Fréttablaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.05.2002, Blaðsíða 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 10. maí 2002 FÖSTUDAGUR Trúnaðarbrot á heilbrigðisstofnunum: Þrjátíu og níu kvartanir á sjö árum 32 fyrirtæki færa bókhald í erlendum gjaldmiðli: Flest færa bókhald í dollurum bókhald Meirihluti þeirra 32 fyrir- tækja sem hafa sótt um heimild til aö færa bókhald og semja árs- reikninga í erlendum gjaldmiðli hafa óskað eftir að færa bókhald sitt í dollurum. Alls hafa 26 fyrir- tæki óskað eftir því að færa bók- hald sitt í dollurum. Fjögur fyrir- tæki hafa óskað eftir því að færa bókhald sitt í dollurum. Þá hefur eitt félag óskað eftir að færa bók- haldið í pundum og annað vill færa bókhald sitt í norskum krónum. ■ Á árunum 1991 til 1997 meint trúnaðarbrot tilefni 2,5 prósents heildarfjölda umkvartana sem Landlæknisembættinu bárust. Eru það 39 tilvik af 1.556 á sjö árum. Haukur Valdimarsson, að- stoðarlandlæknir, segir að u.þ.b. þriðjungur meintra mistaka- mála sé staðfestur að hluta eða að fullu. Hann telur að hlutfallið kunni að vera lægra í trúnaðar- brotum því andlega vanheilt fólk haldið ranghugmyndum kvarti í stundum yfir trúnaðar- brotum sem ekki eigi við rök að styðjast. Nýverið var kvartað yfir trúnaðarbroti á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands á Selfossi þar sem upplýsingar um óléttu stúlku voru taldar hafa komist í almenna umræðu út frá stofnun- HAUKUR VALDIMARSSON Haukur segir að trúnaðarbrot á sjúkrahús- um grafalvarleg brot. Berist embættinu kvartanir er farið fram á skýringar frá við- komandi stofnun. Ekki er hægt að lesa úr samantekt um fjölda kvartana vegna trún- aðarbrota hvort þær eru tlðari á lands- byggðinni eða í höfðuborginni. inni. „Svona ábending er þá til að skerpt er á reglum og málin tekin til umræðu inni á stofnun- um. Vafalaust leiðir það til þess að minni möguleikar eru á að svona gerist,“ sagði Haukur og áréttaði að erfitt gæti verið að henda reiður á hvaðan trúnaðar- upplýsingar sem leka eru komn- ar. ■ Sveitarstjórnarkosningar: Allir í kjöri í 39 sveitarfélögum kosnincar í 39 sveitarfélögum landsins verða allir kjósendur í kjöri til sveitarstjórnar nema þeir hafi sérstaklega beðist undan kosningu eða eru löglega undan- þegnir skyldu til að taka kjöri. Ástæðan er sú að í þessum sveit- arfélögum bárust engir framboðs- listar áður en skilafrestur rann út um síðustu helgi. Sveitarfélögin þar sem allir eru í kjöri eru öll tiltölulega fá- menn. Flestir íbúar eru í Þórs- hafnarhreppi, alls 413. Fámenn- asta sveitarfélagið þar sem allir eru í kjöri er Mjóafjarðarhreppur þar sem íbúar eru aðeins 31. ■ Félagslegar eignaríbúðir: Alþingi samþykkti nýlög húSnæði Á síðustu dögum fyrir frestun alþingis var samþykkt stjórnarfrumvarp til laga um breytingar á lögum um húsnæðismál frá 1998 með síðari breytingum. Þessi lög veita félagsmálaráð- herra heimild til að staðfesta ósk sveitar- félags um að aflétt pétursson frði kaupskyldu og forgangsretti við- komandi sveitarfélags. Þegar sveitarfélag hefur fengið slíka staðfestingu frá ráðherra getur eigandi félagslegrar eignaríbúðar farið fram á að kaupskylda og for- gangsréttur sveitarfélags verði ekki virk. Þar með getur hann selt íbúð sína á almennum markaði. ■ Maður er tekinn eins og einhver kjöttætla Arni segir „fjölmiðlageggjun" síðasta sumars að endurtaka sig varðandi hans mál. Hann segir málið verða rekið fyrir dómsstólum, ekki