Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.04.2002, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 11.04.2002, Qupperneq 10
10 riiÆRÉliTABfcAÐlÐ 11. apríl 2002 FIMMTUDAGUR FRETTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson 'Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Slmbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: (safoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Visir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins f stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. -I BRÉF TIL BLAÐSINS |- Líkt goldið með líku Fyrrum fangi skrifar: Vegna umræðu um fangelsis- mál og aðstæður fanga lang- aði mig að koma eftirfarandi á framfæri. Ég sat fjórum sinni inni á tímabilinu 1980-1990, stuttan tíma í senn. Mín reynsla er sú að fangaverðirnir voru alveg prýðis- menn. Sú regla gilti að ef maður kom vel fram við þá þá komu þeir vel fram við mann á móti. Þegar ég sat inni þá voru heimsóknir bara leyfðar á sunnudögum og konan mín nýtti sér þá. Nú eru orðin 12 ár síðan ég sat inni síðast. Mér skilst að þessi heimur hafi farið harðnandi síðan þá og reglur séu að mörgu leyti strangari en þær voru þegar ég sat inni. En fyrst og síðast held ég að rétt sé að fangaverðir komi yfirleitt vel fram við fangana og fjölskyldur þeirra. Ef vel er komið fram við þá þá koma þeir vel fram við fangana á móti. ■ Ekki benda á mig Svo virðist amfetamín hafi um nokkurra mánaða skeið, í lok síðasta árs og byrjun þessa, verið löglegt fíkniefni hér á landi. Þeg- ar reglugerð var breytt gleymdist að tryggja veru þessa hættulega örvandi efnis á bannlista. Rann- sókn eins stærsta amfetmínmáls sem komið hefur upp hérlendis er í hættu vegna þessara mistaka og útlit fyrir að þeir sem þar voru að verki sleppi við refsingu. Þetta er tragíkómískur farsi. Ár hvert er fjöldi manns dæmdur til þungrar fangelsisvist- ar fyrir að reyna að flytja inn og selja amfetamín. Dómarnir við slíkum brotum eru einhverjir þeir þyngstu sem falla í dómskerfinu. Amfetamín er líka efni sem hefur skaðvænlegri áhrif en flest önnur fíkniefni. Fíkill undir áhrifum þess er stórhættulegur umhverfi sínu. Nokkur hörmulegustu of- beldisbrot síðustu missera voru framin af mönnum undir áhrifum efnisins. í ljósi þeirrar áherslu sem lögð hefur verið á að sporna við inn- flutningi amfetamíns og þeirrar hörku sem dómsvaldið hefur sýnt í þeim málum vekur það furðu að stoðirnar undir banni við innflutn- ingi og dreifingu efnisins hafi ekki verið styrkari en raun bar vitni. Mannleg mistök eins kontórista í heilbrigðisráðuneyt- inu höfðu þessar afdrifaríku af- leiðingar. Efnið var ekki bannað með lögum heldur byggt á reglu- __________________Málmanna^ Pétur Gunnarsson skrifar um slysalega lögleiðingu amfetamíns gerðarheimild sem embættis- mönnum var falið að útfæra. Þessi mistök hljóta að verða til þess að alþingismenn rumski af svefninum og sjái um að refsi- heimildir fyrir lögbrotum sem varðað geta margra ára frelsis- sviptingu séu ótvíræðar og ekki undir því einu komnar að kontóristar séu velupplagðir í vinnunni. Á hinn bóginn vakna spurning- ar um pólitíska ábyrgð á afglöp- um af þessu tagi. Einu sinni sagði forsætisráðherra að ráðherra gæti fráleitt borið ábyrgð á öllum verkum einhverra kontórista í ráðuneytum og stofnunum sem undir hann heyra. Auðvitað ber heilbrigðisráðherra ekki persónu- lega ábyrgð í málinu. En ef ráð- herra axlar ekki ábyrgð á því að neysla amfetamíns var óforvar- endis lögleidd á íslandi, er eðli- legt áð spurt sé í hverju hin póli- tíska ábyrgð ráðherra á stjórnar- athöfnum sé yfirleitt fólgin? ■ KVIÐDÓMUR 20 milljarða ríkisábyrgð á lán deCode Ríkisstjórnin hefur ákveðið að bera ábyrgð á láni vegna lyfjaþróunarfyrirtækis sem deCode genetic hyggst stofna hér á landi. Áætlað er að 250 störf í lyfjaþróun verði til við stofnun þess. Lyfjaþróun