Fréttablaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 23
FIMMTUPACUR 11. apríl 2002 23 Biskup íslands: Borgarljörður heimsóttur fólk Biskup íslands, Karl Sigur- björnsson, vill eiga orðastað við börnin og unga fólkið í vísitasíu sem er hafin í Borgarfirði og stendur til 26. apríl. Biskup heim- sækir tíu skóla á öllum skólastig- um, dvalarheimili og sambýli í héraðinu og heldur 25 guðsþjón- ustur og helgistundir að auki. Hann ræðir við sóknarnefndir á alls ellefu fundum og á fundi með prestum. Þá heimsækir hann fjölda vinnustaða. í dag heimsæk- ir biskup Heiðarskóla kl. 12.00, leikskólann Skýjaborg kl. 13.30, sækir guðsþjónustu í Innri- Hólmskirkju kl. 15.00 og í Leirár- kirkju kl. 20.30. Þetta er fjórða vísitasía Karls Sigurbjörnssonar í embætti bisk- ups íslands. Vísitasíur eða heim- sóknir biskupa hafa tíðkast frá upphafi kristni hér á landi sem annars staðar. Tilgangur þeirra er fyrst og fremst að hvetja og örva allt líf og starf safnaða og vera til stuðnings prestum og öðru starfs- fólki kirkjunnar. ■ Alþjóðlegur dagur parkinsonveikra: Lífslíkur parkinson- sjúklinga hafa aukist sjúkdómur í dag er alþjóðlegur dagur parkinsonveikra sem hald- inn er á fæðingardegi enska lækn- isins James Parkinson sem sjúk- dómurinn er kenndur við. Hann lýsti fyrstur einkennum parkin- sonsjúkdómsins. Talið er að um það bil tveir af hverjum þúsund hafi sjúkdóminn. Talsverðar rannsóknir eiga sér stað á sjúkdómnum og beinast þær bæði að umhverfisáhrifum og erfðaþáttum. Betri lyf og auk- in þekking á meðferð sjúklinga hafa aukið lífslíkur parkinson- sjúklinga verulega og eru þær nú í reynd þær sömu og annarra á sama aldri. Parkinsonsamtökin bjóða í dag félögum og velunnurum samtak- anna á opið hús í Hátúni 10 B, 9. hæð, kl. 15 til 17. Einnig efna sam- tökin til tónleika í Salnum í Kópa- vogi á laugardaginn kl. 20. Þar koma fram fjórir söngvarar auk hljóðfæraleikara og meðal efnis verður frumflutningur á Kantötu eftir Eirík Árna Sigtryggsson við SALURINN Parkinsonsamtökin efna til tónleika á laugardaginn í Salnum. Tilefnið er alþjóð- legur dagur parkinsonveikra sem er I dag. Sjúkdómssögu Héðins Waage. Ágóði af tónleikunum rennur óskiptur til fræðslustarfsemi á vegum Parkinsonsamtakanna. ■ Halldór Laxness: Bók um ævi og verk skálds- ins gefin út í Þýskalandi BÆKUR Steidl Verlag, sem annast útgáfu á verkum Halldórs Laxness í Þýska- landi, hefur í tilefni af ald- arafmæli hans gefið út yfir- litsrit um ævi og verk skáldsins eftir Halldór Guð- mundsson bókmenntafræð- ing. Bókin nefnist: Halldor Laxness - Leben und Werk. Halldór hefur um árabil rannsakað verk Halldórs Laxness, m.a. sent frá sér bókina „Loksins, loksins" - werk er 200 blaðsíð Vefarinn mikli og upphaf ís- ur að stærð, prýdd lenskra nútímabókmennta sem út kom árið 1987 og gert nokkra sjónvarpsþætti um ævi skáldsins. Bókin Halldor Laxness - Leben und Werk skiptist í sex meginkafla. Sá fyrsti fjallar um æsku Halldórs fram til ársins 1919 að hann sendir HALLDÓR LAXNESS Bókin Halldór Lax- ness - Leben und Ijósmyndum. frá sér Barn náttúrunnar. Annar hluti kallast Frá Hamsun til Hollywood og segir frá þriðja áratugn- um í lífi skáldsins. Þriðji kaflinn fjallar um ár hinna stóru skáldsagna, fjórða áratuginn, og þátttöku Halldórs í stjórnmálabar- áttu samtímans. Að því búnu snýr Halldór Guð- mundsson sér að umfjöll- un um afturhvarf nafna síns til hinnar íslensku sagnahefðar 1940-55. Næst síðasti kafli bókar- innar er um árin 1955- 1968, Nóbelsverðlaunin og hvernig Halldór varð afhuga fyrri kenning- um sem hann hafði aðhyllst. Bók- inni lýkur með umfjöllun um síð- ustu þrjátíu árin í lífi skáldsins í túninu heima. ■ V EFUNG STÉTTARFÉLAG Úthlutun sumarhúsa áríð 2002 Orlofsnefnd Eflingar - stéttarfélags minnir félagsmenn á að síðasti skiladagur vegna umsókna í orlofshús félagsinser 12. apríl nk. Orlofshús á eftirtöldum stöðum eru í boði Stykkishólmur 1 hús Súðavík 1 íbúð Einarsstöðum 3 hús Brekkuskógi 1 hús Flúðum 1 hús Kirkjubæjarklaustur 3 hús Umsóknareyðublöð Hægt er að nálgast eyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins í Sætúni 1, 105 Reykjavík fyrir 12. apríl nk. Ekki er tekið á móti umsóknum símleiðis. Umsóknarfrestur er til 12 apríl. Svör verða sertd umsækjendum bréfteiðis 18 apríl. Merkjavara og tískufatnaður á 50-80% lægra verði i. GERÐU GÓÐ K.AUP’- I llliP; I ...og nuna eru SKÓDAGAR Allir skór á 500, 990, 1.900, 2.900 Verðdæmi: Dömur Vagabond Billi Bi Vagabond Bronx Wosh Exxem Shellys No name Shellys skór stígvél sandalar stígvél skór skór skór skór sandalar 1.900. 2.900 990 1.900 1.900 500 1.900 Fornarina hælaskór 990 JFK sandalar 990 Vagabond stígvél 2.900 Herra 4 you skór 2.900 No name skór 990 Shellys skór 1.900 Einnig ný sending af fatnaði I OUTLET ’ + + + merki fyrir minna + + + FAXAFEN110 - SÍMI 5331710 0 Opið mán. - fim. 11-18 laugard. 11-16 ¥ i

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.