Fréttablaðið - 17.05.2002, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
17. maí 2002 FÖSTUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
HEYFENGUR OG UPPSKERA
ÁRIN 1990 OG 2000:*
1990
HEYFENGUR ALIS (m3)
2000
3.256.405 2.363.342
Kartöflur (tonn) 14.893 9.843
Rófur (tonn) 808 795
Korn (tonn) - .041
Tómatar (tonn) 495 931
Agúrkur (tonn) 534 831
*Upplýsingar af vef Hagstofu ísiands.
GAMLA BÓKSAFNIÐ
Ætlunin er að selja gamla bókasafnshúsið
undir (búðarhúsnæði.
Gamla bókasafnshúsið
í Hafnarfirði:
Breytt í
íbúðar-
húsnæði
hafnarfjörður Bæjarráð Hafnar-
fjarðar samþykkti á fundi sínum í
gær að heimila bæjarstjóra að
auglýsa húseignina við Mjósund 12
til sölu undir íbúðarhúsnæði.
Bókasafn Hafnarfjarðar var til
húsa við Mjósund 12. Bæjarráð
samþykkti einnig að 25 milljónir af
söluandvirði hússins fari til kaupa
á húsbúnaði fyrir Víðistaðaskóla.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar
létu bóka að það væri með öllu
óraunhæft að selja gamla bóka-
safnshúsið að óundirbúnu máli og
vilja frekar nýta húsið undir lista-
og menningarstarfsemi. ■
Ný Evrópureglugerð
í smíðum:
Hefiir áhrif
á7000
fyrirtæki
evrópureglur Á þingi Evrópusam-
bandsins er til meðferðar regiu-
gerð um lögleiðingu reiknings-
skilastaðla IAS (International
Accounting Standards). Gerir hún
ráð fyrir að öll skráð félög á al-
mennum verðbréfamarkaði verði
að semja samstæðureikninga í
samræmi við staðlana. í vefriti
fjármálaráðuneytisins kemur
fram að reglugerðin hefði bein
áhrif á um 7000 skráð fyrirtæki
innan ESB. í dag eru tæp 300 sem
færa bókhald sitt samkvæmt
stöðlunum. Um það bil 25 fyrir-
tæki skráð á Verðbréfaþingi ís-
lands gera samstæðureikninga. ■
1 EFNAHAGSMÁL |
Ríkisbókhald heitir nú Fjár-
sýsla Ríkisins samkvæmt
nýjum lögum sem samþykkt voru
á Álþingi í byrjun maímánaðar.
Innan Fjársýslunnar verða því
starfrækt 7 svið í stað þeirra 6
sem voru undir Ríkisbókhaldi.
I^Vefriti fjármálaráðuneytisins
er greint frá því að ræddar séu
leiðir til að draga úr skattahindr-
unum innan ESB. Ólíkar skatta-
reglur hafi slæm áhrif á virkni
innri markaðarins. Helst er horft
til að fyrirtæki verði skattlögð
þar sem höfuðstöðvar þess eru,
eða á sameiginlegum skattgrunni.
Lögregla hættir rannsókn vegna birtingar upptaka úr flugturni:
Flugumferðarstjórar íhuga
kæru til Ríkissaksóknara
lögreglumál Lögreglan í Reykja-
vík hefur hætt rannsókn á til-
drögum þess að feður tveggja
fórnarlamba Skerjafjarðarslyss-
ins fengu að hlusta á upptökur af
samskiptum flugturns og flug-
véla kvöldið sem slysið varð.
Félag íslenskra flugumferðar-
stjóra kærði það að Flugmála-
stjórn leyfði feðrunum að hlusta
á upptökurnar. Feðurnir fengu
einnig að skoða radargögn.
Flugumferðarstjórar vildu
einnig að rannsakað yrði hvernig
FLUGTURNINN i REYKJAVÍK
Faðir eins fórnarlambs vill hlýða aftur á
upptökur. Því hefur ekki verið svarað.
útskriftir af upptökunum komust
í hendur fjölmiðla.
Loftur Jóhannsson, formaður
félags flugumferðarstjóranna,
segir þá ósátta. Verið sé að mis-
nota upptökurnar. Honum sýnist
eini möguleikinn nú felast í kæru
til Ríkissakskóknara.
