Fréttablaðið - 11.04.2002, Síða 16
FRÉTTABLAÐIÐ
11. apríl 2002 FIMMTUPACUR
HVAÐA BÓK ERTU AÐ
LESA
Á eftir Biblíunni
kemur Sveik
Ég er nýbúinn að klára að lesa bókina um
Góða dátann Sveik. Ætli hún sé ekki sú bók
sem ég kiki oftast í, næst á eftir Biblíunni,
en þó ekki eins oft.
Karl V. Matthíasson, þíngmaður Samfylkingarinnar.
1 ERLENDAR BÆKUR |
METSÖLULISTI PENNANS
EYMUNDSSONAR 8-15. apríl
áöl Mary Higgins. Clarck
ON THE STREET WHERE YOU
Q Sue Crafton
P IS FOR PERIL
P.D James
DEATH IN HOLY ORDERS
O Kathy Reichs
FATAL VOYACE
(R Stephen Konnts
AMERICA
ffll Kyle Mills
BURN FACTOR
ffþ Lisa Scottoline
THE VENDETTA DEFENCE
Ruth Rendell
ADAM AND EVE AND PINCH ME
O Wilbur Smith
WARLOCK
Stephen King
DREAMCATCHER
Vöðvaolía
Alvoru fjótjuru iiuddoUa
sem hftar og eykut
blóðstr^ymi vóðva
Hentar mjog vet sem
upphfttindrolict fyrit
íefingar eða sem nudtío'.ia.
yöðvakrem
Á prpyttar a/,itr c-g bak.
Mjbg gptt ad bera á sig
5 min. fyrit nuáó þar sem
krpmiö hítar vöóvam.
20% afsláttur
í apríl!
Blómaval, Heilsuhúsin,
Heilsubúðin Hafnarf, Lyf 6 heilsa
Almennar
Bíla-
viðgerðir
VELALAND
VELASALA • TURBIWUR
VARAHLUTIR • VIQGERÐIR
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
Kvikmyndaklúbburinn Filmundur:
Frönsk teiknimynd
fyrir börn og fullorðna
kvikmyndir Filmundur sýnir í
kvöld kl. 22.30 í Háskólabíói
frönsku teiknimyndina „Le roi
et l’oiseau" eða „Konungurinn
og fuglinn" frá 1979 í samvinnu
við Alliance Francaise. Hún er
gerð af einum ástsælasta teikni-
myndagerðarmanni Frakka,
Paul Grimault, og skrifar hann
einnig handritið í samvinnu við
skáldið Jacques Prévert, en það
er byggt á einu ævintýra H.C.
Andersen.
Sagt er frá hjarðmey og sót-
ara, persónum í málverki sem
öðlast líf. Þau hafa um árabil
verið frosin í augnabliki ástar-
játningarinnar, en geta nú loks-
ins tjáð tilfinningar sínar. Líf
þeirra er þó ekki þrautalaust
þar sem hinn illa innrætti kon-
ungur ríkisins hefur fengið
mikla ást á hjarðmeynni og vill
fá hana fyrir eiginkonu, hvað
sem það kostar. Skötuhjúin eru
því á sífelldum flótta og fugl
nokkur aðstoðar þau við að kom-
ast undan hersveitum konungs-
ins sem fylgir fast á hæla
þeirra. ■
KONUNG-
URINN
OG
FUGLINN
Athygli er
vakin á því að
bætt hefur
verið við dag-
sýningum um
helgina, svo
að börnin
verði ekki út-
undan. Laug-
ardag og
sunnudag kl.
15 og 17.
Tel mig lánsaman að til-
heyra íslensku þjóðinni
Vladimir Ashkenazy stjórnar Sinfóníuhljómsveit Islands í kvöld.
Flutt verður í fyrsta sinn á Islandi verkið The Dream of Gerontius
eftir Edward Elgar.
tónlist „Ég þekki verkið
mjög vel og mér þykir
óskaplega vænt um það.
