Fréttablaðið - 11.04.2002, Page 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
11. apríl 2002 FIIVIIVITUDAGUR
Breskir þingmenn þjarma að Tony Blair:
„Heimurinn væri betri án Saddams"
TONY BLAIR
OG GEORGE
W. BUSH
Þeir eru sam-
mála um að
þjarma þurfi að
Saddam
Hussein. Breskir
þingmenn létu í
Ijós efasemdir
um það við for-
sætisráðherra
sinn í gær.
SVONA ERUM VIÐ
ÍSLAND BORCAR MEST
MEÐ LANDBÚNAÐI
Opinber framleiðslustuðningur (PSE) til
hvers bónda var hátt I þrjár milljónir króna
á ári hér á landi á árunum 1997-1999, á
verðlagi 2002. Stuðningurinn er meiri en í
öðrum löndum OECD, sem tölur eru til
um. Stuðningurinn felst annars vegar í
beinum framlögum úr rfkissjóði og hins
vegar innflutningshöftum.
I ÞUS. KRONA A VERÐLAGI 2002
fsland
2.B34 _______________________ |
Sviss
2.801_______________________________|
Noregur
2.735______________________________j
Japan
1.977____________________|
Bandaríkin
1.499 _________|
Meðalt. OECD
906__________j
Kanada
692 |
Heimild: Samtök atvinnulífsins
london, ap Breskir þingmenn úr öll-
um þingflokkum gerðu harða hríð
að Tony Blair forsætisráðherra í
gær. Gagnrýndu þeir harðlega
áform hans um að taka þátt með
Bandaríkjunum í árásum á írak.
Blair svaraði því til að Bretar
myndu ekki láta etja sér í neinum
asa út í hernað gegn írak. Hins veg-
ar styddi hann heilshugar áform
Bandaríkjanna um að „skipta um
stjórn" í Irak.
Hann segir að tími sé ekki kom-
inn til þess að grípa til hernaðarað-
gerða enn sem komið er. Hins veg-
ar sé óhjákvæmilegt að grípa til
„hófsamra" og „skynsamlegra" að-
gerða gegn Saddam Hussein. Gjör-
eyðingarvopn í höndum hans væru
áhyggjuefni, sem taka þyrfti alvar-
lega.
„Það leikur ekki minnsti vafi á
því að heimurinn -væri betri án
Saddams," sagði Blair. Um það bil
150 þingmenn hafa undirritað yfir-
lýsingu um að þeim sé „afar órótt“
yegna hugsanlegs hernaðar gegn
írak. Flestir eru þessir þingmenn
flokksbræður forsætisráðherrans í
Verkamannaflokknum. ■
Borgarbyggðarlistinn:
Algjör end-
urnýjun
framboð Enginn þeirra fjögurra
einstaklinga sem setið hafa í bæjar-
stjórn Borgarbyggðar fyrir Borgar-
byggðarlistann gefur kost á sér til
endurkjörs í sveitarstjórnarkosn-
ingunum í maí. Listinn er borinn
fram af óháðum kjósendum, Sam-
fylkingunni og Vinstrihreyfingunni
- grænu framboði.
Finnbogi Rögnvaldsson, jarð-
fræðingur, leiðir listann. Ásþór
Ragnarsson, sálfræðingur, er í 2.
sæti, Sóley Sigþórsdóttir því þriðja,
Brynjólfur Guðmundsson, bóndi, er
í fjórða sæti og fimmta sætið skipar
Guðrún Vala Elísdóttir, mannfræð-
ingur. ■
Friðarvonir glæðast
á Sri Lanka:
Tamílar vilja
enn sjálfstæði
kilinochchi, ap Tamílsku tígrarnir,
eins og uppreisnarher tamíla á Sri
Lanka nefnir sig, telja ekki for-
~~jjj^~ sendur til þess að
JBBL gefa upp á bátinn
kröfu sína um
sjálfstætt ríki ta-
míla á norður-
hluta eyjunnar.
Samt segjast þeir
hafa fulla trú á að
friðarsamningar
muni takast innan
skamms.
