Fréttablaðið - 10.05.2002, Side 2

Fréttablaðið - 10.05.2002, Side 2
FRÉTTABLAÐIÐ KJÖRKASSINN 10. maí 2002 FÖSTUDAGUR ÓSAMMÁLA DAVÍÐ Niðurstöðurnur eru ekki í samræmi við skoðanakönnun for- sætisráðuneytið sem kynnt var í vikunni. Ertu hlynnt (ur) aðild íslands að Evrópusambandinu? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is Já 570/0 Nei Spurning dagsins í dag: Er Árni Johnsen fórnarlamb fjölmiðlaofsókna? Farðu inn á vísi.is og segðu þina skoðun NU LEST t»U i RÍT'rABiAÐH) III Útgáfufélag DV: Birtir ekki auglýsingu fjölmiðlar DV neitaði að birta auglýsingu Fréttablaðsins um nið- urstöður fjölmiðlakönnunar Gallup. í auglýsingunni kemur fram að Frétta- blaðið er mest lesna blaðið á höf- uðborgarsvæðinu á virkum dögum. Einnig að lesend- ur DV eru miklu færri en lesendur stóru blaðanna tveggja; Frétta- blaðsins og Morg- unblaðsins. Fréttablaðið pantaði í síðustu viku auglýsingu í DV í gegnum aug- lýsingastofu. Gengið var frá samkomulagi um staðsetningu og verð. Þegar í ljós kom hver auglýsandinn var neit- uðu starfsmenn DV að birta aug- lýsinguna þrátt fyrir að hafa tekið við greiðslu fyrir birtingu hennar. Páll Þorsteinsson, auglýsinga- stjóri DV, bar fyrir sig að DV gæti ekki sannreynt þær upplýsingar sem fi’am komu í auglýsingunni. Upplýsingarnar eru úr fjölmiðla- könnun Gallup. Morgunblaðið birti þessa sömu auglýsingu 14. apríl síðastliðinn. ■ I UPPCJÖR HÆTTULEG AUGLÝSING? Auglýsing frá Fréttablaðinu sem birt var í Morgun- blaðinu en DV vildi ekki birta. Hagnaður Tryggingamiöstöðv- arinnar var 113 milljónir króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. í fyrra var hagnaðurinn 60 milljónir fyrir sama tímabil. Stjórnendur fyrirtækisins telja afkomuna viðunandi. Ágæt af- koma var í slysa- og sjúkratrygg- ingum og ábyrgðartryggingum en talsvert tap í sjó- og farm- tryggingum. Hagnaður var af rekstri ökutækjatrygginga, um 15 milljónir króna, þrátt fyrir að fjöldi slysa og óhappa í umferð- inni það sem af er árinu sé tals- vert meiri en á sama tíma í fyrra. Kópavogur: Astand löggæslu- mála óviðunandi lögreglumál Bæjarráð Kópavogs tekur undir ályktun Landssam- bands lögreglumanna um að ástand löggæslumála í bænum sé óviðunandi vegna þess hve fátt er í lögregluliðinu. Gunnar I. Birgis- son, formaður bæjarráðs, sagði að í framhaldinu hefðu bæjaryfir- völd sent dómsmálaráðherra bréf þar sem óskað væri eftir úrbót- um. Gunnar sagði að ráða þyrfti tvo til fjóra nýja lögreglumenn til þess að ástandið yrði viðunandi. Ekkert annað sveitarfélag væri með fleiri íbúa á bak við hvern lögreglumann. í ályktun Lands- sambands lögreglumanna kemur fram að árið 1984 hafi um 632 íbú- ar verið á bak við hvern lögreglu- mann í Kópavogi, en árið 2000 hafi fjöldi á bak við hvern lög- reglumann verið kominn í 871. Þetta er um 38% aukning og mið- að við aukna fólksfjölgun síðustu ára og fjölgun ökutækja væri GUNNAR I. BIRGISSON Ráða þarf tvo til fjóra nýja lögreglumenn til þess að ástandið verði viðunandi. ástandið óviðunandi. Nýverið skrifuðu bæjaryfir- völd undir samkomulag við dóms- málaráðuneytið og sýslumanns- embættið