Fréttablaðið - 11.04.2002, Qupperneq 1
TÓNLIST
Lánsamur
að tilheyra
íslensku þjóðinni
bls 16
KVIKIVIYNPIR
Ást
í móðu
bls 14
SVIÐSLJÓS
Ottast
eiginmann
Madonnu
bls 15
Jarðgerðartankur
Minna sorp!
FUJTNINGATÆKNI
Súöarvogi 2, Reykjavík
Sími 535 2535
FRETTABLAÐIÐ
;- ,
69. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 11. apríl 2002
Stytting framhalds-
skólanáms
fundur Ungir jafn-
aðarmenn halda
fund í Húsi máiar-
ans klukkan 20.30.
Á fundinum verður
rætt um styttingu
framhaldsskóla-
náms úr 4 árum í 3
og brottfall nemenda úr námi. Á
meðal framsögumanna eru Svan-
fríður Jónasdóttir alþingismaður
og Runólfur Ágústsson, rektor Há-
skólans á Bifröst.
Vekja athygli
á parkinsonveiki
opið hús Um árabil hefur 11. apríl
verið notaður til að vekja athygli á
málefnum parkinsonveikra og að-
standenda þeirra. í þessu skyni
bjóða Parkinsonsamtökin á íslandi
félögum og velunnurum samtak-
anna á opið hús í húsakynnum
samtakanna í Hátúni 10 B, 9. hæð.
Húsið verður opið frá klukkan 13
til 17.
IVEÐRiÐ i' DAC
REYKJAVIK Hæg norðlæg eða
breytileg átt og léttskýjað
í dag. Hiti 0 til 4 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
fsafjörður © 5-8 tirkomulltið Q 5
Akureyri 3 5-8 Úrkomulítið Q 3
Egilsstaðir © 5-8 Él ©3
Vestmannaeyjar o 5-8 Léttskýjað Q 2
Úrslit í körfu
körfubolti Fyrsti leikurinn í úrslita-
keppni Keflavíkur og Njarðvíkur
hefst klukkan 20 í íþróttahúsinu í
Keflavík. Það lið sem fyrr sigrar
þrjá leiki verður íslandsmeistari.
Undanúrslit í kvöld
HANPBOLTI Fyrstu
leikirnir í undanúr-
slitum í handbolta
kvenna hefjast
klukkan 20. íslands-
meistarar Hauka
taka á móti Víking-
um á Ásvöllum og
Stjarnan tekur á móti Gróttu-KR.
í KVÖLDIÐ í KVÖLDi
Tónlist 16 Bíó 14
Leikhús 16 (þróttir 12
Myndlist 16 Sjónvarp 20
Skemmtanir 16 Lltvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRETTABLAÐIÐ
Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára
íbúar höfuð- 65-8%
borgarsvæð-
inu í dag?
Meðallestur 25 til 49
ára á fimmtudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Callup frá
október 2001
70.000
65% ;ó >s
MEÐALLESTUR FULKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA A
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÓBER 2001.
F ékk 920 morfíntöflur
hjá lækni á 95 dögum
Geðlæknir í Reykjavík lét morfínfíkli í té átján lyfseðla fyrir contalgíni á þremur mánuðum. Jafn-
gildir 9,6 töflum á dag. Jafnvirði 1,8 milljóna króna á götunni.
eiturlyf Geðlæknir í Reykjavík lét
einum morfínfíkli í té 18 lyfseðla
___fyrir 920 60 mg
Skammturinn, niorfíntöflum af
sem læknirinn ee[ölnnl contalgin
' > að f,k| inn embe,, m9 m ]0
taeki 9 6tof|ur, mars 2000. Frétta-
eða 516 m8 a blaðið hefur undir
dag a þessu 95 höndum útskriftir
daga timabili. frd tveimur apó-
tekum sem stað-
festa þetta. Tvær 60 mg morfín-
töflur geta verið hættulegar
venjulegum manni en fíklar bygg-
ja upp mikið þol fyrir efninu.
Skammturinn, sem læknirinn
ávísaði, jafngildir því að fíkillinn
tæki 9,6 töflur, eða 576 mg, á dag á
þessu 95 daga tímabili. Verðmæti
efnisins í sölu á götunni nemur 2
þúsund krónum á hverja töflu, eða
alls um 1,8 milljónum króna.