Þetta kom fram
á blaðamanna-
fundi, sem
Prabhakaran, leiðtogi
PRABHAKARAN
Leiðtogi uppreisn-
arsveita tamíla
hélt blaðamanna-
fund í gær í fyrsta
sinn í 15 ár.
Velupillai
Tígranna, hélt í gær.
Blóðug sjálfstæðisbarátta þeir-
ra hefur staðið í nítján ár og kost-
að 64 þúsund manns lífið. Norð-
menn hafa undanfarnar vikur
reynt að miðla málum í deilunni. ■
Lífeyrisréttindi:
Raunávöxt-
un jákvæð
um 1,2%
lífeyrissjóður Hrein raunávöxtun
Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
var jákvæð um 1,2% á síðasta ári.
Nafnávöxtun samtryggingar-
deildar sjóðsins var jákvæð um
10,1%. Undanfarin fimm ár hefur
meðaltal hreinnar ávöxtunar
sjóðsins verið 4,8%
Söfnunarsjóður lífeyrisrétt-
inda er fyrsti lífeyrissjóðurinn
sem kynnir afkomu sína til að
skilja jákvæðri raunávöxtun. í
Fréttablaðinu í gær kom fram að
aðrir sjóðir hafa verið að skila
neikvæðri raunávöxtun upp á 0,7 -
4,7%. ■
Brauð og kökur of létt
Mjög slæmar niðurstöður segir formaður Neytendasamtakanna.
Framleiðendur voru á „þriðja sénsi“.
KANNTU BRAUÐ AÐ BAKA?
Brauðin eru of létt segja Neytendasamtök er framleiðendur gagnrýna könnunina.
NEYTENDUR Tvö af hverjum þrem-
ur brauðum og kökum eru léttari
en tilgreint er á umbúðum, segir í
niðurstöðum umfangsmikillar
könnunar Neytendasamtakanna
sem birt var í gær. Umbúðamerk-
ingar eru ólöglegar í nær 7% til-
vika.
„Þetta eru mjög slæmar niður-
stöður,“ segir Jóhannes Gunnars-
son, formaður samtakanna, í
samtali við blaðið. „Þetta er í
þriðja skipti sem við gerum
svona vigtun og ég myndi orða
það svo, við erum búnir að gefa
tvo sénsa og samt eru niðurstöð-
urnar svona slæmar. Bæði vantar
upp á þyngd og merkingar eru
ólöglegar."
Könnunin var framkvæmd 20,-
25. mars síðastliðinn í sjö versl-
unum á höfuðborgarsvæðinu. 123
tegundir brauða og kaka voru
metnar. 627 vigtanir voru fram-
kvæmdar á vörum frá 16 fram-
leiðendum. Þar fyrir utan voru 45
brauð og kökur skoðuð sem á
vantaði þyngdarmerkingu og/eða
síðasta söludag sem er ólöglegt.
Þegar búið var að reikna með-
altal hverrar tegundar kom í ljós
að 65,32% voru undir uppgefinni
þyngd. í þessum útreikningum er
miðað við nákvæma þyngd eins og
stendur á umbúðum. Forstjóri
Myllunnar bendir á að bakarar
hafi 3% svigrúm er kemur að
þyngd. Frávikin frá þyngd eins og
hún kemur fram á umbúðum eru á
bilinu 0,1 til 25,23% undir vigt og
á bilinu 0,1- 36,5% yfir uppgefinni
þyngd. Undirvigt er þó miklu al-
gengari en yfirvigt. Stórir brauð-
framleiðendur á borð við Myll-
una, Nýbrauð og Breiðholtsbak-
aríi mælast allir með undirvigt á
meirihluta sinna vara. Fram-
kvæmdastjóri Nýbrauða, sem
mældist undir vigt í öllum tilvik-
um, bendir á að það sé mjög erfitt
að eiga við þyngd á brauðum. Þau
rýrni þar að auki alltaf eitthvað.
Jóhannes Gunnarsson segir
slæmt fyrir neytendur að brauðin
skuli vera þetta of létt, brauð séu
dýr hér á landi samanborið við út-
lönd, munurinn hljóti að vera enn
meiri ef verið sé að selja of létt
brauð í svo miklum mæli.
sigridur@frettabladid.is
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
Tekur kröfuna fyrir í dag.