Ég stjórnaði því í fyrsta
sinn fyrir sex árum í
Berlín og við lok fyrsta
hluta þess var ég orðinn
svo hrærður að ég sá
varla á nóturnar," segir
Vladimir Ashkenazy,
hljómsveitarstjóri, og
hlær. Hann er að tala um
tónverkið The Dream of
Gerontius eftir enska
tónskáldið Edward Elgar
sem flutt verður í kvöld
af Sinfóníuhljómsveit ís-
lands í Háskólabíói. Kór
íslensku óperunnar tek-
ur þátt í flutningnum
auk einsöngvaranna
Charlotte Hellekant, Ro-
bert Gambil og Garry
Magee.
Ashkenazy segir gíf-
urlegar breytingar til
batnaðar hafa orðið á
Sinfóníuhljómsveit ís-
lands á síðustu tuttugu
árum. „Sinnaskipti virð-
ast á afstöðu hljómlistar-
mannanna til hljómsveit-
arinnar. Ég hef á tilfinn-
ingunni að fleiri yngri
tónlistarmenn setji það í
forgang að sækjast eftir
aðild og sé í mun að gera
sitt besta. Sinfóníuhljómsveitin
er einstaklega vel undirbúin,
bregst vel við og spilar góða
tónlist."
Fyrsta hluta ferils síns sem
tónlistarmaður helgaði Ashken-
azy sig píanóinu. Frá árinu 1970
fór áhugi hans á hljómsveitar-
stjórn vaxandi og er hún nú að-
alvettvangur hans á tónlistar-
sviðinu. „Umskiptin frá píanó-
leik í hljómsveitarstjórn gerist
ekki í einni svipan. Eg er langt
frá því búinn að kveðja píanójð
og æfi mig á hverjum degi. Ég
gat sinnt hvoru tveggja en nú
finnst mér eðlilegt að snúa mér
meira að hljómsveitarstjórn. Ég
VLADIMIR ASHKENAZY
Ashkenazy var einn helsti
hvatamaður að stofnun
Listahátíðar í Reykjavík og
hefur komið þar fram oft-
ar en nokkur annar lista-
maður.Ý Hann var gerður
að heiðursforseta hátíðar-
innar árið 1982. „Fleiri ís-
lenskir tónlistarmenn sjást
á sviði erlendis en áður
og þeir eru yfirleitt vel
virtir. Það er ótrúlegt mið-
að við smæð þjóðarinnar
að til sé jafnmikið af tón-
listarfólki á heimsmæli-
kvarða. islendingar geta
verið stoltir af frammi-
stöðu sinní."
er afslappaður og
hamingjusamur
með þá ákvörðun og
tel mig afar lánsam-
an.“
Ashkenazy er bú-
settur í Sviss ásamt
íslenskri eiginkonu
sinni, Þórunni Jó-
hannsdóttur. Áður
bjuggu þau á íslandi
í tíu ár og á þeim
tíma varð hann ís-
lenskur ríkisborgar-
ari. Saman eiga þau
fimm börn og hafa
tvö þeirra fetað í
fótspor föður síns.
Dmitri, klarinettuleikari og Vo-
vka, píanóleikari. Hann hélt tón-
leika hér á landi í janúar. „Ég er
þakklátur því að hafa fengið ís-
lenskan ríkisborgararétt. Ég
reyni að koma hingað eins oft og
ég get og tel mig lánsaman að
tilheyra íslensku þjóðinni."
kolbrun@frettabladíd.is
Fj M MTUPAGU RINN
11. APRÍL
FUNDIR______________________________
12.05 Málfundur um forvarnir gegn
fordómum í félagslega kerfinu
verður haldinn í Norræna húsinu í
dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri fjallar um forvarnir í
félagsþjónustu Reykjavíkurborgar
og Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra um forvamarstarf á vegum
hins opinbera. Að lokum fjallar
Páll Skúlason háskólarektor um
möguleika háskólasamfélagsins til
að bregðast við fordómum. Að
lokinni stuttum framsögum fara
fram umræður undir stjórn Brynj-
ólfs Ægis Sævarssonar, nýráðins
framkvæmdastjóra Stúdentaráðs
Háskóla íslands.
