Fréttablaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 10. maí 2002 FÖSTUPflGUR | SVONfl ERUIVl VIÐ Þjóðverjar fjölmennastir Gistinætur útlendinga á islandi voru alls 1.146.964 árið 2000 að því er fram kemur í Landshögum 2001. Gistinætur Þjóðverja eru langflestar en næstir þeim eru Bretar og þá Bandarikjamenn. Gistinætur Svía, Frakka, Dana, og Norðmanna fylgja í kjölfarið. Þýskaland: 224.553 WMBWiaBBBBaaBMMMWWMM—T| Bretland: 145.526 Bandaríkin: 123.189 Frakkland: 83.862 Norðurlönd: 261.369 Önnur Evrópulönd: 240.197 Önnur lönd: 68.268 KAUPÞING BANKI Kaupþing á nú 3,31 prósent af heildar- hlutafé bankans. Kaupþing: Aragon yflr- taka stadfest fyrirtæki Endanleg staðfesting á kaupum Kaupþings á sænska verðbréfafyrirtækinu Aragon Holding var staðfest á miðviku- dag. Kaupþing á þá tæp 97 pró- sent í Aragon og hefur tryggt sér kauprétt á 3 prósentum sem eftir standa. Fyrir þá hluti verður gre- itt með reiðufé. Kaupþing greiðir með tæplega 180 milljón hlutum í sjálfu sér. Miðað við gengið 13 er Kaupþing að greiða fyrir hlutinn 2.3 millj- arða króna. Tæplega helmingur hlutanna er bundinn söluhömlum í 12 mánuði. „Kaupin á Aragon eru liður í uppbyggingu Kaupþings banka sem norræns fjárfestingar- banka,“ segir í tilkynningu. ■ 1 ERLENT [ Hollensk hjúkrunarkona hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt 14 manns á fjórum sjúkra- húsum í borginni Haag. Konan, sem er fertug, er sökuð um að hafa myrt 5 börn og 9 aldraða með því að gefa þeim banvænan skammt af lyfjum. Morðin voru framin á fjögurra ára tímabili. —♦— Að minnsta kosti 6 manns létust og tveir særðust alvarlega eft- ir að tveir menn frömdu vopnað bankarán í bænum Mor í Ung- verjalandi. Mennirnir ruddust inn í bankann, skutu úr byssum sínum og komust því næst undan með ótilgreinda peningaupphæð. Landssími íslands: T æp 97 prósent í eigu ríkisins uppcjör Hagnaður Landssíma ís- lands fyrstu þrjá mánuði ársins 2002 voru rúmar 510 milljónir króna. Hagnaður móðurfélagsins fyrir sama tímabil í fyrra var 295 milljónir króna. Ný stjórn Símans hefur aukið afskipti sín í dóttur- og hlutdeild- arfélögum í samræmi við eignar- hluti sína. Segir í frétt frá fyrir- tækinu að sú vinna hafi skilað nokkrum árangri og áfram verði unnið í að bæta afkomu þeirra. Fé- lagið átti eignarhluti í níu dóttur- félögum í lok tímabilsins og nam eignarhlutur þess frá 50 til 100 prósent í einstökum félögum. Áhrif þeirra voru neikvæð um 44 milljónir króna. Eignir félagsins eru um 32.5 milljarðar króna og eigið fé 14.5 milljarðar. Hlutafé félagsins í lok mars 2002 nam 7 milljörðum króna og samkvæmt hluthafaskrá eru skráðir hluthafar 1142. Um 96,6 prósent hlutafjár er í eigu ríkis- sjóðs. Rekstrartekjur móðurfélags- ins á tímabilinu voru um 4 millj- arðar og rekstrargjöld jukust úr 2.4 milljörðum í 2.6 milljarða króna. ■ HÚSNÆÐl LANDSSÍMANS Gert er ráð fyrir 1.8 milljarði í hagnað í ár. Ákærðir fyrir að svíkja út 11 milljónir Þrír Afríkubúar sem hér eru búsettir eru ákærðir fyrir að hafa svikið út 11 milljónir