Fréttablaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 1
 39 kvartanir á sjö árum bls 8 Skemmtilegt að hjóla bls 22 Til Sierra Leone HEIMAGÆSLA ÖRYGCISMIÐSTÖÐ ÍSLANDS BORGARTÚNI 31 • SÍMI 530 2400 WWW.OI.IS FRETTABLAÐIÐ . ... ..... 87. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 10. maí 2002 FÖSTUDACUR Hver er stefnan í menningarmálum? málþinc Stefna í menningarmálum á Norðurlöndum er efni málþings sem verður haldið í Norræna hús- inu í dag. Bandalag íslenskra lista- manna, Norræna húsið og Stofnun Sigurðar Nordals standa fyrir mál- þinginu sem hefst kl. 13.00. Aðalfundur vinnslustöðvarinnar funpur Aðalfundur Vinnsiustöðvar- innar hf., fyrir reikningsárið frá 1. sept. 2001 til 31. des. 2001, verður haldinn í Akógeshúsinu í Vest- mannaeyjum, föstudaginn 10. maí 2002 og hefst hann kl. 1600. [veðWíðTdac] Árni segist saklaus af sextán atriðum Arni Johnsen er sakaður um fjárdrátt, mútuþægni, mútur, umboðssvik og rangar skýrslur til yf- irvalda. Lögmaður hans furðar sig á umfangi ákærunnar. Arni segist hafa gert mistök og aldrei þegið mútur. Hann fékk 650 þúsund krónur fyrir uppáskrift reiknings Þjóðleikhúskjallarans. REYKJAVÍK Norðanátt 8-13 m/s og léttskýjað. Hiti 5 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI ísafjörður O 5-10 Skýjað Q? Akureyri O 5-13 Slydduél Ql Egilsstaðir Q 10-15 Rigning Ö_3 VestmannaeyjarQl 5-13 Léttskýjað Ql Frumsýning í Hafnarfirði leikhús Hafnarfjarðarleikhúsið frumsýnir í kvöld einleikinn Skáld leitar harms eftir Guðmund Inga Þorvaldsson. Leikritið hefst kl. 21.00. Barist um bikarinn hanpbolti Valur og KA eigast við í fimmta sinn í úrslitakeppni ESSO- deildarinnar í kvöld. Valur vann fyrstu tvo leikina og KA næstu tvo leiki. Það lið sem ber sigur úr být- um í kvöld verður íslandsmeistari. Leikurinn fer fram í Valsheimilinu og hefst kl. 20. IKVÖLDIÐ í KVÖLDI Tónlist 16 Bíó 14 Leikhús 16 íþróttir 12 Wlyndlist 16 Sjónvarp 20 Skemmtanir 16 Útvarp 21 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára íbúar á höfuðborgarsvæðinu á fimmtu- 55,70^ dögum? ÉIÉ^8,oo/„ Meðallestur 25 til 39 ára á fimmtudögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá mars 2002 70.000 eintök 70% fólks les blaðið MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I MARS 2002. sakamál Árni Johnsen segist sek- ur um ákveðin mistök við að skammta sjálfum sér laun fyrir nefndarstörf sín og hafnar því al- farið að hafa þegið mútur. Brotin í ákæru ríkissaksóknara á hendur honum, auk fjögurra annarra, varða sektum og allt að 6 ára fang- elsisvist. Ákært er fyrir fjárdrátt, mútuþægni, mútur, umboðssvik og rangar skýrslur til yfirvalda. „Mín mistök fólust í að greiða mér upp í laun með vöruúttektum," sagði Árni í Kastljósi Sjónvarps- ins í gær. Hann hafnaði frekari viðtölum í gærkvöldi. Heildarfjárhæðin sem Árna er gefið að sök að hafa svikið út með einum eða öðrum hætti nemur um 8,3 milljónum króna. Þar er með- talin meint mútugreiðsla til Árna frá þáverandi forsvarsmönnum Þjóðleikhúskjallarans hf. upp á 650 þúsund. Brotin eru tengd störfum Árna sem alþingismaður, formaður bygginganefndar Þjóðleik- hússins og sem formaður bygginganefndar Vestnor- rænaráðsins, Brattahlíðar- nefndar. Árni hefur endur- greitt 3 milljónir og 270 þúsund krónur vegna brota sem hann hefur meðgengið að vera sekur um. Jakob R. Möller, hrl., lögmaður Árna Johnsens, undrast umfang ákærunnar á hendur honum sem Árni Johnsen segir 16 ákæru- atriði af 27 ým- ist beinlínis röng, byggð á