12.15 Opin málstofa verður í praktiskri
guðfræði í stofu V í Aðalbyggingu
HÍ1 dag. Fjallað verður um sál-
gæslu fórnarlamba kynferðis-
legs ofbeldis. Frummælandi
verður hollenski guðfræðingurinn
Teo van der Weele.
16.00 Málstofa um Skipulag við
Reykjavíkurhöfn á vegum um-
hverfis- og byggingarverk-
fræðiskorar Hl og Borgarfræðaset-
urs verður haldið i dag. Fundurinn
fer fram í húsi verkfræðideíldar
við Hjarðarhaga 2-6, í stofu 158
og er öllum opinn.
16.15 Málstofa í læknadeild verður
haldin 1 dag. Jóhann Eli Guðjóns-
son fjallar um psoriasis, arf-
gengi, meinmyndun. Málstofan
fer fram I sal Krabbameinsfélags
Islands, efstu hæð.
16.15 Vár í Ólavsstovu, bókmennta-
fræðingur frá Færeyjum, ræðir í
dag um stöðu dönsku og fær-
eysku I færeyska skólakerfinu.
Fundurinn fer fram í Lögbergi,
stofu 201, í samvinnu við Rann-
sóknarstofnun KHÍ og Samtök
móðurmálskennara.
17.15 I tilefni af aldarafmæli Halldórs
Laxness efnir Vaka-Helgafell í ár til
margvíslegrar umfjöllunar um
skáldið og verk hans. Þar á meðal
er röð fyrirlestra í Norræna hús-
inu þar sem rithöfundar ræða um
verk Halldórs. í kvöld heldur Einar
Már Guðmundsson erindi sem
hann nefnir "Gegn ræktun rófna
- um boðskap og skáidskap".
Erindiðr er öllum opið og aðgang-
ur ókeypis.
20.00 I tilefni þeirra miklu átaka sem nú
eiga sér stað 1 heiminum efnir
Siðfræðistofnun til fundar um
siðfræði stríðs í kvöld í Borgar-
leikhúsinu. Á fundinum tala þeir
Þorsteinn Gylfason, prófessor í
heimspeki, og Karl Th. Birgisson,
blaðamaður. Fundurinn er öllum
opinn og aðgangur ókeypls.
20.30 Ungir jafnaðarmenn boða tíl
fundaherferðar um menntamál.
Fyrsti fundurinn fer fram í Húsi
málarans í kvöld. Yfirskriftin er:
Stytting framhaldsskólanáms úr
fjórum árum í þrjú ár og brott-
fall úr námi. Framsögumenn eru:
Bryndís isfold Hlöðversdóttir,
Svanfríður Jónasdóttir, Ásbjöm
Þór Ásbjörnsson, Snorri Kristjáns-
son, stjórnmálafræðingur, Runólf-
ur Ágústsson, rektor Háskólans
OPIÐ HÚS ___________________________
15.00 Um árabil hefur 11. apríl verið
notaður til að vekja athygli á mál-
efnum parkinsonveikra og að-
standenda þeirra. I þessu skyni
bjóða Parkinsonsamtökin á Is-
landi bjóða félögum og velunnur-
um samtakanna á opið hús í
húsakynnum samtakanna að Há-
túni 10 B, 9. hæð.
FÉLAGSSTARF_________________________
10.00 Félag eldri borgara í Hafnarfirði,
Hraunseli, Flatahrauni 3. Pútt í
Bæjarútgerðinni kl. 10.00 til
11.30. Glerskurður kl. 13.00 og
skemmtun í boði Lions þar sem
flutt verða skemmtiatriði, dans og
kaffihlaðborð.
TÓNLEIKAR____________________________
19.30 Viadimir Ashkenazy stjórnar Sín-
fóníuhljómsveit íslands í kvöld.
Flutt verður verkið The Dream of
Gerontius efitr Edward Elgar.
