Fréttablaðið - 17.05.2002, Side 1
AFMÆLI
Fagna eftir
áratug
FÓTBOLTI
Slæmt
að vera
spáð sigri
bls 12
%
TÓNLIST
Alltafjafn
gaman
bls 16
HEIMAGÆSLA
ÖRYGGISMIÐSTÖÐ ISLANDS
B0RGARTÚN131 • SlMI 530 2400
WWW.0I.IS
FRETTABLAÐIÐ
27,2%
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Föstudagurinn 17. maí 2002
Dæmdur fyrir stórfelldan innflutning á fíkniefnum:
Tíu ára dómur fyrir eiturlyfjasmygl
dómsiviál Hæstiréttur íslands
dæmdi Tryggva Rúnar Guðjóns-
son í 10 ára fangelsi fyrir stór-
felldan innflutning á fíkniefnum.
Tryggvi Rúnar var dæmdur fyrir
innflutning á 16.376 e-töflum, um
59 g af töflumulningi með fíkni-
efninu MDMA, rúmlega 200 g af
kókaíni og rúmlega 8 kg af hassi.
Efnin voru flutt með pósti til
íslands frá Amsterdam og voru
þau falin í hátalaraboxum.
Hæstiréttur taldi sannað að
Tryggvi Rúnar hefði átt frum-
kvæði að innflutningnum, en fyr-
ir rétti sagðist hann hafa talið að
um 12 kíló af hassi væri að ræða,
en ekki önnur efni. Hæstiréttur
taldi að hann hefði haft góða að-
stöðu til að kanna hvers kyns
efnin voru og féllst því ekki á
fullyrðingu hans um að einungis
hefði staðið til að flytja hass inn
til landsins.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi Tryggva Rúnar í 11 ára
fangelsi en Hæstarétti þótti ekki
ástæða til að fara út fyrir 10 ára
refsiramma. Með hliðsjón af skil-
orðsrofi og hinu mikla magni
hættulegra fíkniefna sem hann
flutti inn í ágóðaskyni, þótti hæfi-
leg refsing vera 10 ára fangelsi. ■
1 ÞETTA HELST
Brunamálastofnun segir að
stjórnendur ísfélagsins í
Vestmannaeyjum beri mesta
ábyrgð á eldsvoðanum mikla árið
2000. Stjórnarformaður
ísfélagsins segir það dylgjur og
krefst skýringa bls. 2
Seðlabankinn tilkynnti í gær
um hálfs prósents vaxtalækk-
un og þess er að vænta að vextir
lækki meira. Framkvæmdastjóri
ASÍ vill að viðskiptabankarnir
lækki vextina meira. bls. 4
Sjúkraliðar hafa neikvæða
ímynd af hjúkrunarfræðing-
um að því er fram kemur í nýrri
könnun Sjúkraliðafélags íslands.
bls. 6
Fertugur karlmaður fékk
tveggja ára dóm fyrir að
nauðga konu meðan sonur hennar
svaf í sömu íbúð. bls. 2
1 FÓLK
Aftur í
Þjóðleikhúsið
SÍÐA 22
I ÍÞRÓTTIR
AÐ LEIK VIÐ HÖFNINA Eimreiðin á hafnarbakkanum í Reykjavík getur verið freistandi leikvöllur á blíðviðrisdögum. Það virðist í það
minnsta hafa verið mat þessara pilta sem brugðu á leik og klifu vélina.
SÍÐA 12
Stelpurnar
mæta
Rússum
92. tölublað - 2. árgangur
Fyrirtaka
í Arnamál
dómsmál Mál Árna
Johnsen sem hefur
verið sakaður um
fjárdrátt, mútu-
þægni, mútur, um-
boðssvik og rangar
skýrslur til yfir-
valda verður tekið
fyrir í dag.
IE og stjórnvöld
fundur Mannvernd stendur fyrir
opnum fundi í Odda kl. 17:00 þar
sem f jallað verður um samskipti
íslenskrar erfðagreiningar og ís-
lenskra stjórnvalda frá sjónarhóli
vísinda og vísindafræða, lögfræði-
og viðskiptasjónarmiða.
VEÐRIÐ í DAGl
REYKJAVÍK Hæg austlæg eða
breytileg átt og bjartviðrí.
Hiti 8 til 13 stig að deginum.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Isafjörður © 5-10 Léttskýjað QlO
Akureyri o 5-10 Léttskýjað Ql5
Egilsstaðir O 5-10 Léttskýjað o 15
Vestmannaeyjar Q 5-10 Léttskýjað Q12
Frumsýning
í Hafnarhúsi
heimildaiwynd Heimildamynd Þor-
finns Guðnasonar um Guðjón
Bjarnason listamanna verður frum-
sýnd í Listasafni Reykjavíkur kl.