er áhættusöm grein. EDDA RÓS KARLSDÓTTIR BÚNAÐARBANKA Skref afturábak „Þetta er spurning um hvað maður vill að ríkið sé að gera. Tekin var ákvörðun fyrir áratug að ríkið hætta slíkum ráðstöf- unum. Á þeim ■■■'- tímakomnán- __t wl ast öll lang- tímafjármögnun gegnum opinbera sjóði. Spurningin er hvað hafi breyst síðan þá? Þá má velta fyrir sér hvort stjórnvöld séu betri til að velja atvinnugreinar en einkaframtakið. Með þessu er ríkið farið að haga sér eins og áhættufjárfest- ir. Yfirleitt hugsar maður hlutverk ríkisins sem aðila sem skapar skilyrði fyrir fyrirtæki. Það má segja að hér sé verið að skapa skil- yrði fyrir rannsóknir. Hins vegar er þetta sértæk að- gerð, en ekki almenn. Það er engin spurning að ef svona fyrirtæki kemur til landsins, þá hefur það góð áhrif. Fyrir fjármagns- markaðinn er þetta hins vegar skref afturábak. ■ I GUÐMUNDUR ÓLAFSSON DÓSENT Erum ekki í alfaraleið „Þetta er ekkert óeðlilegt. Það er hægt að réttlæta þessa ákvörðun. Ef menn styrkja ekki deCode, þá er hætta á að menn missi þá úr landi. ísland er ekki óska- staður atvinnurekstrar. Við erum ekki í alfaraleið. Því þurfum við að leggja ýmis- legt á okkur til að fá stór- fyrirtæki inn í landið. Það þýðir ekkert að fitja upp á trýnið. Auðvitað væri betra að fyrirtæki kæmu hingað af fúsum og frjálsum vilja og við þyrftum ekkert ann- að að gera en að taka af þeim skatta. Því er ekki að heilsa, því miður. Við erum með ríkisbanka sem þýðir að öll fyrirtæki sem fá lán hjá ríkisbönkunum eru á vissan hátt ríkistryggð. Ef menn eru eitthvað að fýla grön yfir þessu, þá held ég að allur íslenskur atvinnu- rekstur sé meira og minna röngu megin við ríkisað- stoðarstrikið." ■ RÓBERT WESSMAN FORSTJÓRI DELTA Töluverð áhætta „Ég vil óska Kára til ham- I ingju með þetta. Málið er vel unnið hjá þeim hjá Decode. Við hjá Delta mun- j um að sjálf- sögðu skoða hvaða tækifæri liggja í þessu, ef stefna ríkisins er að styðja myndarlega við bak- ið á fyrirtækjum í þessum rekstri. Það er vel þekkt að i ríki styðji við bakið á fyrir- tækjum. Við þekkjum þetta vel til dæmis á Möltu, þar sem við höfum fjárfest. Þar kemur ríkið mjög sterkt að. Býður lánsfé og aðstöðu á mjög góðum kjörum. Þetta var eitt af því sem við horfðum til við ókvörðun um að fjárfesta í rekstri þar. Það er hins vegar mik- ilvægt að ríkið geri sér grein fyrir áhættunni sem fylgir svona ábyrgð. Það er alltaf töluverð áhætta sem felst í frumþróun á nýjum lyfjum." ■ PÉTUR BLÖNDAL ÞINGMAÐUR Ríkið borí ar ef illa fer Mér finnst þetta mi . 1 stefnubreyting að þ i er minn flokk varðar. 1 inn mun ek i geta s^gt að betta * ; , ® sé einsi kt til- Jjjr felli, þ' það eru þeg ir til ^lfaih.í fyrirtæki hér á landi í þessari sör i grein. Lyfjaþróun e. :in- hver áhættusamasti -ekst- ur sem til er. Annaö vort tekst að finna lyf og >á rýkur gengið upp. E a það tekst ekki og þá bla: r gjaldþrot við. Önnui fyrir- tæki sem eru í starí emi, þar sem um er að r;i ða' jafnverðmæt hálaui. störf geta farið að óska þ< ss sama. Það má ekki gleyma því að þarna er verið að hætta fé skattgreiðt ida. Ef vel gengur sem við að sjálfsögðu vonum, þa fær ríkissjóður lítið fyrii sinn snúð. Ef illa gengur ■ 'ellur ábyrgðin á ríkissjóð, um- talsverðir fjármunir. ■ ÞORSTEINN LOFTSSON PRÓFESSOR Eflir vísinda- samfélagið „Áhættan er miklu minni en menn hafa verið að halda fram. Það er þegar komið verulegt fjármagn inn í fyrirtækið og þeir eru komn- ir nokkuð á veg í sínu starfi. Það sem við eigum að horfa til er hvaða áhrif þetta muni hafa á samfé- lagið. Þetta er bylting fyrir vísindasamfélagið. Við þetta verða til hátekjustörf, auk þess sem framlög til vísinda munu stóraukast. Lyfjaþróunarferlið er fimm til tíu ár. Oft er talað um að eitt af hverjum tíu þúsund efnum sem eru greind, endi sem lyf í apóteki. Menn verða að hafa í huga að deCode er búið að starfa í einhver ár, þannig að það er hugsanlegt að þeir eða Medicem séu með kandídata sem eru komnir þó nokkuð langt í ferlinu. Það er því hugsanlegt að þeir verði komnir með lyf eftir tvö ár.