í Kópavogi um ráðningu sérstaks forvarnarfulltrúa. Gunn- ar sagði að hann myndi eingöngu starfa að forvörnum í grunnskól- um bæjarins. ■ ERLENT Eftir blóðugustu vikuna í sex ára stríði nepalskra skæruliða og þarlendra yfirvalda drógu þeir fyrrnefndu sig í hlé í gær. Þeir tilkynntu um mánaðarlangt vopnahlé. Skæruliðarnir hafa það að markmiði að steypa konungs- stjórninni og dreifa landi til fá- tækra. Harðir bardagar voru á milli skæruliða og Nepalshers í gær og létust hundruð manns í þeim. T\/Tiltisbrandsgró fundust í IVXpósti sem sendur var til bandaríska Seðlabankans. Þetta var tilkynnt í gær. Eitthvað af bréfunum voru stíluð á Alan Greenspan seðlabankastjóra. Málið er í frekari rannsókn. Ekkert óeðlilegt við ólíkar áherslur Utanríkisráðherra segir niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar fyrir forsætisráðuneytið ekki endanlegt svar um afstöðu almennings til ESB. Eðlilegt að spyrja slíkra spurninga en ekki í verkahring utanríkis- ráðuneytis að spyrja í svipuðum dúr. „Ég þekki enga aðra út- reikninga en þá sem koma fram í skýrslu sem tekin var saman fyrir Al- þingi." esb „Það er ekkert óeðlilegt þó flokkar séu með ólíkar áherslur,“ segir Halldór Ásgrímsson, utan- ríkisráðherra, um ólíka afstöðu leiðtoga stjórnarflokkanna til Evrópusambandsins. Hann segir að það hafi ekki haft slæm áhrif á stjórnarsamstarf- ið þó yfirlýsingar hans og Davíðs Oddssonar, for- sætisráðherra um Evrópumál, hafi lýst ólíkum skoð- unum. Mismunandi áherslur leiðtoga ♦... stjórnarflokkanna komu enn í ljós í ræðu forsætis- ráðherra á aðalfundi Samtaka at- vinnulífsins þar sem hann greindi frá niðurstöðum skoðanakönnun- ar sem forsætisráðuneytið hafði látið vinna fyrir sig um afstöðu fólks til Evrópusambandsins út frá gefnum forsendum um galla aðildar. Sagðist Davíð geta fullyrt að íslendingar myndu hafna aðild- arsamningi á þessum forsendum. „Þessi skoðanakönnun gefur ekk- ert endanlegt svar,“ segir utanrík- isráðherra. Hann segir að sér finnist eðlilegt að spyrja svona spurninga og að niðurstaða þess- arar könnunar og annarra sýni að mikið þurfi að ræða þessi mál. Stofnanir sem fjalla um málið verði að kanna það með ýmsum hætti. Aðspurður hvort utanríkis- ráðuneytið muni gera svipaða könnun og forsætisráðuneytið HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Ljóst að niðurstöður kannana geta ráðist af því hvernig er spurt. Mikil vinna er eftir til að geta metið með áreiðanlegum hætti áhrif Evrópusambandsaðildar. með forsendum þeirra kosta sem aðild hefði í för með sér segir Halldór að ekki hafi þótt ástæða til þess. „Við höfum ekki talið það í okkar verkahring." Mat stjórnarleiðtoganna á kostnaði við aðild er ólík. Davíð segir aðild kosta 10 - 12 milljarða án þess að króna kæmi á móti. „Ég þekki enga aðra útreikninga en þá sem koma fram í skýrslu sem tek- in var saman fyrir Álþingi,“ segir Halldór. Þar kemur fram að kostnaður aðildar umfram EES- samninginn næmi 7-8 milljörðum og að á móti kæmu styrkir upp á fimm milljarða. „Það var á engan hátt reynt að mæla önnur áhrif til góðs eða ills. Áhrif hagvaxtar, vaxtamála, verðlags og tolla af sjávarafurðum voru ekki mæld.