króna og gert tilraun til að svíkja út milljónir í viðbót. Einum þeirra er einnig gefið að sök að hafa ætlað að koma fölsuðum peningaseðlum í umferð. HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Þremur Afríkumönnum er gefið að sök að hafa svikið út 11 milljónir króna úr erlendum bönkum þegar þeir voru hér I fyrra. DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli þriggja Afríkumanna sem ákærð- ir eru fyrir stórfelld fjársvik og skjalafals verður í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir helgi. Mennirnir eru á aldrinum 24 til 33 ára og eru búsettir í Frakk- landi. Þegar þeir voru á íslandi í fyrra náðu þeir að svíkja út jafnvirði 11 milljóna króna úr bönkum í Englandi og Norð- ur-Irlandi. í apríl í fyrra sviku tveir mann- anna út jafnvirði 2,6 milljóna króna út úr Lloyd’s bank- anum í Englandi. Það gerðu þeir með því að senda falsaða milli- færslubeiðni til enska bankans. Beiðnin virtist vera með fyrir- mælum frá reikningseigandanum, fyrirtæki í Surrey, um millifæra jafnvirði ríflega 2,5 milljóna króna inn á reikning annars svika- hrappsins í Landabanka íslands. Tíu dögum eftir þessi svik reyndu mennirnir aftur að svíkja nákvæmlega sömu upphæð út af sama reikningi. Lloyd’s bankinn gerði þá reikningseigandanum viðvart og stöðvaði hann milli- færsluna. Þá eru mennirnir ákærðir fyrir að hafa með sömu aðferðarfræði svikið út jafnvirði nærri 2,9 millj- óna króna út af bankareikningi fyrirtækis í Norður-írlandi. Þetta var í september í fyrra. Þá er einn mannanna ákærður fyrir að hafa um í júní 2001 á sama hátt svikið út jafnvirði 2,5 milljóna króna af bankareikning; um tveggja breskra fyrirtækja. í báðum tilfellum höfðu peningarn- ir verið millifærðir til íslands- banka-FBA áður en upp komst um svikin á síðustu stundu. Pening- arnir voru því aldrei lagðir inn á reikning vitorðsmanns svikarans. Þessum sama manni er gefið að sök að hafa undir höndum þrjá falsaða peningaseðla, tvo hol- lenska og einn þýskan. Ennfremur eru tveir mann- anna ákærðir fyrir að hafa í ágúst í fyrra tvisvar notað sömu aðferð til að fá millifærða upphæð, sam- tals að jafnvirði 5,5 milljóna króna, inn á reikning annars þeir- ra í Sparisjóði Reykjavíkur. Ríkislögreglustjóri krefst að mennirnir verði dæmdir til refs- ingar. Einnig að þeim verði gert að sæta upptöku á tæplega 5,4 milljóna króna bankainnistæðum sem embættið lagði hald á. Þá krefst Northern Bank í Belfast greiðslu 2,8 milljóna króna skaða- bóta. gar@frettabladid.is Tíu dögum eftir þessi svik reyndu menn- irnir aftur að svíkja ná- kvæmlega sömu upp- hæð út af sama reikn- ingi. —--- Mikið úrval r> yníisiiiíjsifj v syá FRÁ AEG ftílasCopce BOSCH /Itlas Copco PES-12T Hleðsluborvél kr. 32.900, AEG KM9I Lágmúla 8 • sími 530 2800 , ..... 