Fréttablaðið - 11.04.2002, Síða 8
Fyrirtæki til sölu, t.d.:
• Veitinga- og skemmti-
staður á Höfn í Hornafirði.
Eigið húsnæði.
• Heildverslun með vel
þekkt matvæli. Framlegð
13MKR á ári og vaxandi.
• Bílaverkstæði í Hafnar-
firði. Gott húsnæði og vel
tækjum búið. Mikið að
gera.
• Traust verktakafyrirtæki í
jarðvinnu. 80 MKR árs-
velta. Mjög góð verkefna-
staða næstu tvö ár.
• Lítil en vaxandi tísku-
verslun í góðu hverfi.
Þægilegur og öruggur
rekstur með ágætan hagn-
að.
• Austurlenskur take-away
matsölustaður á Akureyri.
Ársvelta 18 MKR
• Langar þig í eigin rekst-
ur. Höfum til sölu nokkur
lítil en góð fyrirtæki sem
auðvelt er að byrja á. Jafn-
vel auðveldara en þú held-
ur.
• Kristján IX í Grundarfirði.
Vinsælasti veitinga- og
skemmtistaðurinn á
Snæfellsnesi. Ársvelta 20
MKR.
• Veitinga- og skemmtis-
taður á Höfn í Hornafirði.
Eigið húsnæði.
• Heildverslun með vel
þekkt matvæli. Framlegð
13MKR á ári og vaxandi.
• Bílaverkstæði í
Hafnarfirði. Gott húsnæði
og vel tækjum búið. Mikið
að gera.
• Traust verktakafyrirtæki í
jarðvinnu. 80 MKR
ársvelta. Mjög góð verk-
efnastaða næstu tvö ár.
• Lítil en vaxandi tísku-
verslun í góðu hverfi.
Þægilegur og öruggur
rekstur með ágætan hagnað.
• Austurlenskur take-away
matsölustaður á Akureyri.
Ársvelta 18 MKR.
• Langar þig í eigin rek-
stur. Höfum til sölu nokkur
lítil en góð fyrirtæki sem
auðvelt er að byrja á.
Jafnvel auðveldara en þú
heldur. Æ.
• Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin)
• Sími 533 4300 • Gsm 820 8658
FRETTABLAÐIÐ
11. apríl 2002 FIMMTUPAGUR
Vonsvikinn samgönguráðherra:
Saknar veru Reykvíkinga í
Markaðsráði ferðaþjónustu
FERÐflMÁL Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra segir ákvörðun
Reykjavíkurborgar um að endur-
nýja ekki samning um Markaðsráð
ferðaþjónustunnar valda von-
brigðum. Sturla vill að skoðuð
verði frekar aðkoma sveitarfélag-
anna að markaðsmálum ferða-
þjónustunnar. Sturla sagði þetta á
aðalfundi Samtaka ferðaþjónust-
unnar á Akureyri í gær.
Samgönguráðherra taldi að
hraða bæri uppbyggingu vega-
kerfisins, eins og væri skoðun að-
STURLA
BÖÐVARSSON
Samgönguráðherra er
vonsvikinn vegna
ákvörðunar Reykjavík-
urborgar um að end-
urnýja ekki samning
um Markaðsráð ferða-
þjónustunnar.
ila í ferðaþjónustu:
„Ekki skal vanmeta, hvað þessi
uppbygging skiptir fyrirtækin í
ferðaþjónustunni miklu máli, og
þá ekki síst fyrirtækin á höfuð-
borgarsvæðinu. Að mínu mati
undirstrikar þessi afstaða grein-
arinnar hve hæpin, í raun og veru,
sú umræða er að að etja sífellt
saman sem andstæðum, hagsmun-
um höfuðborgarinnar og lands-
byggðarinnar, þegar verið er að
útdeila vegafé. Þess vegna skiptir
miklu máli að vinna með þeim
hætti sem ég hef lagt áherslu á, að
vinna eftir samræmdri samgöngu-
áætlun fyrir landið allt vegna
vega, flugvalla og hafna,“ sagði
Sturla. ■
Hj úkrunargj ald mishátt:
Osanngjarnt p
að mati
Grundar
hjúkrunargjöld Hjúkrunarheim-
ilið Sóltún fær um 17.000 krónur
fyrir hvert pláss en Grund
10.800. Þetta er ósanngjarnt að
mati Júlíusar Rafnssonar, fram-
kvæmdastjóra Grundar.
Hann segir verulegt tap
hafa verið í fyrra og allt bendi
til að svo verði áfram. Júlíus
segir að ef Grund fengi þrjú
þúsund í húsaleigu fyrir hvern
sjúkling, eins og Sóltún, þá
ykjust tekjurnar um 260 millj-
ónir króna. ■
Sóknarfæri eru í
fullvinnslu mjólkur
Irski mjólkurframleidandinn Glambia foods Ltd. hefur aukið nýtingu mjólkurafurða með
vinnslu próteina, sykra og efnasambanda sem notuð eru í ýmsum iðnaði. Sendinefnd héðan
kynnti sér reksturinn ytra fyrir skömmu.
landbúnaður Forsvarsmenn
landbúnaðar sjá aukin sóknar-
færi fyrir íslenskan mjólkuriðn-
að með fullvinnslu mjólkuraf-
urða. Horft er til vinnslu
próteina úr mysu, sem annars er
hellt. Vonast er til að hægt sé að
draga úr að lífrænum efnum sé
skilað aftur út í umhverfið í
mjólkurvinnslu hér á landi, líkt
og tekist hefur sums staðar er-
lendis.