fjölmiðlum. Tómas Tómasson, hjá ístaki, sem einnig er ákærður segist ekki vita til að hafa brotið lög og undrast ákæruna. kom fram að Árni vill meina að þær sakir sem hann hefur þegar sakawiál „Maður er tekinn eins og einhver kjöttætla," sagði Árni Johnsen í gærkvöldi um atgang fjölmiðla og vildi ekki staðfesta sín eigin orð úr fréttaþáttum sjón- varpsstöðvanna fyrr um kvöldið. „Ég læt ekkert fjölfalda mig á fjölmiðlunum. Þetta er sama geggjun að byrja aftur sem er með ólíkindum," sagði hann. í Sjónvarpinu og á Stöð 2 í gær gengist við og endurgreitt fjár- muni vegna séu vegna sjálftöku launa fyrir nefndastörf hans. „Síðustu sjö árin hef ég engin laun fengið fyrir setuna i byggingar- nefnd, hef gert þau mistök að taka mér laun í formi vöruúttektar," sagði hann í sjónvarpi gær. „í heild eru ákæruatriðin mjög hrá Hugmyndir að nýjum Norðurbakka Norðurbakki ehf. kynnir tillögur úr hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag Norðurbakka Hafnarfjarðar. Sýningin verður öllum opin næstu daga í nýja bókasafninu, Strandgötu 1. ÁRNI JOHNSEN Árni Johnsen sagði að komið væri nóg þegar leitað var eftir viðtali við hann í gærkvöldi. Þá hafði hann verið í fréttaþáttum hjá bæði Sjónvarpi og Stöð 2. frá ríkissaksóknara. 11 eru rétt, átta eru röng, 5 má deila um, 2 eru rangtúlkuð og eitt á þar ekki heima,“ sagði hann en kvaðst ekki vilja fara nánar út i ákæruatriðin. „Málið verður rekið fyrir dóms- stólum, ekki í fjölmiðlum." Ásamt Árna og fyrrum for- svarsmönnum Þjóðleikhúskjallar- ans hf. eru einnig ákærðir Tómas Tómasson, verkfræðingur hjá ístaki, fyrir þátttöku í fjárdráttar- og umboðssvikabrotum og Stefán Axel Stefánsson hjá Forum ehf. fyrir umboðssvik þar sem gefinn var út reikningur fyrir kaffiveit- ingar upp á 169 þúsund krónur. Tómas sagði að ákæran á hendur honum hafi komið á óvart. „Venj- an er sú að sá sem sér um verk annast það sjálfur og þarf ekki að bera undir aðra,“ sagði Tómas að- spurður um hvort aðrir yfirmenn hjá ístaki hafi ekki vitað hvernig staðið var að viðskiptum við Árna Johnsen. Hvað viðskiptareikning sem^ stofnaður var í nafni Árna hjá ístaki í kjölfar timburúttektar í Noregi varðar kvað Tómas það of flókið mál til að fara út í. „Aðal- atriðið er að mér kom mjög á óvart að fá svona ákæru og veit ekki til þess að ég hafi brotið nein lög,“ sagði hann. Ekki náðist í Stefán Axel í gær. oli@frettabladid.is Sveitarstjómarkosningar: ojalikjono 1 sjo sveitarfélögum FRAMBOÐSMÁL Sjálfkjörið verður í sjö sveitarfélögum í kosningum til sveitarstjórna sem fram fara 25. maí n.k. I þessum sveitarfélögum hefur aðeins komið fram einn framboðslisti þrátt fyrir fram- boðsfrestur hefði verið fram- lengdur frá hádegi sl. laugardags til sama tíma sl. mánudag. Þá verða óbundnar kosningar í 39 sveitarfélögum. Þar hafa engin framboð komið fram. Það þýðir að allir kjósendur verða í kjöri í þessum sveitarfélögum nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrirfram skorast undan því með tilkynningu til yfirkjörstjórnar. Athygli vekur að meðal þess- ara sjö sveitarfélaga eru m.a. Raufarhafnarhreppur og Höfða- hreppur á Skagaströnd. Þar er einnig Borgarfjarðarsveit með tæplega 700 íbúa. Hins vegar barst annar framboðslisti til yfir- kjörstjórnar í fjórum sveitarfé- lögum eftir framlengdan fram- boðsfrest. Það var í Djúpavogs- hreppi, Hrunamannahreppi, Kjós- arhreppi og Stöðvarhreppi. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.