misskilningi eða a.m.k. umdeil- anleg. —4__ er í 27 liðum. „í 11 þeirra hefur Árni viðurkennt sök og endurgreitt fé. Þá eru eftir 16 atriði sem að mati Árna eru ýmist beinlínis röng, byggð á misskilningi eða a.m.k. umdeilanleg," sagði hann og sagði þá skyldu hvíla á saksóknara að höfða ekki mál nema að hann telji að gögn málsins leiði til sakfellingar. „Að skrifa upp á reikning í þeirri trú að hann sé réttur er t.d. ekki refsivert." Þá sagði Jakob óumdeilt að Árni hafi tekið við peningum úr hendi forsvars- manna Þjóðleikhúskjallarans. „Hann þvertekur hins vegar fyrir að hafa sett greiðsluna sem skil- yrði fyrir að samþykkja reikning- inn sem þar er um að tefla. Enda er sá reikningur í sjálfu sér óum- deildur," sagði hann. Gísli Hafliði Guðmundsson, vildi ekki tjá sig við blaðamann þegar eftir því var leitað og Björn Kr. Leifsson, oft kenndur við WorldClass, sinnti ekki skilaboð- um. Þeir eru báðir ákærðir fyrir að hafa mútað Árna með 650 þús- und króna fyrir að samþykkja við- haldsreikning Þjóðleikhúskjallar: ans hf. upp á rúmar 3 milljónir. í ákærunni á Árna kemur fram að hann hafi heimtað greiðsluna fyr- ir að samþykkja reikninginn. Frekari umfjöllun er á bls. 8. oli@frettabladid HVfLD FRÁ AMSTRI DAGSINS Þegar hlýnar þá birtast vorfuglarnir í öllum sfnum myndum I höfuðborginni. I sólinni í gasr voru margir á ferlinni. Þessi herramaður hafði tyllt sér á bekk þegar Ijósmyndari átti leið hjá. Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður bjartviðri í höfuð- borginni næstu daga. Lánasjóður ísl. námsmanna: Tekjutenging við maka er afnumin | ÞETTA HELST | Utanríkisráðherra segir niður- stöður könnunar Félagsvís- indastofnunar fyrir forsætisráðu- neytið ekki endanlegt svar um af- stöðu almennings til ESB. Hann segir ekkert óeðlilegt við ólíkar áherslur stjórnarflokkanna í mál- unum. bls. 2. Þrír Afríkubúar sem búsettir eru hér á landi eru ákærðir fyrir að hafa svikið út 11 milljón- ir og gert tilraunir til að svíkja út nokkrar til viðbótar. bls. 4. Mál lögreglumanns sem bland- aði sér í deilur um tölvubún- að er til rannsóknar hjá embætt- inu. bls. 6. Viðræður um lausn deilunnar um Fæðingarkirkjuna fóru út um þúfur. bls. 2. sskeik námsmenn Fulltrúar námsmanna- hreyfinga sem skipta við Lánasjóð íslenskra námsmanna, LÍN, telja að stigið hafi verið stórt skref í áttina að betra lánakerfi með nýj- um úthlutunarreglum sem taka gildi 1. júní n.k. Þessar breytingar náðust fram í þeirri vinnu sem ný- lokið er um endurskoðun á þess- um reglum. Helstu nýmælin eru þau að grunnframfærsla hækkar úr 69.500 í 75.500 krónur á mán- uði, tekjutenging við maka er af- numin og hámark skólagjaldalána verður tiltekið í erlendri mynt í stað krónunnar. Gunnar I. Birgis- son stjórnarformaður LÍN segir NÁMSFÓLK Almenn ánægja virðist ríkja með þessar breytingar sem gerðar hafa verið á úthlut- unarreglum LÍN. að þessar breytingar muni kosta lánasjóðinn um 300 milljónir króna á ársgrundvelli. Þar af legg- ur ríkið fram 150 milljónir króna. Afgangurinn verður fjármagnað- ur með afborgunum af námslán- um. Heiður Reynisdóttir hjá Sam- bandi íslenskra námsmanna er- lendis segist fagna þessum áfangasigri í kjarabaráttu náms- manna. Hún segir að námsmenn hafi byrjað að beita sér fyrir af- námi tekjutengingar maka í fram- haldi af dómi Hæstaréttar í ör- yrkjamálinu. Næsta skref sé m.a. að ná fram hækkun á frítekju- marki námsmanna. Það er um 280 þúsund krónur á námsárinu. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.