“ ■ A • __________ ■ * .. • 'i'. v m . Námsstyrkir Árlega veitir Búnaðarbankinn 12 styrki til námsmanna í Námsmannalínunni, hvern að upphæð 150.000 kr. Skipting Námsmannalínustyrkja • Útskriftarstyrkir til nema í Háskóla Islands. • Útskriftarstyrkir til nema á háskólastigi og sérskólanema. • Námsstyrkir til námsmanna erlendis. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2002. Umsóknir Umsækjandi skal taka fram eftirfarandi atriði: Námsferil, einkunnir, framtíðaráform, félagsstörf, starfsreynslu og fjölskylduhagi. Hægt er að sækja um styrkina á vef Námsmannalínunnar, www.namsmannalinan.is, eða senda umsókn á namsmannalinan@bi.is. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð í öllum útibúum bankans, á www.namsmannalinan.is, og á skrifstofum SHÍ, BÍSN og SÍNE. Skriflegum umsóknum skal skila til: Búnaðarbanka (slands hf., Markaðsdeildar, Austurstræti 5, 155 Reykjavík Athugið að einungis félagar í Námsmannalínu Búnaðarbankans eiga rétt á að sækja um þessa styrki. ma námsmannalinan SBB —— nam er vinna ® BÚNAÐARBANKINN ' -traustur banki VIÐBRÖGÐ Ríkisábyrgðin hjá greiningardeildum Kaupþing gerir skuldastöðu þjóð- arbúsins að um- talsefni: „Erlend skuldastaða þjóð- arbúsins mun enn aukast, en fram hefur komið í áliti helstu lánshæfismatsaðila að stór- auknar skuldir íslendinga valdi mönnum ytra áhyggjum. Erlend skuldastaða jókst í 104% af lands- framleiðslu árið 2001 frá því að vera 51% árið 1997 samkvæmt Þjóðhagsstofnun. Sjálfsagt er hins vegar að taka lán til arð- bærra verkefna og verður lyfja- þróunarfélagið væntanlega byggt með það að leiðarljósi að það muni innan tíðar skila viðunandi arð- semi.“ Landsbankinn segir að ríkisábyrgðir séu alls ekki óþekkt form í samkeppni ríkja til að laða til sín fyrir- tæki: „Miðað við þær upplýsingar sem þegar liggja fyr- ir og í ljósi þess hve langur tími líður jafnan áður en í ljós kemur hvort starfsemin er arðbær, er ekki raunhæft að áætla nákvæm- lega áhrif þess. Það verður að telj- ast jákvæð þróun að stutt sé við nýfjárfestingar í hátæknigreinum sem hugsanlega skapa fjölda nýrra starfa og stuðla að aukinni breidd íslensks atvinnulífs. En móti kemur að þessi sértæka að- gerð er alls ekki áhættulaus fyrir íslenska ríkið. Búnaðarbankinn segir að um stefnu- breytingu sé að ræða, enda hafi stjórnvöld unnið markvisst að því að draga úr ríkisum- svifum: „í frétt frá fjármálaráðu- neytinu kemur fram að gert sé ráð fyrir að 250-300 ný störf geti skapast hér á landi innan tveggja til þriggja ára ef fyrirætlanii lyfjaþróunarfyrirtækisins ganga eftir. Ennfremur er bent á að rík isstjórnin hafi á stefnuskrá sinni að stuðla markvisst að atvinnu uppbyggingu í hátækni og vís indagreinum. Greiningardeild tel- ur engu að síður að hér sé um ákveðna stefnubreytingu að ræða enda hafa stjórnvöld unnið mark visst að því að draga úr ríkisum svifum og ríkisábyrgðum." íslandsbanki er tortrygginn á þessa ráðstöf- un og telur for- dæmið hættulegt: „Heildarfjár- festing er áætluð um 350 milljón Stærsta viðskiptafréttin þessa dagana er ákvörðun ríkisstjórn- arinnar að veita deCode ríksiá- byrgð á láni til stofnunar lyfja- þróunarfyrirtaekis hér á landi. Greiningardeildir fjármála- stofnana hafa fjallað um málið í daglegum pistlum sínum. dollarar og er gert ráð fyrir að 250-300 ný störf skapist innan tveggja til þriggja ára. Að mati Greiningar er um neikvætt for- dæmi að ræða og ekki í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um minnkun ríkisafskipta af atvinnu- lífinu. Líklegt verður að telja að fleiri fyrirtæki feti í fótspor deCODE og byggi beiðnir sínar á jafnræðissjónarmiðum." ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.