ur í Finnlandi létust með rúmlega
tveggja klukkustunda millibili í
samskonar slysum í gærmorgun.
Flutningabílar óku yfir bræðurna
þar sem þeir voru á hjólum sínum
á hálum vegi nærri bænum Raa-
he, um 600 kílómetra norður af
Helsinki. Fyrra slysið varð laust
fyrir klukkan hálfátta í gærmorg-
un, en seinna slysið tveimur
klukkustundum og 17 mínútum
síðar, nánast á sama stað og hið
fyrra. Lögregla sagði útilokað að
bróðirinn sem lenti í seinna slys-
inu hafi vitað að tvíburabróðir
hans lést á sama stað fyrr um
morguninn þar sem ekki hafði
náðst að láta aðstandendur vita. ■
VIÐ PICCADILLY CIRCUS
Styttan af ástarguðinum Eros stendur við
hlið skilaboða Yoko Ono á Piccadilly Circus
torgi I London. Hún vill minna fólk á að
heimurinn þarfnast friðar.
Auglýsingaspjald á
Piccadilly Circus:
Skilaboð frá
Yoko Ono
Yoko Ono leigði nýlega auglýs-
ingaspjald á Picadilly Circus torg-
inu í London til að senda friðarboð
tii þeirra þúsunda manna, sem
fara um það á hverjum degi.
Spjaldið er einfalt. Þar stendur
aðeins ein setning úr laginu
„Imagine" eftir heitinn eiginmann
hennar, John Lennon: „Imagine all
the people living life in peace.“
„Eftir hina hræðilegu atburði
11. september finnst mér vera
mjög mikilvægur tími að minna
fólk á þessi skilaboð. Heimurinn
þarfnast friðar," sagði Yoko Ono.
Hún er einnig búin að birta svipuð
auglýsingaspjöld á Times Square í
New York, þar sem hún býr, og í
Tókýó. Hún keypti heilsíðu aug-
lýsingu í The New York Times
skömmu eftir hryðjuverkaárásina
þar sem hún birti sömu skilaboð. í
kringum jólin leigði hún auglýs-
ingaspjöld í New York til að óska
fólki gleðilegra jóla. John Lennon
var myrtur af aðdáenda fyrir utan
íbúð sína á Manhattan eyju í des-
ember 1980. ■
vrt.is
Efi STÓRSKEMHTILEGUR VIT-FLÖKKUR
SEM INNIHELDUR M.A » BRANDÁRA OG
KYNLÍ FSRÁÐGJÖF, ^EGAR PÚ SÆKIR RÉR
-VALMYNDINA TEKURÐU SJÁLFKRA FA
bÁTT t LEÍK; NÚMERt Ð l T T FER t FOTT
06 EF PÚ HEFUR HEPPNINA MED ÞÉR
NÝJA O G GLÆSiLEGA TEGUND