Fréttablaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 10. maí 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Stjórn FIFA fær nóg:
Sepp Blatter í
lögreglurannsókn
FÓTBom Ellefu af 24 meðlimum
stjórnar FIFA vilja að gerð verði
lögreglurannsókn á meintum
fjársvikum Sepp Blatter forseta.
Chung Mong-joon, varaforseti
sambandsins og yfirmaður HM-
nefndar Suður-Kóreu, er harður á
því að Blatter verði að svara fyrir
sig.
„Herra Blatter verður að
ganga í gegnum ítarlega rannsókn
þar sem skoðuð verður misbeiting
hans á valdi sínu og sjóðum
FIFA,“ sagði Chung. Sex af átta
“i FORMÚLA 1
evrópskum meðlimum stjórnar-
innar eru í hópnum sem vill rann-
sókn. Fjórir frá Afríku. „Búið er
að ráða lögfræðing. Málið er kom-
ið á hreyfingu,“ sagði Chung.
Hann er eini asíski meðlimur
stjórnarinnar í hópnum.
Um síðustu helgi lak út grein-
argerð stjórnarinnar þar sem því
er haldið fram að fjárhagur sam-
bandsins standi völtum fótum.
Þar segir Michel Zen-Ruffinen að-
alritari og góðvinur Blatter hann
hafa sturtað tugum milljarða
SEPP BLATTER
Segir allar ásakanir rógburð.
króna í forseta knattspyrnusam-
bands Mið- og Norður-Ameríku.
Blatter heldur sig við sína
sögu. Þessar ásakanir eru róg-
burður til að grafa undan honum í
kosningabaráttunni á móti Issa
Hayatou. ■
Feyenoord Evrópumeistari:
Hollendingar anda léttar
fótbolti Feyenoord
vann Borussia Dort-
mund 3-2 í úrslitaleik
Evrópukeppni félags-
liða í Rotterdam á mið-
vikudaginn. Úrslitin
eru kærkomin fyrir
Hollendinga. Landslið
þeirra komst ekki á HM
í sumar. Auk þess var
stjórnmálamaðurinn
Pim Fortuyn myrtur á
mánudaginn. Fortuyn
var frá Rotterdam og vildu yfir-
völd borgarinnar því fresta leikn-
um í virðingaskyni. Hætt var við
það.
Feyenoord komst 2-0 yfir í
fyrri hálfleik. Pierre van Hooi-
jdonk skoraði bæði
mörkin. Það fyrra í víti.
Það var dæmt þegar
kempan Jörgen Kohler
braut af sér og var rek-
inn af velli. Þetta var síð-
asti leikur hans fyrir
Dortmund. Þriðja mark
Feyenoord skoraði Dan-
inn Jon Dahl Tomasson.
Hann var einnig að leika
síðasta leik fyrir sitt lið.
AC Milan festi nýlega
kaup á honum.
Eftir leikinn lenti óeirðalög-
regla í vandræðum með rúmlega
200 áhangendur Feyenoord. Þeir
fóru í miðbæ borgarinnar og
brutu allt og brömluðu. ■
FYRSTA MARKIÐ
Pierre Van Hooijdonk
skoraði fyrsta mark
Feyenoord úr víti.
Heimsmeistarinn Michael
Schumacher segist handviss
um að hann eigi eftir að vinna
kappaksturinn í
Austurríki um
helgina. Hann sér
enga ástæðu fyrir
því af hverju hon-
um tekst ekki að
vinna í fjórða
sinn í röð. Af öll-
um 17 brautunum
í Formúlu 1 er
Al-hringurinn í Austurríki sú
eina sem Schumacher hefur
aldrei unnið á. Hann segir F2002-
bílinn hinsvegar svo frábæran að
þessar tölulegu staðreyndir
blikni í samanburðinum.
Yfirmaður Jagúar, Niki Lauda,
sparar sjaldan orðin þegar
hann er spurður. Kallar jafnvel
sinn eiginn bíl
rusl. Þegar fjár-
hagsvandræði
Jordan bárust ný-
lega á góma sagði
hann Eddie Jord-
an eiga að setja
meiri pening í lið-
ið. „Honum finnst
skemmtilegra að
safna skútum en að sinna sínu
eigin formúluliði," sagði Lauda.