20.00 Boðið verður til Hip hop-veislu á
Fimmtudagsforleik Hins Hússins í
kvöld. Þau sjóðheitu atriði sem
koma fram eru: Afkvæmi guð-
anna og Bæjarins bestu. Auk
þess mun plötusnúður Afkvæma
guðanna, Mr. Dear, þeyta skífum.
Tónieikarnir eru haldnir á Loftinu,
Pósthússtræti 3-5 og er aðgangur
ókeypis. 16 ára aldurstakmark og
skylda að sýna skilríki við inng.
21.00 Hljómsveitin Uzz heldur sína
fyrstu tónleika í kvöld á Gaukn-
um. Tónlistin sem hljómsveitin
spilar er melódískt rokk með
poppívafi. Miðaverð er 500 kr.
22.00 Rúnar Júlíusson og Baldur Þórir
Guðmundsson leika Ijúfa tólist
fyrir gesti Kringlukrárinnar. Engín
aðgangseyrir.
22.00 Hljómsveitin Miðnes heldur
tónleika í Vídalín v/lngólfstorg í
kvöld.
22.00 Kvennahljómsveitin Rokkslæðan
leikuri á skemmtistaðnum OBri-
ans í kvöld. Hljómsveitin sérhæfir
sig 1 hetjurokki og töffaraskap og
mun að vanda útdeila rokkslæð-
um til þeirra áhorfenda sem sína
mesta rokktilburði.
UPPISTAND_________________________
22.00 Grfn snillingarnir Sigurjón Kjart-
ansson og Þorsteinn Guð-
mundsson munu í kvöld snúa
aftur eftir nokkurt hlé með marg-
rómað uppistand sitt á Sport-
kaffi. Húsið opnar klukkan 20.
Aðgangseyrir er 1.000 kr.
KVIKMYNDIR________________________
22.30 Filmundur sýnir í kvöld í Háskóla-
bíói frönsku teiknimyndina "Le
roi et l'oiseau" eða „Konungur-
inn og fuglinn" frá 1979 i sam-
vinnu við Alliance Francaise. Hún
er gerð af Paul Grimault og skrifar
hann handritíð 1 samvinnu við
Jacques Prévert, og er byggt á
einu ævintýra H.C. Andersen.
SÝNINGAR__________________________
Arsineh Houspian hefur opnað sýningu
á svart-hvítum Ijósmyndum í Ljósfold í
Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16. Sýning-
una nefnir listakonan Séð með gests-
augum. Arsineh hefur dvalist á Islandi
undanfarna 10 mánuði og sýnir nú
hluta mynda sem hún hefur tekið hér á
landi. Ljósfold er opið á sama tíma og
Gallerí Fold. Sýningunni lýkur 21. april.
Sýning á verkum Sigurðar Gústafsson-
ar arkitekts hefur opnað í Víkurskóla
.Hamravík 10, Grafarvogi. Að sýningunni
standa sænska fyrirtækið Kallemo, sem
framleiðir verk hönnuð af Sigurði og
Epal hf.
Sýningin Breiðhoitið frá hugmynd til
veruleika stendur yfir í Listasafni
Reykjavík-Hafnarhúsi. Þar eru sýndar
teikningar og skissur þeirra sem skipu-
lögðu Breiðholtshverfin þrjú ásamt Ijós-
myndum af hverfinu óbyggðu og
byggðu. Þá eru á sýningunni, í samstarfi
við RÚV, ýmis konar myndefni sem
tengist Breiðholtinu ásamt útvarpsupp-
tökum með efni frá uppbyggingartíma
hverfisins. Sýningin stendur til 5. maí.
Handritasýning f Stofnun Árna Magn-
ússonar, Arnagarði við Suðurgötu.
Handritasýningin er opin kl. 14 -16
þriðjudaga til föstudaga.
Sýningin Landafundir og ragnarök
stendur yfir ( Þjóðmenningarhúsinu.
Sýningin er samstarfsverkefni við Landa-