Um miðjan síðasta mánuð fór
sendinefnd til írlands til að
kynna sér starfsemi írska mjólk-
urrisans Glambia foods Ltd.
„í raun má segja að samband
hafi myndast þegar forsætis-
nefndin fór þarna út og hitti for-
svarsmenn Glambia sem er öfl-
ugt mjólkurvinnslufyrirtæki
sem teygir anga sína víða um
Evrópu og til Bandaríkjanna.
Þessir frændur okkar vilja veita
okkur alla aðstoð til að fylgja í
kjölfar þeirrar eigin þróunar,
sem snýr að vinnslu heilsuafurða
úr mjólkinni,“ sagði Guðni
Ágústsson, landbúnaðarráð-
herra.
Að sögn Sveinbjörns Eyjólfs-
sonar, aðstoðarmanns landbún-
aðarráðherra, framleiðir
Glambia prótein, sykrur og efna-
sambönd úr mjólkinni. „Þeir
hafa náð vel inn í iyfja-, mat-
væla-, sælgætis- og annan iðnað
með mikið unnar afurðir úr
mjólk,“ sagði Sveinbjörn. „Og
MJÓLKURVÖRUR
Fjölmenn sendinefnd fulltrúa opinberra aðila auk fulltrúa landbúnaðarins kynntu sér
vinnsluhætti mjólkur hjá írskum framleiðanda um miðjan síðasta mánuð.
hjálmsson, framkvæmdastjóri
Samtaka afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði, og Snorri Sigurðsson, frá
Landssambandi kúabænda.
„Nefndinni er ætlað að taka sam-
an helstu niðurstöður og meta
tækifærin sem við höfum í þessu
samstarfi. Svo eigum við von á
því að írarnir komi hér og skoði
aðstæður með vori eða sumri og
endurgjaldi þannig heimsókn-
ina,“ sagði Guðni.
oli@frettabladid.is
GUÐNI ÁGÚSTSSON
Guðni telur vera sóknarfæri fyrir íslensk-
an mjólkuriðnað í fullvinnslu mjólkuraf-
urða. Verðmætasköpun aukist auk þess
sem samhliða dragi úr mengun.
svo náttúrulega hið góða vín
Bailey’s, en þeir skaffa rjómann
í hann,“ bætti Guðni við.
í landbúnaðarráðuneytinu er
verið að vinna gögn úr ferðinni
með það fyrir augum að hún nýt-
ist sem best til upplýsingar og
framþróunar. Guðmundur Sig-
þórsson, skrifstofustjóri í land-
búnaðarráðuneytinu, fer fyrir
nefndinni. Auk hans eiga sæti
Þórarinn Sveinsson, frá Háskól-
anum á Akureyri, Pálmi Vil-
i
ísraelsk stjórnvöld gagnrýnd
Svartsýni á friðarlíkur
þrátt fyrir þrýsting
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Utanríkisráðuneytið hefur sent harðorða
áskorun til ísraelskra stjómvalda um að
draga herlið sitt frá sjálfstjórnarsvæðum
Palestínumanna án tafar.
stjórnvalda um að draga herlið
sitt frá sjálfstjórnarsvæðum
Palestínumanna án tafar. í orð-
sendingunni lýsir utanríkisráðu-
neytið miklum áhyggjum sínum
af síauknu ofbeldi sem ísraelsher
beitir Palestínumenn á hernumdu
svæðunum. Skoða verði mögu-
leikann á að kalla friðargæslulið á
vettvang til að koma í veg fyrir
ofbeldi. ■
askorun „Það rikir mikil svart-
sýni“, segir Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra, um hvort
þrýstingur alþjóðasamfélagsins
dugir til að friður komist á í mið-
austurlöndum. Hann segir mikið
velta á för Colins Powells, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, til
ísraels. Það skipti miklu að Powell
njóti sem víðtækast stuðnings al-
þjóðasamfélagsins. Þess vegna sé
mikilvægt að hann njóti stuðnings
Evrópusambandsins, Sameinuðu
Þjóðanna og Rússlands eftir fundi
með fulltrúum þeirra.
í gær sendi utanríkisráðuneyt-
ið harðorða áskorun til ísraelskra
Sj álfstæðismenn
í Mosfellsbæ:
Framboðs-
listinn frá-
genginn
framboð Sjálfstæðismenn í Mos-
fellsbæ hafa gengið frá fram-
boðslista sínum fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar 25. maí.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
skólastjóri, sem varð hlut-
skörpust í prófkjöri flokksins,
leiðir.
Hákon Björnsson, fram-
kvæmdastjóri og fráfarandi
oddviti listans, skipar heiðurs-
sætið. Haraldur Sverrisson,
rekstrarstjóri, skipar annað
sæti listans, Herdís Sigurjóns-
dóttir, bæjarfulltrúi og neyðar-
varnafulltrúi, það þriðja og Haf-
steinn Pálsson, verkfræðingur,
er í fjórða sæti. ■
1