í ljósi þessarar niðurstöðu lög-
reglunnar hefur annar feðranna
óskað eftir því, fyrir sína hönd og
fleiri, að fá að hlýða aftur á upp-
tökurnar og skoða radargögnin.
Hann biður um víðtækari aðgang
en áður var veittur.
Loftur segir ólíklegt að
Flugmálastjórn leyfi það. ■
nr mein
Sedlabankinn tilkynnti um vaxtalækkun í gær. Á næstu mánuðum er
gert ráð fyrir að vextir lækki enn frekar. Bankar og sparisjóðir eiga að
lækka vexti sína enn frekar segir framkvæmdastjóri ASI.
vaxtamál Bankastjórn Seðlabank-
ans tók í gær ákvörðun um að
lækka vexti um hálft prósentustig
frá og með þriðjudegi í næstu
viku. Þetta er önnur vaxtalækkun
^ Seðlabankans á
„ tæpum tveimur
Segir Gylfi að mánuðum upp á
standi upp a samtais i;3 prð-
viðskipta- sentustig. Alls hafa
banka og vextir lækkað um
sparisjóði að 2,1 prósentustig frá
skila þessari þvl' f nóvember á
lækkun til við- síðasta ári. Útlit er
skiptavina fyrir að vextir eigi
sinna. eftir að lækka enn
—♦— frekar eftir því sem
líður á árið. Forsenda fyrir því er
að verðbólgan haldist niðri líkt og
verðbólguspár gera ráð fyrir.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
íslands segir vaxtalækkunina til
marks um að komin sé meiri ró á
verðlagsbreytingar. „Þetta er
áfangi á för til þess að vaxtastigið
hér á landi verði samkeppnishæf-
ara við nágrannalönd okkar.“ Á
næstu fjórum mánuðum ættu
stýrivextir að geta lækkað niður í
fimm til sex prósent. Nú segir
Gylfi að standi upp á viðskipta-
banka og sparisjóði að skila þess-
ari lækkun til viðskiptavina sinna.
Þeir ættu raunar að ganga skref-
inu lengra en Seðlabankinn enda
hafi afkoma þeirra sýnt að þeir
væru fyllilega aflögufærir að
lækka vexti sína um fram vaxta-
lækkun Seðlabankans.
„Þessi vaxtalækkun Seðla-
bankans núna er í samræmi við
það sem ég hef talið að mætti bú-
ast við,“ segir Ari Edwald, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins. Ari segist hafa trú á að
framhaldið sýni að verðstöðug-
leiki hafi náðst. Slíkt leiði til þess
að forsenda sé fyrir frekari vaxta-
lækkanir á árinu. Aðspurður
hversu mikið hann sjái fyrir sér
að vextir lækki lækkað um tvö
prósentustig það sem eftir er af
árinu.
Bankastjórnir íslandsbanka og
SEÐLABANKINN
Seðlabankinn hefur lækkað vexti sina
um 2,1 prósentustig frá þvi I nóvember
á síðasta ári.
Landsbanka brugðust við vaxta-
lækkun Seðlabankans í gær með
því að tilkynna að bankarnir
myndu lækka vexti til samræmis
við lækkun Seðlabankans.
brynjolfur@frettabladid.is
. :.ú Samkeppnisstofnun fylgist með þróun grænmetisverðs
arangn
GRÆNMETISVERÐ Aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar í febrúar hafa,
samkvæmt verðkönnunum Sam-
keppnisstofnunar, skilað sér í
verðlækkunum á grænmeti og
ávöxtum. íslenskar agúrkur hafa
lækkað mest, einnig blómkál,
spergilkál, ísbergssallat, kínakál,
blaðlaukur, sellerí og paprikur.
Meðalverð á íslenskum tómötum
var nær óbreytt frá því í febrúar
þegar könnun var gerð en kíló-
verð á þeim hefur farið lækk-
andi. Þá hefur meðalverð á flest-
um ávaxtategundum lækkað,
mest á bláberjum, vínberjum og
jarðarberjum.