1 - V- — — Útgerðarfélagið Fagrimúli áTálknaíirði: Ríkislögreglustjóri ákærir fyrir veiðar án aflaheimilda dómsmál Ríkislögreglustjóri hef- ur ákært útgerðarfélagið Fagra- múla á Tálknafirði og þrjá for- svarsmenn þess og skipstjórnar- menn fyrir landhelgisbrot. Mönnunum er gefið að sök að hafa í júní 2000 haldið á veiðar á dragnótaskipinu Sveini Sveins- syni BA-325 án nauðsynlegs leyfis Fiskistofu. Leyfið hafði runnið út í ágúst árið áður. Aflinn í veiðferð- inni var tæp þrjú tonn af slægðum þorski auk 115 kílóa af slægðum skarkola og lúðu. Þá er þeim gefið að sök að hafa sammælst um að halda skipinu til veiöa á dragnót í atvinnuskyni frá Patreksfirði sex daga í september í fyrra án tilskilinna aflaheimilda. Aflinn var um 5,3 tonn af slægð- um þorsk og um 900 kíló af öðrum tegundum. Ennfremur eru tveir mann- anna ákærðir fyrir að hafa haldið skipinu til veiða tvo daga í sept- ember í fyrra eftir að Fiskistofa svipti skipið veiðileyfi. Krafist er refsingar yfir mönnunum fyrir Fléraðsdómi Vestfjarða og þess að ávinningur- inn af brotunum og veiðarfæri verði gerð upptæk. ■ Gunnvör: Ur tapi í hagnað uppgjör Hraðfrystihúsið Gunnvör skilaði 205 milljóna króna hagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins 2002. Rekstrartekjur félagsins námu 810 milljónum króna sam- anborið við 718 milljónir króna árið áður og jukust um 13 prósent. Rekstrargjöld hækkuðu úr 523 milljónum í fyrra í 571 milljón í ár. Á sama tímabili í fyrra tapaði félagið 17 milljónum. Nettóskuldir félagsins hafa lækkað um 245 milljónir króna; úr rúmum 3 milljörðum í tæpa 2.8 milljarða króna. ■ ÓSKAR STEFÁNSSON. Segist m.a. stunda leigubílakstur sér til framfærslu. Félagsdómur: Uppsögn for- manns Sleipnis fyrir dóm kynnisferðir Bifreiðastjórafélagið Sleipnir hefur krafist þess fyrir Félagsdómi að uppsagnir Óskars Stefánssonar formanns félagsins og annars félagsmanns sem sagt var upp hjá Kynnisferðum um sl. áramót verði dæmdar ómerkar. Málið var dómtekið fyrir skömmu. Búist er við að dómur falli í málinu eftir tvær vikur. Óskar segir að með uppsögnunum hefði fyrirtækið brotið forgangs- réttarákvæði kjarasamninga. Hann segist ekki hafa fengið aðra vinnu við akstur hópbifreiða síðan honum var sagt upp. ■ | INNLENT | s Arni Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, múh opna sýningu á bátasafni Gríms Karlssonar í Duushúsinu á morgun. Safnið verður umgjörð um bátalíkön en þau eiga að segja sögu sjó- mennsku á íslandi. Grímur, sem er fyrrverandi skipstjóri, hefur séð um smíði á líkönunum en Sig- urjón Jóhannsson, leikmynda- smiður er hönnuður sýningarinn- ar. Ríkisstjórnin styrkti safnið um 8,5 milljónir en Reykjanes- bær á það og rekur. ■ Þorbjörn Fiskanes: Methagnað- ur loðnu- skipsins uppgjör Þorbjörn Fiskanes skilaði 479 milljónum króna í hagnað fyrstu þrjá mánuði ársins. Styrk- ing krónunnar hefur skilað^félag- inu 223 milljónum króna Lgengis- hagnað. Hins vegar hafo'útflutn- ingstekjur lækkað. Allir rekstrarþættir fyrirtæk- isins skiluðu góöri^afkomu á tíma- bilinu, segir í tilkynningu, og var met hagnaður af rekstri loðnu- skipsins. Fyrsti og síðasti árs- fjórðungar. ársins skila að jafnaði bestri afkomu hjá félaginu. For- svarsménn segja horfur nokkuð góðar. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.