Mannslátið í Hamraborg:
Akvörðun
um gæsluvar-
hald frestað
lögregla Héraðsdómur Reykjaness
frestaði í gær að taka ákvörðun um
það hvort gæsluvarðhald yfir konu
á sextugsaldri og manni á fertugs-
aldri yrði framlengt. Fólkið hefur
verið í gæsluvarðhaldi undanfarnar
vikur vegna mannsláts í Kópavogi
þann 10. mars. Gæsluvarðhalds-
krafan verður tekin fyrir í dag.
Maðurinn fannst látinn í íbúð í
Hamraborg og leiddi krufning í ljós
að hann hefði látist af völdum inn-
vortis áverka. Að sögn lögreglu er
enn óljóst um atvik og þess vegna
var farið fram á framlengingu á
gæsluvarðhaldi. Rannsókn málsins
er í fullum gangi. ■
—«.—
Borgarstjórnarkosningar:
Höíuðborg-
arsamtökin
stofiiuð
sveitarstjórnarmál Stofnfundur
Höfuðborgarsamtakanna var hald-
inn í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.
Samtökin hyggjast taka þátt í borg-
arstjórnarkosningunum í vor og
leggja megináhersluna á skipulags-
mál og þéttingu byggðar.
Ein helsta baráttumál samtak-
anna eru uppbygging miðborgar-
innar og flutningur flugvallarins í
Vatnsmýri fyrir árið 2010. ■
hlutfall brauða sem var undir vigt*
Framleiðandi brauða Fjöldi brauða Fjöldi undir vigt % undir vigt
Kökugerð HP 5 O 0,00%
Ömmubakstur 5 O 0,00%
Bakarlið Austurveri 20 10 50,00%
Gæðabakstur 10 5 50,00%
Myllan 166 96 57,83%
Breiðholtsbakarí 122 86 70,49%
Nýbrauð 57 51 89,47%
Kökubankinn 10 10 100,00%
Samtals: 395 258 65,32%
*Niðurstaða Neytendasamtakanna sem tekur ekki tillit til leyfðra frávika upp á 3%
einstakur sjálfsræktarkliibbur
Higt er aó skrá sig á
www.salkaforlag.is cöa
í síma 552 11 22
Skólavörðusrig 4
sími: 552 II 22
Vcríð vdkomin
Forstjóri Myllunnar æfur:
Könnunin Neytendasam-
takanna illa unnin
BRAUÐ „Þetta er meira og minna
rangt því sem snýr að Myll-
unni,“ segir Kolbeinn Kristins-
son, forstjóri Myllunnar um
skyndikönnun Neytendasamtak-
anna á þyngd brauða og kaka.
ITann bendir á að í framsetningu
á könnuninni er ekker.t tekið til-
lit til þess svigrúrris íþyngd sem
framleiðendur brauða hafa.
Samkvæmt reglum Hollustu-
verndar má skeika 3% til eða
frá í þyngd. Kolbeinn segir einn-
ig þrjú brauð sem ekki eru frá
Myllunni sett á listann yfir
brauð frá þeim. „Neytendasam-
tökin virðast hafa mestan áhuga
á því að rakka niður íslenska
framleiðendur. Þeir birta aldrei
og röng
könnun sem kemur neitt já-
kvætt úr. Þeir hagræða meira að
segja sannleikanum til þess að
geta komið með frétt,“ segir
Kolbeinn sem átelur einnig að
engar reglur séu til um fram-
kvæmd kannanna sem þessara.
Kolbeinn segir afar erfitt að
baka brauð og kökur sem vega
nákvæmlega það sem þau eiga
að gera samkvæmt umbúðum.
Eigi þetta ekki síst við um kökur
sem handsmurt er inn í og brauð
sem eru handskorin eins og rúg-
brauðskubbar. ■
KOLBEINN KRISTINSSON
Hann hefur margt við vinnubrögð
Neytendasamtakanna að athuga.