Samkeppnisstofnun hefur gert
reglulegar verðkannanir til að
fylgjast með verði á grænmeti og
ávöxtum síðan tollar voru lagðir
niður. Fyrsta könnunin var gerð
TOLLALAUST GRÆNMETI
Meðalverð á íslenskum tómötum vaf nær óbreytt frá því í febrúar þegar könnunin var
gerð en kílóverð á þeim hefur farið lækkandi síðan.
fyrir afnám tolla í 12 matvöru-
verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu. Meðalverð úr þeirri könnun
hefur verið notað til samanburð-
ar á verðþróun á þessum mark-
aði. Þess ber þó að geta að verð á
grænmeti og ávöxtum er sveiflu-
kennt og ræðst af verði á erlend-
um mörkuðum, uppskeru og árs-
tíma. ■
Særði blygðunarkennd
stúlkna:
Fór úr
sundskýlu í
heitum potti
hæstiréttur Hæstiréttur dæmdi í
gær karlmann til að greiða 60 þús-
und krónur í sekt ellegar sæta 14
daga fangelsi fyrir að hafa sært
blygðunarsemi þriggja ellefu ára
stúlkna í Sundhöll Reykjavíkur
haustið 2000.
Maðurinn girti niður sundskýlu
sína í heitum potti fyrir framan
stúlkurnar og handlék lim sinn.
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur, sem kveðinn
var upp 19. nóvember 2001. ■
Tillaga að nýrri sundlaug
í Hafnarfirði:
50 metra
innilaug
sundlaug Nefnd á vegum Hafnar-
fjarðarbæjar hefur lagt fram til-
lögu til bæjarstjórnar að nýrri yf-
irbyggðri 50 metra sundlaug vest-
an íþróttamiðstöðvar Hauka að
Ásvöllum. Sundlaugin er hugsuð
til æfinga og keppni, til skóla-
sundskennslu og með aðstöðu fyr-
ir almenning. Samkvæmt tillög-
unni er mannvirkið í heild tíu til
tólf þúsund fermetrar og verður
sundlaugin samkvæmt stöðlum
alþjóða sundsambandsins. Tillag-
an gerir ráð fyrir heitum pottum,
sólbaðsaðstöðu, gufuböðum og
vatnsleiktækjum. ■
' ■ —
Bessastaðahreppur:
Skatttekjur
aukast
sveitarfélag Skatttekjur Bessa-
staðahrepps jukust um tæp 33
prósent milli áranna 2000 og 2001.
Afgangur sveitarfélagsins eftir
almenn rekstrargjöld var 85,6
milljónir króna. Það er um 80 pró-
sent betri afkoma en árið 2000.
Heildarskuldir jukust um 150
prósent milli áranna 1999 og 2000
en uxu lítið síðasta árið. í lok árs
skuldaði Bessastaðahreppur tæp-
ar 602 milljónir. Það eru 346 þús-
und krónur á hvern íbúa hrepps-
ins. Árið 2000 voru skuldir á
hvern íbúa 379 þúsund krónur. ■
STUTT
Háttsettur bandarískur erind-
reki segir að írakar séu al-
varlega að íhuga að hleypa vopna-
eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóð-
anna aftur inn í landið eftir þrigg-
ja ára bann þess efnis.
Bændur á Sikileyju á Ítalíu
höfðu uppi mótmæli í
þónokkrum bæjum í gær þar sem
þeir kröfðust þess að stjórnvöld í
landinu aðstoðuðu þá vegna vatns-
skorts sem verið hefur á eyjunni.
í mótmælaskyni voru dráttarvélar
og kýr notaðar til að setja upp
vegartálma.
Ríkisstjórn Svíþjóðar sagðist í
gær ætla að staðfesta Kyoto-
loftslagssáttmálann um losun
gróðurhúsalofttegunda og jafn-
framt halda áfram að reyna að fá
bandarísk stjórnvöld til að stað-
festa sáttmálann. Sænska þingið
samþykkti staðfestingu sáttmál-
ans þann 6. mars síðastliðinn.
Bruni varð í bílskúr á Gufunes-
vegi skömmu eftir miðnætti í
fyrrinótt. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík gekk vel að slökkva
eldinn, sem talið er að hafi komið
upp af völdum sígarettuglóðar.
Engan sakaði í eldinum.
Bílvelta varð á Miðnesheiði um
eittleytið í fyrrinótt. Engin
slys urðu á fólki. Að sögn lögregl-
unnar í Keflavík missti ökumað-
ur stjórn á bílnum. Ekki er talið
að hraðakstur hafi valdið slysinu.