Jordan var ekki ánægður með
ummælin: „Honum gengur illa og
er þess vegna að bauna á aðra.
Hann ætti frekar að sinna eigin
starfi," sagði hann.
Frönsku bílaframleiðendurnir
Peugeot ætla ekki að keppa
við erkióvinina Renault í For-
múlu 1 í nánustu
framtíð. Yfirmað-
ur kappaksturs-
mála hjá fyrir-
tækinu sagði það
„heimskulegan
orðróm“. „Það er
ekki stefna fyrir-
tækisins. Ekki í
anda Peugeot. Við
erum ánægðir í rallý. Það er í
anda Peugeot.“
1ÍÞRÓTTIR í DAG|
15.30 Stöð 2
NBA-tilþrif.
18.00 Sýn
Leiðin á HM
(Þýskaland og Saudi Arabia).
18.30 Sýn
fþróttir um allan heim.
19.30 Sund
Ársþing Sundsambands fslands
sett á ísafirði. Þingið stendur
yfir um helgina i boði
Sundfélagsins Vestra.
19.30 Sýn
Alltaf í boltanum.
20.00 Fótbolti
KR og Þróttur Reykjavík
mætast i úrslitaleik
Reykjavíkurmóts meistara-
flokks karla. Leikurinn var
fluttur á Gervigrasvöllinn í
Laugardal.
20.00 _Sýn
Gillette-sportpakkinn.
20.15 Handbolti
Vaiur og KA spila oddaleik um i
slandsmeistaratitilinn i
handbolta.
Auðveldaðu þér leikinn
- með hagstæðu bílaláni
Bílalán er án efa þægilegasta leiðin til að eignast nýjan bíl. Hjá Frjálsa
fjárfestingarbankanum býðst þér 100% bílalán, án útborgunar. Lánið borgar þú
til baka á 96 mánuðum eða skemmri tíma.
lh
afsláttur af tán-
tökugjatdl ef
lántakandi
greiðir í lífeyris-
sparnað hjá
Kaupþingi
í
FRJÁLSI
FIÁRFESTINCARBANKINN
www.frjalsi.is
Dæmi um mánaðarlega meðalafborgun af 1.000.000 kr.
m.v. jafnar afborganir án verðbóta
Lánsupphæð 60 mánuðir 72 mánuðir 84 mánuðir 96 mánuðir
1.000.000 kr. 20.401 kr. 17.612 kr. 15.620 kr. 14.126 kr.
Ef þú kaupir t.d. nýjan
Toyota RAV 4WD, 2,0,
16v* og færð 75%
til 84 mánaða er
lánsupphæðin 1.694.250 kr. Meðalafborgun
á mánuði er þá 26.464 kr.
(1.694.250/1.000.000x15.620 = 26.464)
Ef þú kaupirt.d. nýjan
Toyota Corolla 1,4,
16v* og færð 100%
lánuðtil 96 mánaða ...
er lánsupphæðin 1.599.000. Meðalafborgun
á mánuði er þá 22.587 kr.
(1.599.000/1.000.000x14.126 = 22.587)
•Verð: 2.259.000 kr. skv. verðskrá P. Sam. hf. i apríl 2002
*Verð: 1.599.000 kr. skv verðskré P. Sam. hf. í april 2002
Þú getur reiknað dæmið og sótt um bílalán á www.frjalsi.is eða hjá bílaumboðunum.
Þú getur einnig komið í Sóltún 26, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is og fengið
allar nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum okkar.
1) Lánuð eru 100% af bilverði til allt að 96 mánaða ef bílalánið er með veði í bifreið og bakveði í fasteign. Heildarveðhlutfall fasteignar
með bílaláni má mest vera 90% af verðmæti fasteignar. Bilalán með veði i bifreíð getur numið allt að 75% af kaupverði til allt að 84 mánaða.
Sjá nénarí skilyrði fyrir lántöku á www.frjalsi.is.
ABX / SÍA