20:00 í kvöld.
Sviðsverk í beinni
leikrit Örverkið Hringleikur eftir
Guðrúnu Evu Mínervudóttur og
Birtu Guðjónsdóttur verður sett
upp í Portinu, Laugavegi 21, kl.
17.05 í dag. Verkið verður í beinni
útsendingu Rásar 1.
Hjúkrunarfræðin
rannsökuð
kynninc Hjúkrunarfræðideild há-
skólans býður áhugafólki um
hjúkrunarfræði í kynningu í Eir-
berg kl. 13.00. Lokaverkefni BS
nema verða kynnt á rannsóknar-
degi hjúkrunarfræðideildar.
IKVÖLDIÐ í KVÖLD(
Tónlist 16 Bíó 14
Leikhús 16 íþróttir 12
Myndlist 16 Sjónvarp 20
Skemmtanir 16 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára
íbúar á höfuð-.ffi^
borgarsvæð-
inu á föstu-
dögum?
Meðallestur 25 til 39
ára á föstudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
mars 2002
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA
A HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I MARS 2002.
Svarar ekki hvaða
ógn stóð af starfsfólki
Lögregla neitar að gefa uppi forsendur þess að fólk var talið ógna öryggi gesta á Natófundinum
við Hagatorg. Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður, telur löggæsluyfirvöld hafa farið offari.
Persónuvernd hafa ekki borist kvartanir.
lögreglumál Hjá embætti Ríkis-
lögreglustjóra fást ekki upplýsing-
ar um fjölda fólks sem meinaður
_________ var aðgangur að
„Égtel að þarna^yggissvæði
NATO fundarins
. .... Y eða fékk tilmæli
irvold offari og um að mæta ekki
Þau m til vinnu sinnar
skyldu til að (jagana sem hann
gera almenn- 5^55 yftr t>á er ekki
'ng' 8rem fyr|r a svarað spurning-
hvaða forsend- um um hvaða for-
um þetta fólk sendur lágu að
var vahð ur." baki slíkum
ákvörðunum, eða
hvort og þá hvaða persónugögn
voru skoðuð.
Guðmundur Guðjónsson, yfir-
lögregluþjónn hjá embætti Ríkis-
lögreglustjóra, segir að einstak-
lingar sem var meinaður aðgangur
að öryggissvæðinu geti sjálfir
fengið upplýsingar um sín mál hjá
embættinu, en þær verði ekki
veittar fjölmiðlum. „Þetta varðar
ekki stjórnmálaskoðanir og beinist
ekki að ákveðnum hópum, kyn-
þáttum eða þjóðernum. Þetta snýr
eingöngu að því að hver einstak-
lingur er metinn út frá ákveðnum
forsendum sem snúa að öryggisat-
riðum og persónuupplýsingum,"
sagði hann.
„Ég tel að þarna fari löggæslu-
yfirvöld offari og þau hafi brýna
skyldu til að gera almenningi
grein fyrir á hvaða forsendum
þetta fólk var valið úr,“ segir
Ragnar Aðalsteinsson, hæstarétt-
arlögmaður. Hann vill að fram
komi hvers konar athugun hafi
farið fram á starfsfólki Hótel Sögu
og hvaða upplýsingar og gögn
voru lögð til grundvallar við val á
þeim sem taldir voru hættulegir.
„Aðgerðirnar benda til að til séu
skrár hjá lögregluyfirvöldum með
persónulegum upplýsingum um
einstaklinga, sem hefur verið
safnað á undanförnum árum. Hver
sem er getur verið með neikvæða
merkingu á þessari lögregluskrá.
Þar geta verið rangar upplýsingar
og þær kunna að vera notaðar
gegn einstaklingum á ýmsum svið-
um, í andstöðu við þær lýðræðis-
reglur sem við teljum okkur starfa
eftir,“ bætti Ragnar við.
Hörður H. Helgason, yfirlög-
fræðingur hjá Persónuvernd, seg-
ir að ekki hafi borist kvártanir
vegna NATO fundarins. Hann seg-
ir Persónuvernd ekki úrskurða
beint um mál sem snúa að lög-
gæslu, landvörnum, eða slíkum
málaflokkum, heldur beini stofn-
unin athugasemdum til dómsmála-
ráðuneytisins. Hörður benti á að
hver sem er gæti kallað eftir upp-
lýsingum hjá lögreglu, á grund-
velli reglugerðar um meðferð lög-
reglu á persónuupplýsingum, um
hvort eða með hvaða upplýsingar
um viðkomandi hafi verið unnið.
oli@frettabladid.is