“ Meiri vinnu þurfi til að geta svar- að því hvaða kostnað og ágóða að- ildar. Fjárlög ESB hafa verið liðlega 1,1% af landsframleiðslu aðildar- ríkja. Það hlutfall má hækka í 1,27% segir Halldór en mikil and- staða hafi verið við það. brynjolfur@frettabiadid.is Á VETTVANGI Rússneskir leyniþjónustmenn rannsaka vettvang sprengingunnar. Börn, hermenn og tónlistarmenn voru á meðal þeirra sem létust í sprengingunni. Rússland: 32 látast í sprengju- tilræði kaspiisk, ap. Að minnsta kosti 32 manns létust og 150 særðust þeg- ar sprengja sprakk í borginni Kaspísk í suðurhluta Rússlands, í grennd Tsjetsjeníu. Sprengjan, sem var fjarstýrð, sprakk í skrúð- göngu á Sigurdeginum svokall- aða, þegar Rússar fagna sigri Bandamanna á nasistum í heims- styrjöldinni síðari. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði engan vafa leika þá því að um skipulagða árás hryðjuverka- manna hafi verið að ræða. Upp- reisnarmenn í Tsjetsjeníu gerðu vörpuðu sprengjum á hátíðarhöld á leikvangnum í Grosný, höfuð- borg landsins. Fjórir lögreglu- menn særðust í þeim. ■ IÖGREGLUFRÉTTIrI Tveir voru handteknir er þeir voru að brjótast inn í íbúð á Skúlagötu rétt eftir miðnætti í fyrrinótt. Voru þeir látnir gista fangageymslur lögreglunnar. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru skemmdir á hurð íbúðarinn- ar einhverjar. Þá voru fjórir öku- menn teknir fyrir ölvun við akst- ur í fyri’inótt. Spjalltorg Regkjavikurlistansí Listasafni Reykjavikur Frítími okkar í borginni Laugardaginn 11. maí klukkan 12.00 Atli Steinn Árnason forstöðumaður Frístunda- miðstövar Gufunesbæjar og Steinunn Valdís Óskarsdóttir formaður ÍTR kynna og fjalla um frístundastarfí borginni. Óskar Dýrmundur Ólafsson formaður SAMFÉS stjórnar umferðinni um torgið. Takið virkan þátt í borgarmálaumræð- unni. Góðar veitingar. WWW.XR.IS • XRiÁXR.IS REYKJAVIKURLISTINN Deilurnar við Fæðingarkirkjuna: Samkomulagi loks náð RIFIST Í BETLEHEM Palestínsk kona þrætir við ísraelskan hermann í Betlehem í gær. Tilraunir til þess að Ijúka fimm vikna umsátri um Fæðingarkirkjuna fóru út um þúfur i gær. jerúsalem. ap. Komist var að sam- komulagi í gær til að ljúka um- sátrinu við Fæðingarkirkjuna í Betlehem. Samkvæmt því verða þrettán Palestínumenn sendir í út- legð. Evrópskir sáttasemjarar höfðu milligöngu um samkomu- lagið. Sumir mannanna verða sendir til Ítalíu og Spánar, hinum * dreift til landa Evrópu. Þetta var | haft eftir ísraelskum og palest- 1 ínskum samningamönnum 1' gær. S Umsátrið hefur staðið í 38 daga | núna. 26 Palestínumenn, sem eru, 5 eins og hinir þrettán, meintir « hryðjuverkamenn, verða fluttir til Gaza-svæðisins. Hinir 80 verða látnir lausir. Skriðdrekar ísraelsmanna stilltu sér upp við Gaza-svæðið í gær. Búist er við árásum ísraela á svæðið, í hefndarskyni fyrir sjálfsmprðsárás Hamas-samtak- anna í ísrael í fyrradag. Palest- ínska lögreglan hóf handtökur liðsmanna samtaka herskárra múslima, í veikri von um að ísra- elar myndu hætta við árásina. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.