Fíkillinn, sem um ræðir, er
hættur neyslu. Hann segist hafa
greitt um 3.000 krónur fyrir hvern
lyfseðil, eða jafnmikið og fyrir sér-
fræðiviðtal. Hann segist hafa selt
hluta efnanna eða skipt á þeim og
öðrum efnum. í apótekunum sem
hann skipti mest við fékk hann
ókeypis sprautur og nálar. Fyrir
hvern lyfjaskammt greiddi hann
2.765 kr. í öðru apótekinu en 3.686
kr í hinu. Hann fékk oftast 50 töfl-
ur í einu, en einu sinni 75 töflur og
einu sinni 125 töflur. Nokkrum
sinnum voru tveir lyfseðlar, hvor
upp á 50 morfíntöflur, leystir út
sama dag. í nokkur
skipti leið dagur milli þess að fíkill-
inn kæmi í apótekið með lyfseðil
upp á 50 60 mg morfíntöflur. Auk
morfínlyfseðlanna átján fékk hann
á sama tímabili frá sama geðlækni
fjórtán lyfseðla fyrir róandi lyfj-
unum mógadon og diazepam. Þau
segist hann hafa selt öðrum fíkl-
um. Fíkillinn fyrrverandi segist
um langt skeið hafa verið í miklum
afbrotum tii að fjármagna neyslu
sína. Hann braut ekki af sér á því
tímabili sem hann gat gengið að
sterkustu lyfjum sem völ var á hjá
læknum. Þar fékk hann efni til eig-
in neyslu og að auki tekjur af því
að selja öðrum fíklum afganginn af
læknadópinu.
petur@frettabiadid.is
“l'
-’ýr
í
Á
:
BRUNI Á ÁSVALLACÖTU Miklár skemmdir urðu á íbúð á jarðhæð við Ásvallagötu 10. Enginn var í ibúðinni. Þegar slökkvilið kom
é staðinn var talsverður eldur í barnaherbergi. Nánast allt sem var inni eyðilagðist og rúður sprungu vegna hita. Reykræstingu var lokið
um kvöldmatarleytið. Nánar bls. 2
Samningar undirritaðir:
Sex milljarða
tónlistarhús
við höfnina
reykjavík Fulltrúar Reykjavíkur-
borgar og ríkisins munu í dag
undirrita samning um fjármögn-
un og kostnaðarskiptingu vegna
nýs tónlistar- og ráðstefnuhúss
ásamt hóteli við Reykjavíkurhöfn.
Reiknað er með að húsið muni
kosta ríki og borg um 6 milljarða
króna.
Anna Kristín Ólafsdóttir, að-
stoðarkona borgarstjóra, sagði að
fjármálaráðherra, menntamála-
ráðherra og samgönguráðherra
myndu skrifa undir fyrir hönd
ríkisins en borgarstjóri fyrir
hönd Reykjavíkurborgar. Húsið
mun rísa við Miðbakka á því
svæði þar sem Faxaskáli er. Úr-
slit í samkeppni um skipulag
svæðisins voru kynnt í janúar og
var tillaga íslensks arkitekts og
þriggja danskra valin í fyrsta
sæti.
Skrifað verður undir samning-
inn klukkan 9.30 í Háskólabíói og
verður framkvæmdin þá kynnt. ■
Forstjóri VÞÍ um Norðurljós:
IfótboltiT
Verða að fullnægja upplýsinga-
kröfum sem við setjum
Real Madríd sló
meistarana út
markaður „Við erum að sjálfsögðu
að skoða þetta,“ segir Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Verðbréfaþings,
um drátt Norðurljósa á að birta
rekstraruppgjör sitt á þinginu.
Norðurljós hafa skráð og selt
skuldabréf á þinginu fyrir 350
milljónir króna. Samkvæmt regl-
um ber félaginu að birta uppgjör
að minnsta kosti tvisvar á ári. Það
hefur félagið ekki gert síðan 17.
september á síðasta ári. Það hefur
því brotið reglur þingsins um upp-
lýsingagjöf. Verðbréfaþing hefur
farið fram á skýringar á þessu.
„Við lítum svo á, þegar skulda-
bréf af þessu tagi fara á markað-
inn, að menn gangist undir reglur
þingsins og verði að fullnægja
þeim upplýsingakröfum sem við
setjum,“ segir Þórður.
„Það eru fleiri dæmi um að
dregist hefur að veita upplýsingar
af þessu tagi,“ segir Þórður. Hann
segir það ekki síst eiga við um
sveitarfélög. Þó gildi önnur sjónar-
mið gagnvart þeim þar sem
ákveðnar sérreglur gildi um bók-
hald þeirra.
Þórður segir VÞÍ setjá strang-
ari reglur um upplýsingagjöf en
löggjöfin og reglugerð segja fyrir
um. „Við erum að mynda okkur
skoðun á því hversu hart við eig-
um að ganga svo upplýsingakröf-
um sé að fullu fullnægt." ■